Þjóðviljinn - 02.03.1966, Side 12
Frúin er tortryggileg með
þrjár kápur
segir Urmsteinn Beck
□ í gærdag gékk ný tollreglugerð í gildi varðandi toll-
frjálst góss í farangri ferðamanna og farmanna við komu
þeirra til landsins.
□ Við Þjóðviljamenn brugðum okkur á vettvang til
þess að kynnast viðbrögðum bæði ferðamanna og áhafna
á skipum og flugvélum.
□ Fyrsta skipið afgreitt samkvæmt þessari nýju
reglugerð reyndist flutningaskipið Dagstjaman frá Bol-
ungarvík, — var hún að koma frá Hamborg.
□ Var Dagstjarnan afgreidd á ytri höfninni um þrjú
leytið í fyrrinótt af reykvískum tollþjónum og gaf skips-
höfnin þá yfirlýsingu, að hún ætlaði að ganga á fund þing-
manns síns og útgerðarstjóra Einars Guðfinnssonar í Bol-
ungarvík og ræða málið lítillega við þingmanninn.
Flutningaskipið
Samkvæmt nýju reglugerðinni
minnkar skammtur áhafna á
flutningaskipum úr tveimur kart-
onum af vindlintgum í eitt kart-
on, — úr tveimur flöskum af
áfengi í eina flösku, — bjórinn,
24 flöskur, er óbreyttur. Er þetta
miðað við ferð til útlanda styttri
en 20 daga. Eftir lengri ferðir en
20 daga til útlan'da var skammt-
urjnn áður þrjú karton af vind-
lingum, og þrjár flöskur af á-
fengi, — en er nú tvö karton
og tvær flöskur, bjórinn 48 flösk-
ur er hinsvegar óbreyttur.
Togarinn
Fyrsti togarinn reyndist vera
fíarlsefni og var afgreiddur é
ytri höfninni klukkan fjögur í
gærmorgun og sögðust tollþjón-
arnir ekki hafa séð reiðari tog-
araskipstjóra en Halldór Inga
Hallgrímsson og skipshöfnin var
ákaflega fúl á svipinn og virt-
ust þeir óviðbúnir þessari nýju
reglugerð.
Við áttum tal við skipstjórann
í gærdag og kvað hann afleið-
ingarnar af þessari nýju reglu-
gerð ekki ennþá komnar á hreint
og spumingin væri sú, hvað
margir togarar þyrftu að leggj-
ast til viðbótar á næstunni.
Það er ákaflega erfitt að ráða
sjómenn á togarana og söluferðir
til Bretlands og Þýzkalands
freistuðu einna helzt sjómann-
anna og þegar þrengt væri að á
þesisum sviðum, gerði þag að-
eins ilit verra að fá sjómenn,
Áður hljóðaði skammtur tog-
arasjómanna upp á 4 karton af
vindlingum, — er nú 3 karton,
og ætlunin var að minnka
skammtinn í 2 karton en horfið
Lagafíækjur vegna
Færeyjafíugs F.I.
KHÖFN 1/3 — í skeyti frá
dönsku fréttastofunni Ritzaus
Bureau segir að þrjár danskar
stjómardeildir eigj að fjalla um
túlkun alþjóðasamnings um far-
þegaflug, áður en atvinnumála-
ráðherra tekur ákvörðun um
hvaða flugfélag skuli, frá 1 apríl
fá einkaleyfi til áætlunarflugs
milli Færeyja og Kaupmanna-
hafnar.
Tvö félög hafa sótt um þetta
leyfi. Flugfélag íslands og dansk-
færeyska félagið Faroe Airways.
111. Kosmostunglið
MOSKVU 1/3 — Enn í dag var
skotið frá Sovétríkjunum gervi-
tungli af gerðinni Kosmos. því
111. í röðinni.
Miðvikudagur 2. marz lð66 — 31. árgangur
50. tölublað.
Þjófar nota verkfœri sem
þeir finna á innbrotsstað
1 fyrrinótt var brotizt inn hjá I
þrem fyrirtækjum, eyðilagðir
peningakassar og brotnar rúður
í hurðum, en ekki tókst þjófun-
um að ná neinu verðmætu.
