Þjóðviljinn - 26.10.1966, Page 5
Miðvikudagiir 26. október 1966 ÞJÓÐVIXjJINN — SlÐA J
Hafa verkamenn
Tímabundinn
áhugi á stöðvun!
Þrátt fyrir linnulausa verð-
bólgustefnu ríkisstjórnarinnar
undanfarin ár blossar jafnan
upp áhugi hjá stjómarflokkun-
um á stöðvun, þegar verkalýðs-
félögin ætla með nýjum kjara-
samningum að bæta kjör fé-
lagsmanna sinna og gera til-
raun til að endurhcimta þann
hluta af auknum þjóðartekjum,
sem verkafólk hcfur farið var-
hluta af. Það er ekkert nýtt,
sem heyrist þcssa dagana frð
stjómarflokkunum um feikna á-
huga þeirra á stöðvun.
Þetta gerist fyrir hverja
kjarasamninga, en lengurstend-
ur sá áhugi aldrei. Og reynslan
hefur margsýnt, nð þegarkjara-
samningum er lokið með vægri
hækkun á krónutölu kaups, er
öllu verðlagi sleppt iausu. Á
loforðum og fyrirhcitum þess-
arar ríkisstjómar geta launþeg-
ar ekkert mark tekið nú frem-
ur en endranær, þnð margsann-
ar reynslan.
Þrátt fyrir loforðin í upphafi
og þrátt fyrir loforðin í sam-
bandi við hverja nýja kjara-
samninga, hefur verðlagið
stöðugt verið hækkað og verð-
bölgan magnazt, svo að nú
hriktir i stoðum atvinnulífsins.
Gróðahvötin ein
ræður
Þeir sem ráða fjármagninu
hafa undanfarin ár fengið að
ráðstafa því eftir gróðahvöt-
inni einni saman og fjármagn-
iðr"’hefur<ieðli sínu samkvæmt
sótt þangað sem gróðinn hefur
verið fljótteknastur, í þá þætt.i
verríur*ár,< ’’ sem mcstan gróðö’
gefur og í byggingabrask. Verzl-
unin og bjónustustarfsemin
hefur bannig sogað til sín um
40°/n af nýju vinnuafli þjóð-
arinnar, og þangað hefur meira
af lánsfjáraukningunni farið en
í aðra atvinnuvegi samanlagt.
Þeir sem hafa ávaxtað fé sitt i
fbúðabyggingabraski hafa á
þessum tíma haft yfirburði
fram yfir framleiðsluatvinnu-
vegina að ná til sfn vinnu-
aflinu. Á sama tíma hefurstöð-
ugt þrengzt hagur framleiðslu-
atvinnuveganna, scm búið hafa
við skipulngða lánsfjárkreppu
stjórnarvaldanna.
Flóð af hömlulnusum inn-
flutningi hvers kyns crlends
iðnaðarVarnings, scm verzlun-
arstéttin hefur séð sér áhuga-
von í að flytja inn, hefurleik-
ið innlendan iðnað svo grátt,
að fiölmörg fyrirtæki hafa gef-
izt upp og sum hafa séð sér
bað helzt til bjargar að hefia
innflutning á samskonar iðnað-
arvamingi og þau hnfa sjálf
framleitt, en dregið úr fram-
l<?iðs1u þeirra vara að sama
skapi. Það bóttu t.d. á sínum
t.íma merkir atburðir, begar
Vinnufatagerð íslands og Raf-
tækiaverksmiðjnn í Hafnarfirði
hófu göngu sína og juku á
fiölhreytni fslenzks atvinnulffs.
En nú er svo komið nð bessi
fvrirtæki selja að verulogu leyti
fullunnar erlendar iðnaðarvör-
ur. Fjölda iðnfyrirtækja hefur
verið lokað og ískyggUégar
horfur eru um rekstur annnrrn
og er ekk'i sjáanlegt nnnað en
alvarleg kreppa sé að hefjast
hjá innlendum iðnaðarfyrir-
tækjum. En samdráttur í fram-
leiðslu beirra bitnar að veru-
legu leyti á starfsfólki, sem ekki
á margra kosta vfil =s mrmn-
markaðnum.
