Þjóðviljinn - 01.05.1968, Blaðsíða 16
Dýrasta vegaframkvœmd á Islandi:
Byrjað verður á framkvæmdunum við
hraðbrautina um Kópavog í júní n. k.
FyiGíSXJAL %R / %\ .. V\
'Biili
7 ^■‘<14,, ~ ' ‘ l"1
vííi&fiilöí'ít 'i,( V- $■■:'. V L’ tl L"::,
f
> ■ lif§§l§l
'
ÍliiMP'-í :i":
; -
QG tV)
0:G£AH£S
7
■ LJ
LU
Ur o Q □ /
\\ j
\ i 'v/ N
■ 1 c>
f:; /í//
/LL//
/ / /' /#
/ i a \,to
/A 'Jfœh'i
r ' ,,i
!■ ■
HAFNA &FJA ££>A& VEGUR.
KOPAVOGSL ANÖl
1 í \ tTA .
AFÁNGAR 1 06 W f. Aooc
sVV-X Z A/a/Vfi?/
i \ ■ , . :!r, V ,
, mm. ' jhp
■ililiSillli*
Dómur kveðinn upp í Ásmundarmálinu:
Skipverjar hlutu 3-4 mánaSa
fangelsi og 950 jtús. kr. sekt
■ í gær var kveðinn upp í sakadómi Reykjavíkur dómur
i „Ásmundarmálinu“ svonefnda. Skipstjórinn á Ásmundi
var dæmdur í 4 mánaða fangelsi og skipverjamir allir
fjórir f 3 mánaða fangelsi hver. Þá var hver skipsmanna
dæmdur í 950 þús. kr. sekt og hið smyglaða áfengi gert
upptækt til ríkissjóðs en það var að verðmæti 5,2 milj. kr.
Hér fer á eítir fréttatdikynn-
ing sakadóms ufn dóminn:
I dag var kveðinn upp í saka-
dómd Reykjavíkur, dómur í máli.
6em ákæruvaldið höfðaði vegna
ólöglegs innflutnings á .áfengi
frá Belgiu 19. október s.l. með
m/b Ásmundi GK-30.
Málið var höfðað gegn skips-
höfn bátsins þeim Harry Steins-
syni, skipstjóra, Holtavegi 54,
Kópavogi, Halldóri Sigurjóni
Sveinssyni. stýrimanni, Háaleit-
isbraut 30, Reykjavik, Guðjóni
Svavari Sigurjónssyni, Álfhóls-
vegi K Kópavogi, Sigurði Lyng-
berg Magnússyni, vélstjóra,
Stóragerði 3, Reyk.iavík og
Kristjáni Norman Óskarssyni,
Fálkagötu 28, Reykjavík.
Voru ákærðu taldir sannir að
sök um að hafa flutt ölöglega
með bátnum hingað til lands uim
11 þúsund litra af genever, sem
ætlaðir voru til sölu og nokk-
urt magn af öðru áfengi, haft
meðferðis til Belgíu kr. 440 þús-
und í ísienzkum peningum, sem
þeir notuðu til greiðsilu áfeng-
isins, breytt nafni m/b Ásmund-
ar i fenðinni og notað fyrra
nafn hans, Þorleifur Röignvalds-
son, og loks er sannað, að einn
ákærðu hafði selt 48 lítra af
genever eftir komuna hingað til
lands.
Áfengi þetta kveða þeir Jó-
hannes Petrus Seeuwen, þáver-
andi ræðismann íslands í Rott-
erdam og umboðsmann Jökla h.f.
þar í borg hafa útvegað sér til
kaups.
Ákærði Harry hlaut 4 mánaða
fangelsi, en hinir ákærðu fang-
elsi í 3 mánuði. I>á var hver
ákærðu dæmdur í 950 þúsumd
króna sekt og áfengið gert upp-
taekt til ríkissjóðs, en það var
samtals að verðmæti um kr.
