Þjóðviljinn - 06.11.1966, Qupperneq 5
Sunnudagur 6. nóvember 1966 — >JÓÐVILJINN SÍÐA g
Matvælaframleiðslan á samá stigi
og árunum eftir heimsstyrjöldina
Framleiðsla á matvælum í
heiminum minnkaði um 2 af
hundraði miðað við fólksfjoida
á seinna árshelmingi 1965 eg
fyrra árshelmingi 1966, segir í
nýbirtri ársskýrslu Matvæla- og
landbúnaðarstofnunarinnar (FA
O).
Vegna mikilla þurrka fór
framleiðsla matvæla ekki fram
úr framleiðslunni 1964—1965.
Þó fjölgaði jarðarbúum um 70
miljónir.
Hin rýra uppskera kom ekki
eftir góðæri, heldur eftir
margra ára harða baráttu við
að halda jafnvægi milli mat-
vælaframleiðslu qg fólksfjölg-
unar, segir dr. B.R. Sen, for-
stjóri FAO.
Samkvæmt FAO-skýrslunni
minnkaði matvælaframleiðslan
á hvem íbúa um 4—5 sf
hundraði í Afríku, Rómönsku
Ameríku og vanþróuðum lönd-
um Suðaustur-Asíu. Skýrslur
frá Kína eru ekki tiltækar, en
gert er ráð fyrir að komupp-
skeran þar hafi verið rýrari en
áður.
Reiknað hefur verið út.
matvælaframleiðslan á hvem
fbúa í vanþróuðum löndum s4
komin á sama stig og hún var
árið 1957, þannig að hún sé nú
jafnófuílnægjandi og hún var
fyrir seinni heimsstýrjöld.
,,Hver vottur af 'varanlegri
ánægju með ástandið í mat-
væla- og landbúnaðarmálum
hlýtur að hafa verið hrakinn
út í yztu myrkur af viðburður,-
um á liðnii ári,“ segir dr. Sen {
formála fyrir skýrslunni. „Að
frátalinni góðri uppskeru i N-
Ameríku, er nálega öruggt að
heimsframleiðslan hefur dregizt
saman. 1 rauninni er gert ráð
fyrir að hún hafi minnkað um
2 af hundraði þegar á heildina
er litið og 44—5 af hundraði á
hvera íbúa vanþróuðu land-
anna, þegar löndin við austan-
vert Miðjarðarhaf eru undan-
skilin.“
-4>
Sængurfatnaður
— Hvítur og mislitur —
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
GÆSADÚNSSÆNGUB
DR ALONSÆN GUR
+
SÆNGURVER
LÖK
KODDAVER
Skólavörðustíg 21.
1 Norður-Ameríku jókst mat-
vælaframleiðslan um ea. 4 ®f
hundraði, í Vestur-Evrópu um
tæplega 1 af hundraði. 1 Sov-
étríkjunum og löndum Austur-
Evrópu varð smávægilegur
samdráttur, en í Ástralíu
minnkaði framleiðslan um
hvorki meira né minna en 6 af
hundraði.
„Við bíðum átekta
áhyggjufttllir"
„Þar sem margar miljónir
manna þjást þegar af vannær-
ingu, eru litlir og kannski eng-
ir varaforðar sem við getum
gripið til í haliærinu,“ segir
dr. Sen ennfremur. Til skamms
tfma hafa^hinar miklu kom-
birgðir, sem til hafa verið síð-
an upp úr 1950, verið nauðsyn-
legur varaforði sem t.d. kom
f veg fyrir hungursneyð f Ind-
landi og öðrum löndum, sem4>
urðu fyrir þurrkum 1965—66.
En þessar hjálparaðgerðir á-
samt nýrri þörf Kfna og Sov-
étríkjanna á innfluttu komi
hafa stórlega minnkað kom-
birgðir í Norður-Ameríku,
þannig að þær eru nú minni
en nokkm sinni fyrr á liðnum
árum.
