Þjóðviljinn - 11.11.1966, Síða 2
2 SfÐA — ÞJÖÐVILJTNN — Fostudagur 11. nóvember 1966.
AAinningarorð
Benedikt G.
Þeim fækkar ódum sem
tóku upp merki íþróttanna um
aldamótin síóustu.
Þar komu fram hugsjónamenn
sem vildu hrífa með séræsku
þjóðarinnar, karla og konur,
og beina henni inná nýjar
brautir, sem miðuðu að auknu
félagslífi, meiri líkamsrækt og
þroska, — meiri manndómi.
Þeir höfðu bjargfasta trú á
því að hollar lífsvenjur og
þjálfun líkamans væri sterk-
ur þáttur í því að veita ein-
staklingunum skemmtilegra og
heilsusamilegra líf. Sjálft fé-
lagslífið væri og spor í sömu
átt, þar sem einstaklingarmr
yrðu aðnjótandi þroska sem
væri þeim ómetanlegur og
þeim hlotnaðist einmitt með
þátttöku sinni í þessu íþrótta-
og félagsstarfi.
Benedikt G. Waage, sem i
í dag er til moldar borinn, var
einn þessara hugsjónamanna.
Vafasamt er að aðrir hafi kom-
heiðursforseti ISI
izt lengra í því að vinnafyrir
þessa hugsjón sína, en hann.
Það er varia of mikið sagt að
hann hafi fómað flestu fyrir
þetta hugðarefni sitt. Hann
notaði tíma sinn fýrst og
fremst til þess að vinna að
íþróttamáium. Hann mat það
meira en að safna sér verald-
legum auði, sem „mölur og
ryð fá grándað".
Hitt var í huga Benedikts
varanlegra að hjádpa æsku ís-
lands til þess að safna andleg-
um og líkámlegum verðmætum,
það var skoðun hans að það
væri veganestið góða, og þar
voru íþróttimar og félags-
starfið meðalið.
Þessa skoðun og trú var
hann óþreytandi að boða hvar
sem hann kom, hvort sem það
var á fundum, eða í samræðum
við einstaklinga, eða þá að
hann tók sér penna í hönd, og
það gerði hann oft. Iþrótta-
blaðið sem hann á sínum tíma
-----------V---------------------$
Aðalfundur Stúdentafélags
Reykfavíkur haldinn 5. nóv.
Aðalfundur Stúdentafélags
Reykjavíkur var haldinn
laugardaginn 6. nóvember s. 1.
Fundurinn Var haldinn í 1.
kennslustofu Háskóla Islands.
Fráfarandi formaður, Aðal-
‘Btefrtn ‘JGuðjohnsen, verkfræð-
ingur, flutti skýrslu stjómar
fyrir liðið starísár og Friðjón
Guðröðarson, lögfræðingur,
gerði grein fyrir reikningum
félagsins.
Úr stjóm gengu nú: Aðal-
steinn Guðjohnsen, verkfræð-
ingur, Ólafur Þorláksson, lög-
fræðingur og Rúnar Bjarnason,
verkfræðingur. 1 stjóm félags-
ins voru kjörnir: Formaður:
Birgir Isl.. Gunnarsson, lög-
fræðingur. Aðalstjórn: Ellert
B. Schram, lögfræðingur,
Friðjón Guðröðarson, lögfræð-
ingur, Jón Reynir Magnússon,
verkfræðingur, Lúðvík Gizur-
arson, lögfræðingur. Varastjóm:
Jón Ólaísson, lögfræðingur,
Haukur Hauksson, bdaðamaður,
Þór Guðmundsson, viðskiptafr.,
Benedikt Sveinsson, lögfræðing-
ur, Gunnar Sólnes, stud. jur.
ritstýrði ber þess glæ6ilegt
vitni.
