Þjóðviljinn - 17.10.1967, Blaðsíða 4
4 SÍBA ÞJÓÐVILJINN — I«eíðJ»KÍasur VL otoMber 1963.
Otgeíandi: Samedningarflokícur alþýðu —
urinn.
Ritstjórar: ívar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Gudmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. EYiðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðustíg 19.
Sfmi 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Þakkað fyrír fy/gi
r'
J kosningunum í sumar urðu býsna athyglisverð-
ar breytingar á innbyrðis afstöðu stjórnar-
flokkanna. Sjálfstæðisflokkurinn varð að þola
mjög tilfinnanlegt fylgistap, einkanlega í Reykja-
vík þar sem forsætisráðherrann var í kjöri, og
missti einn þihgmann. Alþýðuflokkurinn vann
hins vegar umtalsverðan kosningasigur, ekki sízt
í höfuðborginni, og bætti við sig einu þingsæti.
Enginn efi er á því að þetta ólíka mat kjósenda á
stjómarflokkunuim stafaði af því að Alþýðuflokk-
urinn hafði lagt mikla áherzlu á hið félagslega
hlutverk sitt í stjómarsamvinnunni, hann hefði
verið málsvari hinna afskiptu og tekjulágu, hann
mildaði hina hörðu peningapólitík viðreisnarinn-
ar í þágu almennings. Ýmsir stuðningsmenn við-
reisnarstjórnarinnar fluttu atkvæði sín frá Sjálf-
stæðisflokknum til Alþýðuflokksins af þessum á-
stæðum; þeir sáu fram á mjög víðtækar efnahags-
ráðstafanir og treystu Alþýðuflokknum betur til
þess að gæta hagsmuna launafólks þegar svoköll-
uð bjargráð yrðu ákveðin.
'.r'j
Ymsir bjuggust við því að Alþýðu'flokkurinn
myndi fylgja sigri sínum eftir að loknum kosn-
inguim, ekki sízt þar sem það var tilkynnt að
stjórnarflokkarnir ætluðu að gera nýjan málefna-
samning 1 samræmi við breytt viðhorf. En sum-
arið leið án þess að frekar fréttist um athafnir á
því sviði, og senn kom í ljós að helztu leiðtogar
Alþýðuflokksins höfðu meiri áhuga á ánægjuleg-
um hnattferðum en innlendum stjómmálum; þeg-
ar samningár flokkanna komust á lokastig fór
formaður Alþýðuflokksins til Bandaríkjanna en
varaformaðurinn til Brasilíu. Þegar bjargráðin
birtust kom svo í ljós að þar hafði félagslegum
viðhorfum verið bægt gersamlega burt; hinar nýju
og stórfelldu álögur bera meiri afturhaldsein-
kenni en nokkur önnur skattheimta á íslandi ára-
tugum saman; hinar þyngstu byrðar eru lagðar á
stórar fjölskyldur og tekjulágar, á ellilífeyrisfólk
og öryrkja, á börn og aldraða. Á gróðabrallsmenn
og verðbólgubraskara eru engar byrðar lagðar.
Vonirnar um áhrif kosninganna á stjómarstefn-
una hafa brugðizt gersamlega; það er engu líkara
en Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið yfirburðasig-
ur í kosningunum í vor en Alþýðuflokkurinn orðið
svo vesæll að hann skrimti aðeins sem próventu-
karl á höfuðbóli íhaldsins. ,
JJvemig má þetta vera, spyrja þeir sem veittu Al-
þýðuflokknum brautargengi í sumar. Skýring-
in getur naumast verið önnur en sú að þegar leið-
togar Alþýðuflokksins em hræddir við kjósendur
flíka þeir félagslegum sjónarmiðum og reyna jafn-
vel að ná einhverjum árangri. En þegar forsprakk-
amir éru öruggir um sinn hag, eins og að aflokn-
um kosningunum í sumar, missa þeir allan áhuga
á málefnum launafólks og hugsa um það eitt að
láta geisla valdasólarinnar baka sig. Forustumenn
Alþýðuflokksins þurfa að vera hæfilega óttaslegn-
ir til þess að einhvers megi af þeim vænta; þar
blasir augljóst verkefni við óbreyttum Alþýðu-
flokksmönnum. — m.
