Þjóðviljinn - 26.08.1965, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 26.08.1965, Qupperneq 3
Fimmtudagur 26. ágúst 1965 — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA J Fupdur utanríkisráðherra Norðurlanda Karjalainen vildi að fastar væri tekið á Vietnam-máli Segir að í yfirlýsingunni felist að viðurkennd sé samningsaðild Þjóðfrelsisfylkingar S-Vietnams HELSINKI 25/8 — Ahti Karjalainen, utanríkisráðherra Finnlands, segir í blaðagrein að þegar utanríkisráðherr- ar Norðurlanda hvöttu, eftir fund sinn í Osló, deiluað- ila í Vietnam til samningaviðræðna án skilyrða, þá hafi í þessari hvatningu falizt að Þjóðfrelsisfylkingin í Suður- Vietnam væri einnig viðurkennd sem samningsaðili. — Þetta sjónarmið kom fram á utanríkisráðherrafundinum og sænski utanríkisráðherrann, Torsten Nilsson, lét það einnig í ljós í raeðu sinni í Stokkhólmi nýlega, segir Karjalainen ; grein sinni sem birtist í gær í mál- gagnj Bændaflokksins, „Maak- ansa“. Hann s.egist með grein sinni hafa viljað gera grein fyr- ir þeim viðhorfum til Vietnam- málsins sem hann hafi látið i liós á fundi utanríkisráðherr- anna, segir í skeyti frá finnsku fréttastofunni FNB. Bæði á fundinum og £ yfir- ’ýsingunnj kom greinilega fram að á Norðurlöndum eru menn mjög uggandi yfir þeim nauð- ungarráðstöfunum sem gerðar hafa verið í Vietnam og hafa hallað miklar hörmungar yfir •'ietnömsku þjóðina. Það er því -ngin furða þótt í yfirlýsing- •nni sé einnig lagzt eindregið 'e°n fyrirætlunum um að herða ‘ríðsaðgerðimar, þar sem þær •'ætu haft ófyrirsjáanlega afleið- ingar á alþjóðavettvangi. segir ennfremur í skeytinu. Karjalainen bendir á í grein sinni að Norðurlönd hafi ekki öll sömu sjónarmið i utanríkis- málum og því geti utanrikisráð- herrar þeirra ekki orðið alger- lega sammála um öll alþjóða- mál. Karjalainen segir að stund- um geti svo farið að viljinn til að komast að sameiginlegri nið- urstöðu leiði af sér svo. óskýrt orðalag („afrundede formuler- inger“) að ókunnugum veit- erfitt að skilja hvað í rauninni sé átt við. Blaðið „Helsingin Sanomat“, borgarablað óháð stjórnmála- flokkunum, gagnrýndi í dag Karjalainen fyrir grein hans sem það kallar „furðulega svo ekki sé meira sagt“. Skýring hans á yfirlýsingu utanríkisráð- herranna hafi augsýnilega ver- ið birt í því skyni að sýna að persónuleg viðhorf hans til Vi- etnam-stríðsins séu afdráttar- lausari en yfirlýsingin gaf til kynna. „Suomen Sosialdemokraatti“ segist vera sammála viðhorfum ráðherrans. Þjóðfrelsisfylking- una beri að viðurkenna sem samningsaðila, en Karjalainen hefði átt að beita sér harðar fyrir því sjónarmiði. Samstarf Kína og Frakka um Vietnam-lausn á vegum SÞ? „Nouvel Observateur" staðhæfir að það hafi verið á dagskrá á fundum Malraux og kínverskra ráðamanna PARÍS 25/8 — Kínverska stjórnin hefur gefið þeirri frönsku til kynna að hún sé fús til að hefja samningavið- ræður um Vietnam-málið á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna, fái hún aðild að samtökunum og sæti Kína í Ör- yggisráðinu. Það er vikublaðið „Nouvel Observateur" sem skýrir frá þessu i dag j grein sem fjallar um heimsókn André Malraux, menntamálaráðherra Frakk- lands, tii Kína nýlega Blaðið fullyrðir