Þjóðviljinn - 12.09.1965, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.09.1965, Blaðsíða 5
Sunnudagur 12. september 1965 -'JOÐVtLJINN — SlÐA C SIDASTA AFREK C TÍÐINDi MALAY PENINSULA _ Johore Causewajr —Bahru Ekkert stórveldi gerir leyni- þjónustu sinni jaín hátt undir höfði og Bandaríkin, seg- ir Allen Dulles fyrrverandi yf- imjósnari í Washington. Banda- ríska leyniþjónustan CIA (Central Intellingence Agency) hefur launað eftirlætið með þvi að gera ríkisstjórninni sem hún á að starfa fyrir hvern grikkinn öðrum verri. Sí og æ verða æðstu menn Banda- ríkjanna að standa í því að svara til saka gagnvart um- heiminum fyrir illvirki eða asnastykki njósnara sinna og flugumanna. ,Síðast átti þetta sér stað fyrir rúmri viku, þeg- ar Lee Kuan Yew, forsætis- ráðherra Singapore, gerði upp- skátt athæfi erindreka CIA í borgríkinu fyrir fimm árum. Þar sem málið var svona gam- alt vakti það ekki mikla at- hygli í fyrstu, en ráðamenn í Washington brugðust þannig við að úr varð reginhneyksli, sem hlaut áberandi sess á fréttasíðum blaða um allan heim. Skammur tími er liðinn síð- : an. Singapore var rekin úr , Malajsíu, sökum þess að höfð- ingjastétt Malaja óttaðist um völd sín, ef Lee og sósíaldemó- krataflokki hans tækist að afla sér ítaka meðal malajiskrar alþýðu í sveitum Malakka- skaga. Singapore stendur á sínSeýjú ýið odda skagans, og Kínverjar eru mikill meirihluti borgarbúa. Þegar Bretar •kiömtíruSu Malajsíu samáh, krafðist ríkisstjórn Malajaaðals- ins að brezku nýlendurnar á Norður-Borneó yröu hluti af hinu nýja ríki, til að vega upp á móti Kínverjamergðinni í Singapore. Af þessari ráðstöfun hlauzt full- ur fjandskapur Indónesíu sem ræður meginhluta Borneó, í garð Malajsíu. Viðskipabann Indó- nesa í Malajsíu varð mik- ið áfall fyrir íbúa Singa- pore, allt frá kaupsýslumönn- um til hafnarverkamanna. Um leið og Singapore var rekin úr Malajsíu, eygðu borgarbúar möguleika á að bæta sambúð- ina við Indónesíu svo gömul viðskiptatengsl yrðu endurnýj- uð. Lega borgarinnar gerir hana hinsvegar háða þeim sem ríkjum ráða á Malakkaskaga, til dæmis eru vatnsból Singa- pore á meginlandinu. Síðan siálfstæði borgarinnar var lýst vfir, hefur Lee reynt að fara bil beggja. vingast við Indó- nesíu án þess að baka sér fiandskap ríkisstjórnarinnar í Kuala Lumpur á Malakka- skaga. T Singapore hefur frá fornu J. fari verið helzta flotastöð Breta í Suðgustur-Asíu og svo er enn. Síðan deilan út af Norður-Borneó hófst. hafa Bretar fjölgað þar bæði her- skipum og setuliði. Eftir að Singapore varð siálfstætt ríki, lýsti Lee yfir að hann vildi hafa brezku flotastöðina á- fram, en þar sem Singapore hefði einsett sér að taka upp hlutleysstefnu fengju Bretar ekki að nota hana í þágu Suð- austur-Asíubandalagsims. og sér í lagi kvaðst hann stað- ráðinn í að koma i veg fyrir að borgin yrði stökkpallur til hemaðaraðgerða gegn Indó- nesíu eða Kína. Á þriðiudag- inri í fyrri viku átti forsæt- isráðherrann sjónvarpsviðtal um þetta efni við fimm brezka og ástralska fréttamenn. Hann sagðist