Þjóðviljinn - 06.11.1966, Side 2
I
Dönsk úrvalsvara
Harðviðarhurðir, stuttur afgreiðslu'tími.
Mjög hagstætt verð.
Loft- og veggklæðningar.
Birgir Árnason
Hallveigarstíg 10. Sími 14850.
HURÐIR - PANEL
VER-Ð KR. 5.917-
W 4 - ...
i ,*y "... '
látið okkur jaína nú þegar misþunga á hjólbörðum yðar
með fullkömnustu ballans-vél sem nú er á markaðnum. —
Önauðsynlegt að teka hjólin undanbílnum. — Gildirþað
jafnt um fólks- og vöru- og langferðabifreiðar.
Vinnustofan er opin alla daga kl. 7,30 til 22.
GÚMMÍVINNUSTOFAN hf. Skipholti 35 ~ Sími 31055
SKIPATKYGGINGAR
útgerdarmenn.
tryggjúm hvers konar skip og allt,
sem þeim viðkemur
TRYGGINGAFÉLAGIÐ HEIMIR"
LINDARGÖTU 9 • REYKJAViK • S t MI 22122 — 21260
Auglýsingasími Þjóðviljans er 17500
Járnsmiðavé/ar
Til sölu 2—3 notaðir rennibekkir og 1 hefill.
Vélamar eru í góðu ásigkomulagi og verðið er
hagstætt. Vinsamlegast hafið samband við
Kolbein Jónsson, tæknifræðing
Vélsmiðjan= HEÐINN =
sími 24260.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 6. nóvember 1966
Ungbarnadauðinn í heiminum:
Dánartalan lægst
á Norðurlöndum
Hvergi í heiminum er ung-
barnadauði jafnlítill og á Norð-
urlöndum. Rúmlega 89 af
hundrafti allra faeddra barna
Iifa fyrsta æviárift. Hinn é-
hugnanlegi mismunur á þessum
löndum og vanpróuðu löndun-
um kemur m-a. fram í því, að
20 af hverjum 100 fæddum
bömum í mörgum löndum Asíu
og Afríku deyja áður en þau
ná eins árs aldri.
Þessar upplýsingar er að
finna í hinni kunnu árbók
Sameinuðu þjódanna yfir
manntal og fólksfjölgun, Demo-
graphic Yearbook, 1965. Þar
kemur fram, að í Svfþjóð er
ungbarnadauði, minnstur I
heiminum. eða 12,4 á hverja
1000 íbúa. Næst kemur Holland
með 14,4, síðan Finnland með
17,4. Varðandi önnur Norður-
lönd liggja einungis fyrir tölur
frá 1964, en þá var ungbama-
dauði í Noregi 16,8 á hverja
1000 íbúa, á Islandi 17,7 og I
Danmörku 18,7. 1 Bandaríkjun-
um voru þessar tölur árið 1965
24.7 og i Sovétríkjunum 28,0.
Mestur er ungþamadauðinn
í Gabon eða 229 á hverja 1000
íbúa, Efri-Volta 182, Kongó
(Brazzaville) 180. Tyrkland 165.
Indland 129 og Chile 114.
Víða i Mið-Ameríku og
karabísku eyjunum hefur ung-
bamadauðinn minnkað á síð-
ustu árum, t.d. í Dóminíska
lýðveldinu, Mexíkó. Nicaragúa
og.Panama.
Hár meðalaldur í Noregi
og Sviþjóð
Stúlkur, sem faeðast í Noregi,
Svíþjóð eða Frakklandi, eiga í
vændum flest æviár — eða
rúmlega 75. Drengir, sem fæó-
ast í Noregi, Svíþjóð eða Ho’-
landi, eiga í vændum rúm-
lega 71 æviár. Á öðrum Norð-
urlöndum er meðalaldurinn
sem hér segir: Danmörk 70,3
fyrir drengi, 74,4 fyrir stúlkur;
Finnland 64,9 fyrir drengi og
71,6 fyrir stúlkur; ísland 70,7
fyrir drengi og 75,0 fyrir stúlk-
ur.
1 Bandaríkjunum er meðal-
aldur kvenfólks 73,7 ár og
karlmanha 66,9 ár. í Sovétríkj-
unum eru samsvarandi tölur 73
og 65 ár.
Böm sem fæðast í. ýmsum
löndum Afríku eiga ekki i
vændum nema 40 æviár. Það
á við um Kongó (Brazzaville),
Ghana, Guineu og Tógó. Með-
alaldur indverskra karlmanna
er 41,9 ár og kvenfólks 40,6
ár. í Kambódju epu samsvar-
andi tölur 44,2 og 43,3 ár, og
í Thaílandi 48,7 og 51,9 ár.
Árbókin leiðir einnig í ljós,
að æ fleira fólk gengur í
hjónaband. Árið 1965 voru
skráðar 9,2 giftingar á hverja
1000 íbúa Bandaríkjanna, og
hafði hlutfallið aldrei fyrr ver-
ið svo hátt. I Danmörku hækk-
aði það úr 7,8 upp í 8,5 á ár-
unum 1960—1965. Á öðrum
Norðurlöndum varð vart sömu
tilhneigingar. (Eyá SÞ)
100%sjálfvirk skuggamyndavel
Getur notað bæði hjól með 100 myndum eða 36 mynda sleða, sem tekur allar gerðir
af römmum. — Eina vélin á markaðinum, sem getur notað bæði hjól eða sleða. Hún
er fjarstýrð eða stillanleg, þannig að hún skipti sjálf. SAWYERS ROTOMATIC er
með lágspenntan lampa 24 V 150 W, sem jafngildir 500 W Ijósi.
HANS PETERSENr
SIMI 20313 - BANKASTRÆTI 4