Á yngri árum hreifst Benedikt
af þeim andblæ sem Ungmenna-
félagshreyfingin flutti æsku
þessa iands, sem fór eins og
þróttmikil þylgja um landið;
bylgja sem hafði nýjan boð-
skap að bera til æsku ts-
lands.
Þó afskipti Benedikts yrðu
síðar meir einskorðuð við
sjálfar íþróttimar, var hann
aðdáandi alls félagslífs sem
fékk æskuna til að sameinast
og starfa á grundvelli fegurð-
ar og þroska fyrir einstakling-
inn og gerði hann að betri og
gagnlegri þjóðfélagsþegni.
Við, sem fylgdumst með
Benedikt meðan hann rak
verzlun sína á Laugavegi 18,
en það gerði hann um langt
skeið, sáum oft að meira aö
segja þar sátu íþróttimar í
fyrirrúmi. Viðræðurnar þar við
íþróttamanninn eða íþrótta-
leiðtogann sem þurfti að fá
fyrirgreiðslu eða upplýsingar,
voru honum það ljúfar og
sjálfsagðar að viðskiptamaður-
inn sem beið afgreiðslu var
stundum farlnn þegar „kaup-
maðurinn" hafði yfirgefið
„forseta ISI“ og gest sinn.
Þannig var fómarlund
Benedikts G. Waage fyrir það
málefni sem honum var svo
hjartfólgið. Þeir menn sem nú
standa í forustu félags og i-
þróttamála munu vafalaust ekki
trúa að svona langt sé hægt að
ganga, en hugsjónamaðurinn
og brautryðjandinn leit öðrum
augum á sjálfan sig og silfríð
en nútímamaðurinn, sem vegur
og meturr hverja stund með
krónum og aurum.
Benedikt átti yfirleitt mikl-
um vinsældum að fagna meðal
þeirra sem hann umgekkst
Hér eftir
sem hingað til
„Þingið harmar þá miklu
dýrtíð og verðbólgu, er geis-
að hefur hér á landi síðustu
árin. Það lýsir vonbrigðum
sínum vegna getuleysis ríkis-
stjómarinnar í þeim efn-
um. . . Þingið telur það nauð-
synlegt að haldið sé uppi öfl-
ugri verðgæzlu 'til þess að
tryggja eðlilegt vöruverð til
neytenda . . . Þingið . . . telur
endurnýjun togaraflotans ó-
hjákvæmilega nauðsyn, og á-
lítur stórfellda þróun og ný-
skipan fiskiðnaðarins með
aukna verðmætasköpun í
huga eitt brýnasta hagsmuna-
mál þjóðarinnar. Varar þing-
ið við þeirri einhæfingu, sem
á sér stað í fiskveiðum þjóð-
arinnar ..... Þingið varar
við þeirri ofþenslu sem á
sér stað í verzlun og viðskipt-
um landsmanna og telur ó-
eðlilega marga aðila bundna
í þessum starfsgreinum. Þing-
ið telur að nýir verzlunar- og
viðskiptahættir séu nauðsyn-
legir og brýn nauðsyn sé á
endurskipulagningu verzlun-
arinnar. . . Þingið fordæmir
hið svívirðilega brask á ibúð-
arhúsnæði almennings. Þing-
ið leggur áherzlu á, að unn-
ið verði öfluglega að útrým-
ingu lélegs og heilsuspillandi
húsnæðis í landinu. . . Þingið
. . . telur óviðunandi að er-
lendur her sé til langframa í
landinu á friðartímum. Þingið
telur að sendinefnd landsins
á Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna eigi að greiða at-
kvæði með aðild Kínverska
alþýðulýðveldisins að samtök-
um Sameinuðu þjóðanna.
