Þjóðviljinn - 10.01.1968, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 10.01.1968, Qupperneq 10
Umferðarskóli fyrír smábörn, 3ja-6 ára Maggi Jónsson tæknifræðingur Norræna húsið eins og það lítur út nú. Þessi mynd var tejcin úr gryfju í bókasafninu miðju, en þarna niðri verða geymdar bækur og Magnús Bergsteinsson trésmíða- stækkar þetta fyrirkomulag pláss bókasalsins að mun. meistari Vandaðasta hús landsins? ■ Margir dást að Norræna húsinu, sem risið er á Háskóla- lóðinni og er talsvert öðruvísi, a.m.k. 1 ytra útliti, en við eigum að venjast, bæði í stíl og þó einkum áferð, því í stað málningar, skeljasands eða annarrar ytri húðar sem hér tíðkast. er það lagt dökkbláum keramikflísum að of- an, en að neðan er múrsteinum hlaðið upp með veggjum og verða þeir síðar hvítmálaðir. þakið er úr kopar. ■ En húsið er ekki aðeins óven'julegt að ytra útliti, það er einnig óvenjulega vandað, — vandaðasta hús sem ég hef komið nálægt, sagði verkstjórinn, Magnús Bergsteins- son, þegar Þjóðviljamenn litu þar inn í gær. Eins og áður hefur kbmið fram í fréttum er arkitekt hússins finnskur, Alvar Alto prófessor, og hefur hann teiknað húsið að öllu leyti, bæði að utan og inn- an. Bar þeim saman inn það, Magnúsi Bergsteinssyni trésmíða- meistara mg aðalverkstjóra á staðnum og Magga Jónssyni tæknifræðingi og eftirlitsmanni með byggingunni, sem 'sýndu okkur húsið í gær, að það væri mjög óvenjuleg bygging, bæði að utan og innan, enda væri arki- tektinn jafnfrægur fyrir ytra útlit á byggingum sínum og inn- réttingar. t Ekki væri þó svo gott að út- skýra, sagði Maggi Jónsson, á hvem veg húsið væri frábrugð- j ið öðrum. — Að undanteknum keramik- flísunum utanhúss, eru notuð i sömu efni, en á annan hátt. En að útskýra það, ja, það væri eins og að eiga að útskýra á hvern hátt myndir eins lista-i manns eru öðruvísi en annars. Magnús tekur í sama streng og segir að byggingin útheimti mikla vinnu og sé mun vandaðri Tilraunalandslið valið i gær sem leika á við Pólverjana Landsliðsnefnd HSÍ valdi í gær tilraanalandsliðið • sem leikur gegn pólska liðinu Spojnia í Laugardalshöllirmi í kvöld, og er það þannig skipað: Birgir Finnbogason, FH Guðmundur Gunnarsson, Fram Örn Hallsteinsson, FH Geir Hallsteinsson, FH Guðjón Jónsson, Fram Gunnlaugur Hjálmarss., Fram Karl Jóhannsson, KR Stefán Sandholt, Val Ágúst Ögmundsson, Val Jón H. Magnússon, Vikingi Einar Magnússon, Víkingi. Fyrirliði er Guðjón Jónsson. Liðið er þannig nokkuð breytt frá því í leikjunum gegn Rúm- enum fyrr í vetur. Ingólfur Ósk- arsson meiddist í leiknum sl. laugardag, en markverðirnir, Þor- steinn og Logi, og Sigurður Ein- arsson munu ektki geta tekið þátt í keppnisferð landsliðsins til Þýzkalaiids og Rúmeníu í febrú- ar og koma því ekki til greina í lið landsliðsnefndar nú. í stað þessara fjögurra leikmanna koma þeir Ágúst, Gunhlaugur og mark- verðirnir Birgir og Guðmundur, sem báðir stóðu sig mjög vel í leikjum FH og Fram gegn Pólverjunum um helgina. Leikurinn hefst í Laugardals- höllipni í kvöld kl. 8,30, en kl. 7,45 hefst leikur milli tveggja liða sem unglingalandsíiðsnefnd hefur valið úr hópi þeirra sem þjálfað hafa fyrir Norðurlanda- mót unglinga sem fram fer í inarz. Ur forsal. (Myndirnar allar tók ljósm. Þjóðv. A. K.) en byggingar gerast hér almennt. — Ég hef mörg húsin byggt, segir hann, en aldrei neitt vand- aðra en þetta. Byggingin gengur samkvæmt áætlun og á að vera lokið fyrri hluta sumars, en alls vinna 15 manns við hana, og var m.a. ver- ið að smíða grindaloft í forsal í gær. Aðalinngangur hússins er í norðvesturhorninu og er þar stór forsalur með kúpulaga gluggum í lofti. Til vinstri er stór kaffi- tería, en til hægri herbergi fyr- ir Norræna félagið og fyrir lekt- ora. Til austurs snýr salur fyrir bókasafn með vinnuherbergjum og við hlið hans, svo til í hús- inu miðju, fyrirlestrarsalur, sem á að rúrna lf)0 manns í sæti og er þessi hluti kjami hússins. Það er yfir þessum söíum sem bláa upphækkunin er og gefur mun hærri lofthæð en annars- Framhald á 7. síðu. ■ Á fimmtudagirm hefur umferðarskólinn „Ungir veg- farendur" starfsemi sína. Skólinn er þréfaskóli fyrir böm undir skólaskyldualdri, frá 3—6 ára. ■ Þátttökueyðublöð munu liggja frammi í mjólkurbúð- um í Reykjavík og nágrenni á fimmtudag og föstudag. Umferðamefnd Reykjavíkur og lögreglan í Reykjavík hafa í sam- vinnu við Barnavinafélagið Sum- argjöf haft forgöngu um stofn- un skólans