Þjóðviljinn - 10.11.1966, Síða 8
0 SfÐA — ÞJ&ÐVILJINN — Fímœtudagur 10. nóvember 1966
í H Ú S I
MÓÐUR MINNAR
Eftix JULIAN CLOAG
' Frú Storfc sneri sér við í dyr-
rniurn og leit í kringum sig.
— Jseja, ég er auðvijað ekki
annað en veslings manneskja sem
stritar og púlar, en ég hef nú
mínar tilfinningar — þið meg-
ið ekki halda að frú Stork hafi
ekki sínar tilfinningar. Mér þyk-
ir jafnvænt- um þessi börn eins
og ég ætti þaú sjálf, það er
víst og satt. Hún opnaði dyrn-
ar. — Ég hef verið þeim eins
og móðir í öll þessi ár. Eins og
móðir.
Það var löng þögn eftir að
hún var farin út út stofunni.
Herra Halbert tók upp silfur-
sígarettuveski og kveikti sér í
sígarettu.
Maðurin% í bláa jakkanum
ræskti sig. —■ Þér skiljið, byrj-
aði hann.
— Já?
Hann reis á fætur og gekk að
borðinu. — Þér skiljið, er ekki
svo. Ég get ekki tekið þau öll
í litla bílinn minn. Eru þau ekfci
sex?
— Við höfum verið að hugsa
um það. Herra Halbert bauðst
tii að aka þeim í bílnum sín-
um. Lögreglufulltrúinn hækkaði
röddina lítið eitt og leit í átt-
ina til ungfrú Deke. — En þér
gætuð kannski leyft ungfrú Deke
að sitja í hjá yður? Hún ætti
að fylgja þeim á leiðarenda.
— Já, au,ðvitað. Með ánægju.
Maðurinn brosti til ungfrú Deke.
Hann sneri sér að fulltrúanum.
— Þér skiljið — hm, hvar eru
börnin núna?
— Uppi á lofti. 1 herbergi sem
þau kalla verkstæðið.
— Jæja, ég var bara að hugsai
sem svo, skiljið þér, að ég ætti
í rauninni að líta á þau fyrst
— fá eins konar yfirsýn yfir
þau, ef þér skiljið hvað ég á
við. Hann brösti vandræðalega.
Fulltrúinn virti hann vandlega
fyrir sér. — Ég er ekki alveg
Hárgreíðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugavegi 18 III hæð (lyfta)
SÍMl 24-6-16
P E R M A
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
DÖMUR
Hárgreiðsla við allra hæfi
TJARNARSTOFAN
Tjarnargötu 10, Vonarstrætís-
megin — Simi 14-6-62.
Ajurí/AFÞöR óumumhoK
Skólavörðustíg 36
sími 23970.
INNH&MTA
LÖOPKJS.9t3TÖH*
KDRNELiUS
JÖNSSON
skólavördustig 8
viss um að ég skilji hvað þér
eigið við, herra Bolton.
—• Jú, — já, — ég er að hugsa
um hin börnin, skiljið þér. Þau
áem eru hjá okkur nú þegar.
Hm — þessi börn, jú, ég á við
•— þetta er nú- meiri reynslan.
Hvernig böm eru þetta í raun
og veru?
— Þetta eru ósköp venjuleg
böm, herra' Bolton, sagði ungfrú
Deke allt í einu.
Herra Bolton brosti til henn-
ar. — Jæja — er það nú svo?
Við höfum svo indælan lítinn
hóp hjá okkur, skiljið þér. Ég
vil ekki valda neinum vandræð-
um eða neitt þess háttar, en ég
á við — jú, óheppileg áhrif,
skelfileg reynsla, glæpsamlegar
tilhneigingar. allt þetta . . .
— Eins og ungfrú Deke sagði,
greip fulltrúinn fram í, — þá
er ég viss um að þér eigið eftir
að komast að raun um að þetta
eru ósköp venjuleg börn, herra
Bolton. Ég held að það sé á-
stæðulaust að ónáða þau þenn-
an síðasta klukkutíma sem þau
eiga eftir að vera hér í húsinu.