5.200.000,00 mdðað við útsöluverð
áfengisverzlunar ríkisins 12. októ-
ber síðastliðinm.
Þá var málið höfðað gegn
mamni, búsettum hér í borg, fyr-
ir að taka nokkum hluta áfeng-
isífarmsins til geymslu, án þess
að vera viðriðinm brotið að öðm
leyti. Var hann dæmdur í 10
þúsund króna sekt.
Loks var af ákæruvaldsins
hálfu gerð krafa um það, að
m/b Ásmumdur yrði gerður upp-
tækur til rikiesjóðs, skv. 33. gr.
áfengislaga, en þa.r segir, að
flytji skip hingað til lands á-
fengi, svo að telja megi það
veruTegan hluta af farmi þess,
skuli það gert upptækt með
dómi. Svo var farið um m/b
Ásmund, farmur hans var svo
til eingöngu áfengi. Var ta/Tið
skylt samkvæmt lagaákvasði
þessu, að gera hann upptækan
tll ríkissjóðs, enda þótt eigandi
hans ætti ékki sðk á brotinu.
Gunmlauigur . Briem, sakadóm-
ari, kvað upp dóm í máli þessu.
■ Framkvæmdir við gerð
hins nýja Hafnarfjarðarveg-
ar um Kópavog hefjast í
júní n.k., og voru útboðs-
gögn að 1. hluta verksins
áfhent hjá bæjarverkfræð-
ingi í Kópavogi í gær. Heild-
arkostnaður er áætlaður um
120 milj. kr. en hér er um
að ræða 1640 m vegarkafla
yfir Digranesháls, svo að
kostnaður á hvem metra er
yfir 73 þús. kr.
AX þessu tilefni boðaði bæjar-
stjóm Kópavo^s blaðamenn á
sinn fund og þar kynnti Sigurð-
ur Grétar Guðmundsson form.
byggimgamefndar þessar fyrir-
huguðu framkvæmdir, en Stef-
án Ólafsson verkfr. skýrði ein-
stök atriði í áætlunum um fram-
kvæimd verksins.
Umferð um Hafnarfjarðarveg
á þessum kafla er nú um 21
þús. þílar á sólarhring og hefur
hún aukizt um 10% á ári að
undamfömu, en áætluð umferð
þegar verkinu lýkur er 54 þús.
bílar á sólarhring. Miðað við 10
umferðarstundir á dag eru það
5.400 bílar á klst., þ.e. 90 bílar
á mínútu. Gert er ráð fyrir að
bilar aki með 80 km hraða á
klst. þar á hraðbráutinni.
Undirbúningur að þvi verki
sem nú er að hefjast hefur stað-
ið yfir í langan tíma, en' árið
1965 skipaði samgöngumálaráð-
herra 6 manna nefnd til að at-
hii.ga þær tillögur sem fyrir
liggja um Hafnarfjarðarveg frá
Fossvogslæk að Kópavogslæk og
gera tillögur um hagkvæmustu
lausn málsins. Með nefndinni
störfuðu verkfræðingar. Nefnd-
in skilaði áliti í mai 1966 og var
hún samþykkt í bæjarstjóm
Kópavogs, en áætlaður kostn-
aður var þá 70 milj. kr., hönn-
un verksins var falin Verkfræði-
skrifstofu Stefáns Ólafssonar.
í apríl 1967 kaus svo bæjar-
stjóm Kópavogs nefnd til að siá
um undirbúning og framkvæmd-
ir í umboði bæjarstjómar, og
var Sigurður Grétar Guðmunds-
son form. nefndarinnar, en bæj-
arverkfræðingur hefur frá upp-
hafi fylgst með undirbúningi
verksins. Gert var ráð fyrir að
hefja verkið 1966 og ljúka því
1969. Hönnun og annar undir-
búningur reyndist þó meira og
tímafrekara verk en gert var
ráð fyrir,-
Undirbúningsframkvæmdir hóf-
ust í fyrrasumar með lagningu
bráðabirgðavegar á miðbæjar-
svæði Kópavogs og undirbygg-
imgu tveggja bæjargatna í
Kópavogi og verða þær látnar
gegna hlutverki þjóðvegarins
eftir að umferð verður stöðv-
uð um núverandi Hafnarfjarð-
arveg vegna þessara fram-
kvæmda.
