Þjóðviljinn - 10.01.1968, Blaðsíða 1
Miðvijnidagur 10. janúar 1968 — 33. árgangur
tölublað.
Ný}ung I skipasmiSum hér á landi:
Skipalyfta var tekin í
not í gær á Akranesi
í gærmorgun var skipalyfta notuð í fyrsta skipti
hér á landi hjá íslenzkri skipasmíðastöð við að
koma báti á þurrt tii viðgerðar.
Var það hjá Þorgeiri & Ellert h.f. á Akranesi
og var hún notuð við síldarskipið Signrborgu
SI 275.
Þjóðviljinn átti í gærdag við-
tal við Benedikt Guðmundsson,
verkfræðing hjá Þorgeiri & Ell-
ert h.f. á Akranesi, og kvað hann
skipalyftuna hafa dugað ágæt-
lega við að koma bátnum á
þurrt til viðgerðar.
Þetta er þriðja skipalyftan,
sem er tekin í notkun í Evrópu
og voru hinar tvær teknar í
notkun í sumar í írlandi og Belg-
íu. Þessar skipalyftur geta tekið
skip á land allt að fimm hundr-
uð tonn að stærð og er pallurinn
47 metrar á lengd og 12 metrar á
breidd. Er pallurinn drifinn
þvert og langsum um skipa-
smíðastöðina með átta rafmagns-
spilum og getur til dæmis lyft
bát í láréttri stöðu inn í sér-
stakt hús, sem skipasmíðastöðin
hefur til afnota við smíðar og
viðgerðir á bátum.
' Þá hefur pallurinn sérstaka
vinnupalla og eru þeir fljótir í
uppsetningu eftir þörfum. Það
er bandaríska fyrirtækið Pearl-
son Eng. & Co. á Miami í Flór-
ída sem framleiðir svona skipa-
lyftur og hafa þær verið teknar
í notkun í Bandaríkjunum og
Kanada.
Þegar í vor hófum við uppsetn-
ingu á skipalyftunni og var hún
reynd við sementspramma í sum-
ar, en nú 'er allur útbúnaður við
hana kominn í gagnið og varð
Sigurborg fyrsta skipið í skipa-
lyftuna hjá okkur.
Aðalkostir við þessa nýjung
er, að öll viðgerð fer fram í
láréttum plönum borið saman
við hallann í gömlu sleðunum.
Þá er lyftan hraðvirkari útbún-
aður við að flytja skipið til
þversum og langsum um skipa-
smíðastöðina og sparar mannafla
i stöðinni, sagði verkfræðingur-
inn að lokum.
Þormóður goði sendur út tH
viðgerðar í V-Þýikaiandi
■ Þrátt fyrir verkefnaskort hjá íslenzknm smiðjum eins
og Vélsmiðjunni Héðni, Stálsmiðjunni og Hamri hefur
verið ákveðið að senda togarann Þormóð goða til við-
gerðar í skipasmíðastöð í Vestur-Þýzkalandi.
Sýning bók-
merkja í Lands-
békasafni
Landsbókasafn íslands
verður 150 ára 28. ágúst
1968. Er ætlunin að minn-
ast þess með ýmsumhætti
og þá m.a. með nokkrum
sýhingum á afmælisárinu.
Hin fyrsta steriöur þessa
dagana í anddyri Safnhúss-
ins við Hverfisgötu, og er
það sýning íslenzkra bóka-
merkja. Sýnd eru aUs um
60 bókamerki.
Safnhúsið er opið alla
virka daga kl. 10—12, t
13—19 og 20—22 (nema /
laugardagskvöild). J
Öllum er frjálst að skoða t
sýninguna. 1
Meðfylgjandi mynd er af ?
bókmerki Sigfúsar Blöndals V
bókavarðar. t
lyBtmuuti'iJUú wmu a mru uti
Hver eru nýju atriðin?
Vinningsnúmerin
birt á morgun
★ Á morgun' birtum við
vinningsnúmerin í Happ-
drætti Þjóðviljans 1967
og er því síðasti skila-
dagurinn í dag.
★ Tekið verður á móti skil-
um á afagreiðslu Þjóð-
viljans, Skólavörðustíg 19,
sími 17500, til ki. 6 í dag
k>g á skrifstofunni í Tjam-
argötu 20, sími n51&, tii
kl. 7 í kvöld.
komu meó
magn skjala
Á mánudagskvöld komu tíl
landsins dönsku lögreglusérfræð-
ingarnir tveir, sem aðstoða munu
yfirvöld hér við lokarannsókn
faktúrumálsins, en eins og sagt
var frá hér í blaðinu á sunnu-
daginn hafa komið fram ný at-
riði í málinu, og komu dönsku
scrfræðingamir með gögn þarað
lútandi.
