Þjóðviljinn - 26.11.1968, Síða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Þriðj'udagur 26. móvember 1968.
Ctgefandi: SameimngarfloKRui alþýöu — Sósialistafloldcurinn.
Ritstjórar: Ivax H. Jónsson (áb), Magnús Kjartansson.
Sigurðui Guðmundsson.
F'réttaritstjóri: Siguröur V Fridþjófsson.
Auglýsingastj.: ólafui Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarveirð kr. 130,00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 8,00.
Enginn de Gaufíe
^róðursmenn og málgögn stjórnarflokkanna
sáldra dag hvern þeim áróðri yfir þjóðina, að
gengislækkunin hafi verið óhjákvæimileg, að erfið-
ar ytri aðstæður hafi valdið því að ekki hafi verið
undan henni komizt. Og nú mun þetta áróðursúr-
felli halda áfram vikum og mánuðum samari; það
mun smjúga inn í hugi manna hvort sem þeir vilja
eða ekki, unz kenningin um það að gengislækkun-
in hafi verið óhjákvæmileg örlög hefur breytzt í
staðreynd.
Jgn gengislækkunin nú er ekkert einangrað fyrir-
bæri, hún er ekki aðeins afleiðing af minnkandi
afla og lækkandi afurðaverði. Hún er hlekkur 1 at-
burðarás sem einkennt hefur stjórn íslenzkra efna-
hagsmála í tvo áratugi. Síðan 1949 hefur gengi ís-
lenzku krónunnar verið lækkað sex sinnum; það
er nú aðeins fimmtándi hluti þess sem það var fyr
ir tuttugu árum. Þetta gengishrap einkennist af sí-
vaxandi hraða, líkt og þegar snjóbolti veltur niður
fjallshlíð og hleður stöðugt utan á sig; á átta síð-
ustu árum hafa kornið fjórar gengislækkanir; ;
einu ári hafa komið tvær gengislækkanir og skert
verðgildj krónunnar um meira en helming. Sé lit-
ið á þetta tímabil í heild er engin leið að beita þeim
röksemdum að við höfum átt í erfiðleikum vegna
afla og verðlags; þetta tímabil hefur verið íslenzku
þjóðinni hagfellt, bæði gjaldeyristekjur og þjóðar-
artekjur hafa vaxið til muna. Ef reynsla tuttugu
ára er höfð í huga verður ekki komizt hjá þeirri
ályktun að gengislækkanaskriðan er einvörðungu
sjálfskaparvíti, óræk sönnun um getuleysi ráð-
herra og sérfræðinga. í því sambandi þarf ekki ann-
að en minna á þá staðreynd að ísland er eina Evr-
ópuríkið sem hefur lækkað gengi krónunnar sex
sinnum á tuttugu árum; eigi að finna lönd með
ámóta hraklegu stjórnarfari verður að leita til
þeirra ríkja í Rómönsku Ameríku sem alræmdust
eru fyrir spillingu og óstjórn.
r '
J umræðum um gengislækkanir ræða menn ein-
att mest um efnahagslegar afleiðingar þeirra,
eignarán og tekjuskerðingu, öryggisleysi og verð-
bólgubrask. Víst eru efnahagsáhrifin alvarleg, en
þegar til lengdar lætur eru áhrif slíks gengishruns
á sjálfstæðisvitund þjóðarinnar, trú hennar og sið-
ferðisþrek enn alvarlegri. Sú spuming verður æ
nærgöngulli við menn hvort við séum þess megn-
ugir að stjóma þjóðfélagi okkar, hvort við séum
ekki of lítil efnahagsleg eining eins og Morgun-
blaðið orðar það, hvort draumur forfeðranna um
sjálfstætt þjóðríki hafi ekki verið óraunsæir
draumórar. Þessi áleitni grunur hefur þegar búið
um sig í hugskoti valdamanna, eins og marka má
af vaxandi áhuga þeirra á því að opna landið er-
lendu fjármgni og tengja okkur við stærri heild.
Vafalaust eru sumir þeirra haldnir efasemdum og
jafnvel angist á hrapandi gengisferli sínum, að
minnsta kosti þeir sem ólust upp á heimiíum raun-
verulegra sjálfstæðismanna. En innan hinnar ungu
íslenzku borgarastéttar fyrirfinnst auðsjáanlega
ekki neinn de Gaulle. — m.
íslenzka gengislækkunin vekur ugg
Þaö er miikilll uggiur í mönm-
uim sem standa að freðfiskfram-
leiðsiliu á Narðurlöndum vegna
hánnair gífuiTegu lækikunar á ís-
lenkku 'króniuninii.
1 Fiskaren, málgaigni niorslkiu
fiskútgerðarinnar cng fiskimanna,
lætur Ame Asper forstjóri
þennan ugg ótvírætt í ljós.