— Klukkutíma? Herra Halbert
leit á armbandsúrið sitt.
— Já, sagði lögreglufulltrúinn
stuttaralega. — Fyrir þann tíma
þyrftum við að vera búnir að
hreinsa til í garðinum.
— Jæja, herra Bolton lét sig
ekki. — Þér hafið sjálfsagt á
réttu að standa. En, héma, Ég
er að hugsa um þennan dreng,
þennan Herbert. Er hann ekki
foringinn, eða hvað?
— Húbert, sagði herra Hal-
bert. — Skynsamur snáði að
mínu viti.
— Verið alveg rólegur, herra
Bolton, sagði fulltrúirm. — Þér
skuluð fá að sjá þau áður en
þau leggja af stað.
— Já, byrjaði herra Bolton,
en hann var truflaður þegar
barið var að dyrum.
— Kom inn, sagði fulltrúinn.
— Afsakið fulltrúi, sagði lög-
regluþjónninn sem stóð í dyrun-
um. — Það eru bömin. Hann
reyndi að halda aftur af litlu
mannverunum sem tróðust að
honum. — Þau langar til að
fara út. og . .
Jiminee smaug undir hand-
legginn á lögregluþjónmum og
kom inn í herbergið.
— Þ-það er Louis, sagði hann.
Hann leit í kringum sig í von
um að sjá kunnuglegt andlit og
valdi síðan ungfrú Deke. —
Louis er úti. M-megum við fara
út og t-tala við hann?
Lögreglufulltrúinn stóð upp og
leit spyrjandi á ungfrú Deke.
— Louis er vinur þeirra,
sagði ungfrú Deke mildum rómi.
— Jæja, sagði fulltrúinn við
Jiminee. — Mér þykir það leitt,
drengur minn, en við getum
ekki leyft ykkur að fara út.
— G-gerið þér það, g-gerið
þér það. Jiminee fór að titra. —
V-við 1-lofum því að k-koma
aftur inn. Við lofum því.
Fulltrúinn hristi höfuðið af-
sakandi.
— Gerði það nokkuð til, sagði
herra Halbert, — þótt drengnum
væri leyft að koma inn?
Fulltrúinn leit á ungfrú Deke.
Ungfrú Deke brosti. — Ég get
ekki séð að neitt sé athugavert
við það, fulltrúi. Aðeins smá-
stund til að kveðja.
— Jæja. Fulltrúinn hugsaði
sig um. — Gott og vel. Bara
dálitla stund.
— Ég skal fara og sækja Lou-
is, sagði ungfrú Deke. — Þú
verður að bíða í anddyrinu,
Jiminee, hjá hinum bömunum.
Hún reis á fætur. — Þakka yð-
ur fyrir, fulltrúi.
LögregluþjómHnn lokaði dyr-
unum, á eftir hermi.
44
— Sæll, Louis.
Hann horfði á þau og hann
var alvarlegur á svipinn. —
Komið þið sæl, svaraði hann.
Ungfrú Deke hafði leyft þeim
að vera einum í anddyrinu.
Þau söfnuðust hægt kringum
Louis.
Hann horfði á þau. Svo kom
hann auga á töskurnar sem stóðu
hjá veggklukkunni. — Þið eruð
að fara burt, sagði hann.
— Já, sagði Jiminee.
— Verðið þið lengi burtu?
Börnin litu hvert á annað..—
Já, svaraði Elsa. — Ég hugsa
það. f kyrrðinni tifaði vegg-
klukkan mjög hátt.
— Mamma ætlar að. eignast
bamið sitt í næsta mánuði, sagði
Louis.
— Hvort skyldi það nú verða?
sagði Húbert.
— Lítil stelpa. Við ætlum að
kalla hana Hildu.
— Hilda er f-flott nafn, sagði
Jiminee.
— Finnst þér það fallegt í
alvöru?
— Já. Börnin tóku öll undir
það.