Atvinna dregst
saman
Vegna stjómarstefnunnar
undanfarið er nú svo komið í
sjávarútveginum, að aðeins þau
fyrirtæki, sem njóta hins ó-
hemjumíkla síldarafla, standa
upp úr, en togaraútgerð og út-
gerð minni vélbáta er með öllu
að stöðvast, með þeim afleið-
ingum, að frystihúsin em að
komast í þrot og sumum hefur
þegar verið lokað. Að sama
skapi blómgast hagur þess eina
frystihúss, sem ríkisstjórnar-
ílokkarnir virðast hafa vel-
þókmm á, Scðlabankans, sem
fi-ystir það lánsfé, sem atvinnu-
reksturinn skortir.
Afleiðingarnar eru þær, að
atvinnuhorfur víða á stöðum
som ekki njóta síldaraflans, eru
orðnar hinar uggvænlegustu,
ckki sízt þegar að því er hugað,
að kaupmáttur tímakaups verka-
manna er ekki meiri en svo,
að einungis þrotlaus eftir-, næt-
ur- og hclgidagavinna hefur
fært verkafólki þær tekjur, að
það 'geti komizt af og staðið
undir kostnaði af því húsnæði,
sem það býr í.
Þó að okki kreppi meir að en
svo, að eftir-, nætur- og helgi-
dagavinna falli niður, kemur í
ljós, hver þau kjör eru, sem
verkafóík í raun og veru býr
við, og sannast, hve fölsk og
yfirborðskennd er sú velmeg-
un, sem reynt er að básúna
út, að íslenzkur almenningur
búi við. Ef verðbólgustefna og
lánsfjárkreppa viðreisnarstjóm-
arinnar leiðir nú til þess, að
atvinna dregst saman í ríkari
mæli og atvinnuástandið kemst
í það horf, sem þykir eðlilegt í
öðrum löndum, þ.e. að verka-
fólk hafi það sem telst fullur
vinnudagur ón yfirvinnu, þá er
um leið horfin sú yfirborðsvel-
gengni, sem mest hefur verið
auglýst undanfarið, þegar stjórn-
arvöld eru að reyna að telja
launþegum trú um, að þeir búi
við betri launakjör en annars
staðar þekki.st, og skuli því nú
falia frá öllum frekari kröfum.
Kaupmátturinn
minni
Staðreyndin er nefnilega sú,
að þrátt fyrir meiri aflasæld og
betri viðskiptakjör um langt
árabil en nokkru sirini hefur
þckkzt áður hér á landi, er
kaupmáttur ttmakaups verka-
manna frekar lasgri en hærri
en hann var þegar núverandi
stjórnarflokkar tóku við völdum
195!).
Allt tal um að kaupmáttur
tímakausins hafi hækkað síð-
an er blekking. Þegar stjórnar-
völdin hafa haldið fram þeirri
staðhæfingu bora þau fyrirsig
skýrslu frá Efnahagsstofnun-
inni, en auk þess sem grund-
völlur þcirra útrcikninga er
hæpinn þá er ]»r ckki miðað
við kaupmátt tímakaups þegar
núverandi stjórnarflokkar tóku
við völdum hcldur arið 1960,
þegar þeir höfðu þegar rýrt
kjörin. Sá boðskapur stjórnar-
valdanna hefur löngum hljóm-
að í eyrum almennings að ó-
raunhæft sé að gera kröfurum
bætt lífskjðr nema fyrir hendi
sé aukning þjóðartekna á mann
í landinu. Þannig að kaup geti
því aðeins hækkað að meira
sé til skipta en áður, en ef
þær aðstæður séu fyrir hendi
fái launþegar réttar til sín
raunhæíar kjarabætur á silf-
urdiski. Þá er að vísu litið
framhjá beirri staðreynd, að
skipting þjóðartekna innbyrðis
er ekki föst og óumbreytanleg,
en hvað sem því líður, er rétt
fyrir verkafólk að gera sér grein
fyrir því, að nú um margra
ára skeið hafa launþegar upp-
lifað þessar aðstæður, sem þeim
hefur jafnan verið sagt að bíða
eftir, en kjarabætumar hafa
ekki verið réttar að laimþegum.
