Þjóðviljinn - 30.09.1965, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 30. september 1065 — ÞJÖÐVILJIN'N — SlBA J
De Gaulle vill endurskoðun
á samningi um herstöðvar
Bandaríkjamenn hafa margsinnis rofið samninginn;
herstöðvarnar verði settar undir stjórn Frakka
í Parísarútgáfu „New York
Herald Tribune“ var frá þvi
skýrt á miðvikudaginn að
de Gaulle forseti hefði fyr-
ir þremur vikum krafizt
þess í viðtali við George
Ball, aðstoðarutanríkismála-
ráðherra Bandarikjanna, að
herstöðvar Bandaríkjamanna
í Frakklandi yrðu settar
u.ndir stjórn franskra hers-
höfðingja. Franska vikublað-
ið „L’Express" skýrir nánar
frá atvikum málsins.
Svíam frjálst að
kaupa sterkt öl
STOKKHÓLMI 28/9 — Frá
fösfcudeginum veröur Svium
frjálst aö kaupa áfengt öl.
Hömlum á sölu áfengs öls var
aflétt að nokkru fyrir allmörg-
um árum, en þó var bannað að
selja sterkana öl en 2,6 prósent
annars staðar en í verzlunum
áfengiseinkasölunnar. Nú verð-
ur heimilt að selja í matvöru-
verzlunum 3,6 prösent öl, sem
jafnast að styrkleika á við
venjulegan danskan pilsmer.
11. Antarktis-
leiðangurinn
MOSKVU — Um miðjan
okt. leggur M/S „Ob“ frá
Leningrad af stað og flybur
11. sovézka suðurheim-
skautsleiðangurinn áleið-
is. „Ob“ mun verða kom-
ið til Suðurheimskauts-
landsins þegar þar tekur
að sumra. í þessum leið-
angri munu víðtækar
rannsóknir fara fram;
foringi leiðangursmanna
verður L. Dubrovin, mag-
ister í landafræði, en hann
hefur áður dvalizt á suð-
urslóðum og sitjórnaði þá
sovézkri rannsóknastöð.
„Ég væri fljótur að af-
þakka það að vera með-
limur i klúbbi, sem hleypti
inn manni eins og mér!“
(— Groucho Marx).
Herstöðvar Bandaríkjamanna í Frakklandi.
— Þegar Alain Peyrefitte
upplýsingamálaráðherra var
spurður um þessa frétt kvaðst
hann ekkj hafa neitt Um hana
að segja, en „L’Express“ baetti
þessu vig hana:
— Ef Bandaríkjastjórn hafn-
aði þessum tilmælum er de
Gaulle sagður haía lýst yfir
að hann myndi krefjast þess
að herstöðvarnar yrðu lagðar
niður, segir „L”Express“.
Þegar de Gaulle ræddi við
Ball kvartaðj hann yfir því
að bandarísku hershöfðingj-
arnir færu um of sínu fram í
Frakklandi. ÞeSs vegna krafð-
ist hann þess að níu herstöðv-
ar Bandaríkjamanna i Frakk-
landi yrðu settar undir stjórn
franskra foringja, svo að koma
mætti í veg íyrir leiðinlega
árekstra. Það væri að sjálf-
sögðu ekki um það að ræða, að
frönsku foringjarnir fengju
vald til að skipa Bandaríkja-
mönnum fyrir, heldur aðeins
-<$>
RíkiS kaupir hlutabréf tíl
að halda niðri verðlaginu
STOKKHÓLMI 28/9 — Sænska
ríkið hefur fyrir 34 miljónir
rænskra króna (um 275 milj.
isl. króna) keypt upp hluta-
bréfin í byggingarefnafyrirtæk-
mu Svenska Durox AB og eru
kaupin gerð í þeim tilgangi að
auðvelda ríkinu að fylgjast með
og hafa áhrif á verðlag á bygg-
ingarefnum og þarmeð á bygg-
ingar- og húsnæðiskostnað.
Með þessum hlutabréfum eign-
ast sænska ríkið helminginn af
hlutafé fyrirtækisins Rockwool
AB sem framleiðir um 45 pró-
sent af allri steinull í Svfþjóð,
einnig Skövde Gasbetong AB sem
hefur 10—12 prósent af gas-
steypumarkaðnum í Svíþjóð.
Viðskiptamálaráðuneytið 1
Stokkhólmi gefur þá skýringu á
kaupunum að rikisstjórnin hafi
viljað eignast Durox-félagið til
þess að geta fylgzt betur með
verðlagningu í byggingarefna-
iðnaðinum og haft áhrif á verð-
lagið í samkeppni við einkafyr-
irtækin.
