Þjóðviljinn - 22.11.1964, Page 3

Þjóðviljinn - 22.11.1964, Page 3
Sunnudagur 22. nóvember 1964 ÞIÓÐVILJINN SlÐA 3 Taka verðnr grundvallaratriði lög- gjafarinnar um skatta og útsvör til gagngerrar endurskoðunar hið fyrsta SAGÐI LOÐVIK JYSEPSSON I FRAMSÖGURÆÐU SINNI FYRIR FRUMVARPINU UM ENDURÁLAGNINGU GJALDA 1964 Frá því var greint í ÞJÓÐVILJANUM á föstudaginn, að tekið hafi verið til fyrstu umræðu á Alþingi frumvarp Alþýðubandalagsins um endurálagningu opinberra gjalda 1964. Lúðvík Jósepsson flutti'framsögu fyrir málinu og fer hér á eftir stutt ágrip af ræðu hans. Ný bök, sem máli skiptir fyrir sérhvern einstakling-: Lúðvík sagði, að frumvarp þetta gerði ráð fyrir, að tekju- skattur og útsvör frá árinu 1964 yrðu endurálögð og farið eftir reglum, sem giltu árið 1960, þó þannig að gjaldstig- ar þeir verði umreiknaðir sam- kvæmt breytingum á verðlags- vísitölu á tímabilinu frá 1960.' Þá ræddi hann nokkuð hversvegna lagt er til að stuðst verði við gjaldstigana frá 1960. Árið 1960 gerði núverandi rík- isstjórn umfangsmiklar breyt- ingar á efnahagsmálum lands- ins t.d. á skatta og tollainn- heimtu, söluskattar voru stór- hækkaðir, tollar hækkaðir verulega með hinni miklu gengisbreytingu og svona mætti lengi telja. Þá var tekjuskattsstigi hækk- aður verulega, þá fengu þæj- ar- og sveitarfélög hluta af söluskatti, sem átti að vera til að lækka útsvörin almennt. Um það hefur ekki verið deilt, s.agði Lúðvík, að á ár- inu 1960 urðu verulegar lækk- anir á tekjuskatti og útsvör- um einstaklinga. Síðan 1960 hafa ýmsar breytingar verið gerðar, og því alltaf haldið fram að þær væru til lækk- unar. En almenningur hafi verið á annarri skoðun. Álög- urnar hafi stöðugt verið að þyngjast og síðastliðið sumar hafi keyrt um þverbak. Þá sagði Lúðvík, að orsökin til að álögurnar hafa þyngzt svo verulega væri dýrtíðin. Hún hefði verið hinn raun- verulegi hækkunarvaldur. Tekjur manna hefðu hækkað í krónum án þess að kaup- máttur teknanna hefði raun- verulega hækkað. Þetta hefði leitt til þess að hinar almennu launatekjur hefðu færzt ofar i skattstigann. Það er talið, að hækkun hafi - ekki orðið ýkja mikil 1961 og heldur ekki árið 1962, en að á árunum 1963 og á yfirstand- andi ári 1964, hafi hækkunin af fyrrgreindum ástæðum orðið allveruleg, sagði ræðu- maður. Auðvitað mætti deila um, hvort gjaldstigarnir frá 1960 hafi verið sanngjarnir í öllum greinum og þar væru alþing- ismenn ekki sammála. En ó- neitanlega væri þessi gjald- stigi sá hagkvæmasti, sem f gildi hefði verið hér á landi í langan tíma og þess vegna væri full ástæða til að nota hann til viðmiðunar þar sem hann væri embættismönnum skattayfirvaldanna kunnur og því auðvelt fyrir þá að vinna eftir. Ekki sagði ræðumaður á- stæðu til að rekja ítarlega or- sakirnar til þess að frumvarp þetta er flutt. Þær væru öll- um kunnar. ’ T.d. hefði fram- sögumaður fyrir frumvarpi Framsóknar um svipað mál gert grein fyrir ástandinu hér í Reykjavík síðastliðið sumar, er allir gjaldendur hefðu lokið upp einum munni um hinar s.vívirðulegu álögur úr hvaða flokki sem þeir væru. öll þjóð- in hefði tekið undir þennan harmagrát. Meira segja hefði ríkisstjórn- in látið sér segjast og skipað nefndir til að hugleiða þessi mál og hafi þvf almenningur jafnvel gert sér vonir um það á þessu þingi, að skattabyrð- ---------------------------------- FOTIN FRÁ Lúðvík Jósepsson. arnar á baki þeirra yrðu eitt- hvað léttar. Þá fór Lúðvík nokkrum orð- um um frumvarp það, sem Framsóknarmenn flytja á Al- þingi um lækkun skatta. Sagði hann að Alþýðubandalags- menn gætu ekki sætt sig við það frumvarp m.a. vegna þess að þar er lagt til að öll álögð útsvör einstaklinga verði lækk- uð um 20%. Þetta gæti engan veginn komið rétt út þar sem ýmis sveitarfélög hefðu gefið mjög mikinn afslátt á s.l. sumri. Þess vegna væri að öllu leyti eöliltgra að miða við það, sem Alþingi hefði áður samþykkt og viðkomandi staðir, sveitar- félögin, hefðu áður miðað við, og væri þetta því hentug bráðabirgðaráðstöfun til þess að grípa til. Þá kvaðst hann búast við þeirri viðbáru frá stjórnarlið- iriu, að þessi endurálagning