Þjóðviljinn - 04.08.1966, Page 10
Hópferðir til
skoðunar á feg-
urstu görðunum
Garðyrkjufélag Islands gengst
fyrir hópferðum í ágústmánuði
til að skoða fallega einstaklings-
garða í Hafnarfirffi, Kópavogs-
kaupstað og Reykjavík, og enn-
fremur grasagarðinn' í Laugar-
dal.
Öllum er heimil þátttaka í
þessum ferðum.
Mörgum mun vera hugleikið
að skcrða marga fegurstu garða
Reykjavfkur og gefst hér gott
tækifæri til þess. Einnig eru fal-
legir garðar í Kópavogskaupstað
og sjálfsagt munu margir nota
þetta einstaka tækifæri til þess
að skoða garðana í Hafnarfirði
með sínu sérstæða og marg-
breytilega landslagi.
Hér kemur svo áætlunin:
Laugardaginn 6. ágúst:
Farið frá Miðbæjarskólanum
kL 2 eJi. til Kópavogskaup-
staðar og Hafnarfjarðar.
Laugardaginn 13. ágúst:
Farið frá Miðbæjarskólanum
ki. 2 eJi. og skoðaðir garðar
í Reykjavík.
Laugardaginn 20. ágúst:
Mætt við grasgarðinn í Laug-
ardal kL 2 e.h. og garðurinn
skoðaðrrr.
1 öllum þessum ferðum verða
valinkunnir leiðsögumenn.
Óhagstætt veður
og lítil síldveiði
Fremur óhagstætt veður var á
síldarmiðunum fyrra sólarhring.
Skipin' voru einkum að veiðum
80 sjómílur VAS frá Jan May-
en. 14 skip tilkynntu um afla,
alls 777 snrálestir.
Raufarhöfn:
ögri RE 53 lestir, Skálaberg NS
70, Akurey RE 40, Elliði GK
50, Björgúlfur EA 45, Jón Kjart-
ansson SU 45, Sæhrimnir KE 50,
Fróðaklettur GK 80, Anna SI
75, Ölafur Sigurðsson AK 45, Jón
Finnsson GK 50, Jörundur II.
RE 50, Guðm. Þórðarson RE 79,
Björgvin EA 45.
Reykjavíkurúr-
valiS sigraoi
Úrvalslið Reykjavíkur í körfu-
knattleik vann góðan sigur í
leik sínum við bandariska há-
skólaliðið í fyrrakvöld, skoraffi
61 stig gegn 56 stigum Banda-
rikjamanna. I hálfleik var stað-
an 30:29 stig Reykvíkingum í
viL Leikurinn fór fram í
þróttahúsi bandaríska hemáms-
Iiðsins á Keflavíkurflugvelli.
Fimmtudagiur 4. ágúst 1966 — 31. árgangur — 171. tölublað.
Utanríkisráðherra
ísraels til ísiands
■ Á þriðjudaginn kemur, 9. ágúst, eru utanríkisráðherra
ísraels, Abba Eban, og kona hans væntanleg hingað í
tveggja daga opinbera heimsókn í boði Emils Jónssonar
utanríkisráðherra.
Á miðri mynd sést Ringmessehaus í Leipzig, eitt stærsta vörusýningarhús í heimi og til skamms
tíma það stærsta í Evrópu. Á haustkaupstefnunni munu framleiðendur vefnaðarvöru í um það
bil 30 löndum sýna þar framleiðsluvörur sínar á gólffleti sem er um 19.000 fermetrar.
Haustkaupstefnan 4.—11. september:
6500 framleiBendur frá 60
þjóBlðndum sýna í Leipzig
□ Á haustkaupstefnunni í Leipzig 4.—11. sept-
ember n.k. munu 6500 framleiðendur frá 60 lönd-
um sýna vaming sinn og búizt er við að 250 þús-
und kaupsýslumenn frá enn fleiri löndum leggi
leið sína á þessum tíma til hinnar miklu borgar
alþjóðlegra viðskipta og verzlunar í Þýzka alþýðu-
lýðveldinu.
!
Baumann, forsföðumaður aust- ]
ur-þýzku verzlunarsendinefndar-'
innar hér á landi, gat þess er
hanm ræddi við _ fréttamenn á
dögunum að á vorkaupstefnunni
í Leipzig fyxr á þessu ári hefði
íslenzkir kaupsýslumenn gert
mikla kaupsamnmga þar, aðal-
lega um kaup á fiskiskipum og
bifreiðum til Islands, og gera
mætti ráð fyrir að allstór hópur
íslenzkra kaupsýslumanna myndi
einnig fara til Leipzig í haust í
viðskiptaerindum.
