Þjóðviljinn - 30.09.1965, Síða 3
Fimmtodagur 30. eeptember 10® — E>JÓÐVIL>JXNIT — SlÐA J
Sén Ji við fréttamenn í Peking:
Kínverjar hvergi smeykir
við árás Bandaríkjamanna
— Við höfum átt von á henni í sextán ár og erum
reiðubúnir að taka á móti þeim hvenær sem væri
Btmdariska vigvélin að verki í S-Vietnam
mmm
v-xy*
mm
PEKING 29/9 — Sén Ji, utanríkisráðherra Kína, sagði
í Peking í dag samkvæmt frétt frá frönsku fréttastofunni
AFP að Kínverjar væru ekki einungis færir um að stand-
ast árás Bandaríkjamanna, heldur hefðu þeir ekkert á
móti slíkri árás sem þeir hefðu búizt við í sextán ár og
væru reiðubúnir að taka á móti hvenær sem væri.
I>að vaeri Kínverjum í hag að
fá að takast á við bandarísku
heimsvaldasinnana, hafði AFP
efti-r Sén Ji. Slík átök myndu
sameina alla þjóðina og örva
til baráttu gegn heimsvalda-
stefnunnj um gervalla heims-
byggðina.
Kínverjar væru ekki einungis
undir það búnir að tortíma
þeim bandarísku hersveitum
sem ráðast myndu á land
beirra, heldur vaeru þeir við
bví búnir að veita þeim eftir-
för þar til hin bandaríska
heimsvaldastefna vseri liðin und'
*■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■*■■*■'
Frakkar hvetja
til
Kína að SÞ
NEW YORK 29/9 — Utan-
ríkisráðherra Frakklands,
Couve de Murville, hvatti
í dag allsherjarþing St> til
að veita Kína aðild að
samtökunum. Það eitt
hefðist upp úr þvi að
halda Kína utan SÞ að
Pekingstjórnin færi alger-
lega sínu fram. Engin
vandamál í Asíu mætti
leysa nema Kína ætti
beinan hlut að lausn
þeirra, sagði Coiuve de
Murville sem talaði í al-
mennum umræðum alls-
herjarþingsins. Þetta er í
fyrsta sinn síðan 1962 að
hann mætir á þingi SÞ.
ir lok hvarvetna í heiminum.
Sén Ji sagði að Bandaríkin
hefðu reynt að ógna mörgum
þjóðum til undirgefni, bæði í
Kóreu, Vietnam. Kongó og
Domingo. Bandarísku heims-
valdasinnamir hefðu meira að
segja reynt að tyfta til Frakka
og de Gaulle, en hann hefði þá
gerzt vinur Kínverja. Sén Ji fór
einnig hörðum orðum um leið-
toga Sovétríkjanna og sagði að
dagar þeirra myndu taldir ef
þeir legðu Bandaríkjamönnum
lið í áTás á Kína.
Hann kvað Kínverja ekki
myndu gerast aðili að SÞ, þótt
orðið væri við kröfu þeirra um
að Formósustjórnin yrði svipt
aðild. Þeir settu enn þrjú skil-
yrði; 1, Afturköllun þeirrar á-
lyktunar SÞ sem fordæmdi
Kína sem árásaraðila í Kóreu.
2. Samþykkt ályktunar sem við-
urkenndi að SÞ hefðu þá orðið
á mistök. 3. Gagnger endur-
skoðun á stofnskrá samtakanna.
Slík endurskoðun yrði að hafa
í för með sér að öllum lepp-
ríkjum yrði vikig úr samtökun-
um, en öll óháð ríki fengju að-
ild að þeim.
Sén Ji kvaðst vera peirrar
skoðunar að heppilegast myndi
að fresta ráðstefnu Afríku- og
Asíuríkja sem á að hefjast í
Algeirsborg 5. nóvember. ef svo
Framhald á 9. siðu.
i'.