Síðan í nóvember s.l. hafa
verkfræðingamir Guðmundur
Magnússon og Theódór Ámason
unnið með Stefáni að hönnun
verksins, og hafa þeir haft not
af reikniheila Háskólans við
þetta verkefni.
Kostnaður reyndist mun meiri
Framíhald á 13. síðu.
Miövikudagur 1. mai 1968 — 33. árgan.gulr — 86. tölublað. \
Eingöngu verk Bachs
á sinfóníutónleikum
Stjórnandi á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar á morg-
un verður Kurt Thomas, kór-
stjóri og umsjónarmaður Tón-
listarakademiunnar í Lúbeck. Á
efnisskránni verða eingöngu
verk eftir Bach. Guðmundur
Jónsson syngur einsöng með
hljómsveitinni og eru nú liðin
25 ár síðan hann söng fyrst með
Sinfóníuhljómsveitinni.
Kurt Thomas var eitt sinn
Musiið kaffi-
söiuna í dag!
Þeir mörgu, seim leið eiga uim
miðborgiina í dag og taka þátt í
kröfugöngu og útifundi, eru
minntir á að flrá kl. 3 síðdegis
verður kaffisala í Tjamargötu 20
á vegum Kvenfélags sósíalista til
ágóða fyrir Carolínu-sjóð. Með
kaffinu eru bomar fram kökur
og brauð, allt óstammtað eins
og hver getur í siig látið og um
gæðin þarf ekki að ræða. Mjólk
óg gosdrykkir eru að sjálfsögðu
á boðstóluim fyrir yn.gri kyn-
slóðirta.
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Að svipta sig
klæðum á
Lækjartorgi
Nú opnar Jóhannes Geir
í dag sýningu i Unuhúsd.
Þar sýndr hann einar 23
myndir, málaðar á nokkr-
um árum, menn kannast
við sum viðfanigsefnin því
Jóhannes segir ekki svo
gjama ski'lið við það sem
hann hefur fengið mætur
á: hér er til dæmis mögn-
uð jarðarför á Króknum og
eldlegur prédikari yfir
dauðum sálum á svipuðum
slóðum', manni finnast þær
í senn gamlar myndir og
nýjar.
Já, Jóhannes Geir játar
það sjálfur að hann hafi
gaman af því að gh'ma aft-
úr og aftur við sama mót-
íf, finnst seint alveg frá
því gengið. Hann vill til að
mynda gera stærri mynd
og um leið aðra mynd af
jarðarförinni. Og hann ját-
ar líka að ættjörð hans á
Krðknum spili í sér fjör-
lega og kannski erí það
rétt hjá Steingrími Sigurðs-
syni að þetta sé allt úr
Skagafirðinum, það sé sama
hvar ég beri niður.
Hér er ekkert afslrakt,
ijnei, ekki svo að skilja að
það sé nokkur grundvallar-
munur á afstrakt málverki
og fígúratífu, en ég gæti
sjálfur ekki hugsað mér að
tjá mig á þann hátt, fjar-
lægist þau svið fremur en
hitt. Það kemur líka edtt
til: þessi tilhnciging til að
koma frásögn inn í mynd-
ina.
En það er harla langur
vegur frá þeim skissum
sem ég geri t.d. úti í nátt-
úrunmi og til þessara mynda
og margt getur komið fyr-
ir á skemmri leið. Og þess-
ár skissur læt ég yfirleitt
aldrei af hendi, nema ég
geti ]>á vitað aö ég geti
gengið að þeim síðar. Það
getur liðdð langur tími —
en állt i einu finn ég þar
eitthvað sem getur komið
mér að góðum notum í
mynd. Þá getur farið svo
að ég taki tæknina í mína
þjónustu, geri • lffskugga-
mynd af sldssu og varpi
henni á léreftið, til athug-
unar eða stækkunar bein-
línis.