Verðlag á þeim byggingarefn-
um sem um ræðir hefur mjög
hækkað síðustu árin í Svíþjóð
og búizt hefur verið við meiri
hækkunum vegna aukinnar eft-
irspurnar.
Mei kúlu í hjarta
Haustíð 1942 særðist sovézkur liðsiöringi, S. Vetjerka,
illa í bardögum við Þjóðverja. Hann lifði þó og sár hans
greru. Þeirra á meðal var smávægileg skuria vinstra megin
á líkamanum og það var ekki fyrr en við læknisrannsókn
tveim árum síðar, sem upp komst, að byssukúla sat föst í
hjarta mannsins. Þetta var svo sjaldgæft sjúkdómstilfelli,
að læknar sneru sér til N. Burdenko, sem er fclagi í vís-
indaakademiu Sovétríkjanna, og báðu um hjálp. Burdcnko,
sem er yfirskurðlæknir við læknadeiid Rauða hersins, hóf
þegar að búa sig undir að skera manninn upp. Síðan sncr-
ist honum þó hugur og hann rcði til þcss að Iiðsforinglnn
tæki aftur til starfa, enda var hann við beztu heilsu —
þrátt fyrir kúluna, scm sat honum í hjartastað.
Það var ekki fyrr en að stríði Ioknu, sem Vetjerka fór
úr hernum. I dag býr hann í Harkof með konu sinni og
brem sonum. Uppgjafahermanninum líður ágætlega og það
er nær aldrei, sem hann finnur fyrir byssukúlunni. Til ör-
yggis er liðsforinginn þó undir stöðugu Iækniseftirliti.
að leyfa eða banna tilflutninga
þeirra,
Ef Bandaríkjastjórn teldi sér
ekki unnt að fallast á slíka
málamiðlun, væri franska
stjómin fús að taka allt mál-
ið upp til endurskoðunar.
Margsinnis rofið
De Gaulle telur að Banda-
ríkjamenn hafi margsinnis rof-
ið samninginn sem gerður var
um herstöðvamar í april 1954
og „L’Express“ álítur að hann
hafi mikið tíl sins máls. f
samningnum er gert ráð íyrir
að haft verði samráð við
Frakka um notkun herstöðv-
anna hvenær sem mikig ligg-
ur við.
En Bandarikjamenn ‘ hafa
hvað eftir annað notað her-
stöðvarnar til mikilvægra og
umdeildra aðgerða án þess að
leita eftir samþykki Frakka.
Þeir notuðu þannig herstöðina
í Evreux þegar þeir sendu
bandaríska fallhlífahermenn
til Stanleyville og 1961 var
herstöðin í Chateauroux not-
uð á sama hátt þegar herlið
var sent til Kongó.
Fyrir einum mánuði ákvað
bandariska herstjórnin um-
fangsmikla heræfingu flug-
hersins í Evrópu og tóku þátt
í henni bæði þungar sprengju-
þotur og orustuþotur. Þessi
heræfing var ákveðin án nokk-
urs samráðs við frönsku her-
stjómina,
Þá gat de Gaulíe einnig bent
á njósnaflug Bandaríkjamanna
yfir kjamorkuveri Frakka í
Pierralatte í júlí s.l. Hann hef-
ur eðlilega ekk; viljað fallast
á þá skýringu Bandaríkja-
manna að flugvél þeirra hafi
tekiff 175 ljósmyndir af kjam-
orkuverinu „af vangá“.
Aukin samvinna
Frakka og Kína
PARÍS 28/9 — Fulltrúar
stjórna Kína og Frakklands hófu
í dag viðræður í París um
samning um samskipti landanna
í menningarmálum, vísindum og
tækni. Þessi samningur á að
spanna yfir alla þá samvinnu
landanna sem tekizt hefur þeg-
ar á þessum sviðum auk ný-
mæla sem kunna að koma upp
í viðræðunum. Nú stundar 21
franskur stúdent nám við kín-
verska háskóla á námsstyrkjum
frá kínversku stjórninni, og jafn-
margir kínverskir í Frakklandi.
Auk þess eru 82 kínverskir stúd-
entar nú við frönskunám í
Frakklandi.
— Sálfræðingurinn verður að
vita allt og gruna hitt.
(— Maurice Percheron,
franskur sálfræöingur).
Ég er bandarísk uppfinn-
(—Ludwig Erhard).
