Þjóðviljinn - 24.04.1968, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.04.1968, Blaðsíða 4
 4 StoA — E>JÓÐVm®NiN — Mádwfeffláagwr 3A. aprffl 1968. CTtgeíandi: Sameiningarflokkux alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: ívar H. Jónsson. <áb.). Magnús Kjartansson. Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. | Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann Ritstjóm, aígreiðsla. auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Sími 17500 (5 línur). — Askriftarverð kr. 120.00 á mánuði. — Lausasöluverð króntir 7,00. Gert út á alúmín og kísilgúr próðlegt væri að fletta Alþýðublaðinu og Morg- unblaðinu nokkru fyrir kosningar í fyrra og rifja upp áhuga stjómarflokkanna á endurnýjun togaraflotans og öðrum ráðstöfunum til eflingar þorskveiðum íslendinga. Þegar nokkrar vikur voru eftir af síðasta þinginu fyrir kosningar var eins og stjórnarflokkaþingmenn vöknuðu upp við vondan' draum. Þeir tóku að ryðja inn á þingið málum um sjávarútveginn, að sjálfsögðu ekki til þess að þau yrðu samþykkt og eitthvað gert, held- ur til þess eins að veifa þeim í kosningaslagnum. ’ Fyrir nokkrum vikum, þegar þessir sömu stjórn- arflokkar voru að drepa nýjasta frumvarp Alþýðu- bandalagsmanna um kaup á skuttogurum á þann kurteisa hátt að vísa því til ríkisstjómarinnar, minnti Gils Guðmundsson á þetta fjaðrafok fyr- kosningamar. S j ávarútvegsmálaráðherrann ír Eggert G. Þorsteinsson lýsti yfir hátíðlega á AI- þipgi þeirri stórmannlegu ætlun ríkisstjórnarinn- ar að taka á leigu einn skuttogara til þess að ís- lendíngar gætu öðlazt reynslu í meðferð slíkra veiðiskipa. Seinna koni í ljós, sagði"ráðherrann, að hvergi í heiminum tókst ríkisstjóm íslands að fá leigt slíkt skip! Nokkru síðar birti svo sami ráð- herra nýjar yfirlýsingar um ætlun ríkisstjórnar- innar að afla Íslendingum skuttogara og fékk samþykktar nauðsynlegar heimildir á Alþingi. Þegar Gils Guðimundsson spurði um framkvæmd- irnar á dögunum- kom í ljós í svari ráðherra að nefnd „valinkunnra“ virðingarmanna stjómar- flokkanna hefur mánúðum saman hugleitt vanda- málið og komið framkvæmdum á þann rekspöl að búið mun ,að láta teikna hálfan annan skut- togara. í þinglokin kom svo fjármálaráðherra og skýrði frá, að ríkisstjómin hefði áætlað allmik- inn samdrátt í fjárfestingu í sjávarútvegi árið 1968, og, hafði um það orð sem vart verða skilin öðm vísi en stjómin teldi ekki bíða brýn verk- efni á því sviði, og lá þá nærri að álykta, að ekki yrðu unnin afrek í eflingu togaraflotans á þessu ári. J vanrækslunni á endumýjun togaraflotans kem- ur, skýrt fraim vantrú ráðherranna og stjómar- flokkanna á íslenzkum atvinnuvegum. Þeim hef- ur þótt skemmtilegra og hefðarlegra að dansa kringum útlenda alúmínkálfa og kísilgúrkálfa en huga að togurum handa íslenzkum sjómönnum og fiskiðnaði. Og nú em þeir teknir að viðra sig upp við olíuhringa og önnur slík höfuðvígi alþjóðlegs auðvalds og arðráns, ef ske kynni að takast mætti að selja þeim eitthvað af auðlindum íslands og vinnuafli. Vanrækslan á eflingu togaraflotans heilan áratug í valdatíma þessara stjómarflokka er kannski engin tilviljun. Þeir virðast telja miklu vænlegra,_ stjómarflokkamir og ráðherramir, að gera út á alúmín og kísilgúr en þorsk og karfa. — s. Skipulagsuppdráttur a£ nágrenni kísilgúrverks miðjunnar við Mývatn, en miklar deilur og blaðaskrif haía orðið um vegarlagninguna