Þjóðviljinn - 14.12.1966, Page 12

Þjóðviljinn - 14.12.1966, Page 12
/ ■1. Tvegg^a herhergja íbúð á 10 þúsund kr. á mánuði! Svartimarkaður og okur á hús- næði lausn .einkaframtaksins" ■ Eitt skýrasta dæmið um gjaldþrot hins svonefnda einkaframtaks á íslandi er ástandið með leiguhúsnæði, svartimarkaður og okurleiga, svo þess eru dæmi hér í Jólablað Þjóð- viljans komið út ! - 104 síður JÖLABLAÐ ÞJÓÐVILJANS 1966 er að koma út og verður næstu daga borið til áskrífenda. Blaðið er stórt að vanda, 104 síður, litprent- að. EFNI BLAÐSINS er fjöl- breytt, innlent og erlent. Má þar m.a. nefna: Svart haf nefnist nýtt ljóð eft- ir Guðmund skáld Böðvars- son, en önnur kvæði í blað- inu eru eftir Oddnýju Guð- mundsdóttur, Jóhann J. E. Kúld, og Jón í sveitinni, og þýtt ljóð eftir Evert Taube. FRÁSAGNIR eru þarna nokkrar: Árni Bergmann , segir frá gyðingaslóðum í Prag, Elías Guðmundsson skrifar um meðalaferð til Odds Jónssonar Iæknis, snemma á þessari öld. Þegar helstjarnan kom nefn- ist frásögn Skúla Guðjóns- sonar á Ljótunnarstöðum, sænskur kennari, Inga Johnson, segir frá banda- rískum smábæ, Kristmar Ólafsson skrifar um Drang- ey í Skagafirði og lýsir fuglveiði þar, og Benedikt Gíslason frá Hofteigi ritar um Re'nistaðamenn á Kili. SMÁSÖGUR eru í jólablað- inu eftir innlenda og er- Ienda höfunda. Við Ieiðar- enda nefnist saga eftir Frið- jón Stefánsson og fylgja henni teikningar Ragnars Lár. Þá er saga eftir Jó- hann Kúld, Róður, og fjórar þýddar smásögur: Erkibisk- up blessar vopn eftir Grah- am Greene, Um ástina veiztu ekkert eftir Evu Nil- son Lund, Dómurinn eftir Martin Buber og Morgun- vindurinn eftir Bert Grin- berg. ÞESSU TIL VIÐBÓTAR er svo ýmislegt smærra efni, m.a. Ieikir og þrautir, skrítl- ur, samtíningur úr öllum áttum o.fl. o.fl. Og eru þá ónefndar auglýsingarnar, en til hagræðis fyrir lesendur er birt skrá yfir alla aug- lýsendur jólablaðsins aftast í blaðinu. Forsíðumyndin er tekin að vetri til í Hallorms- staðaskógi af Sigurði Blön- dal skógarverði. JÓLABLAÐIÐ kostar í lausa- sölu 30 krónur. — Myndin er af forsíðu blaðsins. Reykjavík að tveggja her-^ bergja íbúð er leigð á 10 þús- und krónur á mánuði, sagði Einar Olgéirsson á Alþingi í gær, í framsögu fyrir frum- varpi sínu og tveggja ann- arra Alþýðubandalagsþing- manna um byggingu leigu • húsnæðis. ■ í frumvarpinu er ríkis- stjórninni heimilað að láta byggja á næsta ári 500 íbúð- ir til að ráða bót á skortin- um á leiguhúsnæði og skuli það húsnæði leigt með kostm aðarverði, þó aldrei hærra en svarar 8% af verði ibúð- anna, Frumvarpið og greinar- gerð þess var birt í heild blaðinu íyrir skemmstu I framsöguræðu sinni deildi Einar fast á óstandið í Reykja- vík ög víðar. Segja mætti að í Reykjavík væri orðin alger neyð i þessum efnum. Fjöldi fólks fær ekki leiguhúsnæði og verður að flýja borgina eða koma sér fyrir í íbúðum kunningja sinna og skyldfólks. Og íbúðimar sem leigðar eru eru venjulega á geypi- verði, t.d. nefndi Einar að sér væri kunnugt um tveggja her- bergja íbúð serti væri leigð á 10 þúsund krónur á mánuði. Og leigjendur neyddust til að greiða alls konar