Þjóðviljinn - 11.04.1968, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 11.04.1968, Blaðsíða 4
'4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 11. apríl 1968. Ötgefandi: Sameíningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Ivar H. Jónsson. (áb.), Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjórn. afgreiðsla. auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustíg 19 Sími 17500 (5 línur). — Askriftarverð kr. 120.00 á mánuði — Lausasöluverð krónur 7,00. Að þvo hendur sínar pyrír tveimur mánuðum fluttu þingmenn í báð- um deildum alþingis ályktunartillögur um styrj- öldina í Víetnam. í tillögunum var ríkisstjóm ís- lands falið að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir þeirri stefnu „að ríkisstjórn Bandaríkjanna stöðvi þegar loftárásir á Norður-Víetnam; að Þjóðfrelsis- hreyfingin í Suður-Víetnam verði viðurkenndur sjálfstæður aðili við samningagerðir; að stjórn Norður-Víetnams og Þjóðfrelsishreyfingin í Suð- ur-Víetnam sýni ótvíræðan vilja af sinni hálfu, þegar loftárásum linnir, að ganga til samninga og draga svo úr hernaðaraðgerðum að leiða megi til vopnahlés“. Þessi ályktun var sniðin eftir sam- þykkt sem hollenzka þingið gerði á síðasta ári, hún var í fullu samræmi við þær hugmyndir sem Ú Þant, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur beitt sér fyrir og raunar við afstöðu lang- flestra ríkisstjórna í ýeröldinni þegar undan eru skilin örfá bandarísk leppríki. jþegar tillagan kom fram á þingi brá svo ánægju- lega við að Emil Jónsson utanríkisráðherra tók henni á jákvæðan hátt og kvaðst vilja beita sér fyrir samstöðu þingmanna um hliðstæða ályktun. í umræðum sem síðan fóru fram imilli flokkanna kvaðst Bjarni Benediktsson einnig vilja standa að hliðstæðri tillögu, þótt honum væri það auðsjáan- lega takmarkað ánægjuefni. En þegar á átti að herða urðu allt í einu óvænt umskipti, og á þing- fundi í fyrradag gekk Bjarni Benediktsson opin- berlega á bak orða sinna og hafnaði allri samstöðu um slíka tillögugerð. Emil Jónsson sem áður var búinn að lýsa stuðningi við tillöguna í heyranda hljóði sat hins vegar gneypur og sagði ekki eitt einasta orð. Engin skýring hefur verið gefin á þess- um algeru hughvörfum nema almennt umtal um „breytt viðhorf“, enda þótt sú breyting sem orðið hefur síðustu vikurnar sé einmitt í því fólgin að unnið er að friðartilraunum í samræmi við efni tillögunnar. Enda getur það naumast dulizt að hin raunverulega ástæða hlýtur að vera sú að stjórn- arflokkarnir hafa fengið vísbendingu um það að slík samþykkt Alþingis íslendinga yrði illa séð hjá „voldugri vinaþjóð“. þeir ráðamenn sem komið ha'fa í veg fyrir að T lendingar legðu fram sinn skerf til friðarum- leitana í Víetnam fara eflaust í kirkju nú um dymb- ildagana. Þar munu þeir hlýða á söguna fornu um uppreisnarmanninn sem tekinn var höndum í und- irokuðu smáríki og krossfestur fyrir tilstilli erlends hernámsliðs og umboðamanna þess. Þeir munu hins vegar naumast skilja hið táknræna í frásögn- inni um það að byltingarmaðurinn hafi risið upp frá dauiðum og haldið baráttu sinni áfram. Einmitt þess vegna mun þeim vafalaust líða vel þega-r þeir halda heim úr kirkjum sínum, ekki síður en Pílat- usi er hann hafði þvegið hendur sínar. — m. □ Sem kunnugt er verður Norðurlandamót- ið í körfuknattleik háð hér í Reykjavík um páskana. Er þetta fyrsta norræna meistara- mótið í flokkaíþróttum sem háð er í Laugar- dalshöllinni; mótið hefst á laugardaginn kemur. Norðurlandamót í körfuknatt- leik hefst hér á laugardaginn ■ Hér að neðan eru upplýsingar um landslið Finna, sem skipað er leikmönnuim úr meistaraliðinu HONKA. Nr. Nafn Aldur Hæð Landsl. 