en. aðilar að rekstri hans em auk þeirra: Kópavogs- kaupstaður, Hafnarfjarðarkaup- staður, Garðahreppur, Seltjarn- ameshreppur og Mosfellssveitar- hreppur. Fræðslu- og upplýsinga- skrifstofa umferðarnefndar mun sjá um rekstur skólans og ráðn- ar hafa verið þrjár fóstmr sem m.a. semja verkefni fyrir nem- endur skólans. Skýrslur lögreglunnar sýna þá alvarlegu staðreynd að meiri- hluti þeirra bama, sem slasast í umferðinni em innan við skóla- skyldualdur, eða 6 ára og yngri. T.d. slösuðust 59 börn á s.l. ári í umferðinni í Reykjavík og þar af vom 36 böm 6 ára og yngri. Fyrirmyndir um starfsemi skól- ans era aðallega frá Noregi og Bretlandi en þar hafa verið starfandi umferðarklúbbar fyrir böm með mjög góðum árangri. Til þess að athuga hvaða fræðslu- efni hentar bezt var á s.l. ári gerð tilraun með starfsemi um- ferðarklúbba á tveimur stöðum í Reykjavfk: I Bústaðahverfi i samvinnu við sóknamefndina þar Og f leikskólanum Holtabórg i samvinnu við Bamavinafélagið Sumargjöf. Það er von þeirra aðila sem að stofnun umferðar- skólans standa að takast megi góð samvinna við foreldra barn- anna. í vetur munu þau böm sem gerast þáttakendur ,fá tvær til þrjár sendingar frá umferðar- skólanum auk þess sem þau fá smógjöf frá skólanum á afmæl- isdaginn. Umferðarnefnd Reykjavíkur- borgar og lögreglan í Reykjavik hafa nú ákveðið að stórauka fræðslu og upplýsingastarfsemi um umferðarmál. Hefur verið á- kveðið í samráði við H-nefnd- ina að þessir aðilar taki að sér ákveðna þætti í undirtoúningi fyrir H-daginn, breytingunni sjálfri og leiðbeinjngum eftir H- daginn. 23:21 merk Spoinu í vil Handknattlcikskeppni fór fram í gærkvöldi milli fBA og pólska liðsins Spojna í Iþróttaskemm- unni á Gleráreyrum og sáu leik- inn rífloga hálft þúsund. Keppnin hófst með mikilli sókn af hendi Pólverja og þegar fimmtán mínútur voru af leik höfðu Pólverjar sett sjö mörk en Akureyringar eitt mark. Nú var Akureyringum nóg boðið og hófu mikla gagnsókn og náði hún hápúnkti sþömmu fyrir hlé í hálfileik og höfðu Akureyringar þá sett fjórtón mörk gegn tfu mörkum af hendi Pólverja. í hálfleik stóðu leikar 14 mörk gegn tólf mörkum Ak- ureyringum í vil. Þegar tíu mínútur vom liðn- ar af seinni hálfleik náðu Pól- verjar yfirhöndinni á nýjan leik og lauk leiknum með 23 mörk- um gegn 21 marki Pólverjum í vil. Var þetta hörkuspennandi. Til þess að annast þessarfram- kvæmdir hefur verið sett á stofn fræðslu- og upplýsingaskrifStofa og verður Pétur Sveinbjamarson forstöðumaður hennar. „nýríkir" Skagfirð- ingar I fyrrakvöld efndi stjóm Happdrættis Háskóla Is- lands til kvöldverðarboðs að Hótel Sögu fyrir frétta- menn blaða, útvarps _ og sjónvarps og þar hittu fréttamennirnir þrjá „ný- ríka“ Skagfirðinga er feng- ið höfðu sameiginlega eina miljón og eitt hundrað þúsund krónur í vinning í happdrættinu í desember s.l. Áttu þeir félagamir sameiginilega 25 miða, röð, í happdrættinu og hlutu á einn þeirra miljón króna vinning og fengu aiuk þess tvo 50 þúsund króna auka- vinninga þar eð þeir áttu bæði næstu númer við það númer er hlaut stóra vinn- inginn. Þessir heppnu Skagfirð- ingar heita Valgarð Bjöms- son, Tómas Jónsson ogÞor- steinn Hjálmarsson. Em þeir allir búsettir á Hofs- ósi, þar sem Válgarð er héraðslæknir og er Þor- steinn jafnframt umboðs- maður H'Hl á staðnum. Komu konur þeirra Val- garðs og Þorsteins með þeim til Reykjavíkur til þess að sækja stóra vinn- inginn. Þeir félagar vomaðsjálf- sögðu mjög ánægðir með vinninginn og vom stað- ráðnir í að halda áfram að „spila“ í happdrættinu, þótt þess væri varla að vænta, að þeir fengju aftur svona stóran vinning. Válgarð kvað ástæðuna fyrir því, að þeir keyptu saman röð miða í Happ- drætti Háskóla íslands hafa 1 verið þá, að hann missti miða sem hann var búinn að eiga lengi i happdrætt- inu. Þegar hann var ískóla hafði hann keypt tvo miða í HHl og átti þá um árabil. Þegar hann lauk námi ög fluttist til Hofsóss, ætlaði hann að halda áfram að kaupa þessi sömu númer, en vegna örðugleika sem því vom samfara að endurnýja miöhna í Reykjavík, missti hann annað númerið, vár búið að selja það öðram, þegar greiðsla frá honum barst umboðsmanninum i pósti. Varð þetta til þess að Valgarð hætti viðhinnmið- ann líka og gekk í félag vjð þá Þorstein og Tómas um að kaupa röð, 25 sam- stæð númer í HHl. Miðvikudagur 10. janúar 1968 33. árgangur • 7. tölublað^

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.