Þjóðviljinn - 16.09.1967, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.09.1967, Qupperneq 10
Unglingsstúikur tefcnar um borS í dönsku skipi Um kl. 2 í fyrrinótt var lög- reglan kvödd að danska skipinu Seabird sem liggur hér í Reykja- víkurhöfn þar eð grunur lék á um það að um borð í skipinu væru íslenzkar stúlkur. Við Ieit í vistarverum skipverja fundust alls fimm ungar stúlkur, þar af fjórar þeirra kornungar, ein að- eins 15 ára, tvær 16 og ein lí. Er Þjóðviljinn átti tal við rannsóknarlögregluna síðdegis í gær var hún nýbúin að fá í hendur skýrslu kvenlögreglunnar um mál stúlknanna og var rann- sókn málsins því enn á byrjun- arstigi. íslenzka sveitin tapaði í 17. og 18. umferðunum íslenzka sveitin tapaði bæði í 17. og 18. umferð Evrópumeist- aramótsins í bridge. í 17. umferð töpuðu íslendingar 2:6 fyrir Belgum og í 18. umferð 1:7 fyr- ir Pólverjum. Fyrir síðustu um- ferð, sem spiluð var í gærkvöld og ekki var lokið er blaðið fór í prentun, höfðu ítalir tryggt sér efsta sætið og Eyrópumeist- aratitilinn og Frakkar höfðu einnig tryggt sér annað sætið. Baráttan um 3ja sæti var- hins vegar mjög tvísýn. Staða efstu sveitanna var þessi eftir 18. umferð: ítalia 114 stig, Frakkland 100, Bret- land 89, ísland og Noregur 88, Holland 86, Sviss 85 og Sví- þjóð 79. íslendingar áttu í höggi við Norðmenn í síðustu umferð- inni. Athugðsemd frá Húsnæðismálft- stoffiun ríkisins Þjóðviljanum hefur borizt eft- irfarandi athugasemd' frá Hús- næðismálastofnun ríkisins: I útvarpserindi um daginn og veginn síðastliðinn mánudag staðhæfði fyrirlesari, að 80% af ráðstöfunarfé Húsnæðismála- stofnunarinnar á þessu ári rynni til bygginga Framkvæmdanefnd- ar byggingaáætlunar í Breiðholti. Þetta er ekki rétt. Hinn 1. sept. el. hafði Húsnæðísmálastjórn ráð- 6tafað 80,2% af tekjum bygginga- sjóðs á tímabilinu 1. janúar 1967 — 1, sept- 1967 í almenna út- lánastarfsemi eða samtals 277,7 milj. kr. Á sama tímabili hafði 18,9%^af tekjum sjóðsTns þennan tíma, eða samtals 65,3 milj. kr. verið varið til bráðabirgðalána til bygginga Framkvæmdanefnd- ar byggingaáætlunar í Breiðholti. — Ný lán, að upphæð samtals 100 milj- kr. er veitt voru í vor, koma til útborgunar eftir 1. maí 1968. Ein fullkommsta bílaþvotta- og bénstöi Evrépu opnuð bér □ í dag er opnuð í Sig- túni 3 sjálfvirk þvotta- og bónstöð, sem mun vera ein fullkomnasta sinnar tegund- ar í Evrópu að því er for- ráðamenn fyrirtækisins sögðu blaðamönnum í gær. Bíleig- endur munu þar fá þvott og bónun á bílum fyrir allt að helmingi, lægra verð en áður. • Snemma á árinu 19,65, var hafizt handa við athugun erlend- is á fullkomnum og nýtízkuleg- um sjálfvirkum bílþvott'astöðv- um með það fyrir augum að setja slíka stöð niður hér á landi Nokkrir áhugamenn um málið ákváðu að stofna með sér félagsskap í því augnamiði að freista þess að koma þessu máli í framkvæmd og hlaut félagið nafnið BLIKI h.f. Fengin var lóð fyrir starfsem- ina við Sigtún og hófust bygg- ingarframkvæmdir í maímán- uði á sl. ári. Húsið teiknaði Kjartan Sveinsson byggingar- tæknifræðingur, sem