Hjá fyrirtækinu Kistufelli,
Brautarholti 16, var brotizt inn
á verkstæði og varáhlutaverzlun
fyrir bíla, tekin þar ýmiis verk- 1
færi, svo sem kúbein, hamrar,
meitlar og fleira og ráðizt með
Við erum alltaf manneskjulcg, sagð'i Aðalsteinn, yfirtollvörður á
Reykjavíkurflugvelli í gærdag, þegar fyrstu flugfarþegarnir voru
afgreiddiT samkvæmt hinni nýju tollareglugerð. (Ljósm,. Þjóðv. G.M.)
en landstjórnin í Færeyjum hef-
ur mælt með því að FÍ fái leyf-
ið. sem hitt félagið hefur haft
undanfarin tvö ár.
Lindberg samgöngumálaráð-
herra segir að ekki verði hægt
að taka ákvörðun fyrr en í fyrsta
lagi á fimmtudag. Það er óljóst
ákvæði í alþjóðasamningi sem
veldur töfinni. Túlka má ákvæð-
ið á þá leið að ríki sem veitir
erlendu flugfélagi leyfi til áætl-
unarflugs milli tveggja staða
innan landamæra þess verði að
veita öðrum félögum sömu rétt-
indi. Nokkur vafi leikur á hvern-
ig túlka beri þetta ákvæði og
hvort það myndi brjóta í bága
við bað ef Ff fengi að fljúga
milli Færeyja og Danmerkur,
segir í RB-skeytinu.
var frá því á síðustu stundu. Þá
máttu togarasjómenn fá áður 3
flöskur af áfengi, — fá nú 2
flöskur, — bjórinn 48 flöskur
er hinsvegar óbreyttur.
Glasgowfrúr
Klukkan fjögur í gærdag lenti
millilandaflugvél frá Flugfélagi
íslands á Reykjavíkurflugvelli, —
var hún að koma frá hinum
glöðu verzlunarborgum Kaup-
mannahöfn og Glas,gow. Farþeg-
arnir í þessari flugvél reyndust
fyrstu farþegarnir, sem voru
tollafgreiddir samkvæmt hinni
nýju reglugerð og fór sú tollaf-
greiðsla snurðulaust fram, —
þarna mátti sjá andlit eins og
Albert Guðmundsson stórkaup-
mann og Jón Leifs tónskáld og
tvær fjölskyldur voru að koma
úr skíðaferðalagi til Noregs.
Samkvæmt nýju reglugerðinni
mega farþegar koma með varn-
ing keyptan erlendis að upphæð
fimm þúsund krónur, — fatnað-
ur má þó ekki nema hærri upp-
hæð en 2500 krónur. Unnsteinn
Beck sagði blaðamönnum, að frú
með brjár kápur í pússi sínu
væri tortryggileg í augum toll-
þjóna, hvað þá meira, og sex
kjólar væri grunsamlegt, — hins-
vegar væri áfengisskammtur og
tóbaksskammtur sá sami og áð-
ur, — ein flaska og eitt karton.
Enginn vafi væri á því, að
eiginmenn fögnuðu yfirleitt þess,-
ari nýju reglugerð og gætu not-
að hana sem aðhald á eigin-
konurnar í útlöndum.
M annesk iulegir
Aðalsteinn Halldórsson, yfir-
tollvörður og Eiríkur Guðnason,
tollvörður svöruðu nokkrum
spurningum blaðamanna við
þetta tækifæri.
Aðalsteinn kvaðst hafa sér-
sjónarmið viðvíkjandi þessari
nýju reglugerð, — mér lízt ekki
á hana með það í huga, að nú
fara allir að keppast við að koma
með útlendan varning til lands-
ins, er nemur fimm þúsund krón-
um og þrátt fyrir gróf dæmi á
undanförnum árum, þá. hefðu
líka margir komið til landsins
án þess að hafa svona mikið
magn í farangri sínum.
Okkur skildist á Eiríki og þótti
það athyglisverður punktur i
málinu, að á tuttugu og fimm
ára starfsferli tollgæzlunnar í
Reykjavík hefði aðejng þrisvar
verið sektað fyrir smygl hjá
farþe'gum við komu til Reykja-
víkur.
Samkvæmt staðhæfingu við-
skiptamálaráðherra var smásölu-
verzlun komin um skeið út úr
landinu, — við höfum alltaf ver-
ið manneskjulegir, sagði Aðal-
steinn.
