Þjóðviljinn - 04.08.1966, Síða 2

Þjóðviljinn - 04.08.1966, Síða 2
2 SfDA — ÞJÓÐVIUINN — Fimmtudagur 4. égúst 1966. Örn Bjarnason læknir í Vestmannaeyjum: HÓPSAMSTARF LÆKNA OG HEILSUGÆZLUSTÖÐVAR Fyrir skemmstu birtist í dag- blöðunum grein eftir Gísla G. Auðunsson laekni, er hann nefndi Læknaskortur dreifbýl- isins frá sjónarhóli ungs lækn- is. Á hann þakkir skilið fyrir að kynna þetta mál, því allt of. lítið hefur heyrzt frá lækn- um fram að þessu opinberlega. Hafa þó verið miklar umræður um þessi mál innan stéttar- innar og undirbúningur hafinn til lausnar þessa vanda. Varðandi þau atriði, sem hér eru ekki rædd, vísast til grein- ar Gísla. í greininni bendir hann rétti- lega á, að sá vandi, sem nú steðjar að, verði aðeins leystur ef læknar- sjálfir taki málin í sínar hendur og fyrsta skrefið sé myndun samstarfshópa. Hópstarf erlendis Samstarfshópar eru ýmist skipaðir almennum læknum (heimilislæknum) eða sérfræð- ingum, og víða er algengt að heimilislæknar og sérfræðingar starfi saman í hóp. Slík hópstarfsemi hefur gef- izt vel og eykst hröðum skref- um. I Englandi var fjórðungur almennra lækna í hópstarfi fyr- ir 15 árum, en nú er aðeins fjórðungur þeirra, sem starfar sjálfstætt. Eru það læknarnir sjálfir, sem hafa haft forgöngu um myndun hópa. Finnar, sem búa við lækna- skort eins og við, hafa stuðlað að myndun slíkra hópa, með því að stækka héruðin og færa læknana saman. 1 Svíþjóð stofnaði læknafé- lagið sérstaka sjóði, sem standa undir byggingu læknahúsa, þar sem fer fram hópstarf allra lækna, er starfa utan sjúkra- húsa, í samkeppni við mót- tökur (polyklinik) sjúkrahús- anna. Undirbúningur hérlendis Læknum hefur lengi verið Ijóst, að ýmsu er ábótavant í læknisþjónustu,. vegna ann- marka á skipulagningu læknis- starfa. Hefur undirbúningur verið hafinn að þeim breyting- um, sem nauðsynlegar eru, til þess að leysa læknaskortinn og bætá þjónustuna. „í Reykjavík hefur Læknafé- lag Reykjavíkur látið sigskipu- lagningu læknisþjónustunnar talsvert varða á undanförnum árum. Má þar nefna læknis- þjónustunefnd félagsins, sem starfað hefur í nokkur ár. Á vegum Reykjavíkurborgar hefur einnig starfað nefnd um það bil hálft ahnað ár, er fjallar um skipulag læknisþjónustu borgarinnar. Loks skal þess getið, að læknar í Rvík hafa sjálfir gert ýmsar ráðstafanir til hagræðingar læknisþjónustu á stofum sínum, enda þótt ekki sé enn starfandi hópsamvinna €> í eiginlegustu merkingu þess i orðs. Slíkur samstarfshópur mun þó væntanlega hefjastarf- semi í Domus Medica á þessu ári“. (Læknablaðið, 1. hefti 1966). Utan Rvíkur er mikil hreyf- ing komin á þetta mál. Má nefna að á Sauðárkróki eru læknarnir tveir, sem þar sitja, að undirbúa samvinnu, með sameiginlegri vinnuaðstoð og í haust munu tveir læknar fara til Húsavíkur og setja upp læknamiðstöð. Hér í Vestmannaeyjum hefur tekizt samvinna tveggja lækna í sameiginlegu húsnæði, og þegar fullnægjandi húsnæði, tæki og aðstoð verður fyrir hendi, verður tekin upp hóp- samvinna allra læknanna á staðnum. Gerður hefur verið tiUögu- uppdráttur að heilsuvemdar- og læknamiðstöð (heilsugæzlustöð) og hefur bæjarstjóm samþykkt að reisa slíka stöð og veitti á síðustu fjárhagsáætlun 1 mi'j- ón króna til framkvæmdanna og jafnframt óskað eftir því, að ríkið leggi fram fé á móti, eftir sömu reglum og um sjúkra- hús. Hefur verið leifað til landlæknis, sem hefur tekið málaleitaninni mjög vinsamlega og mun málið nú í athugun hjá ráðuneyti og húsameistara. Nýskipan mála Eðlilegt er, að nokkum ótta setji að mörgum, þegar miklar breytingar eru í vændum. Menn spyrja, hvort óhætt sé að láta ungu læknana hafa frjálsar hendur um þessi mál. Því er til að svara, að í hinu nýja skipulagi verður allt það bezta varðveitt úr gamla kerf- inu og við erum ekki að koma með neitt það, sem ekki hefur sannað ágæti sitt annars stað- ar. Skipulag, sem notað er víða erlendis með góðum árarigrl, verður