Þjóðviljinn - 15.12.1966, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 15.12.1966, Qupperneq 6
0 SÍÐA — ÞJÖÐVHjJINN — Fimmtudagur 15. desember 1966. Margar og afdrifaríkar orustyr voru háð- ar í síðari heimsstyrjöldinni, en vart leikur á tveim tungum að það var orustan um Bretland — háð síðsumars 1940 — sem var afdrifaríkust allra. Þetta verður greinilega ljóst af bók þeirri um þetta efni — „Orustan um Bretland“ — sem kemur út samtímis á íslandi og Bret- landi. Höfundur er brezkur blaðamaður.' Þegar orustan um Bretland hófst í ágúst 1940 virtust Þjóðverjar ósigrandi og Hitler allir vegir færir. Flugher Þjóðverja átti að- eins éftir að sópa brezka flughernum úr loft- inu yfir Ermarsundi og Suður-Bretlandi, og þegar því væri lokið, gæti innrás hafizt og henni mundi ljúka með algerum sigri naz- ista. Að sjálfsögðu töldu Þjóðverjar að þetta mundi verða leikur einn. Slik afrek hafði þýzki flugherinn unnið undanfarna mánuði að ekki átti að vera miklum vandkvæðum bundið að ganga á milli bols og höfuðs á þeim litla flugher, sem Bretar áttu eftir. Dag eftir dag sendu Þjóðverjar ótöluleg- an grúa flugvéla af öllu tagi til árása á Bretland, og alltaf var árásunum hagað þannig, að sækjendur höfðu sólina í bakið, en verjendur beint í augun. Slíkt yar væn- legt til góðs árangurs. En flugmenn Breta uxu með hverjum vanda. Því fleiri sem árásirnar urðu, þeim mun fleiri ferðir fór hver brezkur flugmað- ur. Þess voru dæmi að einstakir flugmenn færu átta flugferðir á dag, þegar mest gekk á. Það var þess vegna ekki að furða, þótt Churchill kæmist svo að orði um hetjuskap brezkra flugmanna, að „aldrei hafa eins margir átt eins fáum mikið að þakka“. f bók þeirri sem hér er um að ræða, er brugðið upp myndum af óteljandi hetjudáð- um brezkra flugmanna, er þeir vörðust ofur- eflinu, og hún er merkileg að því leyti, en þó er hún enn eftirtektarverðari fyrir þá Þorsteinn E. Jónsson flugmaður úr 111. flug- sveit Breta stígur út úr Spitfireherflugvél sinni eftir loftorustu. sök, að í henni er í fyrsta skipti frá því sagt hve nærri Bretar voru algerum ósigri. Það er ekki ofsagt að þessi bók sé merki- legt framlag til veraldarsögu síðustu ára- tuga — mikilla umbrotatíma, sem enn eru í deiglunni, og vist er, að mannkjmssagan hefði ekki þróazt eins og raun ber vitni frá 1940 ef Bretar hefðu tapað „örustunni úm Bretland". , Aðeins einn íslendingur, Þorsteinn Jóns- son, nú flugstjóri hjá Flugfélagi íslands, barðist með RAF, brezka flughernum á stríðsárunum. Hann. var í 111. flugsveit- inni sem hafði m.a, aðsetur á flugvöllunum í Northweald Kenley og Greavesend. Þekk- ir Þorsteinn marga þá menn, sem um getur í bókinni, og er án efá sá Islendingur sem er kunnugastur þeim atburðum,' sem þár er lýst. Þorsteinn hefur eftirfarandi um bókina að segja: Ég hafði mikla ánægju af því að lesa hana, sérstaklega vegna þess að ég þekkti per- sónulega marga af þeim mönnum, sem við sögu komá, þó að ég sjálfur hafi ekki lokið orustuflugnámi fyrr en um það leyti er or- ustunni um Bretland var að ljúka. Flugsveit mín, 111. flugsveitin, kemur einnig viða við sögu. Frásögn bókarinnar er í öllum þeim atriðum, sem mér eru persónulega kunnug, rétt. Það sem gerir bókina fróðlega og skemmti- léga til aflestrar er. að höfundurinn hefur haft aðgang að heimildum frá báðum stríðs- aðilum, og er ekki sízt fróðlegt að kynnast málum frá hlið Þjóðverja, viðbrögðum flug- manna þeirra og okkar“ Bókaútqófan Fífill Bretland Orustan Hliómplötu- útlón að hefj- ast.