Þar. ) Vérkefni skipuíagsstjórnar og starfshættir hennar Þjóðviljanum hefur borizt svofelld skýrsla um störf Skipulagsstjómiar ri'kisins, sem starfiair skv. lögum frá 1964: Skipulagsstjórn rikisins starf- ar skv. skipulagslögum nr. 19/ 1964, og tók hún við störfum af Skipulagsnefn d ríkisins, -sém sett Itafði verið á fót, skv á- kvæðum hinrna fyrri skipulags- laga nr. 55/1921. Verkefni skipu- lagsnefndar Skipulagsstjóm starfar und- ir yfirstjóm félagsmálaráðu- neytisins. í»að er hlutverk hennar að ganga frá skipulags- uppdráttum, er berast til stað- festingar, eiga frumkvæði að skipulagninigu og endurskipu- lagningu, þar sem hún telur þess þörf, vera opinberum að- ilum til ráð'Uneytis um 'allt, sem skipulagsmál varðar og fara áð.öðru leyti með stjóm skipu- lagsmála undir yfirstjóm ráðu- neytisdns eins og áður seigir. Starfssvið skipulagssitjámar nær til allra skipulagsskyldra staða, þ.e. allra kaupstaða, kauptúna og þorpa, þar sem búa 100 íbúar eða fleiri, en auk þess má úrskupða þéttbýl- issvæði skipulagsskyld, þótt þar búi færri en 100 íbúar,’ t.d. skólastaði og slíka staði. Alls eru nú 90 skipulagsskylcjir stað- ir á landinu. SkipulagsSkylda felur það í sér, að á hlutaðeigandi stað skulu allar byggingar reistar samkvæmt fyrirfram gerðu skipulagi og í samræmi við á- kvæði byggingarsamþykktar. Byggingamefndir eiga að sjá um, að þessa sé gaHt eða hreppsnefndir, ef ekki starfar í sveitarfélaginu sórstök bygig- • ingamefnd. Tm INNHEIMTA L Ö0FB&Í)/*S TðHF Mevahlið 48. — S. 23970 og 24579. í skipulagslögunum er að finna megin.reglur, sém hafa skal við gerð skipulags, en nán- ari reglur eru aftur^á móti í reglUigerð um skipulagsáætlan- ir £rá 1966, sem samin var á vegum skipulagsstjóm'ar, en staðfest af félagsmálaráðherra. Nánar um verkefni skipulagsstjórnar Eins og þegar er fram kom- ið eru störf skipulagsstjómar í aðalatriðum þríþætt: í fyrsta lagi að eiga farum- kvæði að skipulagningu og end- uirskipulaigningu, þar sem hún telur þess þörf. í samræmi við þessi ákvæði hefur skipulags- stjórn beitt sér fyrir mælingu og kortagerð, sem , er óhjá- kvæmileg unddrstaða við gerð skipula,gs. Á starfstíma skipu- lagsstjóínar hefur verið unnið að gerð og endurskoðun skipu- lags víða um land, en töluvert takmarkað er, hvað hægt er að gera bæði vegna skorts á sór- menntuðum mönnum til mæl- inga og beinnar skipulags- vinnu. í öðm lagi er það verkefni skipulagsstjómar að ganga frá skipulagstillögum er berast til®' staðfestinigar eftir að þær hafa hlotið þá meðferð, sem áskilin er í lögum. Merkasti áfanginn, sem náð- ist á siðastliðnu ári er vaía- laust staðfesting á aðalskipu- lagi Reykjavíkur. Er það án efa mesta átak, sem gert befur ver- ið í skipulagsmálum landsins. Borgaryfirvöld höfðu forustu í þessu máli, en að þvi vann íjöldi sérfræðinga erlendra og inrilendira. Fór sú vinna fram í náinni samvinnu við skipu- lagsstjómina. Mun óhætt að fullyrða, að auk hins beina árangurs af því að fá slíkt skipulag af höfuðborginni hafi óbeinn árangur verið mjög mikill, þar sem fjöldi mir-ima kynntist af eigin rann nýtízku vinnubrögðum við gerð skipu- lags. Af öðru skipulagi, sem geng- ið var frá til staðfestingar á sl. ári má, nefna skipulag að miðbæ Hafnarfjarðar, skipulag Þykkvabæjar og skipulag við Reykjahlíð í Skútustaðahreppi. Unnið hefur verið að gerð og endurskoðun skipulags víða um land. Má t.d. nefna, að aðal- skipulag