Þjóðviljinn - 25.11.1964, Side 2
2 SÍÐA
ÞJ6ÐVILJ1NN
Miðvikudagur 25. nóvember 1984
5
I
HERBERGI
ÓSKAST STRAX!
Uppl. í síma 17-500
l
l
v/////y/////////////////////////s/////////œw//^^^^
Lausar stöður
Störf innheimtustjóra og bókara við sakadóm
Reykjavíkur eru laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um ménntun og
fyrri störf sendist fyrir 1. desember n k. til skrif-
stofu sakadóms að Borgartúni 7, þar sém géfnar
eru, nánari upplýsingar um störfin.
Yfirsakadómari.
Kona óskast
til starfa í kaffistofu starfsfólks Þjóðvilj-
ans .— Upplýsingar á skrifstofu blaðsins,
DiomnuiNN
Skólavörðustíg 19. — Sími 17-500.
Verzlunarfólk
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur efnir til
félagsfundar í Lídó fimmtudagiiin 26. nóv.
n.k. kl. 20.30, vegna nýrra viðhorfa í af-
greiðslutíma verzlana.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
vandlátir
velja
Westinghouse
CP
sa
=3
CTQ
tn
CD
(§)
f
t
o
3e grillofn »
@Westinghouse@Westinghouse@
Nauðungaruppboð
verður haldið í skrifstofu borgarfógetaembættisins
að Skólavörðustíg 12, hér í borg, eftir kröfu Sig-
urgeirs Sigurjónssonar hrl. og Gjaldheimtunnar í
Reykjavík, föstudaginn 27. nóv. n.k. kl. 3-30 e.h.
Selt verð'ur skuldabréf, tryggt með 4. veðrétti í II.
hæð hússins nr. 45 við Bergstaðastræti, hér í borg,
að fjárhæð kr 90 þús. talinn eigandi Hafsteinn
Hjartarson, Hlíðarvegi 36, Kópavogi, og óveðtryggt
skuldabréf útf. af Helenu Zoéga, að eftirstöðvum
kr. 48.000,00 talinn eigandi Ólafur Guttormsson,
Stýrimannastíg 3, hér í borg.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Heiftarlegir árekstrar innan bæjar-
stjórnarmeirihlutans á Siglufirdi
I desember í fyrra fóru fram
samningar milli Starfsmanna-
félags bæjarins og bæjar-
stjórnar Siglufjarðar. Þeir
samningar urðu tilefni þess,
að bæjarráð og bæjarstjórn
tók að hugleiða, hvort ekki
mætti spara í starfsmanna-
haldi, þar sem í ljós kom, að
starfsmannahald hafði fremur
aukizt en dregizt saman, á
sama tíma og íbúum bæjarins
hafði fækkað verulega. Var
samþykkt í bæjarráði og bæj-
arstjóm tillaga um að láta fara
fram allsherjarathugun á
starfsmannahaldi og skipan
starfa með vinnuhagræðingu
og sparnað fyrir augum. Þá
kom í Ijós, að erfitt og í sum-
um tilfellum er ómögulegt að
gera breytingar nema segja
starfsmönnum upp, þar sem
þeir höfðu allir erindisbréf,
sem takmarka rétt bæjaryfir-
valdanna til að færa þá til í
störfum, og var þvl horfið að
því ráði að segja þeim öllum
upp. Var samþykkt um það
gerð í febrúar s.l., og skömmu
síðar kosin fjögurra manna
nefnd til að gera tillögur um
breytingar.
Starf skipulags-
nefndarinnar
Af sterfi þessarar nefndar, sem
bæjarstjórinn var formaður
fyrir, er það að segja, að starf
hennar gekk bæði seint og illa.
Álit, sem hún átti að skila
fyrir 1. júlí, lá ekki fyrir fyrr
en seint f október. Á meðan
gerðist það, að bæjarstjóri tók
að senda uppsagnarbréf til
starfsmanna, og fórst það með
eindæmum klaufalega úr
hendi, m. a. sendi hann upp-
sagnarbréf ýmsum mönn-
um, sem bæjarstjórrí hefur
alls ekkert vald til að segja
upp störfum. Gekk sú sagá
hér í bænum um tíma, að
hann hefði m.a, sent presti
og bæjarfógeta staðarins slík
bréf, sem þó mun vera rang-
hermi. En hitt er staðreynd,
að hann sendi umsjónarmanni
Gagnfræðaskólans, sem ráð-
inn er af skólastjóra, og lög-
regluþjónunum, þ. á m. ein-
um ríkislögregluþjóni, upp-
sagnarbréf. Mun bæjarfógeti
hafa tekið þetta tiltæki bæi-
arstjóra óstinnt upp, sem von-
legt var, þar sem hann mun
hafa talið sig húsbónda lög-
reglunnar. Þá vanrækti bæjar-
stjóri að hafa samráð við yf-
irmenn bæjarstofnana, sem
ekki heyrðu beint undir hann,
m. a. átti fræðsluráð og skóla-
stjóri Bamaskólans í langvar-
andi útistöðum við hann út
af starfsfólki skólans, leiddu
þær deilur til þess, að umsjón-
armaður skólans lét af starfi
hér, en tók að sér samskon-
ar starf, en mun betur launað,
suður á landi. Ennfremur
hlauzt af þessu stöðvun á
starfi skólans um nokkurt
skeið í september.