— Þannig hefur kaupstefn-
an í Leipzig, sagði Baumann
ennfremur, mikla þýffingufyr-
• •
ir viðskiptin milli Islands og
Þýzka alþýðulýðveldisins. Má
reikna með að viðskiptin tvö-
faldist á næsta ári miðaff við
viðskipti landanna á þessu
ári.
Þátttakendur hvaðanæva að
í haust verður sýningarsvæði
Þýzka alþýðulýðveldisins , að
sjálfsögðu langstærst, yfir 100
þúsund fermetrar. Vöruflokkarn-
ir verða um 30 talsins, m. a.
raftæki, opfcisk tæki, skrifstofu-
vélar, vefnaðarvara, hreinlætis-
tæki og vörur, lyfjavörur, snyrti-
vörur og íþróttavörur
Átta sósíalistísk rfki hafa til-
kynnt þátttöku sína í haust-
kaupstefnunni og verður Tékkó-
slóvakía með stærstu sýninguna.
Norður-Kóreumenn verða nú aft-
ur með í Leipzig eftir nokkurra
ára fjarveru.
Þá hafa firmu frá 20 Evrópu-
löndum auk sósíalistísku land-
anna, tilkynnt þátttöku sína, og
verður sýningarsvæði Fnakka
stærst, þá Austurríkismánná,
Hollendinga, Breta og Itala.
Norðurlönd verða þarna með
sýningar, nema ísland. Frá Sví-
þjóð sýna 6 þekkt firmu vörur
úr timburiðnaðinum, en önnur
sýna matvörur, einkum fiskmeti
og niðursuðuvörur, grænmeti, á-
vexti, heimilisáhöld, skó ogfata-
efni. Danir nota meira en 60%,
af sýningarsvæði sínu undirfisk
og fiskniðursuðu, ávexti og græn-
meti, en Finnar sýna einkum
matvæli, sér í lagi mjólkuraf-
urðir.
Þátttaka er einnig nokkur frá
arabískum löndum og Afríku-
rikjum, og 8 Ameríkulöndum.
Gestirnir frá Israel eru vænt-
anlegir hingað til Reykjavíkur
með flugvél að kvöldi þriðju-
dagsins. Daginn eftir um morg-
uninn munu þau hjónin heim-
sækja utanríkisráðherra Islands,
forseta Islands herra Ásgeir Ás-
geirsson, Bjama Benediktsson
forsætisráðherra og Geir Hall-
grímsson borgarstjóra. Hádegis-
verð snæða gestimir að Bessa-
stöðum í boði forseta, kl. 5 síð-
degis flytur Abba Eban fyriT-
lestur í Háskólanum, en um
kvöldið býður Emil Jónsson og
frú til kvöldverðar í ráðherra-
bústaðnum við Tjamargötu.
Á fimmtudaginn í næstu viku
verður fiarið til Þingvalla og há-
degisverður snæddur í Valhöll.
Til Reykjavíkur verður haldið
um Sogsfossa, þar sem raforku-
ver verða skoðuð, og Hveragerði,
þar Iitið verður inn í gróðurhús
og skoðaðir hverir. Síðdegis
verður blaðamannafundur, en
um kvöldið bjóða utanríkisráð-
herrahjónin frá fsrael nokkrum
gestum til kvöldverðar.
Heimleiðis halda Eban-hjónin
árdegis annan föstudag.
Vel heppnað hestamannamót
í Skógarhólum um helginu
Um síðastliðna helgi efndu sem
kunnugt er átta hestamannafé-
Iög af Suðvesturlandi til hesta-
mannamóts í Skógarhólum á
ÞingvöIIum- Mótið hófst á laug-
ard., en hélt svo áfram á sunnu-
dag í eindæma veðurblíðu- Á
laugardaginn fóru fram undan-
rásir kappreiðanna. Á sunnudag
hófst mótiö með hópreið, einnig
var góðhestasýning, síðan keppt
í milliriðlum- Lokaúrslit uröu
þessi:
1 skeiði sigraði Logi Jóns í
Varmadal á 25,1 sek., annar
var Neisti 'Einars Magnussonar
frá ' Gamla Hrauni á 25,2 sek.
og þriðjj Hrollur Sigurðar 'Ólafs-
sonar, tími hans var 25,6 sek. I
300 metra stökki sigraði ölvald-
ur Sigurðar Tómassonar frá.Sól-
heimatungu á 22,3 sekúndum.