aukagreiðslur, svo sem hið alræmda lykilgjald og miklu af leigunni væri stolið undan skatti. Það væri opinber kenrimg' núverandi ríkisstjórnar að „einka- framtakið" ætti að sjá fyrirþess- um málum. En einkaframtakið væri önnum kafið að byggja hús til að selja þau á okurverði en hirti ekki um að byggja hús-til að leigja. ★ Kæruleysi á Alþingi. Einar minnti á að hann hefði flutt svipuð frumvörp á fjórum síðustu þingum og þau hefðu aldrei komið úr nefnd; rikis- stjórnin sýnt málinu algert kæruleysi. Það hefði þurft yfir- vofandi verkfall og hnefa verka- lýðssamtakanna í borðið til þess að nokkuð væri byrjað að hlusta a kröfumar um félagslega lausn húsnæðismála, m|ð lánum á 80% fbúðarverðs og til dangs tíma. Varaði Einar við þeirri þróun að Alþingi yrði gert að afgreiðslustofnun fyrir stjómar- framvörp og þau sem verka- lýðshreyfingin knýr fram með afli sínu fyrir utan þings. Hitt væri skynsamlegra að hlýttværi á rök og góðum málum sinnt innan veggja þingsins eins og til væri ætlazt af löggjafarþingi þjóðarinnar. Undanþegin gróðabraskinu. Húsnæðismálin yrði að undan- Framhald á 3. síðu. Miðvikudagur 14. desember 1966 — 31. árgangur — 286. tölublað. Æt/a að knýja f/okkana ti/ að takaafstöðuí vegamálum 8 hæstaréttardómarar verða að víkja — segir Christrup Kristeligt Dagblad i Kaup- | mannahöfn skýrði frá því á dögunum, að G. L. Christrup lögmaður stofnunar Árna Magnússonar myndi krefjast þess að átta af dómendum hæstaréttar Danmerkur -vikju sæti, er rétturinn fengi til meðferðar skaðabótamál það gegn danska ríkinu, sem stjórn stofnunarinnar hyggst stofna til. Aage Lorenzen, forseti hæsta- réttar, staðfesti í viðtali við Information um helgina að Christrup hefði fært slíka j kröfu í tal við sig, en dóms- j forsetinn vildi að öðru leyti j ekki tjá sig um málið fyrr en krafan yrði formlega tekin fyrir. Þó taldi Aage Lorenzen að lögmaðurinn byggði kröfu sína á því, að átta hæstarétt- ardómendanna viku að þeirri hlið málsins, sem að skaða- bótaskyldunni snýr, í forsend- um dóms hæstaréttar um af- hendingu íslenzku handrit- anna. ■ Meðfylgjandi mynd og texta birti Information, þegar Mað- ið skýrði frá þessu á laugar- daginn. Tólf þusugd manna samtök á íslandi, Félag íslenzkra bifreiða- eigenda, sem i eru 40% allra bif- reiðastjóra á landinu, hafa ný- lega skrifað formönnum allra stjórnmálaflokka landsins og spurt um afstöðu þeirra til vega- mála á íslandi. Hyggst F.Í.B. birta svör stjórnmálaflokkanna og eins hitt ef þeir telja ekki á- stæðu til að svara. Á landsfundi F.Í3., sem hald- inn var 19.—20. nóv. sl. á Akur- eyrí af stjórn félagsins og um 50 umboðsmönnum félagsins víða um land voru aðalumræðuefni ör- yggismál og végamál og voru það einkum tvö atriði í ályktun fund- arins um vegamál sem talið var rétt að beina til stjórnmálaflokk- anna: í fyrsta lagi bent á að hægt væri að afla nægilegs fjár til aukins framlags til vega án þess leggja á neina nýja skatta og samtímis hægt að lagfæra margt í skattlagningu bifreiða og rekstr- arvara til þeirra. Var í þessu sambandi bent á að á sl. ári hefði ríkið lagt fram í beinan eða ó- beinan