í Firðinum f dag, fimmtudag, hefst út- lán á hljómplötum í Bæjar- og héraðsbókasafninu í Hafnar- firði. Tónlistardeild safnsins var stofnuð árið 1960 með tónlist- argjöf Friðriks heitins Bjarna- sonar. — Stuttu eftir stofnun- ina var hafizt handa um inn- kaup á hljómplötum og sér- stök áherzla lögð á íslenzkt efni. Aðallega eru þetta 78 snúninga plötur, sem ekki verða til útlána, hafa margir einstak- lingar gefið henni músíkbæk- ur og nótnahefti, sem auð- kenndar eru með sérstökum miða (ex libris) með nafni gef- andans. Fyrst um sinn verða ein- göngu lánaðar út svo nefndar mono-plötur, 33% snúninga, og- hefur safnið sett reglur varð- andi meðferð og notkun þeirra. Hér er um að ræða sinfóníur, óperur, söngleiki, kammermús- ík, einsöngva og kóra, þjóðlög, jólalög, talplötur o.fl. Útlánatími er, fyrst um sinn^ mánudaga og fimmtudaga kl. 6—7 síðdegis. Félag ísl. listdansara Aðalfundur Félags íslenzkra listdansara var haldinn laug- ardaginn 5. nóvember 1966. Sigríður Ármann baðst ein- dregið undan endurkosningu, en hún hefur verið formaður félagsins í 15 ár samfleytt. Ný stjórn var kosin og hana skipa: Ingibjörg Björnsdóttir, for- maður; Edda Scheving, ritari; Ingunn Jensdóttir, gjaldkeri; Guðný Pétursdóttir og Sigrún Ólafsdóttir, meðstjórnendur. Meðlimir Félags islenzkra listdansara eru nú 31. Stjórnin. Afríkuríki vilja banna olíusölu tii Rédesíu NEW YORK 13/12 — Aíríku- ríkin sem fulltrúa eiga í Örygg- isráðinu, Malí, Nígería og Úg- anda, fluttu í, dag breytingar- tillögur við tillögu Breta um refsiaðgerðir gegn Ródesíu. Krefjast þau m a. að bönnuð verði öll olíusala til Ródesíu og lagt bann við kaupum á kolum og iðnaðarvarningi þaðan. Jafn- framt er brezka stjórnin gagn- rýnd fyrir að hafa sýnt stjóm Smiths linkind. Til að gera mönnum kleift að gefa konum sínum og dætrum í jólagjöf hina ,heims- frægu BERNINA saumavél, sem að dómi allra þeirra sem notað hafa er talin bezta saumavélin á heimsmarkaðnum í dag, selj- um vér BERNINA til jóla með aðeins 1.000,00 kr. útborgun og eftirstöðvarnar eft- ir samkomulagi. \ BERNINA-búðin Lækjargötu 2. Ásbjörn Ólafsson, Grettisgötu 2. Sími 24440. Utgerðarmenn — Vélstjórar Vanti yður lensidælu, spúldælu, kælivatnsdælu, eða dælu til annarra hluta í bátinn þá munið áð Dœlurnar með -' gúmmí- hjólunum ■- eru vinsælustu dælurnar í flotanum. Mikið úrval. Stærðir 3/8 — 2”. — Með og án kúplingar — Með og án mótors. — Ódýrar, hentugar. Varáhlútir jafnan fyrirliggjandi. e' Sisli c7. éoRnsen Lf. Vesturgötu 45. — Sími 12747. JÁSSCC FÍONA eftir Denise Robins Eldheit ástarsaga, svo heit, að maður óttast að kvikni í pappírnum. Ást sem öllu fórp- ar og sigrast á öllu að lokum. — Óskabók allra stúlkna, sem eiga rómantík í hjarta. ÆGISÚTGÁFAN. Kjötborg auglýsir! Allt í jólamatinn. Allt í jólabaksturinn. , Allt til jólahreingeminga. Úrval af nýjum, niðursoðnum. og þurrkuðum ávöxtum. — Nýtt og • niðursoðið grænmetL Kjötborg hl. Búðargerði 10. Símar 34999 og 34945. Lopapeysur / úrvali Litaðar pg sauðalitir. Allar stærðir, gerðir. Hvergi meira úrval. ÁLAFOSS, Þingholtsstræti % margar T

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.