Þjóðviljinn - 26.11.1966, Síða 2
2 SlÐA — r>JÖÐVILJINN — Laugardagur 26. nóvember 1966.
Handknatflelkur
■ Það fór svo sem fáa mun hafa grunað að vestur-þýzka
liðið Oppum vann tilraunalandslið það sem teflt var gegn
Þjóðverjunum í síðasta leiknum, sem þeir leika hér að
þessu sinni, með yfirburðum og verðskuldað. Þeir tóku
leikinn þegar í upphafi j sínar hendur og réðu hraðan-
um, ogyþað var sem mestu munaði. Tilraunalandsliðið lét
syæfa sig og gerði litlar tilraunir til þess að hrista þessa
lognmollu af sér. Þetta varð líka til þess að nú lá vel
á Þjóðverjunum, þeir voru í góðu skapi, þeir höfðu for-
ustuna og eftir því sem á leikinn leið með næstum ör-
ugga vissu um að sigra.
Oppum hefndi sín á tilraunalands-
liði og vann með yfirburðum 25:18
Aðvörun
Leikur Þjóðverjanna var ekki
sérlega stórbrotinn í sniðum,
nema hvað vörnin var öruggari
en í iyxii leikjunum, og með
þessum rólega leik. þar sem
þeim var gefinn tími til að at-
hafna sig og hugsa, kom það
fram sem í þeim býr, og að
þessu sinni notaðist þeim það
vel.
Ef hér á að vera um nokk-
urskonar tilraunalandslið og
„generalprufu" fyrir leik Vest-
ur-Þjóðverj anna í naestu viku
að ræða, verður ekki annað
sagt en að það hafi mistek-
izt. Að vísu munu hafa orðið
nokkur forföll frá því sem upp-
haflega var ætlað, t.d. var Ing-
ólfur ekki með og heldur ekki
Sigurður Einarsson. Samt sem
áður hefði liðið átt að geta
sýnt meira en það gerði.
Gera má ráð íyrir að úrslit
leikjanna undanfarið hafi gert
lið þettá of sigurvisst, og það
þyrfti lítið annað en að koma,
sjá og sigra. En það var nú
eitthvað annað. íslendingarnir
náðu aldrei umtalsverðum tök-
um á leiknum. Það er athyglis-
'*V@rfc»»9,;benda á að þegar liðnar
voru 19 mín. af fyrri hálfleik
höfðu þeir ekki skorað eitt ein-
asta mark með hreinu skoti
eftir sókn, öll 4 mörkin sem
þá höfðu verið skoruð voru
úr vítaköstum! Það er ekki íyrr
en á 22. mín. leiksins að Geir
tekst að skora með mjög góðu
skot-i, og stóðu leikar þá 8:5.
Liðið gerði nánast aldrei til-
raun til að ógna Þjóðverjunum
með hraða eins og FH gerði
allan leikinn og Fram í fyrri
hálfleik, vitandi það að það
setti Þjóðverjana út af laginu
og að það ' þoldi leikaðferð
þeirra ekki. Þetta var ákaflega
mikið veikleikamerki, sem lið-
ið komst aldrei yfir allan leik-
inn.
Varnarleikurinn var mjög
opinn, og það notuðu Þjóðverj-
arnir sér mjög vel, og skor-
-uðu hvað eftir annað þar í
gegn. Og við það bættist að
Þorsteinn og bróðir hans voru
ekki vel fyrir kallaðir í þess-
um leik. ^
Skyttur liðsins voru líka mis-
tækar og áttu í erfiðleikum að
hitta markið, og þrjú vítaköst
misstu þeir. Að vísu varði
þýzki rharkmaðurinn sérlega
vel og bjargaði liði sínu frá
því að fá mun fleiri mörk.
Það vekur satt að segja furðu
að liðið skyldi ekki gera tilraun
til þess að leika með mun meiri
hraða en gert var, hraða sem
ógnaði, ef þetta hefur á annað
borð verið leikur til undir-
búnings landsleiknum eftir
helgina.
Það er í sjálfu sér allt í lagi
að tefla fram ungum mönnum
í stóra leiki og það verður auð-
vitað að gerast, en það voru of
margir ungir og minna reyndir
menn i þessum leik, og þvi
gat liðið ekki náð saman eins
og það hefði þurft. Þetta er
reynsla þessa leiks og það
hefðu þeir sem þessu réðu átt
að vita, og nú standa þeir í
svipuðum sporum og íyrir leik-
inn.
