Þjóðviljinn - 24.12.1966, Síða 3
Laugardagur 24. desember 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA J
Borgaríhaldið
gegn f járframlagi
til orlofsheimila
verkalýðsfélaga
Framhlid nokkurra smáhýsanna, sem reist hafa vcriö í Ölfusborgum.
~k Meðal Jieirra breytingartil-
lagna, sem borgarfulltrúar Al-
þýðubandalagsins fluttu við
fjárhagsáætlun Reykjavíkur
árið 1967, var tillaga um að
borgarsjóður legði fram 1 milj-
ón króna í orlofsheimilissjóð
Alþýðusambands íslands. Bentu
Alþýðubandalagsmenn í því
sambandi á að orlofsstarfsemi
Alþýðusambandsins nyti fjár-
stuðnings frá ríkinu en Reykja-
víkurborg hefði ekkert fé lagt
fram til þessarar nauðsynlegu
starfsemi.
■k í þessu máli, eins og flestum
öðrum sem fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins hreyfðu við af-
greiðslu f járhagsáætlunarinnar,
reyndust íhaldsfulltrúarnir rök-
Laugavegi 38
Ikólavörðustíg 13
Snorrabraut 38
$
ao.
^ O
o
O' Ql
%.% r
rt &
%
'6*
Irg*
s* •
heldir; þeir felldu allir sem
einn tillöguna um stuðning við
orlofsstarfsemi Alþýðusam-
bandsins.
k Jón Snorri Þorleifsson borg-
arfulltrúi mælti fyrir tillögu
Alþýðubandalagsins og veitti
ýmsar athyglisverðar upplýs-
ingar um hinar myndarlegu or-
lofsbúðir verkalýðssamtakanna
við Hveragerði í Ölfusi. Fara
hér á eftir helztu atriði í fram-
söguræðu Jóns Snorra.
Fyrir nokkrum árum hófst
vinna við undirbúning og fram-
kvæmd byggingar orlofsheimil-
is verkalýðssamtakanna í landi
Reykja í Ölfusi en á þeim stað
hafði ríkisstjórnin að beiðni Al-
þýðusambandsins úthlutað sam-
tökunum 12 hektara landi. Það
landsvæði hefur siðan verið
stækkað nokkuð.
Þær framkvæmdir sem fyr-
irhugaðar voru strax í upphafi
á þessu svæði voru smíði 30^
smáhýsa og bygging stórhýsis,
sem þjónað gæti því tvíþætta
verkefni að vera hótel og að-
setur fyrir fundi, ráðstefnur og
námskeið og verkalýðsskóla
samtakanna. Auk þess skyldu
þar gerðir leikvellir, bæði fyrir
börn og íullorðna, og reist
sundlaug.
Byrjað var á því að þurrka
svæðið, því að mikill hluti
þess var mýri og sendnir móar.
Þá hefur verið borað eftir heitu
vatni og hitaveita, vatnsveita
og skolplagnir lagðar um svæð-
ið og gerðar götur, bæði um
svæðið sjálft og frá þjóðvegi
heim að svæðinu.
22 smáhýsi í notkun
Að lokinni nauðsynlegri und-
irbúningsvinnu hófust sjálfar
byggingarframkvæmdirnar og
voru á sl. sumri komin í notk-
un 22 smáhýsi, sem eru að
grunnfleti um 40 fermetrar
hvert.
Eftir er að reisa a.m.k. 8
önnur hús samskonar, hótel-
byggingu, sundlaug, auk leik-
válla, svo og er eftir að koma
upp annarri aðstöðu sem nauð-
synleg er talin á slíkum stað.
Það er því ljóst að mikils
fjár er þörf til þeirra fram-
kvæmda scm eftir eru á svæð-
inu.
Enda þótt smáhýsin séu fyrst
og íremst orlofshús eru þau
byggð þannig, að í þeim er
engu að síður hægt að dvelja
að vetri til, ef önnur nauðsyn-
leg aðstaða væri fyrir hendi.
Húsin eru mjög hentug til
| stuttrar dvalar og í alla staði
einstaklega vistleg. í hverju
húsi er, auk stofu með húsgögn-
um. eldhúskrókur með öllum
nauðsynlegum eldhúsáhöldum,
forstofa með rúmgóðu fata-
hengi, salerni, þrjú svefnher-
bergi lítil með alls 5 rúmum,
en hverju rúmi fylgir sæng,
koddi og ábreiða. Fá dvalar-
gestir afhentan við komu hrein-
an sængurfatnað.
Eigendur bessara 22 húsa
eru, auk Alþýðusambandsins,
11 verkalýðsfélög í Reykjavík,
eitt í Hafnarfirði og eitt á
Akranesi.
Félögin hvert fyrir sig, út-
hluta félagsmönnum sínum
vikudvöl í einu og var viku-
leigugjaldið fyrir húsið 1500
krónur á sl. sumri.
Að sjálfsögðu myndu hin
húsin einnig leigð til annarra
en félagsmanna verkalýðsfélag-
anna, en til þessa hefur hvergi
nærri verið hægt að fullnægja
eftirspurn félagsmanna mesta
orlofstímann.