Hann segir að Norðmenn hafi
átt í harðri samikeppmii fyrir á
mörkiuðuinum, en nú miund þess-
ir erfiðieiloar auikast, í það
minnsta fyrst í stað. Hamin bend-
ir á. að þar sem yfir 90% af
útflutningi Isllendinga séu fiskur
og fiskafurðir, þá sé þessi lœkk-
uinarhætta á fiskvorði fyrir
hendi eftir gengislækkunina hjá
Isiteindinguim. Síðan getur hamn
þess, að tæpt ár sé liðið síðan
Mendingar folldu gengið, og nú
sé aftur komin gengislækkun.
Það kemur fram sú skoðun í
eriendum blöðum að gengis-
lækkunin 1967 hafi leitt tól enn
frekari lækkunar á fiskverði,
heldur en annairs heföi orðið.
Það er nákvasmlega sama skoð-
unin og stjórmarformaður FRI-
ONOR, norsku freðfisksölusam-
takanna, lét í ljós áður og ég
sagði frá í síðasta þætti mímum.
Annars þarf ekiki langt að
leita til þess að fá staðfesta þá
skoðun, að fiskkaupendur teija
sig eiga rétt á hllutdeild í haign-
aði af gemigiisgróða þess lamds
sem fellir gemigi sitt.
□
Japanskt fyrirtæki gerði hér
tilboð í nokkur þúsund pakka
af Afríkuskreið, nú á þessu
hausti. En hver svo sem ástæð-
an hefur verið þá voru íslenzk
stjórnarvöld að velta fyrir sér
himu japansika tilboðd í fleiri
vikur án þess að veita söiiufleyfi, ^
þar til að búið var að fella
gemgi ísilenzku krónunnar. Em
þegar hér var komið, þá kröfð-
ust Japanirnir læktounar á
verði, töldu sig eiga að fá hluta
af gengishagnaðinum og við
það sat þcgar *óg síðast frétti.
Þetta er staðfesting á því, hve
tvíeggjað vopn gengislækkun-
arieiðin er, enda mun reynsiam
sú að þjóð sem feTlir gjaldmið-
il sinn í verði, hún heidur
sjaldmast ölluim gengisihagnaðin-
um, því að hinir erlendu kaup-
endur útflutningsvörumnar
krefjast þess að fá eitthvað í
sinn hlut.
ERLENDAR
FRÍTTIR
Verðu beitningavélin
að veruleika?
Nýjustu fréttir frá Noregi
herma, að mikilar likur séu nú
á því, að draumurinm um norska
beitningarvél verði bráðlega að
veruleika. Norska fiskimála-
stjórnin hefur látið vélfnæðinga
vinna að lausn þessa verkefnis
í sil. tlu ár, en huigmyndina að
þessari vél á uppfinnimgaimað-
urinn Ole Alvestad á Hareidi á
Sunnmæri. Fyrir þrernur árum
tók vélaverksmiðjan Trio Mas-
kinindustri 1 Stafamgri að glíma
við þetta verkefni í félagi við
norsku fiskimálastafinunina og
nú virðist árangurinm vera að
koma í Ijós. Þann 20. nóv. si.
var vélim reynd í Stafangri með
góðum árangri. Trio Maskin-
industri hefur nú smíðað þrjár
slíkarr vélar og verða þær aiilar
reyndar við óiík stoiOyrði á
þremur stöðum, áður em fjölda-
framleiðsia verður hafin hjá
verksimiðjunni.
Við smíði vé'Tarinnar er gemg-
ið út frá því, að beitt só sóld
og á vélin að geta beitt tvo
öngla á hverri sekúndu. Sé
hafður einn faðmur á milli
öngla á línunni, þá á vólin að
geta amnað beitningu um leið og
línan er lögð, haidi skipið sex
milma ferð. Gizkað er á, að
verð siíkrar vélar verði ca. 8-10
þúsumd n. krónur, þegar fjölda-
fSramileiðsia hefst. í ísl. krómum
FISKIMÁL
eftir Jóhann
J. E. Kúld
yrði þetta samkvæmt hinu nýja
gengi kr. 98.800,00—123,500,00.
Ný tegund af síldar-
mjöli
Síldarverksimiðja í Kóparvík i
Suður-Noiregi hefur um langt
skeið að umdanfömu unnið að
tilraumum með framledðslu á
nýrri tegund af síldammjöli. Nú
er sagt aö tilrauinunum sé lok-
ið með égæitum árangri og
framleiðsia hafin. Mjölið er
hugsað siem alveg sérstakiega
gott fóðummjöl handa búpemdngi,
þar á meðal til að fóðra á mink.