Louis þagði dálitla stund —
Hann pabbi segir að það sé ekki
búið að eyðileggja það nafn,
sagði hann.
73
— Það er reglulega faHegt
nafn.
— Ógurlega fallegt nafn, sagði
Willy með áherzlu.
Louis roðnaði dálítið. — Ég
á ennþá granateplið frá þér,
Díana.
Díana brosti.
— Pabbi minn er' búinn að
bera á það femis og fægja það.
Nú er það glóandi eins og gull
og það endist að eilífu.
—: Áttu líka pennýið frá mér?
spurði Willy.
— Já, víst á ég það. Ég á
allar gjafimar frá ykkur. Ég á
vasaklútinn og litla bláa skrínið
og granateplið og Sögu Manchest-
er og — og
— og nágrennis, sagði Dun-
stan.
— Já, og nágrennis, alveg rétt.
Louis brosti. — Og ég á mynd-
ina frá þér, sagði hann við
Jiminee. — Hún hangir uppi í
herberginu mínu.
— En hvað um vasahnífinn
þiiin? spurði Húbert.
— Uss, það er bara gamall
vasahnífur. AHir eiga vasahníf.
Einhvers staðar niðri skelltist
hurð og þau heyrðu fótatak fyr-
ir neðan sig.
— Mikið eru margir lögreglu-
þjónar hérna, sagði Louis.
Húbert kinkaði kolli. — Og
svo eru líka tveir lögreglubílar
fyrir utan, sagði hann.
— Já. Ég sá þá.
Húbert hugsaði með sér, að
eiginlega væri það ekki svo
slæmt — að segja Louis það
á þennan hátt.
— Louis, ég ætla að hvísla
dálitlu að þér. Willy kom alveg
að Louis og dró höfuðið á hon-
um niður til sín.
Louis hlustaði. — Allt í lagi,
sagði hann og kinkaði kolli. —
Allt í lagi. Ég skal gera það.
Hann rétti úr sér og tók í
höndina sem Willy rétti honum.
— Hvað ætlarðu að gera?
spurði Jiminee.
Louis leit efablandinn á Willy.
— Má ég segja það?
Willy kinkaði kolli með ákefð.
— Hann vill að ég passi svörtu
konuna hans meðan þið eruð
burtu.
Ó. Willy, sagði Elsa og brosti.
— Já, var það ekki sniðugt?
sagði Willy. — Það er alls ekki
víst að maður megi hafa neinar
konur þar, það er ég viss um.
Allt í einu brostu öU hin
börnin líka.
— Já, það er alls ekki víst,
er það? sagði Willy.
— Nei, sagði Louis alvarleg-
ur. — Það er alls ekki víst að
það megi. En ég skal gæta henn-
ar vel, vertu alveg viss um það.
Hann tók fastar um höndina
á litla drengnum.
WiHy brosti. — Benni finnst
brauðmylsna góð, sagði hann.
— Það skal ég muna. Hann leit
í kringum sig í hálfdimmu and-
dyrinu. — Nú verð ég að fara,
sagði hann. — Ég lofaði mömmu
að vera ekki lengi.
— Æ, farðú ekki strax!
— Ekki strax.
— Gerðu það ekki.
Louis hikaði. Hann sleppti
höndinni á Wiíly og leitaði í vasa
sínum.
— Ég er með dálítið handa
ýkkur, sagði hann.
Hann rétti fram höndina. Þar
sem hann lá í lófanum á Louis
leit hann í fyrstu út eins og
venjulegur steinn. Svo tók Jim-
inee hann upp.
— Það er steingervingurinn
þinn, sagði hann.
— Ammonítinn, leiðrétti Lou-
is. — Hann er handa ykkur. Ég
kom með hann handa ykkur.
Börnin flykktust að og snertu
raflituðu rákirnar sem lágu um
steininn þveran og endilangan.
— Mikið er hann fallegur,
hvíslaði Díana.
— Er hann í alvöru svona af-
skaplega gamall? spurði Húbert.