Seltjamameshrepps er tilbúið til staðfestingar af hálfu skipulagsstjómar, en málið hef- ur tafizt vegna þess að sam- komulag hefur ekki náðst við hreppsnefnd um eitt atriði skipulagsins. í þriðja lagi hefur skipulags- stjóm fjallað um ýmisleg skipu- lags- og byggimgarmál, sem þurft hefur að ráða fram úr, annað hvort vegma þess, að byggingamefndir hafa óskað á- lits um þau sérstaklega eða þurft hefur sérstaks famþykk- is, þar sem fullmægjandi skipu- lag hefur ekki vetrið fyrir hendi. Þá lætiur skipulagsstjóm opinberum aðilum iðulega í té umsagnir um sitthvað, sem skipulag varðar. Af öðrp má nefna það, að frumvarp til byggimgarlaga, sem nú liggur fyrir Alþingi, var samið á veg- um hennar. Kunnasta málið Ekki er vafi á því, að það mál, sem einna mesta afhygU hefiír vakið þeirra mála, sem skipulagsstjómin hefur fjallað um, er það ágreimingsmál, sém reis á s.l. ári um lagningu vegiar nálæ'gt Reykjahlíð í Skútustaðahreppi. Er ástæðu- lausit að rekja það mál, þar sem það mun flestum í fersku minni. Skipulagsstjómin telur mjög miður farið, að slíkur óigreindmgur varð og hefur ósk- að þess sérstaklega, að þessir aðilar komi á þamnig sam- starfi að til slíks þurfi ekki að koma aftur. Starfsliættir y Skipuilaigsistjóimin kemur saman a.m.k. tvisvax í itiián- uði' og hefur frá stofiiun háld- ið 125 fundi og tekið þar fyr- ir 609 málefni. Hér er' fyxst og fremst um að ræða málefni frá sveit- arstjórwum, þ.e. bæjarstjóm- um og hreppsstjómum, um hvaðeina varðandi skipulags- mál. Skipulagsstjóimin toefur átt fjöldia viðræðufunda með fulltrúium sveitarstjóma og fairið í skoðunarferðir viða um land, t.d. um hluta .Noirð- urlands á síðastliðnu ári. Samkvæmt sérstö'ku sam- komuiagi hafa Reykjavik ag Kópavogur fengið meðferð skipulags síns í eigin hendur umdir yfirstjóm skipulags- stjómar. Aðrir skipulagsskyld- ir aðilar, sem slíks óska, eiga þess einnig kost, enda hafi þeir á að skipa nægileguni sérmenmtuðum starfskröftum. Vandamál sem við er að eiga Vandamál, sem við er að eiga í skipulagsmálum em mi'kil og margvísleg fyrir ut- an þann vandia, sem mestur er að gera gott og bagkvæmt skipulag, er fullnægi kröfum tímans. Til slíks þarf fynst og fremst bæði nægan kost sér- menntaðra mannta og mikið fé. Skorfur á sérmenntuðum mönmnm hiefur mjög háð öllu skipuliagsstarfi, bæði til mæl- in:ga og eiginlegrar skipulags- vínnu. Fjárveitingar hafa ver- ið takmarkaðar -og skilningur á mikilvægi skipulagsstarfs- ins hefur verið mjög lítill hjá öllum þorra manna. Víða hefur það orðið tíl mikilla trafala.' að sveitarfé- lög ei'ga ekki land til útfærslu bygigðar. Úrræði til bóta Skipulagsstjóm telur nauð- synlegt, að auknu fjármagni sé veitt tíl skipulagsmála. Að visu blæs ekki byrlega nú að því leyti, en bent hefur verið á, einkum af Sambandi ís- lenzkra sveitarfélaga, að skipulagsgjald það, sem upp var tekið á sínum tíma, var rökstutt með því að það ætti að gamga til skipulagsmiáila- Árið 1956—1965 voru inn- heimt skipulagsgjöld tæplega 21 miljón króna, en til skipu- lagsmála gengu tæplega 14,5 milj. Af þessum tekjustofni skipulagsins hafa því um 6,5 milj. runnið til anmairra þarfa rí'kissjóðs á þessum tíma. Tel- B'ramihald á 7. síðu. NYK0MID Ijósar gallabuxur nr. 4—18 á sérstaklega góðu verði. Ó. L. Laugavegi Sími 20141. Terry/enebuxar og gallabuxur í úrvali. Ó. L. Laugavegi 71 Sími 20141.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.