Þjóðviljinn - 26.08.1965, Page 7

Þjóðviljinn - 26.08.1965, Page 7
Fiimn&xlagur 26. ágúst 19® — ÞJÖÐVILJINN — SlÐA J HILMAR STEFANSSON Minningarorð Enn er höggvið skarð í ateta- mótakynslóðina góðu sem bar svo ferskar í brjósti hugsjón- irnar um efnahagslegar fram- farir og sjálfstæði Islands og gaf sjálfri sér þad heit að fylgja þeim fram til sigurs. Hilmar Stefánsson bankastjóri iézt 17. þ.m., 74 ára, og verð- ur jarðsettur í dag. Ævi Hilmars bregður ljósi á langan veg, eða hefur ekki allt hið söguríkasta gerzt á liðn- um sjötíu árum? Ég kynntist ekki Hilmari fyrr en seint. eftir að hann var orðinn bankastjóri Búnaðarbankans, og er mér æviferill hans lítt kunnur áð- ur og stikla þar á stóru. Hilm- ar fæddist 10. maí 1891 á Auð- kúlu í Húnavatnssýslu og voru foreldrar hans Stefán M. Jóns- son prestur þar og fyrri kona hans Þorbjörg Halldórsdóttir. Eftir bernskuárin heima lá leið Hilmars úr sveitinni um gagnfræðaskólann á Akureyri, en þaðan lauk hann prófi 1911, til framhaldsnáms í höfuðborg- inni og inn í slagæð athafna- lífsins, varð starfsmaður Lands- bankans 1917, útibússtjóri um tíma í Vestmannaeyjum og á Selfossi, síðar aðalgjaldkeri Landsbankans og loks eftir iát Tryggva Þórhallssonar banka- stjóri Búnaðarbankans 27 ár samfleytt, 1936—1963. Hilmar kvæntist 1924 Margréti Jóns- dóttur frá Stokkseyri, og varð það gæfa hans og bjó hún þeim yndislegt heimili, og lifir hún mann sinn. Þau eignuð- ust tvö börn, Stefán og Þórdísi. Við stöldrum við fæðingarár Hilmars, 1891, og undrumst hve ævi manns sem rétt er að hverfa frá okkur hrfiar miktar fjarlægðir og tengir þræðina langt aftur, eins og við séum komin hálfa leið til Jónasar og Bjarna og uppsprettulinda Fjölnis og í námunda við Jón Sigurðsson, dáinn aðeins tveim árum áður, og við skiljum betur hinn samfellda straum þjóðfrels- isbaráttunnar fram á okkar dag. Og þó er eins og yfir marg- ar kynslöðir að fara, sem all- ar hafa orðið Hilmari sam- ferða, sjáum hilla yndir þjóð- skáldin, Matthías og Steingrím, og á uppvaxtarárum Hilmars brýna þeir raustina, Benedikt Sveinsson, Bjarni frá Vogi og Skúli Thoroddsen, og skálda- kynslóðin sem manni finnst löngu liðin, Þorsteinn, Stephan G„ Einar Benediktsson, Hann- es, eru íkveikja þjóðlífsins og dynjandi hvatning og síðan fossa fram þjóðlífsöfl nýrrar aldar: ungmennafélög, sam- vinnuhreyfing bænda, verk- lýðshreyfingin, og stjórnmála- Scimtök með allri þeirri um- byltingu þjóðlífsins sem fylgir og öllum er kunn. Menn þurftu ekki lengi að kynnast Hilmari Stefánssyni til að sjá að hann var í æsku mótaður af þeim kynslóðum sem settu sjálfstæði þjóðarinn- ar ofar öllu öðru og af hug- arafli þeirra miklu skálda sem að framan eru nefndir og kváðu mátt og framfarahug í þjóðina og af þeirri samfé- lagsvitund sem fyigdi þjóðlífs- vakningunni. Þetta varð hin stríða undiralda í skapgerð manna eins og Hilmars. Hann trúði á hinn nýja dag með þjóðinni sem skáldin boðuðu í ljóðum sínum. Ekkert var sjálf- sagðara en leita fyrst þess er þjóðinni var til hagsældar og leggja fram alla krafta sína til að lyfta henni fram á letð. I hverju verki lýsti sér hið félagslega markmið og á bak við framkvæmdirnar, og hvað sem leið öldurótinu í kring, var hin vakandi hugsjón sem markaði stefnuna og gaf hverju starfi\ festu og þjóðlegt gildi. Nú er dagur við ský, kvað Einar Benediktsson fyrir alda- mót, og á stofndegi lýðveld- isins^. 