Aðkallandi er að auka fjölbreytnina
í veiði- og verkunaraðferðunum
Ég hef hamrað á twí hér í
þessum þætti í mörg ár, hve
mikil nauðsyn okkur sé á því,
að taka upp meiri fjöibreytni í
veiðum og verkun á afla. Með
þessu á að vera hægt að vinna
tvennt í senn: 1 fyrsta lagi að
dreifa áhættunni sem fiskveiö-
um hljóta að vera samfara, og
í öðru lagi aö undihbyggja skil-
yrði til þess, að útflutningur
sjávarafurða okkar verði miklu
verðmætari án þess að um
.aukningu á magni sé að ræða.
Eða jafnvel að verðmætið vaxi
stórlega þó aflinn verði minni
að smáilestgtölu sem hráefni.
í>að segir sig sjálft, að slíkt
hlýtur að vera mikið keppikefli
fyrir þjóð sem í sínum utanrík-
isviðskiptum verður fyrst og
fremst að treysta á gæði hafs-
ins og nýtingu þeirra gæða.
Það gladdi mig því óneitan-
lega þegar Eggert Þorsteinsson
sjávarútvegsmálaráðherra létþá
skoðun í ljós í Vísi nýlega í
sambandi við ráðstafanir sjáv-
arútveginum til handa, að
nauðsynlegt væri að skapa
meiri fjölbreytni i fískveiðum
okkar heldur en nú er þar fyrir
hendi. Vonandi fylgir ráðherr-
ann eftir þessari skoðun sinni
á Alþingi og í rfkisstjórn, ekki
mun af veita. Það er ékki að-
eins að fyrir liggi sem aökall-
andi verkefni að láta smíða
véibáta og togara sem séð geti
fyrir hráefnisþörf þeirra físk-
iðjuvera sem Mfvænleg geta
talizt og nú starfa í landinu,
heldur er okkur eánnig á því
nauðsyn að geta orðið sem allra
fyrst þátttakendur í' þeim út-
hafsveiðum sem aðrar þjóðir
stunda, svo sem hámeraveiöun-
um á Norður-Atlanzhafi, þorsk-
veiðum í salt við Vestur-
Grænland og á Nýfundnalands-
miðum, svo að nokkuð sé nefnt.
Á sama tíma og hrein bylting
hefur orðið á okkar síldveiði-
flota á tæknisviðinu, þá hefur
ekki aðeins myndazt kyrrstaða
í flestum öðrum' greinum ís-
lenzkrar sjósóknar, heldur er
um beina afturför að ræða
hvað togaraútgerðinni viðkem-
ur sé miðað við möguieika þess
tíma sem við lifum á.
Sama máli gegnir um nýt-
ingu mikils hluta þess fiskafla
sem hér berst á land árlega.
1 fyrsta lagi er alltof stór
hluti aflans gallað hráefni þeg-
ar hann kemur að landi og
hvergi í heiminum gert minna
tii af afstýra slíku. Hér erum
við orðnir minnst tuttugu ár-
um á eftir okkar keppinautum
á þessu sviði, en stóðum í lang-
fremstu röð framyfir 1930."
--------------------------------$>
Danskur verk-
fræðipróf. flytur
bár 3 fyrirlestra
Prófessor N. F. Bidsgaard frá
Tækniháskóla Dahmerkur dvelst
hér á landi um þessar mundir í
boði verkfræðideildar Háskóla
íslands. Hann 1 flytur fyrirlestra
í I. kennslustofu háskólans
þriðjudaginn 17. okt. og miðviku.
daginn 18. okt. kl. 5.30 e.h. báða
dagana. Fyrri fyrirlesturinn
fjallar um hið nýja námsfyrir-
komulag fyrir stúdenta í bygg-
ingarverkfr. við Tækniháskóla
Danmerkur. Síðari fyTÍrlesturinn
nefnist: „Rumklimatiske pro-
blemer í nutidigt byggeri“. Þess-
ir fyrirlestrar verða fluttir á
dönsku og er öllum heimill að-
gangur.
Þá flytur prófessor Bidsgaard
fyrirlestur í boði Verkfræðinga-
félags íslands fimmtudaginn 19.
október kl. 8.30 e.h. í Tjarnar-
búð. Nefnist sá fyrirlestur:
„Teknisk planlægning af det
| politekniske læreanstalts ny-
• byggeiá".