Þingið harmar styrjöld þá
sem nú geisar í Vietnam og
fordæmir íhlutun utanaðkom-
andi ríkja . . . fordæmir þau
miklu tollsvik sem nú tíðkast
og tíðkast hafa um langt skeið
. . . fordæmir öll þau svívirði-
legu skattsvik sem viðhöfð
eru í þjóðfélaginu . . . mót-
mælir þeirri tilhneigingu sem
á sér svo víða stað í þjóðfé-
laginu, að völdum og trúnað-
arstörfum er safnað í hendur
örfárra manna . . . mótmælir
og varar við því að ýmsar öfl-
ugar þjóðfélagsstofnanir og
embættismenn í háum trúnað-
arstöðum nái í sínar hendur
æ meir af því valdi, sem þjóð-
in hefur fengið í hendur Al-
þingi og alþingismönnum og
öðrum kjömum trúnaðar-
mönnum ... telur ástand heil-
brigðismála í landinu svo á-
bótavant, að ekki megi lengur
dragast að hefjast handa um
verulegar endorbætur og ný-
skipan þeirra mála . . . harm-
ar þá fálmkenndu stjórn sem
verið hefur á dómsmálum í
landinu síðustu árin . . .
krefst þjóðnýtingar trygging-
arfélaganna í landinu . . . tel-
ur að ekki megi lengur drag-
ast að þjóðnýta olíufélögin í
landinu . . . lýsir áhyggjum
sínum yfír þeirri einhæfingu
í fiskveiðum sem nú á sér
stað hér á landi. Þingið skor-
ar á ríkisstjórnina að gera úr-
bætur í þeim mólum. Bendir
þingið á þá leið að keyptir
verði 10—20 skuttogarar til
þeirra útgerðarstaða sem
byggja alla sina afkomu á
sjávarútvegi . . . skorar á. . .
að felld verði niður vísitölu-
trygging sú, er nú er á lán-
um húsnæðismálastjómar
ríkisins".
Þessar ívitnanir eru sóttar
í nýgerða stjórnmálaályktun,
þótt ekki sé öldungis víst að
allir geri sér umsvifalaust
Ijóst frá hvaða þingi hún sé
runnin, svo margar sem því-
líkar samkomu^ hafa verið
undanfamar vikur. Því skal
þess getið að þessar sam-
þykktir voru ekki gerðar á
landsfundi Alþýðubandalags-
ins, ekki á flokksþingi Sósíal-
istaflokksins, heldur á 21sta
þingi Sambands ungra jafn-
aðarmanna. Og hinir ungu Al-
þýðuflokksmenn áttu einnlg
til að bera fingerða og háðska
gamansemi; inngangurinn að
þessu stórfellda syndaregistri
var svohljóðandi: „Þingið
þakkar ráðherrum Alþýðu-
flokksins fyrir störf þeirra í
núverandi ríkisstjórn á þessu
kjörtímabili. Svo og þakkar
þingið þeim, flokksstjórn og
Alþingismönnum Alþýðu-
flokksins giftudrjúg störf í
þágu lands og lýðs og treyst-
ir þeim til farsælla starfa hér
eftir sem hingað til“.
— Mistri.
W I
og kom þar til rólegt ogþægi-
íegt viðmót, velvilji til alira.
sem til hans leituðu. Hann
reyndi líka að leysa úr þeim
vanda sem í hans valdi stóð,
og var það þó oft erfitt, því í-
þróttahreyfingin ótti oft við á-
takanlegan fjárskort að stríða,
en á þeim vettvangi var aðai-
starfssvið Benedikts.
Meðal erlendra samstarfs-
manna átti hann miklum vin-
sældum að fagna og naut þar
á ýmsan hátt mikillar virðing-
ar og trausts.
Hér verður ekki reynt að
gera skil öllum þeim málum
sem Benedikt G. Waage barð-
ist fyrir á löngum starfsferii
fyrir íþróttimar, því þar kém-
ur ákaflega margt til, og góðu
heilli hefur margt af því séð
dagsins ljós. Sú saga er mjög
gildur þáttur í sögu nútíma, f-
þrótta á Islandi, og þegar sú
saga verður skráð mun nafn
Benedikts þar lifa um aldir.