jáfnframt er einn af hluthöfum'BLIKA h.f. Allar vélar í þessari sjálfvirku þvotta- og bónstöð fyrir fólks- bifreiðir eru keyptar frá fyrir- tækinu EMANUEL á ítaliu, en það fyrirtæki er ' jafnframt fyrsta verksmiðjan í heiminum, sem byggði fyrstu sjálfvirku bílaþvottastöðina fyrir liðlega 30 árum, og hefur haldið forystu í þessari iðngrein. Stöðvar frá EMA/NUEL eru í flestum lönd- um heims, jafnt fyrir fólksbif- reiðar sem og járnbrautavagna, strætisvagna og aðrar stærri fólksfjutningabifreiðir. Niðursetning vélanna hófst fyrir u.þ.b. tveim mánuðum og hefur yfirumsjón með verkinu haft tæknimaður frá EMANUEL, ítalo Imbimbo að nafni. Þessi sjálfvirka þvotta- og bónstöð fyrir bifreiðir, er ein fullkomnasta stöð sinnar teg- undar, sem EMANUEL hefur sett upp. Heilðarlengd stöðvar- innar er 52 metrar, en lengd hússins eru 65 metrar. Hámarksafköst stöðvarinnar eru 680 bifreiðar á 8 klukku- stundum. Fulltrúi EMANUEL- verksmiðjunnar á íslandi, sem hefur verið til leiðbeiningar fyr- ir BLIKA h.f. vegna þessarar stöðvar er Ingi Þorsteinsson við- skiptafræðingur. Fyrirtækið BLIKI h.f. hefur farið inn á nýjung, sem vafa- laust verður kærkomin öllum bifreiðaeigendum. Með kraft- miklum undirvagnsþvotti geta bifreiðaeigendur nú spyrnt við eyðleggingaráhrifum af völdum t.d. salts- — Bifreiðin er þvegin og bónuð á liðlega 14 mínútum eða rétt á meðan viðskiptavinur- in bíður og í byggingu Blika h.f. er fyrirhugaður rekstur caféteríu, þar sem viðskiptavinir geta fené- Úr nýju bílaþvotta- og bónstöðinni. ið sér hressingu meðan beðið er eftir bifreiðinni. Stjórnarformað- ur og framkvæmdastjóri í BLIKA h.f. er Sveinn Halldórs- son, en hann er jafnframt aðal- hvatamalður að uppsetningu þess- arar stöðvar. Þeir aðilar, sem annazt hafa byggingarfram— kvæmdir eru: Vilhjálmur Þor- láksson verkfræðingur sá um járnateikningar. Hreinn Jónasson tæknifræðingur sá um rafmagns- teikningu en Steinn Guðmunds- son rafvirkjameistari sá um raf- lagnir. Móses Aðalsteinsson verk- fræðingur teiknaði vatns og frá- rennslislagnir, en um framkvæmd verksins sá Heiðdal Jónsson pípu- lagningameistari. Múrverk ann- aðist Einar St. Einarsson múr- arameistari. Tréverk var unnið af Arnljóti Guðmundssyni tré- smíðameistara. Málningu annað- ist Vilhjálmur Ingólfsson mál- árameistari. 4 útköll í gær í gær var síökkviliðið í Rvík kvatt út fjórum sinnum. í eitt skiptið var um gabb að ræða, tvívegis var grunur um eld en enginn eldur og í fjórða skipt- ið hafði kviknað í rusli hjá tré- smíðaverkstæði í Kópavogi. Laugardagur 16. september 1967 — 32. árgangur — 207. tohiibdað. Stærsta og nýjasta síldarskipii okkar er ai heíja veiðar Stærstac skip sem smíðað hef- ur verið hérlendis, Eldborg GK 13, kom í fyrradag í fyrsta sinn til Hafnarfjarftar, sem er heima- höfn skipsins. Aðaleigendur skipsins eru þeir Gunnar Her- mannsson skipstjóri og Þórður Þórðarson vélstjóri. Eldborg er smíðuð í Slipp- stöðinni h.f. á Akureyri, og var kjölurinn að skipinu lagður í desember í fyrra, og það sjósett 22. júlí sl. Samkvæmt eldra mælikerfinu er