Þjóðviljinn - 27.02.1965, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 27.02.1965, Blaðsíða 2
ÞIÖÐVILJINN Laugardagur 27. febrúar 1965 2 SIÐA Félag íslenzkra símamanna 50 ára Stofníunduri nn Hinn 27. febrúar' 1915 var haldinn stofnfundur Félags íslenzkra símamanna. Fundui- inn var sem vænta mátti fá- mennur, enda var stéttin sjálf fámenn og tiltölulega ung. Til gamans er hér birt fundargerð stofnfundarins: „Reykjavík 27. febrúar 1915. Frk. G. Aðalsteins kosin fundarstjóri og setur fund kl. 10 e.m. Stofnendur félagsins eru viðstaddir og voru þeir: Otto Bjömsson, Brynjólfur Einarsson og Adolf Guðmunds- son, frk. G. Aðalsteins og Krist- jana Blöndahl. Ástríður og Sigríður Hafsteín gáfu Ottó Björnssyni umbcð fyrir sig. Einnig höfðu O. Björnsson og K. Blöndahl um- boð fyrir stofnendur þá út um landið er ekki gátu mætt. Lagafrumvarp það er O. Björnsson bar upp er sam- þykkt með nokkrum breyting- um. — Skeyti nokkur bárus oss einnig frá stofnendum út Myndin er af núverandi stjórn Félags íslenzkra símamanna, talið frá vinstri: Aðalsteinn Norberg og Hulda Lárusdóttir sem eru í varastjórn, Sigurður Baldvinsson meðstjórnandi, Ágúst Geirsson formaður, Guðlaugur Guðjónsson varaformaður, B jarni Ólafsson gjaldkeri og Hörður Bjarnason ritari. • •• 0g verða r • sem nyir menn Vildi ég skora á alla, sem finna sig eitthvað gallaða: þjófgefna, illmálga um fólk einkum á bak, hlaupandi með millburðarkjaftatíkarháttartittl- ingaskít á tánum fram og aft- ur, óhóflega trúaða, pólitíska og viðskotailla á þann veginn, án þess að hafa kunnað að gera sér grein fyrir málefn- unum, lata, gigtveika og maga- veika, ónýta að ganga stiga, teljandi sig hafa vit á öllu og geta dæmt um allt, rekandi niður i öðrum, gangandi um með merkikertislegan svip, liggjandi oft andvaka og vera þá að mæðast í mörgu í hug- anum, sem ekki gefur arð, að fara nú að taka KlNA LlFS ELEXÍR Hinn Nýja og verða sem nýir menn. (Samkvæmt fyrirmynd úr Þjóðólfi 1898). M.E. ★ f dag heldur Félag íslenzkra símamanna há- tíðlegt hálfrar aldar afmæli sitt, en félagið var stofnað 27. febrúar 1915. FÍS er elzta félagið inn- an Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og eitt elzta stéttarfélag landsins. ★ Félagsblað FÍS, Símablaðið, hefur komið út nær óslitið frá stofnun félagsins og mun það eins- dæmi hér á landi að stéttarfélag hafi haldið út blaði um 50 ára skeið. ★ Þjóðviljinn óskar Félagi íslenzkra símamanna allra heilla á þessum merku tímamótum. um landið. L. Petersen, Vest- mannaeyjum, gaf O. Bjöms- syni umboð fyrir sig. Frá Seyð- isfirði barst oss svohljóðandi skeyti: „Vér sem höfum dag- lega fyrír augum hin heilla- drjúgu ahnTfelagsskápar 'sTm- ritaranna í Stóra Norræna, leyfum okkur hérmeð eindreg- ið að skora á væntanlegan stofnfund í Reykjavík, að ann- ast um stofnun slíks félags- skapar meðal íslenzkra síma- þjóna. Vér getum í öllum höf- uðatriðum felt oss við frum- varp það er oss hefur borizt og göngum út frá því sem ------------------------———§> Vara- birgðir Stöðuveitingar eru sem kunnugt er það vandamil sem hæst ber í viðskiptum stjórnarflokkanna, og er þess skemmst að minnast þegar Alþýðuflokkurinn hótaði stjómarslitum ef Bragi Sig- urjónsson yrði ekki gerður bankastjóri á Akureyri. Þrátt fyrir lausn þess máls virðist togstreita um embætti eno standa stjórnarsamvinnunm