tekið upp og aðlagað íslenzkum staðháttum og þjóð- lífi. Hópsamstarf almennra lækna Hópsamstarf almennra lækna (group practice) merkir, að heimilislækningar eru stundaðar af almennum læknum, sem starfa mjög náið saman, leita ráða hver hjá öðrum um rann- sóknir og meðferð og höfð er sameiginleg spjaldskrá yfir sjúklinga, en sjúklingi er heim- ilt að leita til þess læknis, sem hann óskar. Hópurinn hefur nokkra starfs- skiptingu, þannig að læknamir kynna sér sérstaklega eina eða fleiri greinar læknavísindanna. <s> Súrefnisskortur í OL-borg Eins og minnzt var á hér í blaðinu um daginn, eru íþróttafrömuðir víða um heim mjög óánægðir með það, að höfuðborg Mexíkó hefur verið valin til Ólympíuleikjahalds 1968. Borgin Hggur mjög hátt, og er loft þar því mjög þunnt — talið er að íþróttamenn þurfi margra vikna gætilega þjálf- un í þessu umhverfi til að geta staðið sig sem skyldi þegar til kastanna kemur. Og bent er á, að það eru ekki nema stórveldi sem hafa ráð á því að hafa menn sína Iangdvölum í Mexíkó áður en leikirnir hefjast. — Evrópskir íþróttamenn hafa að undanförnu reynt að koma við í Mexíkó til að prófa aðstæður, og sézt hér á myndinni ítalinn Edy Ottoz í æfingahlaupi með súrefnis- birgðir framan á sér. Hópurinn hefur sameiginlegt húsnæöi fyrir starfsemina í læknamiðstöð (medical ceritre) og stjórna þeirri stofnun sjálf- ir. Slíkur hópur nýtur aðstoðar sérþjálfaðra aðila: 1. Einkaritari, sér um að vélrita öll bréf, vottorð og skýrslur og að spjaldskrá sé í röð og reglu og ritarinn er tengiliður miUi aðstoðarfólks- ins og læknanna innbyrðis og sér um skipulagningu hins dag- lega starfs. 2. Sé virinuálag ekki mikið, getur ritarinn annazt móttöku sjúklinga og símavörzlu, ella Verður að ráða stúlku til þeirra starfa. 3. Hjúkrunarkonur aðstoða læknana við störf þeirra, svo sem við slys og smærri aðgerð- ir og við skoðanir, sem ekki verða framkvæmdar án hjálpar eða nærveru hjúkrunarkónu-. Annars vinnur hún sjálfstætt. skiptir á sárum, gefur flestar sprautur, sér um alla sótthreins- un og sér um ýmsar einfaldari rannsóknir. 4. Læknamiðstöðvar, sem liggja fjarri stórum rannsókn- arstofum, þurfa að geta ann- azt slíka þjónustu og hefur því á að skipa sérþjálfuðum að- ila í þessum efnum (laborant). 1 stuttu máli má segja, að þannig eru heimilislæknum bú- in lík vinnuskilyrði ogsjúkra- húslæknar hafa. í eilsugæzlustöðvar En breytingarnar þurfa að vera víðtækari, ef þær eiga að koma að fullu gagni, þvi lækn- ingar eru aðeins einn þáttur læknisþjónustudnar. Til þess að' starfskraftar læknanna nýtist vel og öll læknisþjónusta komi að sem beztum notum þarf hópsam- vinna heimilislæknanna að ná til allrar almennrar læknisþjón- ustu, sem fram fer utan spítala. Fyrir slíka starfsemi þarf að koma upp sérstökum stofnun- um, heilsugæzlustöðvum. . Slíkar heilsugæzlustöðvar, sem tíðkast víða í Englandi, eru þannig uppbyggðar, að þær sameina undir einu þaki Iæknamiðstöð, eins og aðfram- an er lýst og heilsuverndar- stöð fyrir mæðraeftirlit og bamaskoðun, sjúkdómavamir o. s.frv. Þá er þar húsnæði ætlað. almennri tannlæknaþjónustu, aðstaða til að taka roentgen- myndir, sinna smærri slysum og gera minniháttar aðgerðir. daglega starf Mjög misjafnt hlýtur að vera á hvaða tíma starfsfólk heilsu- gæzlustöðvar er við vinnu, eft- ir því hvort um er að ræða kaupstað eða hverfi í borg eða á hinn bóginn sveit eða kaup- tún. Framhald á 7. síðu. □J=il3 -eldhús Stærsta sýning á eldhús- innréttingum hér á landi Flestir munu því geta valið sér innréttingar á sanngjömu verði. — Sýningin og salan er í Kópa- vogi að Hraunbraut 10 og er opin virka daga frá klukkan 9 til 6, nema laugardaga kl. 9 til 12. Einlcaumboð á íslandi: SKORRI HF. Sölustjóri: ÓLAFUR GUNNARSSON. Hraunbraut 10 — Kópavogi — Sími 4-18-58. EIINIKAUMBO: HJOLBARÐAR FBA RASIVIOIMPORT MOSKVA TRADflNG SIMI17373

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.