í öðru lagi virðist vanta hér
alla heildaryfirsýn um sölu-
möguleika á hinum ýmsu mörk-
uðum þegar ákvarðanir eru
teknar um skiptingu aflans
eftir verkunaraðferðum hverju
sinni og enginn aðili virðist
heldur til, þar sem fískverk-
endur gætu aflað sér öruggra
upplýsinga.
Þannig væri hægt að halda
áfram og telja upp margt sem
miður fer í okkar aðalútflutn-
ingsatvinnuvegum. Ég vogamér
ekki að benda á möguleikana í
síldariðnaðinum hér, þó þeir
séu fyrir hendi, ekki bara að
mínu áliti, heldur líka að áliti
erlendra sérfræðinga á þessum
vettvangi. En dæmið frá Hafn-
arfirði, þar sem ný verksmiðja
var látin gefast upp, svo að
segja áður ■ en reksturinn hófst,
það dæmi spáir engu góðu um
ekilning íslenzkra pólitískusa
í valdastöðu á nauðsyn þess
að lyfta undir slíka nýja at-
vinnugrein. Og þetta geröist á
sama tíma og Norðmenn eru
að byggja nýjar verksmiðjur á
þessu sviði og starfrækja þær
með dýrara hráefni, heldur en
þó síttd hefði verið flutt ffá
Austfjörðum til Hafnarfjarðar.
Þetta dæmi sýnir að ínikið
mega þeir menn er úrslitum
réðu hér, taka sér fram, ef af
þeirra völdum eiga að koma
hér framfarir á atvinnusviðinu
sem mark er á takandi.
Smá ábending til Ás-
geirs Jakobssonar
1 framhaldsfrásögn Ásgeirs
Jakobssonar frá síldarmiðunum,
undir greinarheitinu „Hún er
inni“ í Morgunblaðinu 8. októ- <•>
ber s.l. þá er smá kJausa sem
á að gefa til kynna ásigkomu-
lag rússneskra reknetabáta sem
stunda síldveiðar á miðunum i
sumar. Þar segir meðal annars:
„Við myndum kalla mörg sí
þessum skipum, sem Rússar eru
með þama í norðurhöfum, al-
geran öskuhaugamat". Þessi á-
lyktun virðist dregin þegar höf-
undur sér einn morguninn
hvalbakslaust síldveiðiskip með
net og belgi á þilfari.
Mér er ekki kunnugt um
hvort Ásgeir Jakobsson ræður
yfir mikilli þekkingu á sviði
síldveiða með reknetum, en tel
það þó næsta ólíklegt. Mér
kom þessi ályktun Ásgeirs und-
arlega fyrir sjónir, eftir að hafa
lesið viðtal f Norska blaðinu
Fiskaren fyrir hálfu öðru ári
við Finn Devold, einn þekkt-
asta síldarfræðing Norðmanna.
Tilefni þessa viðtals var, að
Devold var nýkominn úr heim-
sókn frá rússneska reknetaflot-
anum, þar sem hann stundaði
veiðar á miðju hafi millli Nor-
egs og Islands. Finn Devold
sagði um þessar reknetaveiðar
Rússanna, að þær væru aðeins
mögulegar végna þess, að þessi
veiðiskip þeirra væm beinlínis
smíðuð með það fyrir augum
að geta tekið á sig öll vetrar-
veður á þessu hafsvæði. Hann
sagði að það væri ekki aðeins
styrkleiki skipanna sem væri
alveg frábær, heldur líka bygg-
ingarlagið sem gerði þessi skip
að sjóborgum.
Miíkið viröist nú bera á miUi i
þegar þessir tveir menn draga
sínar ályktanir. Annar telur
reknetaflota Rússanna frábær-
an að gæðum, en hinn telur
hann „öskuhaugamat“. Það er
heldur ekki úr ýegi að geta
þess hér, að í Noregi er Devold
talinn þekkja meira til rek-
netaveiða Rússanna heldur en
nokkur annar útlendingur,
enda er hann sagður gestur
Rússanna oft svo dögum sikiptir
um borð í þeirra veiðiflota sem
fylgir síldinni austur yfir hafið
að vetrinum.
Ekki get ég dæmt um styrk-
leika rússneskra reknetaskipa
af eigin raun, því að ég hef
ekki um borð í þau komið.
Hins vegar hef ég séð þessi
skip álengdar og minnti sú sjón
mig á hollenzk reknetaskip, því
þau eru flest með. þessu breiða
lagi, en það lag gefur gott
vinnupláss á þilfari, um leið og
það eykur sjóhæfni, en lik-
lega á kostnað ganghraðans.