vilja hafa brezka her- X-7$0UTH VÍETNAM SOUTH CHINA SEA •f-BRITlSHAIRBASE & BRITISH NAVAL BASE (ceíebes % OÍ^ INOIAN OCEAN OdÞCP<’*jt Kort af Singapore (t. v.) og annað sem sýnir afstöðu borg ríkisins, Malakkaskaga og Indónesiu. stöð í Singapore, en hlutverk hennar mætti ekki vera annað en annast. landvarnir fyrir borgríkið. Kærðu Bretar, sig ekki um að vera kyrrir .upp á þau býti, kvað hann koma til mála að biðja Ástralíu og Nýja-Sjáland að taka að sér herstöðina í sameiningu. En hvernig sem allt veltist myndi hann aldrei leyfa Bandai’íkjun- um að ná hernaðarlegri fót- festu í Singapore. Bandarískir ráðamenn hafa fyrr og síðar sýnt, sagði Lee, að í skiptum við þjóðir og ríki í Asíu skort- ir þá „gerhygli, dómgreind eða vizku. Þeir skilja ekki Kín- verja og þeir skilja ekki Viet- nambúa, af því stafar ófremd- arástandið í Vietnam. ' . Ef þeir réðu á Malakkaskaga og í staðinn til að greiða tíu pró- sent af upphæðinni, 3.3 milj- ónir dollara, sem rynni sum- part í vasa Lee sjálfs og sum- part í sjóð flokks hans, sem lausnargjald fyrir sökudólginn. Lee kvaðst aldrei á ævi sinni hafa verið svívirtur eins og með þessu mútuboði. Engu að síður hefði bandaríska flugu- manninum verið sleppt, því málaferli yfir honum hefðu getað torveldað samningana um stofnun Malajsíu sökum áhrifa Bandaríkjamanna í Kuala Lumpur. Viðbrögð Bandaríkjastjórnar við uppljóstrunum Lee urðu á þann veg, að ekki verð- ur annað séð en ráðamenn í Washington hafi lagt sig í líma að staðfesta orð hans um andlegan vanþroska sinn. Rusk utanríkisráðherra lét blaðafulltrúa sinn, Robert Mc- Closkey að nafni, lýsa yfir að frásögn forsætisráðherra<*>- fyrir barðinu á bandarísku leyniþjónustunni og breytir af þeim sökum afstöðu sinni til Bandaríkjanna. CIA hefur hvað eftir annað verið staðið að því að reyna að grafa und- an ríkisstjórnum sem Banda- ríkjastjórn þóttist vera vinveitt. Hróplegasta dæmið er aðstoð CIA við uppreisnarmenn í Indónesíu 1958. Bandaríska leyniþjónustan lagði uppreisn- armönnum gegn stjórn Sukarn- os forseta til fé og vopn, og réði bandaríska flugmenn til að gera loftárásir á indónes- iskar borgir og flytja vopn til bækistöðva á Fillipseyjum. Árum saman átti Burma- stjóm í höggi við leifar af herjum Sjang Kaiséks, sem settust að í norðurhéruðum landsins eftir ósigurinn í kín- versku borgarastyrjöldinni. Herflokkar þessir gerðust ó- tíndir stigamenn, en CIA hjálp- aði þeim með ráðum og dáð eins lengi og nokkur kostur var að komast undan Burma- her. Sihanouk, þjóðhöfðingi Kambodsíu, hefur skýrt frá þvi að CIA hafi oftar en einu sinrii efnt til samsæris um a' steypa honum af stóli. Snemma á starfsferli sfnum tókst CIA að kollvarpa tveim ríkisstjórnum, stjóm Mossadegh í Iran 1953 og stjórn Arbenz í Guatemala 1954. Við þennan skjóta ár- angur í þág|i bandarískra heimsveldishagsmuna efldist stofnunin svo að áliti hjá bandarískum valdamönnum að hún varð að ríki í ríkinu, fékk að fara sínu fram án nokkurs raunverulegs eftirlits af hálfu opinberra stjórnarvalda. Af- leíðingarnar