Þjóðviljinn - 30.09.1965, Síða 1
Listavcrkanefnd Kópavogs
hefnr ákveðið að festa
kaup á höggmynd eftir
Sigurjón Óiafsson mynd-
höggvara. Listaverkið
nefnir Sigurjón „Allir í
leik“ — og er grásteins-
lágmynd.
Ekki hefur ennþá verið
tekin ákvörðun um stað-
setningu höggmyndarinnar.
Listaverkanefnd Köpavogs
er kosin af bæjarstjórn og
hana skipa: Hjálmar Ól-
afsson, bæjarstjóri sem er
formaður nefndarinnar,
Þorvarður Árnason, fram-
kvæmdarstjóri er ritari
hennar, frú Guðrún Þór,
Sigurður Sigurðsson, list-
málari og Jón Eldon fuli-
V
't'H
I | Myndirnar af listaverkinu
tók Ijósmyndari Þjóðvilj-
ans Ari Kárason í gær.
... . .. •
■■
■II
‘ '
■■•■••■ ••• . :■••
‘ ■
:*:•
iɧ
■ <
lÍIIÍllSÍÍIIt:
■: '■' ' v;
'v ' > f''
I; m m < -
■; ■:■
"::: •■■.•:■■■:':
.y:;>
I
Fimmtudagur 30. september 1965 — 30. árgangur
tölublað.
Tannlæknadeildin er
lokuð vegna þrengsla
Ríkið neitar að leggja fram fé til húsbyggingar
□ Samkvæmt upplýsingum Jóns Sigtryggssonar prófessors, forstöðu-
manns tannlæknadeildar Háskóla íslands, hefur ekki reynzt unnt að taka
neina nýja nemendur í deildina í haust þótt 20 hafi sótt um inngöngu í
hana. Stafar þetta af húsnæðisþrengslum svo og verkfæraskorti, en rík-
ið hefur neitað að leggja fé til þeirra hluta þrátt fyrir vilyrði um það
í fyrra.
Prófessor Jón sagði að í fyrra
hefðu verið teknir 15 nýir nerm-
endur inn í tannlæknadeildina
og væru nemendur þar nú alls
um 50. Hefðu forráðamenn Há-
skólans og tanniæknadeildarinn-
ar þá talið sig hafa haft á-
stæðu til að ætla að ríkið
myndi leggja fram eitthvert fé
til húsbyggingar yfir tannlækna-
deiltíina, en nú segði ríkið að
Háskólinn ætti einn að sjá um
þá hlið málsins. Sagði Jón að
FLOKKURINN
Fyrsta
spilakvöldið
á sunnudag
+! Eins og áður er geti.ð
í blaðinu hefjast spiia-
kvöld Sósíalistafélags
Reykjavíkur næst komandi
sunnudagskvöld kl. 8.30 og
verða þau að venju hald-
in í Tjarnargötu 20.
;irj Að þessu sinni verður
Þórbergur Þórðarson rit-
höfundur heiðursgestur
kvöldisins og mun hann
láta ljós sitt skína mönn-
um til skemmtunar og
fróðleiks.
•*•' Snilakvöldsins verður
getið nánar í næstu blöð-
um.
Sósíalistafélag
Reykjavíkur.
ekki væri útlit fyrir að úr rætt-
ist í húsnæðismálunum á næst-
unni, ef Hásikólinn ætti að
leggja fram fé til þeirra, þar
eð hann hefði svo mörgu öðru
að sinna, svo sem byggingu yfir
læknadeildina og byggingu yfir
rannsóknarstofnunina.
Tannlæknadeildin hefur nú
um 6 ára skeið verið til húsa
í nýbyggingu Landspítalans og
rýmkaðist dálítið um hana fyrst
eftir að hún flutti þangað en
nú er það húsnæði orðið allt
of þröngt og ekkert viðbótar-
húsnæði þar að fá.
Sautjánfalt fasteignamatsverðj
Banaslys / Vestmannaeyjum
Það hörmulega slys varð í Vestmannaeyjum um sex-
Ieytið í gærkvöld, að stúlkubarn á fimmta ári varð fyr-
ir bíl og beið þegar bana.
Slysið varð á Brimhólabraut og varð með þeim hætti,
að telpan lenti undir hægra afturhjóli, þegar bifreiðin
var að leggja af stað og heyrði þá bifreiðarstjórinn óp
telpunnar og fann jafnframt, að bifreið hans ók á eitt-
hvað.
Þetta var Chevrolet vörubíll- yfirbyggður, Qg var not-
aður til þess að aka út matvælum. Málið er í rannsókn.
Myndin hér að ofan er af
Brekkugötu 13 í Hafnaríirði,
húsinu sem ríkissjóður keypti
af Guðmundi 1. Guðmunds-
syni, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, nú í sumar fyrir
kr. 4.737.000.00
Þjóðviljinn leitaði sér I gær
upplýsinga um fasteignamat
og brunabótamat húseignar-
inn og kom í Ijós að
fasteignamat
252.100 en
32.200, eða
284.300.00.
hússins er kr.
lóðarinnar kr.
samtals kr.
Brunabótamat
hússins er hins vegar kr.