Álit skipulags-
nefndarinnar
Seint í október lágu þó fyr-
ir, eins og áður segir, tillögur
skipulagsnefndarinnar. Hafði
hún klofnað og skilað tvenns-
konar tillögum. Skylt er að
geta þess, að þrír nefndar-
manna lögðu sig mjög í líma
til að ná samstöðu og fórnuðu
í þeim tilgangi ýmsum sér-
sjónarmiðum, en bæjarstjór-
inn spillti þeim tillögum jafn-
harðan og kúgaði miskunar-
laust ihaldsfulltrúann í nefnd-
inni, Einar Hauk Ásgrímsson.
Bæði tillögur meirihlutans
og minnihlutans gerðu ráð fyt-
ir sparnaði í sumum greinum
með samfærslu og hagræðingu,
og studdust báðar við tillögur
á ábendingar hr. Hjálmars
Blöndals hagsýslustjóra Rvík-
ur, sem fenginn hafði verið
nefndinni til ráðuneytis um
þessi mál.
Aðalmismunurinn á tillögum
meirihlutafulltrúanna og minni-
hlutafulltrúanna í skipulags-
í minnlngu Ólafs Friðríkssonar
Þögnuð er rödd, sem fór með eld í orðum,
ólgandi róti kom á djarfra hug
og ýtti við þeim íhaldssömu forðum
með,yljandi. raustjog skáldlegt hugarflug.
Þögnuð er rödd er þráði sannleik meira
en þýsins smánarlaun. Nær fáum við
svo ákveðna rödd um réttlætið að heyra,
að rótarslitið skjálfi auðvaldslið.
Rödd er svo fast gegn ránglætinu snerist,
að rakin skál um aldir minning þess?
Enn er þörf, að boðskapur sá berist
böðlum þeim, er skipa háan sess.
Enn geymir varglynd veröld nóg af harmi,
við söknum manns, er kunni á rökum skil
og skynjaði innst í sínum eigin barmi
andvarp sérhvers /lífs, er finnur til.
Jón frá Pálmholti.
nefndinni lá í því, að minni-
hlutinn vildi láta flytja einn af
starfsmönnum rafveituskrif-
stofunnar til starfa á bæjar-
skrifstofunni ásamt bókhaldi
rafveitunnar, sem gert var ráð
fyrir að færi fram í bókhalds-
vélum bæjarins, en tillögur
bæjarstjóra og íhaldsmanns-
ins f nefndinni gerðu ráð fyr-
ir, að rafveituskrifstofan með
öllu starfsfólki yrði flutt inn
á bæjarskrifstofuna og sett
undir stjóm bæjarstjóra.
Ferðin sem aldri var
farin
Hinn 3. nóvember var boðað
til bæjarstjórnarfundar, og
skyldi nú gert út um þessar
tillögur. Gerðu flestir ráð fyrir,
að tillögur meirihlutans yrðu
samþykktar óbreyttar, samkv.
venju, en það hefur verið föst
regla meirihl. að taka aldrei
til áthugunar, hvað þá til
greina breytingártillögur minni-
hlutans við tillögur, sem
meirihlutinn hefur verið búinn
að koma sér saman um, og
hefur bæjarstjórinn haft for-
göngu um þessa afstöðu. En
nú brá svo viö, að þegar full-
trúar minnihlutans mættu til
fundar í bæjarþingsalnum á
boðuðum fundartíma, var eng-
inn meirihlutamaður mættur
þar, en meirihlutinn sat þá á
klíkufundi í skrifstofu bæjar-
stjóra. Leystist sá fundur fljót-
lega upp sökum óeiningar, og
mun ástæðan hafa verið sú,
að nú voru komnir tveir tígul-
kóngar í spilin, þar sem áður
hafði aðeins verið einn. Mun
forseti bæjarstjórnar, sém
einnig er formaður rafveitu-
nefndar, hafa dregið 1 efa getu
sfns elskulega vinar bæjar-
stjórans til að bæta á sig
stjóm rafveitunnar að ein-
hverju leyti, og e.t.v. óttazt að
rafveitusjóðsins kynnu að bíða
sömu örlög og hafnarsjóðs,
sem bæjarstjóri hefur gert að
rekstrarfé bæjarsjóðs. Lauk
klíkufundi þessum á því, að
forseti bæjarstjórnar rauk í
burt í fússi, en minnihlutafull-
trúarnir yfirgáfu fundarstað
eftir hálftíma árangurslausa
bið eftir honum og meirihluta-
fulltrúunum.