að kínverskir ráða- menn hafi beðið hann fyrir þessi Rauða stjarnan" segir að Geminifarið sé til njósna n MOSKVU 25/8 — „Rauða stjarn- an“, málgagn sovézka hersins, hélt því fram í dag að banda- ríska geimfarið „Gemini V“ hefði verið sent á loft til njósna yfir Norður-Víetnam, Kúbu og Kína. 8.000 stúdentar i Seúi í horðum útökum við herinn SBUL 25/8 — 8.000 stúdentum lenti í dag saman við um 400 hermenn á götunum í Seúl, höf- uðborg Suður-Kóreu, þegar þelr fóru enn fylktu liði um þær til að mótmæla stjórnmálasamningn- um við Japan. Þetta var fimmti dagurinn £ röð sem þeir efna til slíkra mótmæla. Chung Hee Park forseti hélt útvarpsávarp siðar um daginn og sagði þá að stjórnin kynni að loka öllum háskólum í landinu til að koma £ veg fyrir frekari mótmælaaðgerðir stúdenta. Einn af ráðherrum hans hafði áður sagt að svo kynni að fara að her- lög yrðu sett £ Seúl og heil her- deild send þangað til að halda •uppi lögum og reglu. Þegar lokið var viðureigninni á götum Seúl i dag ruddust vopn- aðir hermenn inn f háskólann. ^uschwitzdómnm var köstuðu táragassprengjiim inn i bókasafn hans og handtóku fjölda stúdenta. Nýtt Kosmostungl MOSKVU 25/8 — Nýju sovézku gervitungli af gerðinni Kosmos, þvi 79. í röðinni, var skotið á loft í dag. Það fór á rétta braut og öll tæki þess vinna eins og til var ætlazt. Allar Gemini-ferðirnar tólf væru farnar í hernaðartilgangi. Verði „Gemini V“ á braut í átta sólarhringa eins og ráð er fyrir gert mun það fara 16 sinn- um yfir Norður-Víetnam, 40 sinnum yfir Kína og 11 sinnum yfir Kúbu. Geinjfarið er búið Ijósmyndatækjum með fjarlægð- arlinsum og öðrum Gemini-för- um sem send verða á braut er ætlað að hafa upp á gervitungl- um, segir „Rauða stjarnan’’. Þessi frásögn blaðsins kemur að því leyti heim við það sem Bandaríkjamenn hafa sjálfir sagt að þeim Cooper og Conrad hefur verið falið að fylgjast með eldflaugarskotum frá jörðu, en bandaríska geimferðastofn- unin neitaði í dag að þeim hefðu verið falin nokkur „leynileg verkefni“. Ferð þeirra gengur annars vel og má telja fullvíst að þeir verði á braut fram á sunnudag. Sovézka geimrannsóknarstöðin sem nú er verið að reyna. Bandarikin búasig undir að senda ú loft rannsóknastöð WASHINGTON 25/8 — John- son foirseti skýrði á fundi sinum með blaðamönnum í Washing- ton i dag frá því að ákveðið hefði verið að hefja undirbún- ing að smiði geimrannsóknar- stöðvar sem send yrði ómönn- uð á braut umhverfis jörðu í lok næsta árs eða byrjun 1967. Gert er ráð fyrir að árið eft- ir verði að fullu lokið smíði stöðvar af þessari gerð og seinni part ársins farj fyrstu tveir mennirnir í ferð með henni. Fimm slíkar ferðir eru ráðgerðar Kostnaður við þetta Sovézkt flugskeyti grandar bandarískri jsotu í Vietnam Manntjón Bandaríkjamanna í stríðinu hefur aldrei verið meira en síðustu viku; gasstríð undirbúið? FRANKFURT 25/8 — Saksókn- arinn í Auschwitzréttarhöldun- um áfrýjaði í dag dómum sem stríðsglæpadómstóllinn í Frank- furt kvað upp í síðustu viku yfir átta af hinum ákærðu. Einn þeirra hafði verið sýknaður, en hinir sjö fengu 4—14 ára fang- elsisdóma. Krafizt hafði verið lífstíðarfangelsis fyrir þá alla Seimskot IISA fér út um þúfur KENNEDYHÖFÐA 25/8 — Skot- ið