JÞessi viðbótaratriöi í málinu
komu fram við lokarannsókn á
máli forstjóra Hovedstadens
Möbelfabrik í Danmörku og
snerta viðskipti hans við Pál
Jónsson. Að þvi er Þórður
Björnsson yfirsakadómari sagði
biaðinu í gær komu Danirnir
hingað með talsvert mikið magn
af skjölum og var í gær byrjað
að kanna innihald þeirra hér.
Er erfitt að segja hvenær þeirri
könnun verður lokið, en íslenzki
endurskoðandinn í mélinu, Ragn-
ar Ölafsson hæstaréttarlögmaður,
þarf að vinna úr þessu.
Kvaðst yfirsakadómari ekki
geta skýrt frá því að svo komnu
máli hver þessi nýju atriði væru
Framhald á 7. sfðu.
Þormóður Goði er eign Bæj-
arútgerðar Reykjavíkur og þarf
togarinn að fara í skrokkviðgerð.
Höfðu botnplötur , togarans
skemmst í ís fyrir nokkru og er
nú liðinn frestur til þess að
bæta þetta sjótjón.
Togarinn fór í átta ára klössun
í sumar hér hjá Slippfélagi
Reykjavíkur og þar er ein braut,
sem getur tekið togarann í
svona viðgerð, en vegna vanbún-
aðar tekur viðgerðin lengri tíma
hér en til dæmis hjá skipasmíða-
stöðvum í Vestur-Þýzkalandi.
ImsssI mynd af Ærnasarðt var tekin í gær, en húsut er að stórum hluta reist fyrir happdrættisfé.
Þess má geta að þeir sem við húsið vinna kalla það ekki Árnagarð heldur Skinnastaði. - Ljósm A. K.
35. starfsár Happdrættis Háskóla íslands:
Hefur greitt alls nær 500
miljónir króna í vinninga
I Á þessu ári eru liðin 35 ár frá því sett voru lög um
Happdrætti Hóskóla íslands og er það langelzta happdrætti
sem hþr er starfandi. Er upphæð samanlagðra vinninga í
happdrættinu á þessu 35 ára tímabili nálega 500 miljónir
króna en umreiknað til núgildandi verðlags myndi vinn-
ingsupphæðin nálgast miljarðinn.
IÆRUM MEÐAN LIFUM
Frá þessu skýrði Ármann
Snævarr háskólarektor, formað-
ur happdrættisstjómar, í hófi að
Hótel Sögu í fyrrakyöld. Sagði
rektor að vinsældir happdrættis-
ins hefðu frá upphafi verið mjög
almennar, en þó aldrei meiri en
nú. Er HHÍ nú tvímælalaust út-
breiddastá og vinsælasta happ-
drætti landsins. Það býður líka
upp á meiri^ vinningsmöguleika
en önnur happdrætti, þar eð það
<1
I
I
I Sjónvarpslofinct
A.nnast uppwjinÍBgar r>g
! hréytirigar fyrjr Kéílavíkur
stöðina, Fljói afgreiðsja. —
UppJýstngar i aímum 3ÍJ62S
og 52070.
TUúX kVÍ •
Síðastljðinn sunnudag birt-
ist í Morgunblaðinu auglýsing
sú er hér fylgir mynd af frá
reykvískum s j ónvarpsvirk j a
og uppsetjara á sjónvarpsloft-
netum og býðst hann til þess
að lagfæra sjónvarpsloftnet
og útrvega útbúnað eftir þörf-
um svo að sjónvarpsnotendur
á höfuðborgarsvæðinu geti
náð hindrunarlaust banda-
ríska hérnámssjónvarpinu á
tæki sin.
Reykvískur sjónvarpsnot-
andi hringdi til okkar og
kvaðst hafa leitað eftir fyr-
irgreiðslu í báðum þeim síma-
númerum, sem upp eru gefin
í auglýsingunni. Voru á báð-
um stöðum liprir og þægileg-
Er Keflavíkursjónvarpið að ryðjast inn á íslenzk heimili á ný?
A að svíkja loíorSin um lokun þess?
ir kvenmenn fyrir svörum.
