Þjóðviljinn - 14.12.1966, Page 10
ÚTGEflDARMENN.
TRYGGJUM HVERS KONAR SKIP OG ALLT,
SEM ÞEIM VIDKEMUR
Mjallhvít og dvergarnir sjö hraða 2. — En við finnum áreiðanlega glit-
sér til námunnar. — Hér er drauga- steiná, segir einn dvergurinn-
egt!
3- — Það efast ég um, segir annar.
Kuldajakkar og úlpar
í öllum stærðum. Góðar vörur — Gott verð.
Verzlunin Ó. L.
rraðarkotssunch 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
|Q SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. aesembea: 1966.
LEONARD GRIBBLE
Setchley leit tortryggnislega á
hann. — Það veit ég ekki. Héld-
uð þér að ég vissi það?
— Mér daitt bara í hug að þér
vissuð það kannski.
— Var nokkur sérstök ástasða
til þess? Hann virtist vilja fá
skýringu á þessu-
— Nei, ekki önnur en sú. að
enginn virðist vita hver maður-
inn var- Mér datt í hug að þér
væruð ef til vill undantekning.
— Mér þykir leitt að valda
yður vonbrigðum — ég er eng-
in undantekning . . . Þér skuluð
ekki hal^a að ég sé neitt sérlega
viðkvæmur, en þetta var allt
saman dálítið dularfullt. Ég held
að ekki einu sinni faðir hennar
viti, hverjum hún var trúlofuð.
— Þér sögðuð að hún hefði
verið fjörug.* Þetta, bendir
kannski til þess! sagði Clinton.
— Hvað um Morrow og Raille?
spurði Slade.
—* Þér getið spurt þá. Ég býst
ekki við að þeir viti neitt. Ég
gkil ekki hvernig þeir gætu vit-
að neitt, þegar allir hinir urðu
einskis vísari við líkskoðunina.
— Doyce? Hefði hann vitað
það?
Setchley dró djúpt andann. —
Heyrið mig nú — ég get alls
ekki gefið yður nein svör við
■þessum spurningum. Ég myndi
gera það ef ég gæti. Ég veit ekki
hver kann svör við þeim. Sjálf-
ur veit ég það ekki og það er
mér nóg.
Þeir fóru skömmu seinna.
URA- OG
SKARTGRIPAVERZL
KORNELIUS
JÓNSSON
SKOLAVORDUSTÍG 8 SÍMI 18S88
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 18 III hæð (lyfta)
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
Clinton reyndi ekki að leyna
kaldhæðni sinni.
— Og þetta er kallað að hjálpa
lögreglunni! urraði hann. Höfuð-
verkur hefði hjálpað okkur álíka
mikið! Og þessi aðstoðarmaður,
Tompkins, með vígtennur og
ýsuaugu. Ég hefði vel getað hugs-
að mér að —
Hánn þagnaði og sagði um
leið og hann leit útundan sér á
Slade: — En þetta bætist við
registrið hjá Morrow!
— Það ætti að gleðja þig, sagði
Slade og ræsti bílinn.
Þeir fengu sér matarbita í
litlu veitingahúsi við Haymarket
og óku aftur á Yardinn. Þeir
forðuðust viljandi að ræða um
rannsóknina, jafnvel þegar Slade
keypti kvöldblaðið og sá fyrir-
sagnirnar þvert yfir forsíðuna.
SCOTLAND YARD UPPI í
SVEIT
Ný viðhorf I fótboltamorðinu.
Slade var inni. hjá yfirboðara
sínum í næstum klukkustund og
hinn síðarnefndi reyndi án af-
láts að finna galla og mistök í
aðgerðum þeirra.
— Við verðum að komast hjá
svona tímasóuii, Slade! sagði
hann. — Það má ekki henda okk-
ur að hlarupa í hring í þessu
máli!
Slade þekkti Iögreglustjórann
vel. Þessi gagnrýni var eins kon-
ar útrás fyrir innri spennu. Mað-
urinn sat allan daginn yfir ótal
mismunandi glæpamálum. Hann
hafði rétt' til að nöldra.
— Ég hef kynnt mér skýrslur
yðar. Mér virðist þarna vera
rakið mál á hendur Philip Morr-
ow. Hvað álítið þér sjálfur?
^Þennan vanda hafði Slade séð
fýrir. — Ég held við ættum að
bíða nokkra stund enn, sagði
hann rólega. — Málið gegn Horr-
ow byggist aðeins á líkum — það
lítur trúlega út, en sannanirnar
eru engar. Ég vildi gjarnan hafa
upp á morðvopninu áður en við
látum til skarar skríða.
Lögreglustjórinn hrukkaði er.n-
ið. — Þér vitið auðvitað, að
ekkert er sennilegra en morðing-
inn sé búinn að fleygja því í
Thems?
— Já, það getur svo sem ver-
ið. En ég held nú samt ekki,
sagði Slade með hægð.
— Hvers vegna ekki?
— Ég held ekki að morðinginn
hafi viljað leggja í þá hættu að
leyna þesum oddhvassa hltit á
sér. Ef við hefðum nú leitað á
öUum? Hann gat ekkert vitað
um það fyrr en það hefði verið
talandi sönnun. í öðru logi — ef
hann hefði falið hlutinn í vasan-
um og einhver hefði stuggað við
honum eða að hann hefði hras-
að í búningsherberginu til dæm-
is eða úti á áþorfendasvæðinu
— þá hefði það verið hreint og
klárt sjálfsmorð!
Lögreglustjórinn kinkaði kolli.
— Það er nokkuð til í því. En
hvert er álit yðar, Slade?