Þegar þetta lið kom inn á
gólfið var það ekki sérlega
sannfærandi og líklegt til stór-
ræða, og það verður að finna
menn með meiri leikreynslu en
þama komu fram. Það verður
að velja lið sem þolir hraða,
því að það er hraði sem nú-
timahandknattleikur byggist á
og með því vopni verður að
mæta þýzka landsliðinu í
næstu viku.
Það verður að tyggja utan
um kjarnann úr þessu liði, sem
var Gunnlaugur, Birgir, Geir
og Örn, sem þó náðu ekki svip-
uðbm leik og með félögum sín-
um í fyrri leikjunum. í marki
er varla um annan að ræða
en Þorstein, Hermann gæti og
komið með. Fyrir hina verður
að finna menn með þá getu,
kraft, hraða, reynslu og kunn-
áttu sem landsleikur útheimt-
i]S-
Það er þo ljós punktur i
þessum hrakförum, að leik-
menn þeir sem endanlega verða
valdir, eru vafalaust sannfærð-
Framhald á 7. síðu.
Þar
og hér
Tíminn segir í gær að is-
lenzkir sósíalistar hafi enga á-
stæðu til að fagna sigri SF-
flokksins danska, sá flokkur
sé nú eitthvað annað en Al-
þýðubandalagið hér. Á lands-
”• fundi Alþýðubandalagsins haíi
farið svo „að kommúnistar
höfðu þar öll ráð í hendi sér,
komu í veg fyrir raunveru-
lega flokksstofn-un og hafa eft-
ir sem áður öll völd“. Enn-
fremur segir Tíminn að hár
séu „kommúnistar dragbítur-
inn“ og vírðist blaðið þannig
harma það mjög að Alþýðu-
bandalagið skuli ekki njóta
meira gengis. Hins vegar sé
SF-flokkurinn danski lausvið
. alla kommúnistíska synd og
. af því stafi sigur hans.
Ekki virðist Tíminn fylgjast
vel með i Danmörku frekar
en annarsstaðar. I kosninga-
baráttunni notuðu borgara-
flokkamir og sósíaldemókrat-
ar nákvæmlega sama mál-
flutning og Tíminn ástundar
hér í umræðum um Alþýðu-
bandalagið, f beir sögðu að
kommúnistar hefðu öll ráð í
SF-flokknum, nafn flokksins
■ óg fyrirkomulag væri aðeins
sauðargæra. Hins vegar sýndu
kosningarnar að grýluáróður
af þessu tagi hefur sífellt
minni áhrif í Danmörku, bótt
enn skorti að visu talsvert á
að SF-flokkurinn danski hafi
jafn mikið fylgi og Alþýðu-
bandalagið íslenzka. Það kann
þó einnig að stafa af því að
SF-flokkurinn nýtur ekki
þeirra ákjósanlegu fríðinda a3
hafa Framsóknarflokk í landi
sínu.
Skoð-
anakönnun
Morgunblaðið talaði jnjög
digurbarkalega um það ádög-
unum að fylkingar myndu
vera mjög jafnar á Alþýðu-
sambandsþingi og átti þá við
þann dilkadrátt sem sendlar
stjómniálaflokkanna ástunda.
En þegar til málefnanna
kom reyndist samstaða þing-
fulltrúa meiri en nokkru sinni
fyrr, hvað sem öllu flokka-
fylgi leið. Alyktun þingsins
um kjaramál, þar semstefna
viðreisnarstjómarinnar f at-
vinnumálum, efnahagsmálum
og kjaramálum var gagnrýnd
mjög harðlega, var samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða; þeir sem fylgdu
fyrirmælum úr stjómárráðinu
reyndust innan við 20%. Sáu
þá málsvarar ríkisstjórnar-
innar sitt óvænna og vöidu
þann kost að draga tillögur
sínar tilbaka. Naumast verð-
ur sagt að sú skoðanakönn
un spái vel fyrir rfkisstjóm-
inni i næstu þingkosningum.
— Austri.
Handknattleikur:
Breytíngar á leik-
skrá Rvíkurmétsins
Reykj avíkurmótið í hand-
heldur áfram um helgina. í dag,
laugardaginn 26. nóv., kl. 20,15
að Hálogalandi verður leikið í
eftirtöldum flokkum:
2. fL kv. * Ármann — KR
2. fl. kv. Fram — Víkingur
3. fl. ka. KR — Víkingur
1. fl. ka. Valur — ÍR
1. fl. ka. KR — Fram
1. fl. ka. Víkingur — Þróttur
Sunnudaginn 27. nóv. kl.