Vegna stóraukningar efla-
magns á ári hverju og bættra
viðskiptakjara hefur vísitala
þjóðartekna á mann breytzt
sem hér segir miðað við 100
árið 1959: Arið 1960 99,8, 1961
103,3, 1962 110,2, 1963 115,9,
1964 123,5, 1965 132,2. Og á
því ari, sem nú er nð líða mun
mcðalverð útflutningsafurða
verða hærra en 1965 og enn
nýtt aflamet sett á síldveiðum.
Þessar tölur sýna hversu sí-
fellt hefur komið meir og meir
til skipta hjá þjóðinni, hvemig
sífellt hefur styrkzt grundvöll-
urinn fyrir því að hækka raun-
veruleg laun, ekki aðeins að
krónutölu í samræmi við hækk-
að verðlag, heldur að auka
kaupmátt tímaka'upsins.
En hver hefur þá verið hlut-
ur launþegaaf þessari stóraukn-
ingu þjóðartekna?
Ef tekin er til samamburðar
vísitala kaupmáttar tímakaups-
irts miðað við neyzluvöruvísi-
tölu og 3. taxta Dagsbrúnar-
kaups og vísitala kaupmáttar-
ins sett 100 1959, kemur í ljós,
að kaupmátturinn hefur verið
Iægri nllt þetta tímabil og hef-
ur hinn 1. október s.l. enn ekki
n;xð kaupmættinum 1959, á
sama tímabili og þjóðartekjur
á mann hafa hækkað um 32,2%.
1959 var kaupmátturinn 100,
1960, 90.6, 1961 85,0, 1962 83,7,
1963 84,0, 1964 85,3, 1965 91,0
og 1. okt. 1966 99,6.
Nokkurn veginn það sama
kcmur út, ef miðað er við trma-
kaup 1 fiskvinnu.
Þessa skerði ngu kaupmáttar
tímakaups, sem verið hefur
veruleg um langt skeið, allt
þetta tímabil hafa launþegar
reynt að bæta sér upp með
þrotlausri yfirvinnu. Þess vegna
hafa ráðstöfunartekjurrxar, þ.e.
a.s. heildartekjur án tillits til
vinnutíma, breyzt á þessu tfma-
bili. á tfmnbilinu 1959—1964
sem hér segir, miðnð við 100
1959: 1960 99,4, 1961 90,7, 1962
100,7, 1963 100,8 og 1964 112,7.
Hafa verkamenn
fengið of mikið?
En þótt ráðstöfunartekjurnar
hafi þannig vegna aukinnar
eftir-, nætur- og helgidagavinnu
komizt í það að verða 12,7%
hærri 1964 en 1959, hafa ekki
einu sinni ráðstöfunartekjum-
ar aukizt til jafns við aakn-
ingu þjóðarteknanna á mann á
þessu tímabili. Og ef borin er
saman afstaða ráðstöfunartekna
til þjóðartekna á mann og það
hlutfall sett 100 1959, er það
hlutfall komið niður í 91,9 ár-
ið 1964.
Það eru því alrangar stað-
hæfingar, að verkafólk hafi
fengið sinn hlut af auknum
þjóðartekjum undanfarinna ára.