Faxi Páls Egilssonar úr Borgar-
nesi hlaut sama tíma, en sjónar-
munur var á hestunum- Þriðji
var Steinn Aðalsteins Aðalsteins-
sonar á Korpúlfsstöðum, hann
hlaut timann 22,5. Á 800 metra
sprettinum sigraöi Þytur Sveins
K. Sveinssonar á 64,7 sek., annar
var Faxi Bjama á Laugarvatni
á 66,6. Þessi timi Þyts er sérlega
glæsilegur, aðeins 0,2 sek- á eft-
ir íslandsmetinu, en það á hest-
urinn Glanni- 1 600 metra brokki
sigraði Skuggi Haralds Sigvalda-
sonar á 1.39,3 mmútum.
Mót þetta fór í alla staði hið
bezta fram. Milli þeirra atriða,
sem hér hafa verið talin, var
ýmislegt fleira til skemmtunar.
Tvö til þrjú þúsund manns sóttu
mótið, þegar flest var.
U » I' ':l 1» '
Skógáfosssmyglið
til saksóknara
Síðastliðinn föstudag lauk yfir-
heyrslum í smyglmáli Skógafoss-
manna og stóðu þær fram undir
miðnættL Málið er orðið hið
umfangsmesta eins og bezt sést
á því, að málskjöl eru 250 síður
í þingbók að viðbættum fram-
lögðum skjöíum og lögreglu-
skýrslum. Þrettán menn hafa við-
urkennt að eiga þarna smygl-
vaming, en að auki bætist við
mál bifreiðastjórans sem ók
vamingnum úr Þorlákshöfn i
Kópavog. Málið verður nú sent
saksóknara.
ÞORSMORK 0G
UMGENGNI
UNGLINGANNA
Emx ekra sinni hafa þúsund-
ir unglinga gist Þórsmörk,
ehm fegursta stað landsins,
um verzhjnarmannahelgi. Því
rmðnr koma fæstir þessara
unglinga þangað til þess að
njóta fegurðar náttúrunnar og
skoða landið í fögru veðri
heldur til þess eins að „drepa
tímann" þessa daga og fá
Útrás fyrir skemmtanafíkn
sína með hjálp Bakkusar. Og
fáir þeirra hafa séð nokkuð
af Þórsmörk er þeir hverfa
burt nema lítinn blett í Húsa-
dalnum í næsfca nágrenni
tjaldbúðanna. ' Sumar ferða-
skrifstofurriar sem leitast við
að laða unglingana í Þórs-
mörk gera heldur ekkert til
þess að beina athygli ungl-
inganna að fegurð náttúmnn-
ar enda fararstjóramir sumir
vart í því ástandi að sjá út
yfir Húsadalinn. Þannig veit
Þjóðviljinn dæmi um einn
pilt sem nú gisti Þórsmörk
í fjórða sinn, að þessu sinni
á vegum Ferðafélagsins en
hafði þrisvar áður farið með
sömu ferðaskrifstofu, þeirri
umfangsmestu í þessum
„bransa“. Og nú fyrst hafði
hann fengið einhverja fræðsiu
um staðinn hjá leiðsögumönn-
um ferðarinnar. Hann vissi
ekki einu sinni áður hvar
Valahjúkur var eftir þrjár
heimsóknir í Mörkina. Það
eru ekki unglingarnir einir
sem eiga sökina.
Því miður verður umgengni
unglinganna við þessar að-
stæður, þar sem Bakkus er
látinn einn um leiðsögnina,
slík að staðnum ■ stafar hætta
af. Þegar hóparnir hverfa á
burt er svæðið þar sem þeir
hafa hafzt við eitt svað, gróð-
urinn traðkaður, og glerbrot,
flöskur og annað msl eins og
hráviði út um allt. Myndin
hér að ofan sýnir eitt slikt
bæli og er hún tekin núna
um síðustu helgi. Og þó var
umgengnin þá víst heldur
skárri en oft áður. Það er
ekki nema von að alvarlega
hugsandi menn séu famir að
tala um það í alvöru að
„loka“ Mörkinni fyrir slík-
um átroðningi um verzlunar-
mannahelgar. En einhvers
staðar verða unglingamir að
vera og það er skylda hinna
fullorðnu að sjá þeim fyrir
einhverjum stað til að vera
á og kenna þeim að haga sér
þar í samræmi við manna-
siði. Þeir sem ekki hafa ann-
að til fræðslunnar að leggja
en kennslu í drykkjusiðum
ættu ekki að gefa sig að
ferðamálum, allra sízt sem
leiðsögumenn unglinga.
!
\
!
I
i