fyrir þrifum, að minnsta kosti fjölgar sífelit eftirsókn- arverðum stöðum sem standa auðar og ófylltar. Ekki að- eins bíður sendiherraembætt- ið í Washington eftir verð- ugum manni. heldur hefur stóll Vilhjálms Þórs í Seðln- bankanum nú verið ónotaður mánuðum saman. Og bótt þess heyrist ekki getið að þessi samdráttur ( manna haldi hafi valdið bankanum samskonar erfiðleikum og hann vrði fvrir ef hann missti til dæmis sendil, er sízt að efa að stóllinn verði setinn áður en lýkur. Sumir halda því raunar fram að ríkisstjómin sé n.ú að safna sér nokkrum vara- birgðum af embættum sem nota eigi sem einskonar agn handa Framsóknarflokknum. Sé nú stefnt að því að sam- vinna Framsóknarflokksins og stjórnarflokkanna um alú- miníummálið leiði til alls- herjar samstarfs og þurfi þá að sjá liðsoddum Framsókn- ar fyrir hæfilegri umbun eft- ir sjö mögur ár. Þannig mun Hermanni Jónassyni, fyrrver- andi formanni Framsóknar- flokksins, nýlega hafa verið boðið að taka við sendiherra- embættinu í Kaupmannahöfn. þar sem Stefán Jóhann Stef ánsson leggur senn niður störf fyrir aldurs sakir. Hins vegar mun Hermann Jónas son hafa hafnað bessu boði; sjö mögur ár gera menn þurftarfreka, aul: þess sem það hefði auðvitað verið erf- :'t að gegna formennsku Sölunefnd vamarliðseigna á- samt sendiherrastarfinu. — Austri. sjálfsögðu, að allir verði með. Jafnvel þótt talsverðar breyt- ingar yrðu gerðar á lagafrum- varpirm, sem ekki kæmu í bága við tilgang félagsins, munum vér ekki skerast úr Iéik, heldúr standa sem einn' maður og liofum að styrkja félagið og væntanlegt blað eft- ir mætti. Álítum þó réttast að formaður og ritstjóm sæti f Reykjavík, þar ætbu að vera nægilegir kraftar og áhugi sem mættu verða félaginu til heilla. Með beztu kveðjum fyrir hönd símafólksins á Sf. og Esk. Fr. Aðalsteinsson". Eftir samþykkt lagafrum- varpsins var kosin stjóm. Formaður var kosinn Otto Björnsson, ritari Adolf Guð- mundsson, gjaldkeri Kristjana Blöndahl. Fundi var slitið kl. 12". Stórmál Starf Félags íslenzkra síma- manna hefur fyrst og fremst beinzt að því að bæta launa- kjör símamanna og vinna að ýmsum kjara- og hagsmuna- málum þeirra. Það varð snemma að heyja harða bar- áttu til að koma málefnum^. sínum fram. Fárra mánaða gamalt, eða í ágúst 1915 varð félagið að hóta verkfalli til að fá fram raunhæfar kjara- bætur. Kjarabæturnar fengust áður en til verkfalls kom, en upp úr því voru sett lög um bann við verkföllum opinberra starfsmanna. Viðfangsefni FlS hafa verið mörg og margbrotin um dag- ana. Má þar nefna byggingu sumarbústaða, en nú eru þrir sumarbústaðir f eigu félagsins, á Isafirði, f Vagiaskógi og á Egilsstcðum: félagið starfrækir styrktarsjóð sem hefur veitt mörgum ómetanlega hjálp, — Menningar- og kynningarsjóð- ur félagsins veitir styrki til allskonar menningarstaría inn- an hinna ýmsu deilda og til námsferða og dvalar erlendis Lánasjóður félagsins er öflug- ur og hafa margir notið góð‘- af honum. Einn stórfelldasta sigur í hagsmunamálum félags- manna vnnn félagið 1935 með sambvkkt háverandi ráðberra Haraldar Guðmundssonar á starfsmannareglum landsímans. Starfsmannareglumar voru um margt á undan sínum tíma og það var fyrst árið 1953 að gefin voru út lög um réttindi og skyldur opinberra starfs- manna og voru starfsmanna- reglur landssímans frá 1935 þar hafðar til