Hvort sem litið er á kaupmátt
tímakaups eða á heildartekjur
án tillits til vinnutíina, skortir
mikið á, að verkafólk hafi hald-
ið sínum hlut.
Samtímis þvi, sem kaupmátt-
ur tímakaups hefur lækkad,
hafa þjóðartekjur á mann auk-
izt og ef athuguð er afstaða
kaupmáttar t.ímakaups verka-
manna til hreinna þjóðartekna
á mann kemur í ljós, hvemjög
hefur verið gengið á hlut verka-
fóíks á stjómartima viðreisn-
arstjórnariTmar.
E£ miðað er við 3. taxta
Dagsbrúnar og afstaða milli
kaupmáttar tímakaups og þjóð-
artekna á mann sett 100 1959,
er 1960 90,7, 1961 82,3, 1962 76,0,
1963 72,5, 1964 69,1 og 1965 68,8.
Þ.e.a.s., þetta hlutfall hefur
breytzt um 31,2% verkafólki i
óhag á þessu tímabili.
Það ec því sama hvernig á
málið er litið, hvort sem miðað
er við kaupmátt tímakaupsins
eða kaupmóttar heildarlaiuna
verkafólks án tillits til vinnu-
tíma borinn saman við aukn-
ingu þjóðartekna á mann, þ.e.
a.s. þann afrakstur, sem vinn-
andi fólk hefur rýrnað á þessu
tímaþili. Kaupmáttur tíma-
kaupsins er minni en 1959 og
hlutor verkafólks af þjóðar-
tekjmnrm hefur stórlega minnk-
að.
Stjórnarstefnan
orsök kreppunnar
Nú þegar að því hlýtur að
draga, að verkalýðssamtökin
beiti samtakamætti sínum til
]>ess að verkafólk fái sinn hlut
óskertan af þjóðartekjunum og
leiðréttingu á málum sínum, er
sérstök herferð hafin í áróðurs-
málgögnum ríkisstjórnarinnar
annars vegar til þess að leiða
athyglina frá því, að kreppan,
sem er að setja mark sitt á at-
vinn-ulífið, er bein afleiðing
stjómarstefnunnar og hins veg-
ar til þess að fá vérkafólk til
þess að falla frá krðfum um,
að hlutur þess verði réttur. I
þessari herferð, sem hefur
þennan tvíþætta tilgang, útmála
stjórnarvöldin fyrir almenningi
að lækkun hafi orðið á verði
útflutningsvönx.
Undanfarin ár hefur verð á
úlfluttum sjávarafurðum fai’ið
hækkandi með ári hverju oa
lækkun nú frá þeim hæsta
verðtoppi, sem náðst hefur
þýðir ekki það. að verðið sé
ekki eftir sem áður hærra én
svarar til þess hlutar, sem
verkafólk hefur fengið afþjóð-
artekjucium. Auk þess kemxir
hér á móti meira aflamagn á
sildveiðum en nokkru sinni
fyrr.
Það er fróðlegt að athuga,
hver hefur orðið hækkun á
sjávarafuröum undanfarin ár,
þegar hlutur verkafólks af
þjóðartekjum hefur stórlega
rirnað.
Á árunum 1963—1965 hækk-
aði verð á eftirtöldum útflutn-
ingsvönxm, sem hér segir í
prósentum: Saltfiskur óverkað-
ur 31,4%, skreið 9,5%, frystsíld
20,2%, fryst fiskflök 21,5%,
þorskalýsi hreinsað 26,6°/(),
þorskalj’si óhreinsað 90,5%,
saltsíld 11,4%, síldarlýsi 118,8%,
fiskimjöl 5,2% og síldarmjöi
10,6%.
Þetta eru hækkanimar síð-
ustu árin og þrátt fyrir ein-
hverja lækkun síðari hluta árs
1966 verður meðalverð á þessu
ári fremur hærra en lægra en
meðalverð 1965, og varðarxdi
þjóðartekjurnar bætist þar á
ofan, að aflamagn á síldveiðum
hefur stóraukizt.