Það, að þessi skip eru höfð
hvalbakslaus, það geta þeir
skilið, sem þekkja til síldveiða
með reknetum, því þá verður
hvalbakurinn til óþæginda þeg-
ar netin eru dregin.
VancJí vetrarsöltunar
á síld
Síldin hefur nú færzt nær
landinu og hefur verið hörku-
söltun að undanfömu á ýmsum
stöðum á Norður- og Austur-
landi. Er vonandi að framhald
verði á þessu, svo og að veður
hamli ekki veiðum. En þegar
veðrið fer að kólna, svo frost
vérður dag eftir dag, þá er
ýmsan vanda við að glíma á
sildarsöltunarstöðvum norðan
lands og austan. Það er ekki
bara sjálft söltunarstarfið sem
verður hdlzt undir þeim kring-
umstæðum að geta farið fram
innanhúss, heldur er þessi
vandi miklu víðtækari og eftir
því meiri sem síldin er stærri
og feitari. Það er á þessu sem
ég vil hér vekja sérstaka at-
hygli, ef það gæti orðið ein-
hverjum að liði. Væri hér um
að ræða magra síld eins og
norsku stórsíldina, þá væri
vandinn lítill, en þó telja salt-
endur þeirrar sfldar nauðsyn á
þvi að geta geymt tunnumar
í húsi eftir söltun.
Eins og reyndir srfldarsalt-
endur vita þá þarf að geyma
sildartunnumar við ákveðið
lofthitastig til þess að síldin
verkist vel og í mjög köldu
veðri gengur þessi verkun
miklu hægar, eða getur jafnvel
staðið í stað komist loftihitinn
niður fyrir ákveðdð mark. Verði
um vetrarsöltun að ræða hjá
okkur í ár á feitri síld, þá er
, rétt að hafa þetta í huga og
nota í því sambandi alla mögu-
leika sem fyrir hendi eru til
geymslu á síldartunnum í húsi.
Þá tel ég á því mikla nauð-
syn að efnafræðingur verði lát-
inn fylgjast vel með verkun síld-
arinnar, og þá gerður saman-
burður á verkun síldar sem
strax er látin út eftir söltun og
svo annarrar sem geymd væri
í húsi við æskileg skilyrði.
Þetta er þvi nauösynlegra nú
en áður, þar sem á s.l. ári
komu fram í dálitlu magni af
sfld, áður óþekktir gallar. Mér
vitanlega hafa rannsóknarstof-
ur hvorki hér eða erlendis get-
að ákveðið með neinni vissu,
hvar þessir gallar áttu upptök
sín, enda að sjálfsögðu mjög
erfitt að finna slíkt út eftir á.
Ég er síldaræta og reyni að
verða mér úti um sfld á hverju
ári. 1 fyrravetur varð ég var
við galla í mjög stórri og feitri
saltsíld, sem ég kannaðist ekki
við að hafa orðið var við áð-
ur. Sem leikmaður á þessu
sviði fór ég að velta þvi fjTir
mér, hver gæti verið orsök
gallans; það var engu líkara
en að verkun síldarinnar hefði
stöðvazt á ákveönum puinkti og
ekki farið af stað aftur og þó
var pækillinn sterkur sem síld-
in var tekin úr. Þar sem það
er svo nýtt í okkar sfldarverk-
unarsögu að salta feita og stóra
sfld langt frameftir hausti, eða
fram að jöhim, þá datt mér í
hug að orsakir gallans gætu
máske legið í því að hitastigið
í tunnunni hefði verið of lágt
um of langan tíma og af þeirri
ástæðu hefði verkun sfldarinn-
ar stöðvazt Við eigum ágæta
efnafræðinga og ég héld að nú
í haust væri skynsamlegt að
láta fram fara á þvi rannsókn
hvaða iágmarks skilyrði þurfa
að , vera fyrir hendi til að
tryggja örugga og góða verkun
á sfldinni.
[liJ.rlllHiíli
Einangrunargler
Húseigenduz — Byggingameistarav.
t
Útvegum tvöfalt elnangrunarqler með mjöfl stutt-
um fyrirvara. *
Sjáum um. isetningu og allskonar breytingar ð
gluggum Útvegum tvöfalt gler f lausafös os sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur t steyptum veggjum með
baúlreyndu gúmmíefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 5 11 39.