1944 tók Hilmar sig til og gaf út blað með nafninu Nýr dagur. Þeirri kynslóð sem Hilmar var af fannst sem lang- þráðu markmiði væri náð, og fagnaði heils hugar, og Hilmar sem ekki áður fékkst við blaða- útgáfu gat ekki orða bundizt að láta fögnuð sinn í ljós, og það er táknrænt fyrir starf hans í þágu athafnalífs þjóð- arinnar að hann nefnir blað sitt Nýjan dag. Þann nýja dag var hann sjálfur með í að skapa fyrir sveitimar á Islandi og þjóðina alla. Það sem framar öllu heldur nafni Hilmars Stefánssonar á lofti er stjórn hans á Búnað- arbanka íslands í meira en aldarfjórðung, og átti hann reyndar langan feril í banka- starfsemi áður. Ég kynntist nokkuð bankastjórn Hilmars er ég átti sæti í bankaráði Búnaðarbankans árin 1945—’48 undir formennsku Hermanns Jónassonar. Búnaðarbankinn var þá í hröðum vexti og hafði meira en þrítugfaldað umsetn- ingu sína og tvívegis sprengt af sér húsnæðið undir stjórn Frá þingi íslenzkra ungtemplara að Jaðri. argar samþykktir gerðar á þmgi íslenzkra ungtemplara Þing oe mót íslenzkra ung- templara var haldið að Jaðri dagana 13. til 15. ágúst s.l. Þingið sóttu 24 fulltrúar, auk stjórnar sambandsins. Enn- fremur voru við þingsetningu nokkrir gestir, forustumenn á sviði aeskulýðs- og bindindis- mála. Jaðarsmótið sóttu að þessu sinni rúmlega 900 manns. Tjaldbúðir voru að Jaðri um helgina, Útiskemmt- un var á sunnndag og skemmt- anir fyrir unga fólkið á laug- ardagskvöld og sunnudags- kvöld. Þingið setti með ávarpi formaður lUL, séra Árelíus Ní- elsson. Stórtemplar Ólafur Þ. Kristjánsson flutti kveðjur og árnaðaróskir frá Stórstúku ís- lands. Þá söng Erlingur Vig- fússon, óperusöngvari nokkur lög við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. Ámi Gunnlaugs- son, hæstaréttarlögmaður Hafn- arfirði flutti erindi um bind- indis- og áfengismál. Meðal samþykkta þingsins ♦r áskorun til opinberra aðila um að hætta vínveitingum í veizlum sínum, um aukig eft- irlit með sölu og vínveitingum á almennum skemmtistöðum, að lög er banna vínveitingar ungu fólki séu í heiðri höfð; hvatt til að ekki sé leyfilegt að auglýsa áfengi og tóbak. Þingið fagnar því, sem áunn- izt hefur með starfi Æskulýðs- ráðs Reykjavíkur og starfi æskulýðsheimilis þess að Frí- kirkjuvegi 11. Fagnað er hin- um skipulögðu mótum, sem sýslur og héruð hafa stofnað til á nokkrum stöðum. Lýst er ánægju með þátttöku Æsku- lýðssambands fslands í „Bar áttunni gegn hungri“ og hvet- ur þingið alla til virkrar þátt- töku í þeirri starfsemi og fjár- söfnun, sem fyrirhuguð er. Þá hvetur ársþing íslenzkra ungtemplara til aukinnar fræðslu um félagsmál og tóm- stundastarfsemi ungs fólks, og Framhald á 9. síðu. Hilmars, og nú var hið nýja stórhýsi Austurstræti 5 í smíð- um og Hilmari mikid kapps- mál að hrinda byggingunni á sem skemmstum tíma í fram- kvæmd og allri í einu, eins og viturlegast var, og hreifst ég af stórhug hans og bjartsýni og studdi hann heils hugar, sjálfur með ferska reynslu af byggingarframkvæmdum Hóla- prentsmiðju í Þingholtsstræti, og Hilmar kom máli sínu fram. öll stefna hans í rekstri bank- ans einkenndist af framsýni, dugnaði og brennandi áhuga. Hann hafði föst tök á hlutun- um og þó hann vildi fara sín- ar leiðir missti hann aldrei sjónar á þvi hlutverki sem bankanum var ætlað að rækja, og var sem saman færi i skapgerð Hilmars djarfmann- legt áræði, hagsýni og bú- mannleg gætni. Hann gerði sér ljósa grein fyrir, hvar Bún- aðarbankinn var staðsettur, i miðri höfuðborginni, og ætti hann að verða landbúnaðinum