Hér ber því atlt að sama
brunni um það, að þau kreppu-
einkenni, som tckin eru að
marka atvinnulífið, verða ekki
rakin til óhagsiæðra ytri að-
stæðna né heldur til þess að
verkafólk hafi fengið of mikið
í sinn hlut. Hér er stjórnar-
stefnan sjálf að verki og verð-
lækkanir á afurðum verða
hvorki notaðar til þess að kenna
um ófamaðinn eða til þess að
halda fyrir verkafólki réttmæt-
um hlut þess úr þjóðartekjun-
um. Og það verður ekki sam-
rýmt neinni skynsemi að gera
kröfu til launafólks nú, að það
afsali sér rélti til hærri kaup-
máttar tímakaups, en leggja
um leið fram fjárlagafrumv.,
sem gerir ráð fyrir aukinni
skattheimtu, sem nemur 850
rrÍilj. kr. á einu ári og miðar
við 20—30% og yfir 40*/,, hækk-
anir á rekstrarliðum, þvemeita
þannig á sama tíma að hverfa
frá þeirri verðbólgustefnu, sem
er að koma framleiðsluatvinnu-
vegunum í ]>rot. Þrátt fyrir
góðæri og aflamet á ári hverju
og þrátt fyrir minni hhit laun-
þega af auknum þjóðartekjum
eru óheillaáhrif stjórnarstefn-
unnar svo afgerandi á fram-
leiðsluatvinnuvegina, að góð-
ærið og aflahkiupið dugir ékki
til mótvægis.
Ráðamenn viðreisnarstjóm-
arinnar hafa siglt þjóðarfleyinu
eftir rangri stefnu, og eru að
sigla í strand í blæjafogni og
blíðviðri. Það eru ekki ytri á-
föll, sem hafa borið þjóðar-
skútuna af leið. Stefnan hefur
frá upphafi verið röng og henni
verður að breyta ef ekki á
verr að fara.
Þeirri kreppu, sem nú fer að
í atvinnulííinu, verður ekki
bægt frá með því að ganga
enn á hlut launþega, eins og
ríkisstjórnin undir forustu
Bjama Benediktssonar ætlar
sér að leggja alla óherzlu á
að gera. Sú fyrirætlan íerekki
milli mála í þerrri áróðursher-
ferð í sambandi við markaðs-
verðið, sem ég áðan minntistá,
en hún fer enn síður leynt í
eftirfarandi orðum úr Reykja-
víkurbréfi Morgunblaðsins 2ó.
september s.l., en þau hefur
hæstvirtur forsætisráðherra efa-
lítið ritað, en þar segir:
„Vegna þess hve riflegur
hlutur launþega hefur orðið,
eiga atvinnurekendur hins veg-
ar í vök að verjast jafnskiói*
og ó móti blæs.“
Gjafir eru yður
gefnar
Það má segja verkaroenn, að
gjafir eru yður gefnar. Ykkar
hlutur hefur verið svo riflegur.
að þið eruð að koma atvinnu-
vegunum á vonarvöl og æthm-
in er að rétta hlut þeirra á
ykkar kostnað!
Þó að kaupmáttur tímakaups
verkafólks hafi lækkað og
hlutur þess úr þjóðartekjunum
minnkað enn meir í góðærum
undanfarið, er hann að dómi
Sjálfstæðisflokksins samt of
stór og það er það, sem sá
flokkur telur, að þurfi að leið-
rétta í efnahagslffinu.
Hæstv. forsætisráðherra er
ekki f vafa um, hverjir eiga
að fóma núna, þegar hann sér
fram á þrot viðreisnarstefnunn-
ar.