Munurinn á þessu mjöli og
venjulegu síldarmjöli er sagður
helztur sá, að lýsið sem verður
efitir í mjöiinu við vinmsluna,
er í þessu tiifeili hert í mjöl-
inu, Kostnaður við þessa fraim-
leiðsdu er sagður talsvert meiri
hdldur em við venjulega síldar-
mjölsframieiðslu. Þetta mjöl er
aðeims hægt að vinma úr glæ-
nýju hráefni. Fjöldaframleiðsia
á þessu mjöli er nú hafin og
framieiðandinn byrjaður að leita
markaða fyrir framieiðsiuma.
Fiskeldisrannsóknir
Á siðari árurn hafa fiskeidis-
rannsókmir færzt mjö-g í aukiama
víða um lönd. Menn þykjast
eygja þar draum framtíðarinn-
ar, uim einn mikilvæ'gan þátt
þess, að afila fjölgandi rnamm-
kyni nægrar fæðu. Enigin þjóð
í víðri veröid, mun þó stamda
jafn framariega á þessu sviði
eins og Kínverjar, sem eiga að
baki rnörg þúsund ára ósiitna
þróum á þessu siviði.
Á miðöidum. var fiskeldi sem
vísindagrein komin taisvert vel
á veg víða í Evrópu og þar á
meðal á Norðuriönidum. Forust-
una á þessu sviði höfðu þá
ýmaar mumkaregiur imman
klaustramna. Með hnignun ka-
þóisfcunoar í Norður-Evrópu
gleymdust þessi vísindi að
meistu og fiskeldi laigðist niður
víðast hvar. Nú er hins vegar
byrjað að vinpa af kiappi að
þessum máium víða í Evrópu og
sumstaðar mdkið fé lagt í ramn-
sóknir.
1 íiskeldi stamida Damir nú
iamigfreimstir af Norðuriöndun-
um með ca 10 þúsund smálesta
fraimleiðsiu á ári.
Nú nýlega saigði sonur Jakobs
Hafstein, sem er við nám í Sví-
bjóð i bessari grein, frá merki-
legum tilraumum sem Svíar eni
að framkvæma á þessu sviði.
Frösögnin kom í daigblaðinu
Tímanum. Svíum hefur tekizt
að rækta með ágætum áramigri
sérstakar tegumdir af laxi os
sióurriða sem voru við bað að
deyja út og nú er meiningin að
sleppa þessum uppræktuðu teg-
undum . í Eystnasalt, eftir þrví ,
sem norsfct bflað segir frá í
fréttum.
Þá má geta þess að á vé'gilm '
lamdlbúnaðarháskióians í ' Ási í
Noregi er nú verið að fram-
kvæma umfangsmiklar rann-
sókmir í þágu fiskeldis umdir
forustu dr. agric. Haraidar
Skjervold. Þama hefiur verið
komið upp eldistjömum áf
fuillkomnustu gerðum, þar sem
gerðar eru tilraunir með ræktum
á laxi, sjóurriða og regnboga-
silumgi. Þessar tilraunif rijóta
styrks frá norsku fisikimála-
stjómimni.
í blaðavið'tali segir dr. Skjer-
vold að hann spái því, að í
framtíðinni muni það þykja
auðveidara að rækta og kyn-
bæta fisktegundir, heidur em
venjuilegan búpening nú. Em
það sé langt í lamid þar tii þess-
um árangri verði nóð. í þessu
samibandi leggur dr. Skjervoid
mi'kla áherzlu á' það, hve nauð-
synilegt það sé fyrir vásindin að
þdkkja erfðaeiginieika fiskanma.
Saltfiskvöntun í Suður-
Ameríku
1 byrjun nóvemibermónaðar
bárust svo margar paotanir til
Álasunds í Noregi um að senda
„jóla-saltfisk“ til Suður-Amer-
íku að sikipið Carbo Frio var
lestað í mesta hasti og sent af
stað 15. nóvember með 875 tonm
af þurrkuðum úrvaissaltfiski
sem áttu að vera jólamatur X-
búanma í Rio og Santos í Bras-
ilíu. Þann 12. október s.l. var
útfiuitningur Norðmanna á fuil-
þurrum saltfiski orðimm 25.932
tonn.
4T
AEyktun um utanríkismál
• • ■■ ■! ■ , . »A«T
- sampykkt einróma á miðstjórnarfundi sl. fimmtudag
Eins og kunnugt er fól lands-
fundur Alþýðubamdalagsins
miðstjóm að gamga frá íram-
komnum tillögum um utanrík-
ismál og á fundi miðstjómar
si. fimmtudag var eftirfaramdi
ályktum samþykkt einróma:
Staða fslands í heimi al-
þjóðastjómmála mótast öðru
fremur af þvi að það hefur allt
frá lokum síðari heimsstyrj-
aldar verið hluti af „áhrifa-
svæði“ öflugasta iðnaðar- og
herveldis heimsins, Bamda-
ríkja Norður-Ameríku.