— Hann er meira en miljón
ára. Miljón miljón ára.
— 'Miljón miljón? hvíslaði
Willy.
— Meira, sagði Louis. —
Hann er gamlari en nokkuð ann-
að í heiminum.
— Og svo er bann ennþá til,
sagði Jiminee.
— Megum við eiga hann í al-
vöru? spurði Willy.
Louis kinkaði kolli. — Já. Ég
kom með hann handa ykkur.
— En, sagði Elsa. — Þetta er
það fínasta sem þú átt — þú
sagðir okkur það sjálfur.
— Það er þess vegna sem ég
vil að þið eigið harm, svaraði
Louis!
— Ó, Louis!
— Geturðu í alvöru verrð án
hans? spurði Húbert.
Louis kinkaði kolli.
— Þetta er dásámlegasta gjöf
sem til er, sagði Díana.
— Þökk fyrir, Louis.
— Þúsund þakkir.
— Mörg þúsund þakkir, sagði
Willy.
Louis roðnaði. — Ég er feg-
inn að ykkur’ skuli líka hann,
sagði hann.
— Okkur finnst hann stór-
kostlegur. Þau litu öH hvert á
annað og brostu.
Louis deplaði stóru, brúnu
augunum. — Nú verð ég að
fara — annars verður mamma
reið.
Hann hikaði. — Æth það
vei;ði — verði ekki allt í lagi
— þarna sem»þið verðið.
Bömin stóðu þögul kringum
hann.
— Jæja, verið þið þá sæl,
sagði hann.
— Bless, Louis.
— Bless.
Hann gekk að útidyrunum en
Húbert var kominn þangað á
undan honum og tók slána frá
og opnaði dyrnar upp á gátt.
Einkennisklæddi logregluþjónn-
inn sem var á verði við dyrnar,
vék ögn til hliðar og gult vor-
sólskinið streymdi inn í gömlu'
forstofuna.
— Bless, sagði Louis í dyr-
unum. Hann sneri sér við og
hljóp niður tröppurnar.
Allt í einu tróðust börnin að
dyrunum, út um - þær og út á
tröppurnar.
Um leið og Louis lokaði hlið-
inu á eftir sér, sneri hann sér
við og veifaði.
Svo rýmdi foryitna fólkið fyrir
honum og hann var horfinn.
Börnin hrópuðu í kveðjuskyni.
— Bless. . — Bless, Bless,
Louis . . Bless! Bless!
Bless ... — Bless, Louis
. . Bless! Bless!
Skærar raddirnar ómuðu út í
sólskinið í Ipswich Terrace, yfir
höfðinu á fólkinu sem stóð fyrir
utan hliðið.
Loks hættu börnin að hrópa.
Þau gengu hægt inn í húsið
aftur.
Ungfrú Deke beið eftir þeim
í anddyrinu. Hún stóð við borð-
ið og var að setja á sig hanzk-
afta.
— Komið þið þá, börn, sagði
hún. — Farið í frakkana og setj-
ið á ykkur húfur. Það er kom-
inn tími til að fara.
ENDIR.
VINNA
Lítið fyrirtæki með 100 ferm. húspláss og tals-
vert af jám- og blikksmíðavélum, óskar eftir föst-
um verkefnum, einhverskonar framleiðslu eða
lagersmíði. — Tilboð merkt „JÁRN“ sendist til
afgreiðslu Þjóðviljans.
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar full-
komöu sjálfvirku neglingarvél.
veita fyllsta öryggi í snjó og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eftir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustofa vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Simi 3-10-55.
Kuldajakkar og
í öllum stærðum.
Gtóðar vörur — Gott verð.
Verzlunjn Ö. L.
Traðarkotssimdi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
TRABANT EIGENDUR
V iðgerðarverkstæði
Smurstöð
Yfirförum bílinn
fyrir veturinn.
FRIÐRIK ÓLAFSSON, vélaverkstæði
Dugguvogi 7. Sími 30154.
Klapþarstíg 26
Sími 198QQ
Condor