Fyrri síminn er heimasími
sjónvarpsvirkjans hér í
Reykjavík en síðara númerið
í auglýsingunni er fyrirtækja-
sími hjá sjónvarpssölu í Hafn-
arfirði.
Á báðum stöðum vari frá
því greint, að ekki vaéri unnt
að fá samband við sjónvarps-
virkjann sjálfan af því að
hann væri á þeytingi frá
morgni til kvölds að siima
óskum sjónvarpsnotenda um
lagfæringar og breytingar á
loftnetum — helzt vaeri að
hitta hann' í matartímum og
seirit á kvöldin.
Á báðum stöðum fengust
þær upplýsingar, að það
þyrfti oft ekki mikið að lag-
færa hjá sjónvarpsnotendum
til þess að Keflavíkurstöðin
næðist á tækin og þar sem
skilyrðin væru erfiðari var
boðið upp á stærstu gerð af
loftnetum á ríflega þúsund
krónur, magnara á átján
hundruð krónur og svo kost-
aði sjálf vinnan um átta
hundruð krónur.
Þyrfti að stilla loftnetin í
beina sjónlínu á Keflavík og
dyggði það víðast á háhýsum
og til dæmis á húsum á Skóla-
vörðuholti og á Landakotshæð
og fleiri hæðum í borginni —
annarsstaðar þyrfti viðameiri
útbúnað og kostnaðarmeiri.
Fólk horfði stundum á banda-
rísku sjónvarpsdagskrán a við
ill skiiyrði og væri þá titring-
ur á skerminum og sæjust
myndirnar ógreinilegar —
þráseta við svona skilyrði
eyðileggur sjónina í fólki —
þyrfti oft lítið til að lagfæra
slíkt.
önnur konan kvað hafa
verið mikið að gera í haust
hjá þegsum sjónvarpsvirkja
við að lagfæra sjónvarpsloft-
net til þess að auðvelda fólki
að ná í Keflavíkurstöðina og
sæist hún víða prýðilega hjá
'þessu fólki.
Þá hefði verið mikið að
gera við uppsetningu á sjón-
varpsloftnetum í desember, en
margir hefðu eignazt sjónvörp
skömmu fyrir gengisfellingu.
Nú hefur dregið frekar úr ,
— tók þó kipp við auglýsing-
una — og hefðu margir hringt
til þess að leita sér upplýs-
inga.
Samkvæmt ferli sjónvarps-
málsins hér á landi þyrfti
ekki að koma á óvart sú stað-
reynd, að hér væri bandaríska
hemámssjónvarpið komið í
hvert hús á nýjan leik, þó að
íslenzkir ráðamenn þættust
ekki vita um það, og hvað
líður þeim takmörkunum á
sendingum, er bandaríski her-
námsstjórinn talaði um fyrix
nokkrúm vikum í viðtali við
Þjóðviljann?
Það er spurning dagsins.
í
greiðir 70% af veltunni í vinn-
inga, og auk þess er það eina
happdrættið sem greiðir vinji-
ingana í peningum.
Rektor minnti á ,að með því
að kaupa miða í Happdrætti Há-
skóla fslands stuðla menn að
uppbyggingu báskólans og þá
uhí leið vísinda og mennta í
landinu. Fórust honum m.a. orð
á þessa leið:
„Okkar litla en vaxandi þjóð
krefst vaxandi háskóla. Nútíma
þjóðfélag krefst aukinnar sér-
menntunar og aukins vísinda-
starfs, jafnt á sviði raunvísinda
sem hugvísinda. Háskóli íslands
getur því aðeíns sinnt lilutverki
sínu að hann hafi nægilegt hús-
rými, og að hægt sé að búa hin-
ar ýmsu deildir nauðsynlegum
tækjum til kennslu og rann-
sókna. Öllum fslendingum er
kunnugt um, að Happdrætti Há-
skólans stendur undir byggingu
kennsluhúsnæðis, rannsóknar-
stofnana, tækjakaupa o.fl. Með
því að skipta við happdrættið
Framhald af 7. síðu.
Bálför Jóns
Magnússonar
gerð í gœr
Bálför Jóns Magnússonar
fréttastjóra Ríkisútvarpsins var
gerð frá Fossvogskirkju í gsar.
Séra Bjöm O. Björnsson flutti
ræðu, bæn og blessunarorð og
kastaði rekunum í kirkjunni, en
Guðmunáur Jónsson söng ein-
söng. Mikið fjöhnenni var við
athöfnma.