— Það er rétt, eg hefi
sjaldan sýnt. Eina litla sýn-
ingu hafði ég á Freyjugöt-
unni og aðra pastelsýningu
1957, annars hef ég sýnt
á siamsýningum. Mér er
reyndar meinilla . við að
sýna, vildi helzt ekki vita
af því sjálfur, þetta er eins
og að fara úr öllum fötum
á Lækjartorgi ...
Sýning Jóhannesar er op-
in ld. 14-22 til tólfta maí;
flestar myndirnar eru til
sölu.
Kurt Thomas
söngstjóri við Tómasarkirkjuna
í Leipzig en svo sem kunnugt
er gegndi Bach sjálfur þeirri
stöðu á sínum tíma. Thomas
fæddist í Þýzkalandi 1904 en hóf
starfsferil sinn sem tónfræði-
kennari við Tónlistarskólann í
Leipzig og stjómandi Kirkju-
somigskólans þar árið 1925. Síð-
ar varð hann prófessor við Tón-
listarháskólann í Berlín, allt
fram að stríðsárum. Eftir stríð-
ið starfaði hann í Detmold og
Frankfurt. Á árunum 1957 til
1960 skipaði hann stöðu söng-
stjóra við Tómasarkirkjuna í
Leipzig. -
Nú er Kurt Thomas kórstjóri
og umsjónarmaður Tónlistaraka-
demíunnar í Lúbeck. Eftir hann
Uggja tónsmíðar af ýmsu tagi,
en þekktastar eru messa fyrir
sópran og kór og Markúsar-
passía. Kennslubók hans í þrem-
ur bindum um kórstjóm hefur
verið grundvallaratriði í þeirri
grein í þrjá áratugi.
Á efnisskrá tónleikanna á
morgun verða sem fyrr segir
verk- eftir Bach: Svíta nr. 1 í
C-dúr, Kantata nr. 56 og 82 og
loks fjórði Brandenborgarkons-
ertinn.
Ólrúlega sjaldan hefur verið
hægt að koma svítum Bachs og
Brandenborgarkonsertunum sex
á framfæri hérlendis. Sömuleið-
is eru kantötur Bachs nær ó-
þekktar í tónleikasölum eða
kirkjuih hér, en kirkjukantötur
Bachs voru töluvert á þriðja
hundrað talsins. Kantötumar
tvær sem nú verða fluttar á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar eru báðar einsön.gskantötur
og syngur Guðmundur Jónsson
báðar kantötumar. Hann hefur
ekki sungið með hljómsveitinni
síðan í haust er hann frum-
flutti nýtt íslenzkt verk.
Kröfugöngur og
handfökur í USA
*
NEWYORK 29/4 — Um helgina
var efnt til mótmælaaðgerða í
ýmsum bandarískiim borgum
gegn striðinu í Vietnam og kyn-
þáttamisrétti og urðu þær til
þess að 160 marnns voru hand-
teknir í New York og til átaka
við lögreglu kom í Chicago.
I New York sö.finuðust um 100
]>ús. manns saanan til fundar í
Cergral Pa-rk, en þar hélt ekkja
hins myrta blökkumanmaleiðtoga
Martms Luthers Kings, Coretta
King, ræðu. I new Ym'k urðu
handtökur flestar í Greenwicb
Village, en þar var farið í kröfú-
göngu gegn Vietnamstríðinu. 1
Chicago réðst lögreglan á 5000
manms á fumdi / Grant Pa.rk,
meira en 50 voru handtekmir og
um tylft særðist. 1 San Frans-
isco tólku um 20 þúsund ma.nns
þátt í mótmælagöngu gegn Viet-
1 naimsitríðinu.
i
«