styrk til landbúnaðarins 900 milj. kr. án þess að þessi fjárframlög ykju verulega fram- leiðslu þessa atvinnuvegar eða byggðu í haginn fyrir komandi kynslóðir. Rétt skipulagðar vega- framkvæmdir bættu hinsvegar kjör þeirra er við landbúnað starfa og væri raunhæfari stuðn- ingur við þenna grundvallarat- vinnuveg og framtíð þjóðarinnar í heild að verja 300—400 milj. kr. af núverandi landbúnaðar- styrkjum til vegamála. Þá taldi fundurinn mikilvægt að almenningur tæki ákveðna aístöðu til vegamálanna og á- taldi mjög að enginn stjórnmála- flokkur hefði tekið ábyrgð af stöðu til þessara mála og tekið þau með skipulögðum hætti inn á stefnuskrá sína. Taldi fundur- inn að ef hægt væri að knýja alla flokka til að taka ábyrga afstöðu í vegaframkvæmdum yrði unnt að afstýra skaðlégri stjórnmálalegri togstreitu á þess- um vettvangi. Forstöðumenn F.Í.B. skýrðu blaðamönnum frá þessu og fleiri fréttum af ráðstefnunni í gær og verður nánar sagt frá ýmsum at- hyglisverðum atriðum er þar komu fram i blaðinu einhvern næstu daga. Heimsókn-Lars ^ustafsonar LARS GUSTAFSSON, sænskur . rithöfundur og ritstjóri eins helzta bókmenntatimaritsSvia, BLM, , hélt erindi á vegum Rithöfundasambands IslandB á mánudagskvöldið. Gaf hann í því skarplega skilgreiningu á straumum og stefnum í nýjum sænskum bókmennt- um, svo og athyglisverðar hug- Ieiðingar á tilveruskilyrðum bókmennta í velferðarþjóðfé- Iagi samtímans. ERINDINU var ágætlega tekið af fundarmönnum, aðallegra rit- höfundum og sænskmenntuð- um mönnum. Að því loknu svaraði Lars Gustafsson nokkr- um fyrirspumum. Síldveiðín Heildaraflinn, sem barst á land í vikunni nam 7.850 lest- um, þar af var saltað í 8.097 tunnur. Heildaraflinn í vikulok var orðinn 667.129 lestir og skipt- ist þannig eftir verkunarað- ferðum: í salt 60.672 lestir 'í frystingu 16.443 lestir í bræðslu 589.674 lestir Flutt út ísað 340 lestir Á sama tíma í fyrra nam heildaraflin# 558.531 lest, og skiptist þannig eftir verk- unaraðferðum: í salt 58.745 lestir í frystingu 5.378 lestir í bræðslu 494,408 lestir Bonnstjómin býðst til að brúa bil milli hluta Evrópu / Kiesinger boðar í stefnuyfirlýsingu fráhvarf frá Hallsteinkenningu, lýsir Munchensáttmála ógildan BONN 13/12 — í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju samsteypu- stjórnar Vestur-Þýzkaiands, sem Kurt Georg Kiesinger for- sætisráðherra flutti þinginu í Bonn í cjag, kveðst hún vilja vinna að sameiningu Evrópu og tekur sérstaklega fram að hún vilji bæta sambúðina við rí-ki Austur-Evrópu. — Þýzkaland hefur öldum saman brúað bilið milli Vest- ur-og Austur-Evrópu. Við verð- um að reyna að vinna að því einnig í dag, sagði Kiesinger, sem tók fram að stjórn sín myndi leitast við að ryðja úr vegi tálpa- unum sem era fyrir fyrir góðri s-amþúð við ríki A-Evrópu. Ef hægt væri myndum við vilja að þar kæmi að við skiptumst á sendiherram við þau. sagði hann. \ Hallstein-kenningin Með þessu lýsti hann raun- verulega yfir því að hin nýja stjórn hefði sagt skilið við hina svokölluðu Hallstein-kenningu Áskorun frá Æskulýðsfylkingunni Ekkert ungt fólk til sturfu hjá pósthásinu