' Hann þekkti starfsaðferðir
Slades og hugsanagang'. Ótal mál,
upplýst og skjalfest í skápunum
á Yard, báru dugnaði fulltrúans
ljóst vitni. Öðru hverju hafði
Slade haft aðrar aðferðir en
kennslubækurnar mæltu, fyrir.
Stundum hafði hann lagt í mikla
áhættu, en hann hafði alltaf get-
að réttlætt athafnir sínar — og
það sem mestu máli skipti: hann
hafði getað státað af árangri sem
stóðst fyrir rétti. .
Lögreglustjórinn vissi fullvel
að Scotland Yard átti að búa
þannig um hnútana að málið
gæti staðizt frá lagalegu sjónar-
miði. Hversu snilldarleg sem
vinnubrögð leynilögreglumanns-
ins kunna að vera, þá komu þau
að litlu liði ef útkoman gaf verj-
andanum möguleika á því að rífa
allt niður.
Slade hafði' ævinlega lagt mál
sín fram í réttinum af ná-
kvæmni og skýrleika, sem hafði
dugað til að sannfæra kviðdóm-
inn. Lögreglustjórinn hafði ekk-
ert á móti því að láta Slade hafa
sína hentisemi í sambandi við
þetta mál. Hann vissi að hann
myndi ekki skila því af sér nema
hann hefði í höndunum öruggar
og ótvíræðar sannanir. En hann
hafði líka mannlegan áhuga á
persónulegum vangaveltum Slad-
es.
.— Ég held að morðvopnið sé
enn í íþróttahöllinni, sagði Slade.
— Ég er viss um að morðing-
inn hefur sótt það seinna og
falið það einhvers staðar og
biður nú eftir hentugu tækifæri
að fjarlægja það óséður.
— Já, en það hefði hann gert
í dag, andmælti lögreglustjór-
inn.
— Það held ég ekki.
— Þér haldið þá að þér vitið
hvar það er?
— Já.
Lögreglustjórinn hafði lesið
skýrslurnar mjög vandlega. —
Þér hafið aðeins innsiglað eitt
af herbergjunum þarna út frá.
lækningastofuna. — Þér haldið
þá að vopnið' sé falið þar?
— Já. Það hefði verið of á-
hættusamt að fela það í ein-
hverju af búningsherbergjunum.
Þar er alltaf fullt af mönnum og
það hefði verið of mikill glanna-
skapur. Slflde hikaði ögn og bætti
við hugsi: — En ég ætla að svip-
ast um í gestabúningsherberginu
enn einu sinni í dag — bara til
öryggis.
Hann hefði líka getað tekið
vopnið með sér út á völlinn og
troðið því niður í svörðinn. Það
hlýtur að hafa verið lítill hlutur,
fyrst hann komst í umslagið.
— Jafnvel það hefði getað ver-
ið hættulegt, benti Slade á. —
Þarna voru sjötíu þúsund áhorf-
endur. — Það hefði ekki verið
hægt að gera neitt slíkt án þess
að til hans sæist. Ég viðurkenni
að leikmaðurinn — ef morðinginn
var þá einn af leikmönnunum
— hefði getað lotið niður til að
ia stigvélið sitt og stungið
hlutnum niður í svörðinn án þess
að neitt bæri á. En hefði hann
þorað að eiga það á hættu? Leik-
urinn er mjög hraður. Á andar-
taki hefði knötturinn getað verið
kominn í nágrenni við hann og
hana hefði ef til vill allt í einu
verið kominn í miðja þvögu með
morðvopnið í höndunum. Ein lít-
il stunga og ... .
Slade botnaði ekki setninguna.
Lögreglustjórinn horfði hugsandi
á hann. — Þér haldið þá að þér
hafið fengið allskýra mynd af
morðingjanum?
— Já, ég þykist vita hvernig
hann myndi hugsa — eftir leik-
inrf. Ef hluturinn hefði verið fal-
inn í grassverðinum, hefði það
orðið að gerast í síðari hálfleik.
og það var ekkert á Doyce að sjá,
þegar leikmennimir hlupu út á
Kjörbúðin Nóatúni
Kaupið góðan jólamat
Kaupið í Nóatúni
Næg bílastæði.
NÓA TÚN, kjörbúð
TRABANT EIGENDUR
Viðgerðarverkstæði
Smurstöð
Yfirförum bílinn
fyrir veturinn.
FRIÐRIK ÖLAFSSON, vélaverkstæði
Dugguvogi 7. Sími 30154.
WZTKS
Jólasaga barnanna
Eftir Walt Disney
TRYGGINGAFELAOIÐ HEIMIR"
LINDARGÖTU 9 REYKJAVÍK • S í M I 22122 — 21260
I Isabella-Stereo
IN
Plaslmo
ÞAKRENNUR OG NIÐURFALLSPÍPUR
RYÐGAR EKKI
ÞOLIR SELTU OG SÓT,
ÞARF ALDREI AÐ MÁLA
MarsTradingCompany hf
IAUGAVEG 103 — SIMI 17373
Frú jl/læðrastyrksnefnd
Munið að jólasöínun Mæðrastyrksnefndar er fýrst
og fremst fyrir einstæðar mæður, ekkjur og sjúk-
linga. Leggjumst öll á eitt með að ekkert af þessu
fólki verði fyrir vonbrigðum þessi jól.
Gjöfum veitt móttaka á skrifstofu Mæðrastyrks-
nefndar, Njálsgötu 3, alla virka daga frá kl. 10—6.
Á sama stað er úthlutun fatnaðar
Mæðrastyrksnefnd.
i