Undanfarð hefur mátt lesa það í Morgunblaðinu, daglega, að við
á Þjóðviljanum mælum allt upp í bölv . . . Kínverjunum á kostn-
að Rússa, og þykir Mogga þetta hin verstu umskipti. Það er nú
einusinni hart að heita þjófur og vera ekki, og því til sönnunar
birtum við hér mynd af raforkuveri sem nú er óðum að risa í
Hunan-fylkinu. Þetta geta nú kommaskammirnar í Asíu. Það cr
munur eða Indland, maður . . I
Enskir flugmenn kynna sér
bandarískar morðaðferðir
— Það sem bilstjórar nú á
dögum vita ekki um akstur,
er nóg til að fylla heilt
sjúkrahús.
I— Salon Gahlin),.
Hópur háttsettra manna úr
enska flughemum kom nýlega
heim til Lundúna eftir að
hafa verið í Suður-Víetnam.
Að sögn enska blaðsins „Daily
Express", eyddu þeir tíu dög-
uni í „leynilega sendiferð“. Sá
sem kjaftaði frá för þeirra
flugmannanna, var starfsmað-
ur enska sendiráðsins í Saigon.
Liðsforingjarnir ú-r flughem-
um höfðu, að hans sögn, verið
algjörlega í embættiserindum,
nánar tiltekið að kynna sér
hvernig farið væri að því að
beita flugher gegn skærulið-
um,
Það vár af „starfsáhuga"
einum saman. sem ensku flug-
mennirnir reynóu að læra af
reynslu bandariskra starfs-
bræðra sinna. heimsóttu banda-
rísku flugvellina og töluðu við
liðsforingja úr stjórnarhem-
um, allt upp í Nguyen Cao Ky,
flugmanninn sem nú á að
heita í forsæti fyrir banda-
risku leppstjórninni í Saigon.
Það er ekki erfitt að geta
sér til um það. hvað ensku
flugmennimir hafa lært í Suð-
ur-Vietnam. Þeir hafa lært.
hvernig megi með beztum og
mestum árangri varpa sprengj-
um á þorp fátækra bænda.
hvernig eyðileggja skuli manns-
líf og uppskeru með naualm-
sprengjum, hvernig dæma
skuli landsbúa til sultar,
hvernig eyðileggia skuli orku-
ver og skapa flóð.
Hver veit svo nema Verka-
mannaflokksstjómin enska ætti
sér að beita fenginni reynslu
flugmanna sinna til þess að
brjóta á bak aftur Þjóðfrelsis-
hreyfinguna í Suður-Arabíu
eða Norður-Kalimantan. Það
eitt væri nóg til þess að skýra
,.starfsáhuga“ Englendinga á
glæpum Bandaríkjamanna.
Læröi japönsku
á mánaðartíma!
Þykist svo sem ekki vera neinn
sérstaklega mikill málagarpur!
Hálfþritugur tæknifræðingur,
Jéfgéní Tsarenko frá Onnetsk,
telur sjálfur sig engan sér-
stakan tungumálamann, enda
þótt hann þýði án ertiðleika
fræðibækur á tíu tungumál-
um á málmrannsóknastofunni,
þar sem hann vinnur.
F.vrir nokkrum árum fengu
menn við stofnunina áhuga á
jap>anskri bók um málmfræði
og Tsarenko var skipað að^
setjast nú niður og læra
sprokið. Mánuði síðar • gat
hann þýtt bókina. Tsarenko,
les einnig azerbajdönsku, tyrk-
nesku hindi og arabísku, og
langt er síðan hann tileinkaði
sér það, sem kennslubækur
gátu frætt hann um fomgerm-
önsk mál.
Það var ekki fyrr en á þri-
tugsaldri. sem Tsarenko fékk
fyrst áhuga á tungumálanámi.
Það atvikaðist þannig, að hann
las af rselnj í æskulýðsþlaði
grein með fyrirsögninni; „Eitt
tungumál á ári“.
Tsarenko heldur nú áfram
að liðka sig í japönskunni og
auka þekkingu sina á öðrum
austurlandamálum. Jafnframt
þessu er hann svona smátt
og smátt að búa sig undir að
læra fungumál Malaya og
Pólynesíu.
’(— Novistis).
Kviðdómandi
í eigin sök
EUa Fitzgerald átti að taka
sæti í kviðdómi í Springfield
í Bandarikjunum. Á síðustu
stundu varð þó að strika nafn
Ellu af listanum: Það kom
nefnilega i ljós að það var hún
^jálf sem átti að mæta fyrir
rétti!