Nýjar tillögur
Fyrra föstudag var svo aft-
ur boðað til bæjarstjómar-
fundar. Á þeim fundi báru
fjórir meirihlutafulltrúarnir,
sem mættir voru, fram nýjar
tillögur um skipulagsmálin,
sem voru árangurinn af næst-
um hálfs mánaðar samfelldum
klíkufundum og meirihluta-
fundum. Báru þessar tillögur
þess ljósan vott, að hinn nýi
tígulkóngur á spilaborði meiri-
Framrald á 9. síðu.
Móðgun
við verklýðssamtökin
Skrif þau sem birzt hafa
f blöðum Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins um
störf Alþýðusambandsþings
eru mjög lærdómsrík. Blöð
Sjálfstæðisflokksins hafa
haldið því fram að leiðtog-
ar Framsóknarflokksins hafi
ráðið einu og öðru á því
þingi og jafnvel nafngreint
formann flokksins og ritara
eins og þeir séu innstu kopp-
ar í búri verklýðssamtak-
anna. Tíminn hefur látið sér
þetta vel líka og talað mjög
drýgindalega um sama efni.
Jafnframt kvartar Morgun-
blaðið sáran undan því að
ekki skyldu teknar upp hlut-
fallskosningar til stjómar
Alþýðusambandsins, svo að
stjómmálaflokkarnir í land-
inu gætu boðið þar fram
lista sína og dreglð fulltrú-
ana í pólitíska dilka.
öll eru þessi skrif ótvíræð
móðgun við verkiýðssamtök-
in; fulltrúum launþega er
lýst sem ófullveðja mönnum
sem engar sjálfstæðar á-
kvarðanir geti tekið; þeir séu
aðeins lömb í refskák hinna
æfðu stjórmálaleiðtoga.
Nítjándu
aldar draumur
Jón Skaftason alþingis-
maður skrifar í gær grein f
Tímann um nauðsyn þess að
tekið verði upp bandarískt
stjórnarfar á Islandi; hann
segir að á vettvangi þjóð-
málanna sé aðeins rúm fyrir
tvo borgaralega flokka sem
skipti kjósendum á milli sín.
Heldur hann því fram að
slíkt tvíflokkakerfi tíðkist í
öllum löndum umhverfis okk-
ur, og stafar sá málflutning-
ur annaðtveggja af fáfræði
eða ósvífni, nema hvort-
tveggja sé. Það er rétt að f
Bandaríkjunum bítast tveir
borgaraflokkar um völdin án
þess að um nokkurn veiga-
mikinn málefnaágreining sé
að ræða þeirra á milli, en f
Evrópuríkjum erj átökin
milli borgaraflokka annars-
vegar og hinsvegar sósíalist-
ískra flokka, sósialdemókrata
og kommúnista. sem víða em
nú að taka unp samvinnu á
ýmsum sviðum Rorearalegt
tvíflokkakerfi var í Evrópu-
löndum, til að mynda f Bret-
landi, á 19. öld, en þróun
þjóðfélagsins og vöxtur
verklýðshreyfingarinnar hef-
ur fyrir löngu dæmt þá
stjómarhætti úrelta með öllu.
Og auðvitað verður þróunin
einnig sú f Bandaríkjunum,
þótt þróun verklýðshreyfing-
arinnar hafi enn sem komið
er orðið mun ósjálfstæðari
þar en í Evrópuríkjum.
Draumur Framsóknar-
flokksins um það að unnt
verði að hverfa aftur til úr-
elts 19du aldar kerfis á Is-
landi er dauðadæmdur með
öllu; verklýðshreyfingin hér
á landi er þvílíkt vald að
hún gerist ekki handbendi
borgaralegra valdastreitu-
manna. Hins vegar eru þess-
ar hugrenningar Framsókn-
armanna ótvíræð sönnun
þess að verklýðshreyfingin
þarf að finna leiðir til að
tryggja sér ríkari fhlutun um
bróun þióðmála. á fslandj en
hún hefur nú; hún þarf að
öðlast samskonar vald á
=tiórnmá1asviðimi o« hún '«■»{-
ur, þegar gengið er frá samn-
ingum um kaup og kiör.
— Austri,