Eldborgin 557 lestir en 415 eftir hinu nýja. Aðalvél skipsins er af Man-gerð og er 990 hestöfl, ganghraði í reynsluferð var 12,4 mílur. Frágangur á öllu um borð í skipinu er mjög vandaður og það að sjáífsögðu búið öllum nýjustu siglinga- og fiskileitar- tækjum. Helzta nýjungin við skipið er að þar eru tvö þilför og er það neðra algerlega lokað. Þá eru þar bæði kælilestar og frystilestar. Skipið er þannig útbúið að hægt er að stunda á því bæði síldveiðar, togveíðar o.fl. Hjálmar Bárðarson gerði lánu- teikningar en afllar aðrar teifcn- ingar voru gerðar í Slippstöðinni. Kostnaðarverð skipsins er um 28 miljónir. Eldborg þeldur austur á 9íld- veiðar nú um helgina. N Nyionhúðun hf., nýtt fyrirtækií Kópavogi Nýtt fyrirtæki hefur verið stofnað í Kópavogi og nefnist það Nylonhúðun h.f. Tekur fyr- irtækið að sér að húða allskon- ar málmhluti með nylondufti og er þessi nýja aðferð, sem Frakk- ar fundu upp fyrir nokkrum árum, talin hafa 540-falda slit- endingu á við lakk, og er mun ódýrari. Hefur efni þetta hiotið nafnið Rilsan-Nylon 11. í fyrra var stofnað á Akur- eyri fyrirtækið Stáliðn h.f., þar sem m.a. eru húðaðir málmhlut- ir með Rilsan-Nylon 11. Hefur fyrirtækið haft næg verkefni og þótti þeim Akureyringum sem að fyrirtaékinu stóðu að nauð- synlegt væri að koma einnig upp sliku fyrirtæki á Suður- landi og gengust fyrir því í fé- lagi við nokkra menn hér syðra að stofna fyrirtækið Nylonhúð- un h.f. Er nýja fyrirtækið að Álfhólsvegi 22 í Kópavogi og framkvæmdastjóri þess er Þórð- ur Guðnason, vélsmiður. Húðun með nylonduftinu ryð- ur sér mjög til rúms í V.-Evrópu og þá sérstaklega í Vestur- Þýzkalandi og Danmörku. Má á Listkynning MFIK í Breið- firðingabúð ú sunnudaginn □ Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna hefja vetrarstarf sitt með listkynningu í Breiðfirðinga- búð n.k. simnudag, 17. september, og verða þar sýnd verk eftir no'kkra af beztu listamönnum landsins. Þjóð- viljinn átti í gær tal við Maríu Þorsteinsdóttur for- mann MFÍK um sýninguna og starfsemi samtakanna í vetur og fórust henni m.a. orð á þessa leið: Listkynningar sem þessi eru nýr þáttur í starfi sam- takanna, en á síðasta starfs- ári gengust þau fyrir tveim listkynningum, var sú fyrri í Breiðfirðingabúð í september 1966 en hin síðari var í Lind- arbæ í maí 1967, voru þar kynnt verk Jakobínu Sigurð- ardóttur skáldkonu. Þessi þáttur í starfi MFÍK er til- raun til að vekja athygli al- mennings á verkum okkar beztu listamanna, og vonum við að geta haldið éfram á þessari braut. Vegna fjár- skorts, en Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna njóta enn ekki ríkisstyrks, verðum við að sjá þessari starfsemi farborða með kaffi- sölu, en það sniður henni óneitanlega þröngan stakk. Listkynningar þessar hafa þó fengið góða dóma hjá al- menningi og vi^ vonum að í framtíðinni getum við fært .