Starfsemi til
fyrirmyndar
Um kostnað við þær fram-
kvæmdir, sem ég hef hér lýst,
og hvernig fjár til þeirra hefur
verið aflað er það að segja, að
framlag frá ríkinu kom fyrst
til 1957, 2 milj. króna, og hefur
síðan verið frá einni til 1,6 milj.
kr. á ári. Verkalýðsfélögin hafa
greitt 4 milj. 150 þús. kr. og
lán hefur fengizt frá Atvinnu-
leysistryggingasjóði að upphæð
6,9 milj. Alls eru þetta 19 milj-
ónir.
Alþýðusamband íslands hefur
ekki sent beiðni til Reykjavik-
urborgar um fjárframlag úr
borgarsjóði. Hinsvegar er ljóst,
að nauðsynlegt er að halda á-
fram þeim framkvæmdum sem
fyrirhugaðar eru, og hjá Al-
þýðusamhandinu liggja beiðnir
margra félaga, einkum héðan
úr Reykjavík. um smáhýsi í
Ölfusborgum.
Og ég hygg að sú reynsla sem
fengizt hefur á þeim stutta
tíma, sem liðinn er síðan húsin
voru tekin í notkun, sýni að
hér er um mjög nauðsynlega
starfsemi að ræða og starfsemi
sem mjög er til fyrirmyndar.
Reykvískt verkafólk
í meirihluta
Á það hefur mikið skort og
skortir enn að almenningi sé
séð fyrir nauðsynlegri aðstöðu
til að njóta hollrar hvíldar í
orlofi frá allt of löngum vinnu-
degi. Frumkvæði verkalýðs-
hreyfingarinnar í því efni ber
því að fagna og á vissulega
skilið að hljóta verðuga athygli
og góðan stuðning.
Eins og ég hef áður lýst, eru
umrædd smáhýsi aðallega í
eigu verkalýðsfélaga hér í I
Reykjavík, eða 19 hús alls af
22. og þjóna því fyrst og fremst
því hlutverki að veita. verka-
fólki borgarinnar þá þjónústu
sem þar er boðin og veita því
tækifæri til að njóta orlofsdval-
ar og hvíldar á góðum stað í
fögru umhverfi, .jafnframt' þvi
sem þau skapa reykvískum hús-
mæðrum möguleika á frekari
orlofsdvöl en þær hafa átt kost
á til þessa, svo og börnum
þeirra foreldra sem þar dvelja
hverju sinni.
Ég vænti þess því fasllega
að borgarfulltrúar séu mér
sammála um að það væri borg-
inni heiður og sómi að Ijá svo
þörfu og góðu máli lið með
samþykkt á þessari breyting-
artillögu okkar Alþýðubanda-
lagsmanna, og trú mín er sú
að vegur borgarinnar myndi
vaxa í augum reykvískrar al-
þýðu, ef samþykkt væri óum-
beðið framlag til þessarar starf-
semi, sem vitað er að frekara
fjármagn vantar tiþ svo að
fleiri Reykvíkingar geti notið
þeirrar ánægju og þörfu hvíld-
ar sem dvöl í Ölfusborgum er
vissulega hverjum þeim sem
þar dvelur.
★
Þaimig fórust Jóni Snorra
Þorleifssyni m.a. orð, er hann
mælti fyrir tillögu Álþýðu-
bandalagsins. En ihaldsfulltrú-
arnir felldu sem fyrr var sagt
tillöguna — þeir sáu ekki nú
fremur en svo oft áður ástæðu
til að ljá þörfu máli lið og ekki
mun vegur íhaldsins vaxa í aug-
um reykvískrar alþýðu vegna
þeirra málaloka.
ve i t i ng a h ú s i ð
KSKUK
BÝÐUR
vnru
GRIKLAÐA
KJÚKLINGA
GLÓÐAR
STEIKUR
HEITAR&
KALDAR
SAMLOKUR
SMURT
BRAUÐ
& SNITTUR
KSKUK
suðurlandsbraut 1$,
sími 38550
BRAUÐHUSE)
SNACK BAR
Laugavegi 126.
SMURT BRAUÐ
SNITTUR
BRAUÐTERTUR
•*
Sími: 24631
^WWÁA/VVVVAAAAAAAAAA/VAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/VVVAAAAAAAAAAAAAAAAA/VVAAAAAAA/VAAAVlAAAAAAAAA/VA/VVAAAAA/VAAAAAAA/VVVAAAAAAA/VAAAAAAA/VVAAAAAAAVVVAAAAAA/VVVAAAAAAVVVVVVVAi
Öskum samvirmufólki
um land allt
og öSrum landsmönnum
GLEÐILEGRA JÓLA
ARS og friðar
SAMBAND ÍSLENZKRA
SAMVINNUFÉLAGA
IÐNAÐUR - VERZLUN - SAMGÖNGUR
ÚTFLUTNINGUR - INNFLUTN INGUR
lAVAAAVAAAVVVVVVVVVVVAAAAVVVAAAAAVVVVVVAAVVAAAAAAVVVVA/VAAVVVVAVAAVVAAVVA/VVVVVVAAA^WAVVVVVVAAVAVAAVAAVAAVVVVAVVVAVVVVVVVVVAAVVVVVVVVVVVVVA/VAAAVAAAAVVVVVVVVVVVAVVAA