Viðbótarsala á sard-
ínum og gaffalbitum
I-] Meðal útflutningsvöru sem
fór utan með Goðafossi í gær
voru 7.000 kassar af sardínum
til Sovétríkjanna. Eins og áður
hefur verið greint frá hér í
blaðinu voru gerðir í Moskvu í
haust aukasamningar um sölu á
niðurlögðum og niðursoðnum
fiskafurðum, gaffalbitum og
sardínum, fyrir 9,1 miljón króna
á þessu ári til viðbótar við 7
miljóna króna viöskipti sem áð-
ur hafði verið samið um. Eru
tveir þriðju af þessu magni
gaffalbitar en einn þriðji sard-
ínur, og hafa niðurlagningaverk-
smiðjur á Siglufirði og verk-
smiðjan K. Jónsson og Co á
Akureyri að undanförnu fram-
leitt upp í þessa nýju samninga.
BLAÐADREIFINC
Börn eða fullorðnir óskast til að bera blað-
ið til kaupenda í eftirtalin hverfi:
Reykjavíkurveg — Njálsgötu — Skúla-
götu — Sigtún — Laugames — Seltjarnar-
nes I. — Leifsgötu — Kleppsveg — Miklu-
braut.
KÓPAV0GUR
Blaðburðarbörn óskast til að bera blaðið
til kaupenda í Kópavogi.
Hringið í síma: 40319.
Sími
17 500
Samningar þessir voru gerðir fyr-
ir milligöngu Mars Trading Co.
n Islendingar hafa sélt gaff-
albita og sardínur til Sovétríkj-
anna undanfarin fjögur ár. Var
salan upphaflega 7 miljónir
króna á ári, en verdur í ár 16,1
miljón. Munu vörurnar aðeins
hafa verið seldar í Moskvu og
hafa runnið út. í samningavið-
ræðum þeim sem frestað var í
síðasta mánuði lögðu fulltrúar
Sovétríkjanna til að þessi við-
skipti yrðu aukin upp í 24 mili-
ónir á næsta ári, en af IsJands
hálfu var boðizt til að selja
fyrir 50 miljónir króna. Ef
verksmiðjur þær sem til eru í
landinu framleiddu á fullum af-
köstum myndi ársverðmæti geta
komizt upp í 100 miljónir króna.
mm
Hermaðurinn sem er fremst á myndinni heitir Dave Taylor og er úr landgönguliði bandaríska flot-
ans. Hann heldur hér með brugðnum byssusting vörð yfir börnum, konum og gamalmennum í þorpi
einu fyrir norðan borgina Qui Nhon í Suður-Vietnam. Sveit Iandgönguliða hafði ráðizt inn í þorpið til
að handsama þar skæruliða, en þegar engir fundust voru konur, börn og gamalmenni tekin í staðinn.
Boðsðsr fréttir
af Che Guevara
MIAMI 29/9 — I fréttastofu-
fregn frá Miami segir að Fidel
Castro hafi í útvarpsræðu í gær
boðað endurskipulagningu á
Sósíalistíska byltingarflokknum.
Þá er haft eftir honum að á
næstunni muni birt skjal sem
skýri fjarveru Che Guevara síð-
ustu þrjá mánuði, en ekkert
hefur borið á honum þann tíma
og hafa ýmsar kviksögur verið
á kreiki um ástæðuna.
Nýskipan / iðnaði samþykkt
of hoðað til flokksþings
MOSKVU 29/9 — Miðstjóm
Kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna lauk í dag fundi sínum
í Moskvu eftir að hafa sam-
þykkt tillögur þær um nýskipan
í iðnaði landsins sem Kosygin
forsætisráðherra hafði lagt fyr-
ir hann og boðað úl nýs flokks-
þings.
Enginn fótur reyndist vera
fyrir staðhæfingum á vestur-
löndum um að á fundinum
myndu verða gerðar miklar
breytingar á stjórn flokks og
ríkis, aðeins var skipt um menn
í einnj stöðu. Vítalí Títof, einn
insœlastir skartgripír
'óhewnB skólovörðustíg 7
af riturum flokksins sem haft
hafði umsjá með skipulagi hans,
var leystur frá því staríi og í
hans stað skipaður Fjodor Kúl-
akof, sem hafði tekið við land-
búnaðardeild flokksins eftir af-
sögn Krústjofs í fyrrahaust.
Ekki var neitt tekið fram um
það hvenær næsta flokksþing,
það 23., myndj koma saman,
en trúlega verður það í febrú-
ar.