Tukthús framundan
Við höfðum tal af flugfreyju
hjá Flugfélagi Islands í gærdag
úti á ReykjavíkurfluigveUi og
kvað hún þessa reglugerð tíkar-
lega, — það er einmitt rétta orð-
ið, — hún er tíkarleg.
Flugliðar fá nú þrjá pakka af
vindlingum tollfrjálsa eftirhverja
ferð, — höfðu áður eitt karton,
þá fá þeir einn pela af áfengi,
— höfðu áður tvo pela og þeir
ku missa tólf flöskur af bjór.
Flugfreyjur hjá Loftleiðum
telja þetta jafngilda mikilli
kaupskerðingu, — flugmenn þar
hafa látið hafa eftir sér, að þeir
ætli að flytja inn gamla skammt-
inn sinn eftir sem áður og láta
dæma sig fyrir smygl og jafnvel
fara í tugthús til þess að sitja
af sér sektir.
Eitthvað er þetta nú viðkvæmt
mál hjá flugmönnunum.
Aðalfundur
Framsóknar
Aðalfundur Verkakvennafé-
lagsjns Framsóknar var hald-
inn 27. febrúar sl. Stjóm fé-
lagsins varð sjálfkjörin en hana
skjpa; Jóna Guðjónsdóttir for-
maður, Þórunn Valdimarsdóttir
varaformaður Guðbjörg Þor-
steinsdóttir ritari, Ingibjörg
Bjamadóttir gjaldkerí og Ingi-
björg Örnólfsdóttir fjármálarit-
ari.
f varastjórn voru kjörnar
Pálína Þorfinnsdóttir og Krisf-
ín Andrésdóttir. Endurskoðend-
ur; Heliga Pálsdóttir og Krist-
björg Jóhannesdóttir. í stjórn
sjúkrasjóðs voru kjömar Þórunn
Valdimarsdóttir formaður Jóna
Guðjónsdóttir og Kristín Andr-
ésdóttjr meðstjórnendur. Til
vara Helga Guðmundsdóttir,
Lára Þórðardóttir og Ingibjörg
Stefánsdóttir.
f félaginu voru um sl. áramót
1668 konur.
Friðrik IX. fékk
bréf frá Hð CHS
KHÖFN 1/3 — Danska stjómin
hefur ákveðið að svara boðskap
sem Ho Chi Minh, forseti Norð-
ur-Víetnam, sendi Friðriki kon-
ungi fyrir skömmu. Ekkert hef-
ur verið látið uppi um efni boð-
skaparins, né heldur svarbréfs-
íns.
þessu til atlögu við peninga-
kassa sem þama var geymdur.
Eyðilögðu þjófamir kassann. en
gáfust þó upp við að opna hann.
Kassinn var reyndar tómur.
Þá var brotizt inn hjá Inn-
kaupasambandi bóksala í sama
húsi, en engu stolið þaðan.
í Aðalstræti 4 var brotin rúða
á útidyrahurð, farið þar upp á
efri hæð og brotizt inn á skrif-
stofur Júpiters og Marz með þvi
að brjóta rúður í hurðum. Hlauzt
af þessu talsvert tjón, en engu
virðist hafa verið stolið, enda
engin lausleg verðmæti geymd
þama.
Talsvert vjrðist gert af því að
brjótast þar inn sem verkfæri
eru fyrir, sem nota má við upp-
brot á peningaskápum og öðrum
hirzlum og ástæða til að vara
fólk við þessu. Er þess skemmst
að minnast að fyrir helgina var
brotizt inn hjá Hilmi h. f. í
Skipholti 33, en þar hefur verið
unnið við viðbótarbyggingu og
geymdu smiðimir fjölda verk-
færa á staðnum. Með þessum
verkfærum tókst þjófunum að
brjóta upp stóran eldtraustan
peningaskáp og stálu þar 1900
kr. í peningum og 17 þúsundum
í ávísunum. Tjón fyrirtækisins-
var þó mest í skápnum sem er
metinn á tugi þúsunda.
Dýrara oð
drekka
Afengisverzlun rfkisöns
hækkaði í gær verð á
öllum sterkum víntegundum
nema koníaki og líkjör um
kr. 10; Samkvæmt því kost-
ar nú flaskan af brcnnivíni
og ákavíti kr. 280, viskí kost-
ar frá 410, gin 380. genever
415, vodka og romm frá kr.