yrði býsna mikið verk. En við álitum, að það sé fyrir- sláttur einn. Þegar framtöl einstaklinga Iiggja fyrir fullaf-^ greidd hjá skattayfirvöldunum, og aðeins þarf því að end- urútreikna skattinn samkvæmt áður ákveðnum skattstiga, er slík endurálagníng engin frá- gangssök" sagði ræðumaður. Reyndar væru framtölin mörg gölluð en ekki væri unnt að taka tillit til þess við slíka bráðabirgðalausn, sem þetta frumvarp fæli í sér. Hann minnti þessu næst á tillögu, sem Alþýðubandalagið flutti á síðasta Alþingi um breytingu á eftirliti með fram- tölum, en slíkt eftirlit hefði fyrst gildi ef það hefði verið samþykkt á Alþingi áður en skattayfirvöld fengju framtölin í sínar hcndur. Það væri þvf auðvelt að framkvæma endurálagninguna, en aðalatriðið væri náttúrulega, að um þetta atriði næðist sam- komulag á hinu háa Alþingi. Þetta frumvarp mundi hafa í för með sér verulega lækk- un á álögðum gjöldum. Lækk- unin mundi að vísu vera afar misjöfn eftir því hvar er því mismunandi útsvarsstigar hafa verið lagðir til grundvallar. Þá tók Lúðvík dærrji úr þeim samanburði, sem er f greinargerð frumvarpsins og hefur verið birtur hér í blað- inu áður. Samkvæmt gildandi tekjuskattsstiga og útsvarsstig- anum í Reykjavík mundu t.d. hjón mcð tvö börn og mcð 180 þús. króna tekjur hafa skv. frumvarpi Alþýðubanda- lagsins 29.049 í útsvar cn 3.570 í tekjuskatt. Sama fjöl- skylda með sömu laun hefur nú 33.205 kr. í útsvar en 11.009 kr. í tckjuskatt. Þá sagði ræðumaður orðrétt: „Hér er því augljóslega um all verulega lækkun að ræða frá þeim gjöldum, sem álögð voru nú á þessu sumri. En mismunurinn, sem kemur fram í þessu dæmi, er um leið vísbending um, hvernig þessi gjöld hafa hækkað umfram þann grunvöll, sem lagður var árið 1960 með lögum frá AI- þingi um það, hvernig verð- bólgan hefur verið látin hækka gjöldin á sambærilegum tekj- um. Og þá kemur í ljós m.a. í þessu dæmi, að tekjuskatt- urinn hefur hækkað miklum mun meira skv. leið dýrtíðar- innar heldur en útsvarið, Tekjuskattur, sem hefði átt að vera 3570 kr. hefur nú orðið 11.009 kr. Dýrtíðin hefur séð um þcssa hækkun. En um nokkra hækkun hefur líka ver- ið að ræða beint af völdum dýrtíðarinnar á útsvarinu, en ekki eins mikla. Á það hefur verið bent, m.a. í stuðnings- blöðum ríkisstjórnarinnar að tillaga okkar Alþýðubandalags- manna samkvæmt þessu frum- varpi miði að því að lækka meira gjöldin á hátekjumönn- um heldur en á almennum launþegum og dæmi hafa síð- an verið tekin um það, hve mikið gjöldin lækkuðu t.d. á fjölskylduhjónum með tvö •börn, sem hafa 220 þús. í tekj ur og svo afur í hinu tilfell- inu, hjónum, sem hafa aðeins 90 eða 120 þús. kr. tekjur. Eg tel, að þessar athuga semdir, sem fram hafa komið bæði í Alþýðublaðinu og Vísi, séu alveg fráleitar. 1 fyrsta lagi er þess ekki gætt, að hin ar almennu launátékjúr eru, sem betur fer ekki orðnar 90 þús. kr. á ári. Þær eru orðnar allmiklu meiri, og það eru ein mitt þeir launþegar, sem nú hafa 150—200 þús. kr. og verða Framhald á 9. síðu. Þetta er bók fyrir kynþroska fólk. Á meðal undirstöðuhlutverka fjölskyldunnar er að sjá um endurnýjun og viðhald kynstofnsins og barnauppeldið. Frjóvgun, barnsfseðing og bama- uppeldi eru því fyrst og fremst fjölskyldumálefni. — En hvenær á f jölskvldan að stækka og hversu stór á hún að verða? Á hverjum degi vaknar sú spurning hjá miklum hluta þjóðarinnar, hvort innilegustu samskipti karls og konu eigi að leiða til þungunar, barnsfæðingar, fiölskvldustækkunar. Bókin FJÖLSKYLDUÁÆTLANIR OG SIÐFHÆÐI KYNLÍFS, eftir Hannes Jónsson, félagsfræðing, fjallar á heilbrigðan hátt um þessi mál, þ.á-m. um fiölskylduáœtlanir, frjóvgunarvarnir og siðfrœöi kynlífsins. — í bókinni eru um 60 líffæramyndir og myndir' af frióvgunarvörnum- Bókin fæst hiá flestum bóksölum en einnig beint frá útgefanda. FÉLAGSMÁLASTOFNTJNIN, Pósthólf 31, Reykjavík, sími 40624. PÖNTUNARSEÐILL: Sendi hér með kr. 150,00 til greiðslu á einu eintaki af bókinni Fjölskylduáætlauir og siðfræði kynlífs, sem óskast póstlagt strax. Nafn: Heimili: LARK sígarettan með þreíalda fílternum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.