Nýskipanin j iðnaðinum mun
íeiða af sér mikla lagasetningu
og munu þeir lagabálkar verða
lagðir fyrir Æðstaráðið sem
kemur saman í Moskvu á föstu-
dag.
Þing brezka Verkamannaflokksins
Þriðjungur fulltrúa gegn
stuðningi við Bandarikin
BLACKPOOL, 29/9 — Rætt var
um utanríkismál á þingi brezka
Verkamannafloksins í Black-
pool í dag og vörðu þeir Wil-
son forsætisráðherra og Stewart
utanríkisráðh. stuðning brezku
stjómarinnar vig hemað Banda-
ríkjamanna í Vietnam gegn
hörðum ádeilum fulltrúa vinstrj'
manna.
Eins og við mátti búast sam-
þykkti þingið traust a utanrík-
isstefnu stjórnarinnar með því
að fella tillögur sem gagnrýndu
stríð Bandaríkjamahna í Viet-
nam og yfirgang þeirra í Dom-
ingo-lýðveldinu. Stjóm Wilsons
hefur svo nauman meirihluta á
þingi og aðstaða hennar er að
öðru leyti svo ótraust að eðli-
legt var að mikill meirihluti
þingfulltrúa vildi ekki gera
henni erfiðara fyrir með því að
samþykkja vantraust á stefnu
hennar í utanríkismálum Engu
að síður greiddi rúmur þriðj-
ungur þingfulltrúa atkvæði með
tillögunum um vitur á Banda-
ríkin og stuðning Breta við þau.
f frétt frá Reuter er sagt að
það hafi vakið furðu hve marg-
ir þingfulltrúanna greiddu at-
kvæði gegn framferðj Banda-
ríkjamanna í Vietnam. Þeir sem
vildu samþykkja ályktunina um
að fordæma það fóru með at-
kvæði 2.284.000, en andstæðing-
ar hennar með atkvæði 4.065.000.
Gagnrýni á stefnu stjórnarinn-
ar í málum innflytjenda hlaut
1.581.000 atkvæði, en 4.736.000
voru á móti Fulltrúar almenna
verkamannasambandsins CTG-
WU) sem fara með um miljón
atkvæði voru með báðum álykt-
ununura.
„líí“ m tíi
í tilraunagiasi
WASHINGTON 29/9 —
Hópi vísindamanna frá
Bandaríkjunum, Bretlandi
og Japan hefur tekizt að
framleiða „líf í tilrauna-
glasi“. Þeim tókst að bú
til mólikúl efnis sem er i
erfðastofnum lífvera, seg-
ir í fréttastofufregn sem
höfg er eftir bandarísku
vísindaakademíunni.
Minna manntjón en ætlað
þó létu mörg hundruð lífíð
aður hefur verið brottflutningur
fólks frá allri strönd vatnsins,
sem eyjan er í.
Fgypzka stjórnin
segir af sár
KAÍRÓ 29/9 — Aly Sabry, for-
sætisráðherra Egyptalands, baðst
: gær lausnar fyrir ráðuneyti
sitt og var sú skýrinp sefin á
lausnarbeiðninni a>( '•'áttaskil
væru að verða i byltingunni.
Stjórnarblaðið „A1 Ahram“ seg-
ir að stjórnarskiptin muni auð-
velda pólitískar breytingar. Sagt
er að Nasser forseti undirbúj af-
nám eins fiokks kerfisins
MANILLA 29/ — Minna mann-
tjón mun hafa orðið í eld-
gosinu á Taal-ey í Filipseyjum
en óttazt var í fyrstu, en þó
munu 300—500 manns hafa lát-
ið lífið.
Ágizkanir um að þúsund
manns eða jafnvel fleiri hefðu
beðig bana eru nú taldar fjarri
lagi. Enn hafa ekki fundizt
nema 107 lík, en hundruð eru
talin liggja grafin undir hrauni
ig ösku sem þekur þrjá fjórðu
'luta eyjarinnar.
Eyjarskeggjar sem flúið höfðu
eyna vildu í dag ólmir snúa
aftur til heimkynna sinna, enda
þótt enn sé hætta á gosum, en
lögreglan fékk fyrirmæli um að
halda aftur af þeim. Fyrirskip-
>