„Matvælaástandið f heimin-
trm er þvf ískyggifegra nú en
það hefur nokkru sinni verið
síðan verst gekk eftir seinni
heimsstyrjöld. Þess vegna er
það. að við bíðum uppskerunn-
ar 1966—67 talsvert áhyggju-
fuTlir,“ segir dr. Sen.
Spár skýrslunnar eru varkár-
ar, þar sem enn er ómögulegt
að segja fyrir, hvort hægt verði
að ná sama framleiðslustigi
aftur. Mikil votviðri hafa dreg-
ið úr uppskerunni í Evrópu og
Sovétríkjunum. Hvertifram-
leiðsla Bandaríkjanna er talin
munu verða 7 af hundraði
minni en í fyrra. 1 Indlandi,
Pakistan og Kína hafa gengið
þurrkar. Einnig er búizt við,
að skortur á regni muni
minnka hveitiuppskeruna f N-
vestur-Afríku og allmörgum
löndum við austanvert Miðjarð-
arhaf.
Hins vegar er á það bent, að
vanþróuðu löndin tilkynni að
jafnaði fyrst þurrka og önnur
vandræði, en skýri síðar frá
eðlilegu ástandi og góðri upp-
skeru.
Minnkun varaforðans hefur
gert það enn brýnna að taka
til nýrrar meðferðar matvæla-
hjálp sem byggist á umfram-
birgðum. Sú ákvörðun Banda-
ríkjanna að hefja nýrækt á til-
teknum óþurrkasvæðum og að
gera matvælahjálp sína óháða
umframbirgðum með hinum
svonefndu Food for Freedom
Act þar sem lögð er áherzla á
hjálp við lönd sem eru að leit-
ast við að auka eigin fram-
leiðslu, er nefnd sem skref *
rétta átt.
Sjómannafélag
HafnarfjarSar
Tillögur trúnaðarmannaráðs um aðalmenn og vara-
menn í stjóm Sjómannafélags Hafnarfjarðar fyrir
árið 1967 liggja frammi á skrifstofu félagsins.
Öðrum tillögum ber að skila fyrirskl. 22 sunnudags-
inn 20. nóvember 1966.
\
Tillögunum þarf að fylgja tilskilinn fjöldi með-
mælenda.
Trúnaðarmannaráð
Sjómannafélags Hafnarfjarðar.
„FAO hefur ævinlega lagt á-
herzlu á, að enda þótt mat-
vælahjálp sé ómetanleg ....
þá sé það fyrir öllu þegar tii
lengdar lætur, að löndin auki
sjálf framleiðslu sína, ef ráða
á varanlega bót á matvæla-
ástandinu," segir dr. Sen.
FAO er nú að gera leiðbein-
ingar-áætlun fyrir þróun land-
búnaðar í heiminum. Hún á að
skilgreina hvaða hlutverki
landbúnaður gegni í heilbrigð-
um efnahagsvexti. Ennfremur
verður auðveldara að meta
magn og form þeirrar aðstoðar
sem nauðsynleg er á þessu
sviði. FAO á einnig samstarf
við Alþjóðabankann um fjár-
hagsaðstoð til framfara í land-
búnaðarmálum og er að auka
hjálparstarfsemi sína, sagði dr.
Sen.
Kornvandamálið tvísýnast
Þróun í kom-rækt veldur
mestum áhyggjum. Kornið er
um það bil þriðjungur allrar
landbúnaðarframleiðslu í heim-
inum. Alls minnkaði komupp-
skeran -um 2 af hundraði.
Hveiti-, bygg- og hrísgrjóna-
uppskeran var milli 4 og 5 af
hundraði. Sama máli gegndi t.d.
um sykur, jarðarhnetur, kakó,
tóbak og epli. /
Hins vegar jókst framleiðsla
á ólífuolíu, sojabaunum og
kaffi. Framleiðsla flestra ann-
arra matvælategunda dróst
heldur saman.
Fiskafli heimsins jókst á al-
manaksárinu 1965. Framfar-
irnar i Perú urðu þó litlar i
samanburði við það sem áður
hafði orðið, og í Chile varð
samdráttur.