að gagni eins og til var ætl- azt vard að auka lánsfé hans og sparisjóðsdeild með því að afla honum viðskiptamanna og vinsælda í Reykjavík. Með stórhýsi í höfuðborginni lagði hann einmitt grundvöll að stór- auknum viðskiptum bankans, og ekki sízt með því að gera það sem fegurst og bezt úr garði. Hann valdi hinn snjail- asta arkitekt, Gunnlaug Hall- dórsson, til að teikna húsið og hefur hann vitnað til þeirrar fyrirhyggju Hilmars að gefa sér IV2 ár til að fullgera teikn- inguna. Og húsið heppnaðist með ágætum, er bseði hið feg- ursta, hentugt, einfalt og vist- legt, og afgreiðslusalur rúm- góður og bjartur, eins og Hilm- ar ætlaðist sérstaklega til. Og honum fórst ekki síður vél úr hendi að skapa vingjamlegt andrúmsloft í stofnuninni með völdu starfsliði og góðri af- greiðslu, sem laðað hefur við- skiptamenn að bankanum, hvort sem Hilmar valdi þetta starfslið sjálfur eða hafði menn hið næsta sér sem hjálp- uðu til að skapa þetta and- rúmsloft. En minnast má f þessu sambandi þess trausts er Hilmar naut meðal starfsfélaga sinna í Landsbankanum er hann var kosinn fyrsti for- maður félags þeirra. Sem dæmi um frapnsýni Hilmars varðandi bygginguna er stærð hennar, að nú eftir tvo áratugi er hún enn til góðrar frambúðar, bó að starfsemi bankans hafi þan- izt út á þessu tímabili. Mér er auðvitað ljóst að Bún- aðarbankinn hefur eflzt og vax- iö fyrir atorku og dugnað bændastéttarinnar, bjartsýni hennar og trú á landið, og fyr- ir félagssamtök hennar, og eins að hann er studdur ræktun- ar- og byggingarsjóðum og lög- gjöf frá Alþingi. En engu að síður ber bankastjóranum Hilmari Stefánssyni mestur heiður af framgangi bankans. Hann tók við stjórn hans við erfiðustu aðstæður á kreppu- tímum f þröngum kytrum með litlu fé til ráðstöfunar, en vann bankann upp og aflaði honum trausts og vinsælda, lét síðan reisa yfir hann hið glæsilega stórhýsi og gerði hann að því sem hann nú er orðinn, einn aðalbanki þjóðarinnar, og öflugur bakhjarl að hverskon- ar framkvæmdum í sveitum landsins. Bændum má vera ljóst hver lyftistöng hann hef- ur verið þeim. Stórvirki í rækt- un og húsagerð, bæði yfir fólk og fénað, vélvæðingin öll og umsköpun starfshátta, að öllu þessu hefur Búnaðarbankinn stutt, svo að þúsundir bænda- býla landsins hafa átt til hans að rekja auknar athafnir og blómgandi byggð. Sá sem hef- ur á hendi stjóm slíkrar stofn- Hilmar Stefánsson, unar og ábyrgð á rekstri henn- ar þarf að vera traustum hæfi- leikum búinn, og sá verður dómur um Hilmar Stefánsson að hann hafi leyst þetta á- byrgðarstarf vel og farsællega af hendi. Hann var einn banka- stjóri og mótaði því stefnu hans og fann til ábyrgðar sinn- ar um framtíð bankans og var því eðlilegt að hann vildi að hann héldist í góðum höndum og þeirri stefnu yrði haldið á- fram sem hann hafði sjálfur markað, og til þess trúði hann bezt syni sínum, Stefáni, sem nú fer með bankastjórn, ásamt Þórhalli Tryggvasyni, og má þeim sem þekkja sögu bankans finnast ánægjulegt að nú skuli sitja hlið við hlið í banka- stjórn tveir ungir menn, synir þeirra Hilmars og Tryggva Þórhallssonar, sem eru höfuö- smiðir þessarar stofnunar. Við minnumst þess oft frá fyrri árum hve æskumenn þeir sem yfirgáfu sveitina og Reykjavík sölsaði til sín fengu margt óþvegið orð í eyra, En það er ekki sízt æfintýri aldarinnar hvernig þessir æsku- menn úr sveitum unnu að sköpun hins nýja Islandsíborg og bæjum og veittu um leið nýjum straumum tækni og menningar