komu skýrt í Ijós við ófarir CIA-innrásarinnar á Kúbu vorið 1961. Éndurminn- ingar Schlesingei-s, og Soren- sens, ráðunauta Kennedy, sem um þessar mundir birtast í blöðum víða um heim, sanna að þá var svo komið að æðstu menn CIA lifðu í draumheim- um mikilmennskubrjálæðingn. og enginn af öllum stjórnar- herrum Bandaríkjanna hafði kjark til að mótmæla firrur' þeirra og fantaskap, nemn Fulbright öldungadeildarmaður Schlesingar lýsir því. þegar Stevenson var látinn ljúga pð Sameinuðu þjóðunum að loft- árásir flugmanna CIA væn’ verk andstæðinga Castros kúbanska flughernum. en mpð. an hann var að t.ala korr ■' allt upp. þegar ein af fa1 merktu, bandarísku sprengi- flugvéíunum varð að na"‘ lenda í Flórída. Eftir hra’ farirnar á strönd Svínaflóa r Kennedy fyrirskipanir y áttu að tryggja að utanrík; ráðuneytið gæti að minnsta kosti fylgzt með' bví hvað CIA hefði fyrir stafni. 1 ri'tstjórn- argrein í New York Times er sú ályktun dregin af Singa- pore-hneykslinu og ámátlegum viðbrögðum við því, að CIA fái enn sð leika alltof laus- um hala. Blaðið segir: „Skeður skaði í Singapore veldur ekki mestum áhyggjum, heldur Allen Dulles var yfirmaður CIA, þegar bandaríski flugu- maðurinn var handtekinn í Singaport. —.i uuák. möguleikinn á enn alvarlegri óþokkabrögðum. Þjóðin getur ekki lengur gengið að því sem visu að utanríkisráðuneytið eða Hvíta húsið hafi fuilnægj andi eftirlit með stofnun sem al- menningur veit svo gott sem ekkert um“. M.T.Ó. William Raborn aðmíráll, nú- verandi yfirmaður CIA. í Singapore sæti ég í tugthúsþ líklega væri búið að pynda mig og drepa“. Lee nefndi það til dæmis um kynni sín af Bandaríkja- stjórn, að árið 1960 hefði flugu- maður frá CIA verið staðinn að því að reyna að múta yfir- manni leynilögreglu borgarinn- ar til að gerast bandarískur njósnari og undirróðursmaður. Bandaríkjamaðurinn var tek- inn fastur. Skarst þá Banda- ríkjastjórn í málið og vildi fyrir hvern mun koma í veg fyrir réttarhöld sem afhjúpuðu atferli CIA. Lee kvaðst hafa gefið kost á þvi að láta flugu- manninn lausan, af jákvæð niðurstaða yrði af samningum um 33 miljóna dollara efna- hagsaðstoð Bandaríkjanna við Singapore. Það þótti Banda- ríkjastjóm of dýrt, en bauðst Singapore væri uppspuni frá rótum. Hvorki hefði þar verið um að ræða bandarískar njósn- ir né undirróður og því síður mútuboð til að ná bandarísk- um flugumanni úr haldi. Þeg- ar fréttin af yfirlýsingu banda- ríska utanríkisráðuneytisins barst til Singapore, hafði Lee hröð handtök. Hann kallaði innlenda og erlenda fréttamenn á sinn fund, opnaði í þeirra viðurvist skjalaskáp merktan „Ríkisleyndarmál“ og dró upp frumrit af bréfi, þar sem Rusk, þáverandi og núverandi utan- ríkisráðherra í Washington, biður Lee auðmjúklega afsök- unar á „óviðurkvæmilegu at- hæfi“ bandarískra stjórnarer- indreka í Singapore. Forsætis- ráðherrann rak bréfið uppað nefinu á viðstöddum banda- rískúm fréttamönnum með orðunum: „Bandaríkjamenn eru svo mikil fífl að þeir neita því sem ekki er hægt að rieita“. Fréttamennirnir fengu síðan