um jólin Æskulýðsfylkingin, samband ungra sósíahsta lýsir yfir stuðn- I irigi sínum við póstmenn í kjara- | baráttu þeirra og hvetur öll sam- tök launþega og málgögn þeirra að veita póstmönnum allan hugs- anlegan stuðning. Rétt er að vekja athygli 4 þeirri staðreynd, að eftirvinnu- bann póstmanna var ákveðið til að reyna að bæta kjör þeirra póstmanna sem verst eru laun- aðir. Krafizt er að bréfberar verði í 10. launaflokki opinberra starfsmanna í stað 7. launaflokks eins og nú er. Nú eru hámarks- laun bréfbera um 9000 krónur á mánuði. Fastir bréfberar i starfi eru nú um 16 en þyrftu að vera um 40. Fleiri fást ekki til starfsins vegna» lélegra launa. Bætt kjör bréfbera eru því einn- íg hagsmunamál alls almcnnings. Einnig er krafizt að þeir fáu póstafgreiðslumenn, sem era í 10. launaflokki opinberra starfs- manna, verði fluttir í 12. flókk, tii samræmis við starfsbræður sína. Flestir þeir póstafgreiðslu- menn, sem eru í 10. Iaunaflokki, starfa utan .Reykjavíkur, Sá stóri hópur póstmanna, sem nú neitar að vinna eftirvinnu, er þannig ekki að krefjast almennra kauphækkana fyrir sig sjálía, heldur eru þeir í nafni stéttar- samstöðu að heirnta bættan rétt þeirra starfsbræðra sinna, sem verst eru settir og gera því fyrr- nefndar kröfur sem ríkisstjórn- in hefur algjörlega vísað á bug. Eins og öllum er kunnugthafa opinberir starfsmenn ekki verk- fallsrétt. Þeir verða þvi að grípa til ráða eins og eftirvinnubanns til að knýja fram rétt sinn. En jafnvel hér er réttur þeirra verri en annarra launþega. Hægt er að f jölga svo ' starfsmönnum á deildum Pósthússins að eftir- vinnubannið getur að miklu leyti misst þýðingu sína. Einkum er mögulegt að fjölga starfskröftum í desémber, þegar iólaleyfi skól- anna hefjast. Æskulýðsfylkingin skorar því á allt ungt fólk að veikja ekki aðstöðu póstmanna með því að ráða sig til vinnu við Pósthúsið í Reykjavík í jólaönninni. Að hefja vinnu þar núna er í eðli sínu ekkl óskylt verkfallsbroti. Ungt fólk! Sýnið skilning á hagsmunabaráttu Iaunþega, ljá- ið ekki Pósthúsinu í Reykjavík starfskrafta ykkar núna. (Frá Framkvæmdanefnd Æ.F.l. sem verið hefur hornsteinn utan- ríkisstefnu Vestur-Þýzkalands allt frá upphafi. Samkvæmt þeirri kenningu hefur Veistur- Þýzkaland ekki stjórnmálasam- band við neitt ríki sem viður- kennir stjóm Austur-Þýzkalands, Framhald á 3. síðu. Póstverkfallið heldur áfraih Ekkert nýtt hefur gerzt i póstmannadeilunni annað en það að póstmeistari, Matthías Guðmundsson, lét hafa eftir sér i gær að allt útlit, væri nú fyrir að málið færi fyrir Félagsdóm, en ekki er búizt við að hann geti tekið málið fyrir fyrr en eftir jól. Yfir- vinnubannið hefur valdið því að allar horfur eru á því að mikill hluti jólapóstsins muni ekki komast i hendur viðtak- enda í tæka tíð. Póststjórnin hefur reynt að ba§ta úr vand- ræðunum með þvi að ráða unglinga til vinnu, einnig undir sextán ára aldri. Áður mun það ekki hafa tíðkazt að ráðið væri fólk til starfa við •póstinn í jólaönnunum yngra en 16 ára, enda hæpið að slíkar ráðningar séu lögum samkvæmt. \

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.