var frá Kennedyhöfða í dag gervihnetti, sem átti að fara á braut umhverfis sólina til mæl- inga á geislun frá henni, en vegna bilunar í þriðja þrepi Thor-Delta burðareldflaugarinn- ar komst hann ekki á rétta braut. SAIGON 25/8 — Enn einni bandarískri árásarflugvél hef- ur verið grandað yfir Norður-Vietnam með sovézku flug- skeyti. Flugvélin, þota af gerðinni Phantom, var skammt frá hafnarbænum Thanh Hoa, um 120 km frá Hanoi, þeg- ar flugskeytið hæfði hana. Þetta mun vera þriðja banda- ríska árásarflugvélin a.m.k. sem skotin er niður yfir Norður-Vi- etnam með flugskeyti af sovézkri gerð, en hinar voru báðar miklu nær Hanoi þegar þeim vargrand- 'að. Ekki var vitað til þess áður að flugskeyti væru til vamar á þeim slóðum þar sem Phantom- vélin var skotin niður, en grun- ur leikur á að mun fleiri sovézk flugskeyti séu tilbúin til notkun- ar í Norður-Vietnam en Banda- ríkjamenn hafa fundið. Flug- skeytunum mun komið fyrir á færanlegum skotpöllum og gerir það bandarísku flugmönnunum erfiðara um vik að eyðileggja þau á jörðu niðri, eins og þeir hafa nýlega fengið fyrirmæli um. Bandaríska herstjómin í Sai- gon hefur viðurkennt að meira mannfall hafi orðið í liði hennar í síðustu viku en nokkurri ann- arri síðan stríðið í Vietnam hófst. Fimmtíu bandarískir her- menn féllu, en 76 særðust, að sögn herstjómarinnar, sem segir þó manntjón skæruliða hafa ver- ið miklu meira, eða 1010 fallnir. Saigonherinn er sagður hafa misst 120 fallna og 459 særða. Gasstríð undirbúið? Sovézka blaðið ,,Trúd“ hélt því fram í dag að Bandaríkjamenn væru að undirbúa hemað með eiturgas i Vietnam. og nefndi máli sínu til stuðnings fréttir um að bandarísk rannsóknarstofnun fyrir hemað með kemísk vopn hefði nýlega verið flutt frá Jap- an til Suður-Víetnams. Skýrt hefur verið frá því að1 bandarískir hermenn hafi fengið fyrirmæli um að hætta að kveikja í þorpum f SJuð-’>-V'et- nam og hafi bau fwirn-rríu gefin eftir að sýnd hafði verið í sjónvarpi kvikmvnri ai brennand) þorpum. Talsmaður bandarísku herstjórnarinnar í Saigon neitaði því í dag að slík fyrirmæli hefðu verið gefin. Fundur í Huc Stúdentar í bænum Hue í norðurhluta S-Vietnams héldu í dag fund, þann þriðja í þessari viku, til að lýsa andstöðu sinni við Thieu hershöfðingja, for- mann herforingjaklfkunnar í Sai- gon. Þeir gagnrýndu Bandaríkia- menn fyrir að reyna að knýja fram hemaðarlausn á Vietnam- málinu; það yrði aðeins leyst eftir pólitískum leiðum. •fyrirtæki er áætlaður 1,5 milj- arður dollara. Frá því var nýlega skýrt í Moskvu að sovézkir vísinda- menn hefðu þegar smíðag slíka geimrannsóknastöð sem ætlunin vær; að senda á braut, þegar gerðar hafa verið ýmsar tilraun- ir með hana á jörðu niðri. Ætl- unin er að heill hópur vísinda- manna geti stundað rannsóknir í sovézku geimstöðinni. Sovézkum boðið Johnson forseti sagði að Bandaríkin vildu eiga samvinnu við önnur riki um geimrann- sóknir, einnig Sovétríkin, og hefðj hann þv; falið forstöðu- manni bandarisku geimrann- sóknanna, James Webb, að bjóða Visindaakademíu Sovétríkjanna að senda fulltrúa til Bandaríkj- anna í október þegar ætlunin er að senda á braut næsta Gemini- far É'g vona að vísindaakademí- an sjái sér fært að þiggja