1.937.500.00 nú, en fyrsta
brunabótamatið sem tekið
var þcgar húsið var nýtt ár-
ið 1947 var kr. 438.000.00.
Samkvæmt þessum tölum
hefur söiuverð húse.-gnarinn-
ar verið nær sautjánfalt
hærra en fasteignamatið og
talsvert meira en tvöfalt
hærra en brunabótamatið.
Þjóðviljinn snéri sér í gær
til fasteignasala í Hafnarfirði
og leitaði upplýsinga hjá
þeim um hlutföllin á milli
fasteignamats og brunabóta-
mats annars vegar og hins
vegar söluverðs húsa þar í
kaupstaðnum, töldu þeir erf-
itt að nefna ákveðnar tölur
í því sambandi en Ijóst var
af svörum þeirra að kaup-
verðið í framangreindu húsi
er Iangt fyrir ofan gangverð
húsa á frjálsum sölumarkaði
í Hafnarfirði.
Einn fasteignasalinn sagði
að fyrir tveimur árum hefði
söluverð húsa í Hafnarfirði
verið 5—6 fa.lt hærra en
fasteignamat en sagði síðan
myndi sá munur hafa aukiri
talsvert. Ann.ar fasteignasali
taldi að söluverðið væri yf-
irleit ekki mikið hærra en
brunabótamatið, þótt það
væri auðvitað talsvert mis-
jafnt. Nefndi hann jafnvel
dæmi þess að hann hefði ný-
verið selt hús þar sem sölu-
verðið vor nokkru lægra en
brunabótamatið. Sagði hann
einnig að það væri áberandi
að væri söluverð húsanna
komið yfir eina miljón króna,
þá legðu kaupendumir mikið
upp úr því að húsið væri
nýtt og nýtízkulegt, en hús
Guðmundar í. er a.m.k. 18
ára gamalt.
Þá er eitt atriði enn í sam-
bandi við þessi húsakaup sem
miklu máli skiptir en það er
að ríkissjóður mun hafa
gTeitt kaupverðið út í hönd
en á frjálsum húsamarkaði
gildir sú regla að seljandi
fær vanalega ekki nema rösk-
lega helming húsverðsins út-
borgaðan en afgangurinn er
greiddiir með skuldabréfum
til a.m.k. 10 ára. Sé útborg-
unin hins vegar mikil Iækk-
ar það söluverðið mjög veru-
lega.
Verður
prentara-
verkfall?
Samningafundurinn í prent-
aradeilunni stóð enn þegar blað-
ið for í pressuna, og því ekk-
ert vitað um hvort samið verð-
ur eða verkfall prentara kemur
til framkvæmda.
Fundur er í Hinu ísl. prent-
arafélagi í kvöld, og verði ekki
samið hefst prentaraverkfallið
kl. 12 í nótt, aðfaranótt föstu-
dags.
Kennarar ráku áróður fyrir vissa
verzlun án þess að hugsa út í það!
Mikil gremja ríkir meðal bók-
sala þessa dagana vegna þess að
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar hefur sölsað undir sig
mestan hluta sölunnar í kennslu-
bókum þetta haustið með lævís-
legu herbragði. Hefur verzlun-
in dreift um alla skólana pönt-
unarlista. merktum verzluninni,
yfir þær bækur, sem notaðar
eru og nemendur þurfa að
kaupa.
Munu listar þessir hafa far-
ið um hendur kennara án þess
að þeir hafi hugsað út í, að
hér var freklega rekinn áróður
fyrir einni verzlun, enda kom á
daginn, að a.m.k. gagnfræða-
skólanemar skildu þetta þann-
ig, að þeim bæri að kaupa
skólabækurnar í þessari verzl-
un og engri annarri og jafnvel,
að þær fengjust ekki annars
staðar.
Þjóðviljinn átti smáviðtal við
Lárus Blöndal, formann Félags
bókaverzlana vegna þessa at-
burðar Qg sagði hann að þei.a
hefði verið auglýsingabrella,
sem hefði komið þeim hinum
alveg á óvart. Hefðu aðrir bók-
salar þegar rætf þetta mál, en
ákveðið að gera ekkert í því að
Framhald á 9. síðu.
Lítil síld
Ægir fann síld í gær um 82
milur suðaustur af Norðfjarðar-
horni og voru bátarnir á leið
þangað í gærkvöld. Svartaþoka
er á miðunum.
Síldveiðiskipin héldu almenn
á miðin í gærmorgun og fengu
fáein skip véi^i í Seyðisfjarð-
ardýpi. 60 mílur undan landi.
Síldin, sem veiddist í gær, er
millisíld. í morgun voru skip-
in farin að kasta nokkru fjær
land; en í gær. Samtals fengu
12 skip 8.750 tunnur.
Dalatangi
Ámi Magnússon GK 1000
Snæfell EA 500
Jörundur III RE 600
Hafrún ÍS 1000
Höfrungur III AK 2200
Akurey SF 800
Mummi GK 450
Skímir AK 900
Ingiber Ólafss. II. GK 650
Árni Geir KE 150
Víðir II. GK 200
Ófeigur II. VE 300
<*
>
4