350. Létt vín hækkuðu ekki í
verði.
é. fénleiEcar Ellu Fifigerald
AKVEÐIÐ hefur verið að jazz-
söngkonan ELLA FITZGER-
ALD haldi aðra aukatónlcika
hér vegna mikillar aðsóknar
að aukatónleikum hennar
í gærkvöld.
EINS og >unnugt er hélt söng-
konan, hljómsveit hennar og
hljómsveit Gunnars Ormslev
fema tónleika um helgina við
heldur dræma aðsókn. en
mjög góðar undixtektir á-
heyrenda.
VERÐ aðgöngumiða á tónlelkana
i gærkvöld var lægra en á
hina fyrri, eða kr. 300,— og
verður sama verð á tónleik-
ana í kvöld, miðvikudags-
kvöld. Þeir verða haldnir í
Háskólabíói klukkan 11.15 og
verða þetta SEINUSTU tón-
leikarnir, því að söngkonan
heldur vestur um haf á
fimmtudaginn.
Stutt isleuzk kvikmynd
ké iírmnlmdi
■ Geysismyndir hafa fullgert stutta kvikmynd sem
nefnist „Grænlandsflug“ og bregður hún upp svip-
myndum frá austurströnd Grænlands. — Þorgeir Þor-
geirsson hefur tekið myndina, annazt klippingu og
gert texta, sem Þorsteinn Ö. Stephensen les; tón-
listina samdi Leifur Þórarinsson.
. og hressilcgir krakkar spretta upp úr snjósköflunum. —
Myndin cr úr „Grænlandsflugi“ Þorgeirs Þorgeirssonar.
★ Hrikalegar auðnir Græn-
lands svipmyndir frá litlu
þorpi á austurströndinni,
Scoresbysund; gamall Eski-
mói sönglar úti í aprílsól or;
ber á hlemm, hresisilegjr
krakkar spretta upp úr snjón-
um hundamir dýrmætust
eign manna á svona stað
draga sleða eftir ísbreiðun-
um; svo gerast þau gleðitíð-
indi að flugvél er komin, ís
lenzk reyndar með langþráð-
ar nauðsynjar á útmánuðum
og allir þorp'Sþúar skreppa ;
skemmtireisu út á ísinn til að
taka á móti henni. Þetta er
það, í stuttu máli, sem mynd-
in segir frá — auk Þess er
bmgðið UPP myndum af tíð-
indasnauðu lífi veðurfræð-
inga og annarra vísinda-
mianna í smáum stöðvum
norðar á ströndinni
★ Þorgeir Þorgeirsson sagði
við forsýningu myndarinnar ’
fyrradag að hann hefði tek-
ið þessa mynd fyrir þrem
ámm — og þá aðeins haf!
til þess þrjá daga. Geysis
myndir hafa hinsvegar ekk
getag lokjð við myndin,-
fyrr en nú — og segði þa?
sína söfgu af aðbúnaði kvik
myndagerðar hér, en ef allt
væri með felldu þyrftí vinna
að slikri mynd ekki að taka
nem.a þrjár vikur.
★ Þorgeir saigði einnig, að
kvikmyndahúsum yrði boðin
þessi mynd sem aukamynd
gegn því að þau innheimti
lítið aukagjald fyrir hana —
en sá háttur var einnig hafð-
ur á í sambandi við sýning-
ar á myndinni ..Fjarst \ ej-
lífðar útsæ“, sem Geyisis-
myndir framleiddu einnjg.
Værj æskilegt ef hægt væri
að koma á sæmilega traustan
grundvöll samvinnu við
kvikmyndahús um gerð
stuttra mynda — sem væri
nauðsynlegur skóli þeim sem
vildu vinna að íslenzkri kvik-
myndagerð. Myndu þeir Geys-
ismenn reyndar halda áfram
að gera slíkar myndir hvað
sem tautaðj og raulaði. ættu
Þeir nú hálfgerðar tvær
stuttar myndir frá Raufar-
höfn og munu senn hefja
töku myndar um Kópavog.
Sýningartímj ..Grænlands-
flugs“ er um fimmtán mínút-
ur Leifur Þórarinsson gerði
sérkennilega tónljst við mynd-
ina og Þorsteinn Ö. Stephen-
sen fljrtur textann