En verkafólk veit bezt allra,
að það hefur ekki fengið sinn
hlut af auknum þjóðartekjum
undanfarin ár. Verkafólk hefur
horft upp á gróðaliðið í Rvik
skófla til sín verðbólgugróðan-
tim. Það hefur séð, hvemig
farið er með þann gjaldeyri,
sem almenningur skapar með
vinnu sinni, hvemig hann hefur
verið og er til frjálsrar ráð-
stöfunar fyrir innflytjendur til
þess að eyða honum í það, sem
gefur þeim mestan gróða að
flj’tja inn. Verkafólk hefur séð
þann grundvallarþátt í stjómar-
stefnunni í framkvæmd að þeir,
sem fjármagninu ráða, geti fest
féð í þeim byggingum og fyrir-
tækjum, sem geta skapað þeim
mestan persónulegan gróða al-
gerlega án tillits til þarfa þjóð-
arheildarinnar á sama tíma og
opinberar framkvæmdir eru
skomar niður.
Almenningur hefur séð olíu-
félögin byggja sölustöðvar fyr-
ir milj. kr. hlið við hlið um
land allt og heimta síðan verð-
hækkanir vegna hækkaðs dreif-
ingarkostnaðar. Olíu-og benzfn-
bifreiðamar frá öllum þessum
fyrirtækjum elta hver aðra og
bræða sveitavegina til þess að
skila samskonar olíu og benz-
íni hver á sinn sveitabæinn. Ný
bankaútibú eru opnuð íhverj-
um mánuði og hvers kyns miRi'- '
liðir og afætur baða sig í verzl-
unarfrelsinu.
I Indlandi er talið, að 67
miljónir nautgripa fái að ráfa
um eftirlitslaust og éta mat,
sem mundi duga til viðurværis
9 miljónum af atvinnuleysingj-
um landsins.
Þetta þykir okkur furðuleg-
ur búskapur. En við eigum
okkar heilögu kýr, þá milli-
liði og gróðabraskara, semrík-
isstjórnin heldur sérstakri vemd-
arhendi yfir. Þessar heilögu
kýr okkar eru að vísusnöggt-
um færri en í Indlandi, en það
fóður sem þær hafa vaniztund-
anfarið, er þeim imin dýrara.
Stefnubreytingar
brýn þörf
I vaxandi mæli sér almenn-
ingur, að hér verður að skipta
um stefrrn. Það er í hróplegri
mótsögn við hagsmuni vinn-
andi fólks, að blind gróðahvötin
sé látin vera hið ráðandi afl
í þjóðlffinu eins og verið hefur
í tíð viðreisnarstjómarinnar. En
hún hefur mótað alla þætti
þjóðlífsins í æ rikara mæli,
jafnt atvinnumálum, innflutn-
ingsmálum sem húsnæðismál-
um.
Almenningur hefur nú um
langt skeið horft upp á rang-
sleitni stjómarstefnunnar, stjóm-
leysið, skipulagsleysið, braskið,
bruðlið og sóunina og séð öng-
þveitið aukast á uppgripaárum,
en kjöir verkafólks rýma og
sízt af öllu mun verkafólk fóma
hagsmunum sínum fyrir áfram-
hald þessarar stefnu, eins og
ríkisstjómarflokkamir fara nú
fram á.
Sú krafa fær æ dýpri hljóm-
grunn, að horfið verði frá þess-
ari óheillastefnu, sem heftir
blinda gróðahyggju einstaklinga
að leiðarhnoða, en þess í stað
tekin upp bein stjóm á öllum
þátbum þjóðarbúskaparins, þar
sem hagsmunum fjáraflamanna,
sem öllu hafa ráðið síðastliðin
ár, verði vikið til hliðar fyrir
hagsmunum þjóðarheildarinnar.
Þau umskipti þurfa launþeg-
ar að tryggja við alþingiskosn-
Framhald á 7. síðu.
Síðari hluti raeðu Geirs Gunnars-
sonar, fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins við 1. umræðu frumvarps
til fjárlaga fyrir árið 1967