til sveitanna, hve fljótir þeir voru að ná tökum á nýjum verkefnum og leysa þau farsællega af hendi. Hilm- ar Stefánsson er einn af þess- um mönnum. Hann fór inn í sjálft vígi peningavaldsins, en hann týndist ekki sveitinni né ■ missti sjónar af farsæld henn- ar. Unglingar eins og hann höfðu farið úr sveitinni með þeim fasta ásetningi og bundið heit við sjálfa sig að verða þjóð sinni að sem mestu liði og skapa nýja tíma, nýjan dag í öllum landsins byggðum. Og fyrir starf þeirra eru þær blómlegri og líðan fólksins betri. Þannig báru bændasyn- irnir ávöxtinn aftur heim. Það var eitthvað í persónu- leik Hilmars Stefánssonar sem dró mig strax að honum og það kom eins og af sjálfu sér að með okkur tókst föst vin- átta og ég held mér sé óhætt að segja gagnkvæmt traust. Það voru einhverjir neistar af sama eldi sem kveiktu þessa vináttu. Mér duldust ekki mannkostir hans. Hann gat verið hrjúfur á ytra borði, en lundin var viðkvæm og heit, og þó hann sæti þungbúinn og vel á verði í bankastjóra- sætinu gat svipurinn allt í einu orðið einstaklega hýr og glað- legur og gamanj’rði hrukku af vörum. Hilmar var vinfast- ur þar sem hann tók því, og við slitum ekki tengsl okkar, þó að ég væri farinn úr banka- ráði. Löngu síðar, þegar ég lagði með Mál og menningu út í það æfintýri að reisa stór- hýsi við Laugaveginn, líkt og Hilmar hafði gert í Austur- stræti, þá leitaði ég til bank- anna eftir lánsfé, til Helga Guðmundssonar, bankastjóra Útvegsbankans, og Hilmars og átti sömu höfðingslund og skilningi að fagna hjá báðum. Þeim var vitaskuld Ijóst sem fjármálamönnum að verzlunar- og skrifstofuhús við Laugaveg- inn gat ekki verið áhættusamt fyrirtæki og má einnig vera að Hilmar hafi viljað launa mér stuðning við byggingar- framkvæmd Búnaðarbankans áður, en þó held ég að annað hafi mestu um ráðið, djúp- stæður menningaráhugi beggja og fornar ástir þeirra á bók- menntum og uppruni þeirra úr rótgróinni menningu sveitanna, Og satt að segja held ég að það sé grunnt á sveitamann- inn i flestum bankastjórum á Islandi í þeim skilningi að þeir hafi ósjálfráða samúð með bókaútgáfu, jafnvel þó þeir viti hún sé á hausnum! Og áhugi Hilmars á bókmenntum duldist mér ekki, hann var arf- ur hans frá kynslóðunum: sveit- in og bókin voru samtengd í huga Hilmars og ástin hin sama á hvorutveggja, landi og ljóði. Mér kemur Hilmar Stefáns- son ekki úr hug, síðan ég heyrði lát hans, mér finnst hann standa hið nassta mér er ég skrifa þessar línur og biðja mig að varast allt oflof um sig, hann hafi ekki gert annað en skyldu sína, skyldu sína við þá stcfnun sem hon- um var trúað fyrir, við sveit- ina sem ól hann, skylduna við land og þjóð. Og látum gott heita að hann hafi ekki gert nema skyldu sína. En ég hef ekki heldur viljað segja annað en það sem mér finnst satt og rétt. Það er alltof mik- ið um hitt, að þeir sem stórir eru í sér og mestu afreka fái sjaldnast að njóta sannmælis og verðugs lofs. Nú getur Hilmar, laus úr líkamsfjötrum eins og Bjarni Thorarensen mundi orða það, leitað samfélags þeirra vina sinna frá fyrri kynslóðum er hann hafði mestar mætur á og verður gaman fyrir hann að svífa yfir sveitum landsins f fylgd með þeim Eggert, Tóm- asi og Jónasi Hallgrímssyni og geta bent þeim og sagt: sáuð þið fyrr svo fagran jarðargróða, og munu ekki blómin litfögur sem aldrei áður smálíta upp, að gleðia vini sína. Kristinn E. Andrésson. i, 1 k I

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.