4 Juhami Keto 21 árs 197 — 1 5 Jyrki Immonem 22 — 183 — 69 6 Pertti Tuomarla 28 — 185 — 0 7 Seppo Kuusela 34 — 183 — 73 8 Jorrna Pilkevaara 22 — 187 — 91 9 Lars Kairell 20 — 191 __ 43 10 Jouko Soveri 26 — 192 — 0 11 Kari Röinoholm 22 ~ 193 — 56 12 Matti Nenonen 33 — 194 — 15 13 Erkki Tarunen 23 — 193 — 0 14 K ari Lahti 21 — 202 — 46 15 Uolevi Mamninen 31 — 202 — 102 Meðaltal: Aldur 24,7 ára; hæð 191,4 cm. Alls 495 landsleikir. ■ Svíar hafa alltaf verið númer 2 í POLAR CUP, og hafa ætíð verið með góða köríukn attleiksmenn. Nr. Nafn og félag Aldur Hæð Landsl. 4 Anders Grönlund, Alviks BK 24 ára 183 cm 41 5 Kjeli Gunná, Alviks BK 21 — 188 — 8 6 Ebbe Edström, Alviks BK 23 — 189 — 1 7 Lars Lejdebom, Duvbo IK 23 — 190 — 17 8 Jamos Fiigedi, Alviks BK 20 — 193 — ■ '21 9 Lenmíart Dahllöf, Duvbo IK 23 — 193 — 21 10 Ulf Lindelöf (fyrirl.).IFK Háls.b. 23 — 192 — 43 11 Per-Olof Lefwerth, Solna IF 22 _ 197 — 38 12 Hams Albertsson, IFK Hálsingb. 27 — 200 — '43 13 Bo Sperlimg, IFK Hálsingb. 25 — 200 — 9 14 Jörgen Hansson IFK Hálsingb, 24 — 202 — 41 15 Áke Palm, KFUM Vásterás 21 — 203 — 16 Meðaltal: Aldur 23 ár; hæð 194,2 om. Alls 284 landsleikir. Þjálfari: Olli Virtanen. ■ Norðmenn hafa aðeins leikið 8 landsleiki í körfuknattleik, en hafa á að skipa í landsliði sínu reyndum leikmönnum og góðum. Nr. Nafn og félag Aldur Hæð Landsl. 7 Leif Bráten, OSI 27 ára 198 cm 8 8 Terje 'Strand, BBK 17 — 189 — o! 9 Sven Gundersen, ABK 19 — 183 — 6 10 Fred Clausen, ABK 21 — 176 — 4 11 Knut Mögedal. NTHI 23 — 188 — 0 12 Pál Vik, BBK 18 — 194 — 8 13 Hávar Poulsson, BBK 24 — 183 — 2 14 Petter Faye-Lund, BBK 21 — 180 — 8 15 Tore Vik, BBK 20 — 183 — 8 Terje Holm 27 — 199 — 8 Meðaltal: Aldur 21,2 ára; hæð 186 cm. Alls 44 lamdsleikir. Þjálfari: Jim O’Neal. ■ Danir senda sina beztu körfuknattleiksmenn, sem koma frá 6 félagsliðum. Nr. Nafn og félag Aldur Hæð Landsl. 4 Ernst Jen-sen, Falcon 24 ára 180 i cm 21 5 Flamming Wich, SISU 25 — 183 — 33 Birger FiaJa, Falcoií 23 — 180 — 13 7 Holger Nörby, Falcon 24 — 184 — 3 8 Jam Weber, EB 22 — 184 —■ 16 9 Torben Klug, EB 21 — 186 — 3 10. Jens Kvoming. Skovbakken 23 — 187 — 4 11 Egon Juul-Andersen, Skovbakken 23 — 190 — 22 12 Ib Petersen, Gladsexe 20 — 191 — 2 13 Alexander Scha-umann, Virum 22 — 192 — 13 14 Peter Freil, Virum 20 — 191 — 10 15 Arne Petersen, Gladsaxe 26 — 193 — 33 Meðaltal: Aldur 22,8 ára; hæð 186,7 cm. Alls 173 landsleiki. Þjálfari: Torben Starup-Hamsen. 0RÐSENDING Að margg'efnu tilefni viljum við undirritaðir sælgætisfamleiðendur, aðvara þá, sem kaupa eða selja söluturna eða verzlanir, sem verzla með okk- ar vörur. Faii sala fram án þess að áður hafi verið leitað samninga við okkur um greiðslu á útistand- andi skuldum, munum við ekki afgreiða neinar vörur dií hins nýja eiganda. Hlutaðeigendur eru beðnir að hafa þetta i huga nú og framvegis. : Reykjavík 15. jan. 1968. Sælgætisgerðin FREYJA Sælgætisgerðin OPAL Sælgætisgerðin VÍKINGUR Sælgætisgerðin MÓNA Sælgætisgerðin VALA EFNABLANDAN H.F. LINDA H.F. H.F. NÓI Varamenn: G. Klintberg, Bránnyrka BK 19 ára 192 cm 15 Uno Lahti, Duvbo IK 25 — 185 — 25 Kjell Ranmelid DUVBO IK 22 — 202 — 14 Þjálfari: Arne Jansson. 0RÐSENDING FRÁ KASSAGERÐ RÉYKJAVÍKUR H.F. Verksmiðjan verður lokuð vegna sumar- leyfa frá og með 8. júlí til 31. júlí n.k. Pantanir, sem eiga að afgreiðast fyrir sum- arleyfi verða að hafa borizt verksmiðjurini eigi síðar en 15. maí n.k. KASSAGERÐ REYKJAVÍKUR H.F. Kleppsvegi 33, sími 38383. Skolphreinsun Losum stíflur úr niðurfallsrörum í Reykjavik og nágrenni. — Niðursetning á brunnum. — Vanir menn. — .Sótthreinsum að verki loknu. SÍMI: 23146. Kennaranámskeii Áformað er að í sumar verði efnt til kennaranám- skeiðs í smelti (emaile). Kennari á námskeiðinu verður Alrik Myrhed, frá Stokkhólmi. Hann er kennari og gullsmi,ður, auk þess sem hann hefur menntað sig sérsjjaklega í smelti. Námskeiðið verður haldið á vegum fræðslumála- stjórnar og Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur. Hefst það væntanlega 15. júlí og stendur í eina' viku. — Nánari upplýsingar veitir Bjarni Óláfsson á Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.