þessa viðleitni út til fleiri listgreina og haft hana i öðru formi. Samvinna við það listafólk sem hefur látið verk.. sín til sýningar hjá okkur er alveg sérstaklega ánægjuleg og viljum við færa því öllu okkar beztu þakkir fyrir skillning á þessari fátæklegu viðleitni okkar. Alveg sér- staklega þökkum við hinum ágætu listamönnum sem hafa aðstoðað okkur með ráðum og dáð við að undinbúa þessa listkynningu, en það eru: Sverrir Haraldsson, Iistmálari, Ólöf Pálsdóttir, myndhöggv- ari, Vigdís Kristjánsdóttir, listmálari og Eyborg Guð- mundsdóttir, listmálari. Um starfsemi samtakanna í vetur er þetta að segja: 1 lok þessa mánaðar halda samtökin fund um uppeldis- og skólamól, en þar flytja erindi Margrét Margeirsdóttir, félagsráðgjafi og Rannveig Löve kennari. Þá munu sam- tökin í vetur halda fund um aðstöðu kvenna til starfa og menntunar, tekin verður fyr- ir frelsisbarátta Kúrda og kynþáttavandamálið í Banda- ríkjunum og enn fremur Vi- etnamstyrjöldin, en samtök okkar eru sem kunnugt er þátttakendur í Vietnamnefnd þeirri er stofinuð var með þátttöku margra félagasam- taka hér á sl. vetri. Eftirtaldir listamenn sýna verk sín í Breiðfirðingabúð á vegum samtakanna n.k. sunnudag. kl. 14.30.' Sverrir Haraldsson, listmál- ari, Ólöf Pálsdóttir, mynd- höggvari, Vigdís Kristjáns- dóttir, lístmálari, Eyborg Guftmundsdóttir, Iistmálari, Sigurður Sigurðsson, listmál- ari, Kjartan Guðjónsson, Iist- málari, Jóhannes Jóhannes- son, Iistmálari, Jóhann Ey- fells, myndhöggvari, Kristín Eyfells, listmálari, Magnús Árnason, listmálari, Barbara Árnason, Iistmálari, Steinþór Sigurðss., -listmálari, Ilringur Jóhannsson, listmálari, Ragn- heiður Óskarsdóttir, -listmál- ari, Sigríður Björnsdóttir, list- málari, Sigrún Guftmunds- dóttir, • listmálari, Hafsteinn Austmann, listmálari og Sig- rún Jónsdóttir sýnir batik. Ragnar Lárusson, listmáflari teiknar andlitsmyndir af sýn- ingargestum sem þess óska. það benda að mörg hinna nýju rafmagnstækja sem notuð eru hér á markaðnum og framleidd eru í þessum löndum, t.d. þvottavélar og kæliskápar, eru nylonhúðuð. Vænta forgöngumenn hins nýja fyrirtækis þess að iðnað- armenn og aðrir þeir 'sem þurfa að láta húða hverskyns málm- hluti, kynni sér ágæti þessarar nýju framleiðslu. Þá má að lokum upplýsa að öll áhöld og tæki við fram- leiðslu þessa eru framleidd í Vélsmiðju Þórðar Guðnasonar, vélsmiðs, að Álfhólsvegi 22, Kópavogi, nema rafmótorar og rofar. Skipin flest á leið til eða frá landi Sæmilegt veður var á sildar- miðunum fyrra sólarlhring. Fá skip eru nú á veiðisvæðinu, þvi skipin eru yfirleitt á leið til lands með afla eða á leið á mið- in. Veiðisvæðið er nú á 72 gr. 37 mín. norður breiddar og á 30 gr. 25 min. austurdengdar. 6 skip tilkynntu um afla, 1.170 lestir. Auðunn GK 50 lestir, Grótta RÉ 190, Þórður Jónass. EA 400, Vík- ingur III. ÍS 180, Ásbjöm RE 170 og Skarðsvík SH 180. Orðsending frá stjórn Kvenfá- lags sósíalista Fyrsti fundur vetrarins verður haldinn þriðjudaginn 19. septem- er í Tjarnargötu 20 kL 8.30 stundvíslega. Dagskrárliðir: Kosning fulltrúa é aðalfund Bandalags kvenna í Reykjavík. Sigríður Ólafsdóttir segir frá för sinni með skemmtiferðaskip- inu Vöflkerfreundsdhaft. Kaffi og samnæður. Félagskonur! Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.