Til þess að tryggja drottn-
uniaraðstöðu sína hafa Banda-
ríkin komið upp þéttriðnu her-
stöðvameti, m.a. í Vestur- og
Suður-Evrópu, og er Atlamz-
hafsbamdalagið liður í því keríi.
Með því að ljá ísland undir
hemaðarumsvif Bandaríkj-
anna hafa íslenzk stjómarvöld
gerzt sérstakir liðsmenn þessa
herstöðvakerfis. Til réttlæt-
ingar þeirri liðsmennsku þykj-
ast íslenzkir ráðamenn nú
hafa fengið haldgóða röksemd
þar sem er irnnrás Sovétríkj-
amna og fylgiríkja þeirra í
Tékkóslóvakíu. Þessi freklega
hemaðaríhlutun Sovétríkjanna
er grófur en dæmigerður þátt-
ur í þeirri áhrifasvæðapólitík,
sem kjamorkuveldin í austri og
vestri hafa fylgt alllemigi að
mestu með þegjandi samkomu-
lagi, og helgast af tilveru beggja
hiemaðairibiamdalaganmia í Evr-
ópu, Varsjár- og Atlamzhafs-
bamdalagsimis.
Alþýðubandalagið vottar
þjóðum Tékkóslóvakíu sarnúð
í erfiðri baráttu þeirra við yf-
irgangsöflin. Það ítrekar for-
dæmmgu sína á innrás Sovét-
ríkjamna og fylgiríkja þeirra,
sem með því athæfi hafa brot-
ið grundvallarreglur sósíalism-
ans um sjálfsákvörðunairrétt og
fullveldi sllra ríkja. Miðstjóm
telur að Alþýðubandalagið
geti ekki haft stjómmálasam-
skipti við flokika, sem hafna í
verki þessum grundvallarregl-
um.
Að gefnu tilefni varar Al-
þýðubandalagið mjög eindregið
við öllum áformum um beina
þátttöku íslendinga í hemaðar-
kerfi Bandaríkjanna hér á
landi eins og fram hafa komið
hugmyndir um. Það er fulljóst
að sjálfstæði okkar og öryggi
verður ekki tryggt innan
ramma núverandi bandalags-
kerfis. Þær hemaðarfram-
kvæmdir sem unnið er að í
Hvalfirði eru beinlínds amd-
stæðar öryggishagsmunum
þjóðarinniar.
Sjálfstæði okkar stafar hinn
mesti háski af bandarískri her-
setu á fslandi sem þegar hef-
ur unmið íslenzkri þjóðemis- og
menningarvitund varaniegt
tjón. Full ástæða er til að ótt-
ast að bandarískur her sæti á-
fram í lamdinu, jafnvel þótt
Nató riðlaðist eða yrði lagt nið-
ur. Til mótvægis við yfirþyrm-
andi áhrif Bandaríkjanna á ís-
lenzkt menningarlíf er okkur
lífsnauðsyn að efla viðleitni
Norðurlandaþjóða tii að mynda
sjálfstæða heild.
Fyrir því lýsir miðstjóm Al-
þýðubandalagsdns yfir eftirfar-
andi:
— Alþýðuhandalagsmenn vilja
að bandaríski herinn verði
burt af íslandj og herstöðv-
ar allar lagðar niður.
— Þeir vilja að ísland segi sig
úr Atlanzhafsbandalaginu.
— Þeir vilja vinna að því á al-
þjóðavettvangi að hernaðar-
bandalögin I Evrópu verði
Ieyst upp.
— Þeir vilja efla hvers konar
samstarf og samskipti við
Norðurlönd.
— Þeir vilja styðja frelsisbar-
áttu þróunarríkja (þriðja
heimsins) gegn fátækt og
heimsvaldastefnu og lýsa
eindregnum stuðningi við
þá stefnu að fjárhagsleg að-
stoð íslendinga við þróunar-
löndin nái 1% af þjóðar-
tekjum.
— Þeir eru andvígir hvers
konar íhlutun eins ríkis um
innanríkismál annars.
— Þeir eru andvígir skiptingu
heimsins í áhrifasvæði stór-
velda.
— Þeir vilja að milliríkjasam-
skipti mótist af virðingu
N fyrir s.iálfsákvörðunarrétti
þjóðanna.
Auglýsing
til innflytjenda.
Athygli er vakin á, að til þess að tolluppgjör
vara, sem höfðu verið afhentar viðtakend-
um gegn tryggingu fyrir 11. nóvember 1968,
megi fara fram á eldra gengi, verður fulln-
aðartollafgreiðsla að fara fram fyrir 1. des-
ember 1968.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
25. nóvember 1968.