(Frá SÞ)
Stofnfundur brœðrofélags
Hallgrímskirfcgu er í kvöíd
Það var sú tíð, að kirkjulegt
starf fól ekki annað í sér
en starf prestanna. Engin fé-
lagasamtök unnu á vegum
kirkju eða safnaða. Nú er
þetta mjög að breytast. Fyrst
var farið að dæmi Dana og
Norðmanna, að stofna kristileg
félög, sem stóðu í óbeinu sam-
bandi við kirkjuna, en nú á
seinni árum er meira farið að
amerískri fyrirmynd, byggja
félagsheimili í kirkjunum eða
við þær, og mynda sérstök
félög í tengslum við söfnuðinn
sjálfan. Nokkur reynsla er
fengin í þessum efnum hér á
landi, og í Evrópulöndunum er
þetta að verða ríkjandi fyr-
irkomulag.
Skömmu eftir að Hallgríms-
söfnuður var stofnaður, varð
til Kvenfélag Hallgrímskirkju.
Um nokkurra ára skeið starf-
aði æskulýðsfélag í söfnuðin-
um, en það lagðist niður.
meðal annars vegna húsnæðis-
skorts. Kvenfélagið hefur hins
vegar starfað með miklum
blóma, þrátt fyrir húsnæðis-
skortinn.
Langt er síðan farið var að
ræða um stofnun bræðrafélags
Hallgrímskirkju. Slíkt félag
getur tekið að sér _ mörg og
fjölbreytt verkefni. Ég hef hér
ekki aðeins í • huga byggingu
hinnar miklu og fögru minn-
ingarkirkju, heldur ýmiskonar
menningar- og uppbyggingar-
starf. Dálítið hefur verið að
því gert á undanförnum árum
að- hafa kirkjukvöld með
fræðilegu og listrænu efni á
vegum kirkjunnar. Og kvenfé-
lagið hefur hugsað um meira
en fjársöfnun. Fundarefni lið-
inna vetra sýna það bezt, að
félagið hefur látið sér annt
um fræðslu og skemmtun af
því tagi, sem menntaj og gleð-
ur í senn.
Enda þótt það starf, sem hér
hefur verið minnzt á, hafi ó-
efað gert sitt gagn, er full
þörf á bræðrafélagi með sín-
um sérstöku verkefnum. Fyrir
tveim árum var stigið fyrsta
• Framhald á bls. 9.
GLERULLAREINANGRUN
FRÁ JOHNS-MANVILLE USA
NÝKOMIN AFTUR
Með notknn hinnar margreyndu J-M grerullareinangrunar sparið þér mikla peninga
um leið og þér eruð öruggur um að hafa notað það bezta.
JohnS‘Manville
J-M glerullareinangrun venjulega fyrirliggjandi í eftirtöldum stærðum og þykktum:
1” án álpappírs 23” br. (58 cm) 18,58 ferm.
iy2” með álpappír 23” br. (58 cm) 11,61 ferm.
23” br. (58 cm) 9,30 ferm.
23” br. (58 cm) 7,12 ferm.
23” br. (58 cm) 5,57 ferm.
214” með álpappír
3” með álpappír
3 7/8 með álpappír
rúllu @ 950,00
rúllu @ 507,00
rúllu @ 515,00
rúllu @ 405,00
rúllu @ 400,00
Verðin eru með söluskatti og háð breytingum án fyrirvara.
51,00 ferm.
43,70 ferm.
55,40 ferm.
56,90 ferm.
72,00 ferm.
Örugglega ódýrasta einangrunarefnið í flutningi út um land, þ.e. fyrirferðarminnst og
léttast. — Jafnvel flugfragt borgar sig.
HagstœSir greiSsluskilmálar — BiSjiS ávallf um
J—M einangrun
J-M einangraS er vel einangraS
JÓN LOFTSSON H.F.
Hringbraut Í21. — Sínii 10-600.
Á Akureyri: Glerárgötu — Sími 21344.
i
t
1
I