afhentar Ijósmyndir af bréfi Rusks, og Lee tilkynnti að yrði neitunum haldið áfram í Washington, rnyndi hann láta útvarpa segulbandsupptökum frá njósnatilrauninni og skýra frá nafni þess sem reyndi fyrir hönd Bandaríkjastjórnar að múta honum, ,,en það myndi koma illa við afar háttsetta að- ila“. Bandaríkjastjórn var fljót að átta sig á að ekki væri undir eigandi að Lee seildist dýpra í hirzlurnar þar sem hann geymir ríkisleyndarmál sín. Aumingja McCloskey var sendur á fund fréttamanna til að éta ofan í sig allt sem hann var látinn segja daginn áður, viðurkenna að Lee færi með rétt mál og Rusk kann- aðist við að hafa sent afsök- unarbréfið. Enn einu sinni hef- ur Bandaríkjastjórn því orðið að gjalti frammi fyrir öllum heimi fyrir tilverknað CIA. Seymour Topping, fréttaritari New York Times í Hongkong, rifjar upp í tilefni af þessum atburði, að Lee er ekki fyrsti leiðtogi Asíuríkis sem verður Trúarfei&togi" vestra bjd við ellefu eiginkonur ■ Lögreglan í New York hefur nú handtekið rúm- lega fertugan „biskup“ að nafni Devernon LeGrande, en sá stjómaði sértrúarflokki þeldökkra manna í Brooklyn. Það er nú komið í ljós, að biskup bjó í lúxusumhverfi við hvorki meira né minna en ellefu eiginkonur, sem höfðu þegar alið honum 47 börn. Sjö eiginkvennanna reyndust vera með barni er lögreglan réðist inn í „kirkju“ þessa framtakssama biskups. Guðshúsið er þriggja hæða<s> hús í Bedford-Stuyvesant. elsinu fyrir ólöglegar fóstur- eyðingar og hefur tíu sinnum hlQtið dóm. Á skilti. fyrir ut- an „kirkjuna“ lýsir LeGrande sjálfum sér sem „sálfræðingi, háspekingi og guðfræðingj og ennfremur skipuleggjanda brúðkaupa og jarðarfara“. Konurnar ellefu héldu sig innilokaðar í litlum klefum í kirkjunni og mátti LeGrande ekki heyra annað nefnt en að þær byggju þar af frjálsum vilja, nánar tiltekið sem „nunn- ur“ Haremsherramaðurinn er nú ákærður fyrir fjölmörg af- brot, svo sem nauðgun mann- rán, fyrir að hafa siðspillt ung- lingum og haft eiturlyf undir höndum. Auk þessa alls er honum gefið að sök að hafa látið „eiginkonur“ sínar stunda betl á götum borgarinnar. Það var ein af þessum inni- lokuðu frúm, sem kom að lok- um upp um LeGrande. Hún heldur því einnig fram, að „biskup“ hafi myrt þrjár fyrr- verandi „eiginkonur“ sínar. Lögreglan braut upp gólfið í Brooklyn-kirkjunni, en ekki hefur neitt fundizt er færi sönnur á þessa ákæru. Lögreglan lýsir LeGrande sem „glæsilegum og töfrandi“ herra, en kannast annars vel við manninn. Hann hefur dval- izt um hrið i Sing-Sing fang- Blaðskóngur tal- ar við Kosygin MOSKVU 9/9 — Brezki blaða- kóngurinn Lord Thompson of Fleet átti á miðvikudag klukku- stundar langt viðtal við Kosygin forsætisráðherra Sovétríkjanna. Það var í Kreml, sem viðtalið fór fram. Er þetta í fyrsta sinn frá því í júlí, sem Kosygin veit- ir vesturlandabjaðamanni viðtal. Búizt er við því, að viðtalið birt- ist í „Sunday Times“ 12. þ.m. PillfíSiSIIIW it.Mt klk 19'J vinsœltKtir tkortoripir fóhannes skélovörðustiq 7 * I 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.