14,00 verður. leikið í Laugar-
dalshöllinni í eftirfarandi
flokkum:
2. fl. ka. ÍR — Fram
2. fl. kr. Valur — KR
2. fl. ka. Víkingur — Þróttur
M. fl. kv. Vikingur — Fram
M. fl. kv. Valur — KR
Þær breytingar hafa verið
gerðar á leikskrá að leikir þeir
sem fram eiga að fara 27. nóv.
verða leiknir 4. des. og leikir
þeir sem fram eiga að fara
4. des. verða leiknir 27. nóv.
Ennfremur sú breyting að leik-
ir þeir sem fram eiga að fara
29. nóv verða leiknir 6. des.
Staðan í mótinu er nú þessi:
1. FLOKKUR KARLA
1. FLOKKUR KVENNA
Félög I u j t s m
Valur 2 2 0 0 4 13- 6
Fram 3 1 0 1 'Z 8-10
KR 2 0 0>20 4- 9
2. FLOKKUR KARLA
Félög I u j t s m
Fram 3 2 10 5 23- 9
Valur 3 2 10 5 21-11
ÍR 3 2 0 1 4 26-20
KR 3 2 0 1 4 17-18
Þróttur ' 3 0 0 3 0 12-26
Víkingur 3 0 0 3 0 8-23
M. -FLOKKUR KVENNA
Félög I u j t s m
Valur 2 2 0-0 4 18- 4
Fram 2 2 0 0 4 20- 7
Víkingur 3 10 2 2 11-17
Ármann 3 10 2 2 11-23
KR 2 0 0 2 0 7-16
2. FLOKKUR KVENNA
Félög 1 u j t s m
Víkingur 2 110 3 9- 6
KR 110 0 2 6- 3
Valur 2 10 12 6- 7
Ármann 10 10 1 4- 4
Fram 2 0 0 2 0 5-10
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila
á söluskatti í K ó p a v-o g i.
Samkvæmt heimild í lögum nr. 10,- 22. marz 1960,
verður atvirinurekstur þeirra fyrirtækja í Kópa-
vogskaupstað, sem enn skulda söluskatt III. árs-
fjórðungs 1966, stöðvaður þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt .áföllnum
dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir sem vilja komast
hjá stöðvun verða að gera full skil nú þegar til
bæjarfógetaskrifstofunnar, Digranesvegi 10 í Kópa-
voki.
Bæjarfógetinn í Kópavogi,
23. nóvember 1966
Sigurgeir Jónsson.
Hjúkrunarkonur óskast
Hjúkrunarkonur vantar að lyflæknisdeild Land-
sþítalans. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðu-
kona Landspítalans í síma 24160 og á staðnum.
Reyikjavík, 25. nóvember 1966.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS
Almennur félags- og fræðslufundur S.F.Í.
verður haldinn í dag, laugardag 26. nóv.
kl. 13,30 í Átthagasal Hótel Sögu.
Fundarefni:
Kjartan Jóhannsson, verkfræðingur
flytur erindi um Operation Research
— Lausn flókinna verkefna í rekstri og
áætlanagerð.
Grestir velkomnir.
I '
Stjómin.
Félög I u j t s m
Þróttur . 2 2 0 0 4 27- 8
Valur 2 1 1 0 3 14-13
KR 2 1 1 0 3 20-16
Fram 2 10 1 2 11-11
Víkingur 2 0 0 2 0 10-14
ÍR 2 0 0 2 0 13-23
3. FLOKKUR KARLA
Félög 1 u j t s m
Fram 4 3 1 0 7 42-25
Ármann 4 3 0 1 6 31-31
Valur 4 2 0 2 4 40r23
KR 4 2 0 2 4 26-31
Víkingur 4 1 1 2 3 25-31
Þróttur ' 4 0 0 4 0 19-42
Á
Frá Búrfellsvirkjun
Óskum eftir að ráða:
1. Trésmiði.
2. Vana byggingaverkamenn (í steypu-
og járnvinnu).
3. Menn á þungavinnuvélar með minnst
tveggja ára reynslu 1 meðferð á Serap-
er Catepillar 631 B, hjólaskóflu, Cate-
pillar 966 B, beltisskóflu og Catepill-
ar 977.
4. Bormenn, vana meðferð stórra borvéla.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóranum.
Fosskraft
Suðurlandsbraut 32. — Sími 38830.