Benedikt G. Waage var
fæddur í Reykjavík 14. júni
1889 og voru foreldrar hans
Guðjón Einarsson prentari og
Guðrún Ölína Benediktsdóttir
kona hans. Hann stundaði
nám í Verzlunarskóla íslandsog
vann síðan um langt árabil að
verzlunarstörfum, rak m. a.
Verzlunina Áfram í rúm 30
ár.
Á yngri árum var Benedikt
góður íþróttamaður ogsnemma
vom honum falin forustustörf
í félagssamtökum íþrótta-
manna. Hann vann að stofnun
nokkurra íþróttafélaga og var
formaður stærstu félaganna í
Reykjavík um nokkurra ára
skeið, formaður Knattspyrnufé-
lags Reykjavíkur í 3 ár og
íþróttafélags Reykjavíkur í 5
ár.
Starf Benedikts G. Waage
sem forustumanns í heildar-
samtökimi íþróttamanna var
þó miklu mest og mun halda
minningu hans lengst á lofti.
Um 5 óra skeið var hann
formaður þáverandi Iþrótta-
sambands Reykjavíkur, en í
stjóm íþróttasambands Islands
var hann kjörinn árið 1915 og
átti sæti í stjóminni lengst
af síðan, fyrst sem gjaldkeri,
síðan varáforseti og loks for-
seti frá 19. júní 1926 þar til
í september 1962 er hann lét
af því starfi og var kjörinn
fyrsti heiðursforseti sambands-
ins.
Síðustu 20 árin hefur Bene-
dikt G. Waage átt sæti í al-
þjóðaolympíunefndinni, sem
vinnur að undirbúningi og
hefur yfirumsjón með olymp-
íuleikjunum. Sótti hann fjöl-
marga fundi nefndarinnar víðs-
vegar um heim. Á árumim
1951—1961 var hann lþrótta-
ráðunautur Reykjavíkur. Hann
átti sæti í nefnd, er endurskoð-
aði íþróttalögin frá 1940 og vann
mikið að bókaútgáfu Iþrótta-
samhands Islands, át'ti til
dæmis mikinn þátt í útgáfu
Knattspymulaga lSl á sínum
tíma, Sundbókar ISl, Heilsu-
fræði handa íþróttamönnum o.
fl. Ritstjóri íþróttablaðsins
Þróttar var hann í 5 ár og
ótal greinar skrifaði hann í
blöð og tímarit.
Útför Benedikts G. Waage
verður gerð frá Dómkirkjunni
árdegis í dag.
Með þessum fátæklegu Kn-
um fylgja þakkir fyrir langt
samstarf í stjóm ÍSl, og þótt
við værum ékki ailtaf é sama
máll verður minningin umhinn
gengna góða dreng hugljúf og
góð.
Aðstandendum hans votta ég
samúð, og áma alls góðs.
— Frímann.
Loðfoðraðir leður- og rúskinnsjakkar
fyrir dömur og herra
Verð fná kr. 4.450,00.
Leðurverkstceðíð
Bröttugötu 3 B. — Sími 24-6-78.
OPEL .9
BEKORD
Nýtt glæsilegt útlit
Stærri vél
Stærrl vagn
12 volta rafkerfi
aukin hæð frá vegi
og fjöldi annarra nýjunga
SAMBANÐ ÍSL. SAMVINNUFELAGA
VÉLADEILD SÍMI38900
Útgerðarmenn — Skipstjórar.
Tökum síld til frystingar
Athugið ný símanúmer sjálfvirku stöðvar-
innar:
Skrifstofan 99-3663
Framkvæmdastjóri 99-3614
Verkstjóri í frystihúsi 99-3661
Verkstjóri heima 99-3632.
MEITILLINN H.F., Þorlákshöfn.
Köpavogur
Blaðburðarbörn óskast til blaðburðar í
Kársnes
ÞJÓÐVILJINN, sími 40753