þetta boð, sagði Johnson, og fulltrúi hennar getur reitt sig á að vel verði tekið á móti honum. Fréttaritarar í Moskvu segja að sovétstjómin muni að lík- indum taka þessu bandaríska boði af mikilli varkámi. Ekki sé að vænta svars vi« því fyrsta kastið þar sem sambúð ríkjanna sé erfið vegna Vietnam-stríðsins. skilaboð til de Gaulle forseta þegar þeir ræddu við hann í Peking, en fundur þeirra, þar sem bæðj voru Mao Tsetung, Líú Sjaosji forseti, Sjú Enlæ fo;rsætisráðherra og Sén Ji ut- anríkisráðherra, stóð í sjö klukkustundir, og höfðu hinir kinversku ráðamenn ekki áður rætt jafnlengi við neinn hátt- settan stjórnmálamann af vest. urlöndum. „Gegn hcimsveldum“ Blaðið bætt; því vig að de Gaulle hefði í hyggju að leita samstarfs við Kína til að „steypa hinum sovézku og bandarisku heimsveldum“ og hann hafi sent Malraux til Pek- ing þeirra erinda að kanna við- horf hinna kínversku ráðamanna áður en hann heldur fund sinn með blaðamönnum 9. september. Þess fundar hefur verið beðið með allmikilli eftirvæntingu: menn eru orðnir vanir því að eitthvað beri til tíðinda á blaðamannafundinum sem for- seti Frakklands heldur á u.þ.b hálfs árs fresti. Óska stuðnings Frakka Að sögn „Nouvel Observateur1, gerðu kínversku ráðamennirnir Malraux það ljóst að þeir myndu kunna vel að meta stuðning Frakka þeaar aðild Kína ag Sameinuðu þjóðunum kemur til kasta allsherjarþings- ins sem hefst í New York 1. reptember. Frakkar eru taldir geta ráðið miklu um það hvort þingið samþykkir fulla aðild Alþýðu- Kína að SÞ og að það taki sæti það í Öryggisráðinu sem Kina ber samkvæmt stofnskrá sam- takanna. en fulltrúi Formósu- stjórnar situr í fyrir náð Banda- ríkjanna. Atkvæði nýfrjálsu ríkjanna í Afríku sem áður voru franskar nýlendur en eru enn mjög hág Frökkum kunna að geta ráðið úrslitum í atkvæða- greiðslu allsherjarþingsins. Það mun koma í ljós á blaðamanna- fundi de Gaulle hvort hann er fús til að leggja fast að Afríku- ríkjunum ag styðja aðild Kína, segir blaðið Sprenging í gúm- verksmiðju í USA — mzrgir fórust LOUISVILLE 26/8 — Spreng- ingar urðu í gervigúmverksmiðju í Louisville í Kentucky i dag, 23 talsins, og er óttazt að marg- ir menn hafi beðið bana, en i verksmiðjunni unnu 2CK)0 manns. Fólk var flut burt úr öllum húsum í nær tveggja km fjar- lægð frá verksmiðjunni, en sprenginganna varð vart í allt að 15 km fjarlægð. í>jóðf relsisf y lki*i gin: Brottför Bandarikjamama algert samningaskilyrði MOSKVU, 25/8 — Þjóðfrelsis- f/lkingin í Suður-Vietnam neit- aði því í dag að hún væri fús að hefja .viðræður um frið meðan enn væru bandarískir hermenn í landinu. Talsmaður hennar í Moskvu sagði ^að allt herlið Bandaríkja- manna og leppríkja þeirra vrði að fara úr landi og leggja yrði niður allar herstöðvar þar, áður en hægt yrði að hefja samninga. — Fulltrúar Þjóðfrelsisfylkingar- úmar hafa aldrei sagt við Brock- way lávarð að hún gæti sætt sig við að eitthvert bandarískt her- lið yrði eftir í landinu. sagði talsmaðurinn. Brockway lávarður sem er í oriofi í Kákasus hélt því fram í dag statt og stöðugt að hann hefði skýrt rétt frá viðræðum sínum við fulltrúa Þjóðfrelsi*- fylkingarinnar. i v «É

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.