fyrirmyndar og eru margar greinar þeirra teknar svo til oiðréttar upp. Annað stórmál félagsins var stofnun Starfsmannaráðsins en það var stofnað árið 1953. FÍS er fyrsta íslenzka félagið sem tók þessa nýbreytni upp í fé- lagsstarfi sínu. í starfsmanna- ráði eiga sæti 2 fulltrúar frá FlS ásamt fulltrúum frá stjórn landsímans. Ráðinu er fyrst og fremst ætlað að fjalla um launakjör, skipulagsmál og stöðuveitingar. Blaðið Nokkrum vikum eftir stofn- un Félags íslenzkra síma- manna hóf málgagn félagsins, Símabláðið, göngu sína. Elek- tron, en svo nefndist blaðið I fyrstu, var ekki spáð glæsi- legri framtíð og mörgum hef- ur vist fundizt þessi blaða- útgáfa hið mesta feigðarflan. En blaðið hélt velli þrátt fyr- ir allar hrakspár og hefur nú komið út nær óslitið um hálfr- ar aldar skeið. Símablaðið, sem er eitt elzta stéttarblað lands- ins hefur gegnt miklu og merku hlutverki. 1 þvf hafa hugmyndirnar um mörg stærstu viðfangsefni stéttar- samtakanna fyrst séð dagsins ljós, blaðið hefur verið og er nauðsynlegur tengiliður milli félagsmanna sem eru dreifðir um allt land og það hefur reynzt símamönnum mikils virði sem baráttu- og hags- munamálgagn. Um skeið kom Símablaðið út mánaðarlega, en kemur nú út fjórum sinnum á ári. Ritstjóri þess hefur lengst af verið Andrés G. Þormar. ★ Bókasafn Kópavogs I Fé- lagsheimillnu opið á briðjud miðvikud fimmtud og fðstu- dögum Fvrir böm klukkar 4.30 til 6 og fyriT fullorðns klukkan 8.15 tU 10. Barna- tímaT i Kársnesskóla auglýst- Ir bar HYAÐ ÓGNAR NÚ- TÍMA KRISTNI? nefnist erindi sem O. J. I Olsen flytur í Aðvent- kirkjunni, sunnudaginn 28. febr. kl. 8.30 e.h. ALLIR VELKOMNIR. Vélstjóra vantar á landróðrarbát frá Grindavík. JÓN GlSLASON s.f. Sími 50865. Erindaflokkur Félag'smálastofnunarinnar um St/órnfræði og íslenzk stjórnmá/ sem hefst 7. marz er fyrsta hérlenda tilraunin til skipu- legrar og hlutlausrar stjórnfræðifræðslu. Flutt verða 12 úrvalserindi af 8 þjóðkunnum fyrirlesurum, svo sem hér segir: 7- marz: NOKKUR STJÓRNFRÆDILEG UNDl IRSTÖÐUATRIÐI. Hannes Jónsson, M.A. AÐALEINKENNI ÍSLENZKRAR STJÓRN- SKIPUNAR. Ólafur Jóhannesson, prófessor. 14. marz: AÐALÞÆTTIR RÍKISVALDSINS OG HANDHAFAR ÞESS. Ólafur Jóhannesson prófessor. VALDIÐ OG LÝÐRÆÐISLEG MEÐ- FERÐ ÞESS. Hannes Jónsson, M.A. n . . 21. marz: FÉLAGSLEG VIRÐISVIÐHORF OG HLUTVERK RÍKISINS. Hannes Jónsson, M.A. MILLIRÍKJASAMSKIPTI OG ALÞJÓÐA- LÖG. Dr. Gunnar G. Schram, ritstjóri. 28. marz; SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN, SAGA HANS OG MEGINSTEFNA. Geir Hall- grímsson, borgarstjóri. ^ ÍSLENZK FLOKKASKIPUN 1845—1920. Gils Guðmundsson, rithöfundur. 4. apríl ALÞÝÐUFLOKKURINN, SAGA HANS OG MEGINSTEFNA. Emil Jónsson, ráð- herra, formaður Alþýðuflokksins. FRAMSÓKNARFLOKKURINN, SAGA HANS OG MEGINSTEFNA. Eysteinn Jóns- son f. ráðherra, form. Framsóknarflokksins. 11. apríl: SÓSÍALISTAFLOKKURINN, SAGA HANS OG MEGINSTEFNA. Einar Olgeirs- son, alþm., formaður Sósíalistaflokksins. ÁRÓÐUR, ALMENNINGSÁLIT OG VILJI RÍKISINS. Hannes Jónsson, M.A. Innritun í Bókabúð KRON, Bankastræti. Gjald kr. 150,00. FÉLAGSMÁLASTOFNUNIN Reykjavík, sími 40624. BOKAMARKAÐUR BÓKSALAFÉLAGS ÍSLANDS — Stærri og fjölbreyttari en *£• nokkru sinni fyrr. +& Opið til kl. 4 í dag. 8ÓKAMARKAÐURINN LISTAMANNac^íi a N IJ M v 4 t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.