Þjóðviljinn - 01.12.1968, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Summiudajgur 1. desemlber 1968.
Einar Bragi:
Afhendið Háskól-
anum Hótel Söqu
Hótel Saga er að visu .fögur
smíð. En þarna stendur hún af
steini gerð og verður ekki af
grunni færð, mikið húsrými, að
nafni til eign íslenzkra bænda,
en aðallega notað til allt ann-
ars en þ.iónustu við þá: skrif-
stofur Flugfélagsins og á-
róðursmiðstöð Bandaríkjanna,
nokkirár svallstiofur, danssalir
og gestaherbergi eru hér umd-
ir einu þaki, og sýnist vanda-
laust að koma þessu öllu fyrir
annars staðar án þess að ís-
lenzk menning eða athafnalífið
þyrftu að lækka flugið til muna.
Á þessum dögum er sagt frá
því í blöðum, að nemendur
og kennarar Háskólans séu á
hrakningum fram og aftur
milli ótal smáhýsa um allan bæ
til þess að geta þegið og veitt
þá fróðleiksmola, sem ^' enn
kunna að leynast í einhverju
sálarhólfi lærimeistarans, þegar
langhlaupið er á enda þreytt og
hópurinn hefur sameinazt í
kytru sinni, ef honum. tekst að
finna hana.. a
Ég legg til, að bændur af-
hendi Háskólanum Hóitel Sögu
til heiðurs fslenzkri • -• bænda-
menningu. Þeir gætu-vel haft
bar aðsetur eftir sem áður fyr-
ir stéttarsamband sitt. og bún-
aðarmálast.ióm, jafnvel nokkur
herbergi að auki til að skjóta
skjólshúsd yfir raunverulega
bændur, þegar þeir koma. í
kaupstaðinn. Að öðru leyti yrði
þarna hjónagarður og bama-
heimili stúdenta, mötuneyti og
miðstöð félagslifs. lestrarsalir
og kennslustofur eftir þvi, - sem
til hrykki. Um sláttinn mætti
breyta til: bjóða gestum o?
gangandi hýsingu og beina . við
hóflegu veröi, eins og stúdent-
ar hafa gert á görðunum um
áraraðir.
Eggert sýnir
35 olíumyndir
Eggert Guðmundsson opn-
kði í gærdag sýningu á 35
olíumálverkum í vinnustofti
sinni i Hátúni 11. F.jörutiu
ár eru nú Iiðin frá því að
Eggert hóf myndlistarnám i
Munchen.
Meðal verka á sýnmgunni
er eftirprentun af Kristsmynd,
sem Eggert málaði í Ástraliu
fyrir 16 árum. Er eftirprent-
unin gerð í Litbrá og er hún
gefih út í 125 eintökum.
Þetta er sjöunda sýning
* sem Eggert heldur ; í vinnu-
stofu sinni en alls hefur hahn
haldið 42 einkasýnimgar, hér
heima, í Bntglandi, Dan-
mörku, Þýzkalandi og Ástr-
alíu — og auk þess tekið þátt
í mörgum samsýn ingum. Þeg-
ar Eggert tók þátt í samsýn-
inigu í London 1936 voru vald-
ar 6 teikningar eftir hann til
þess að sýna í sjónvarp óg
var þetta í fyrsta skipti sem
myndlist var sýnd í sjónvarp.
Hefur íslenzka sjónvairpið
'fengið þessar teikningar sem
eru af íslenzku fólki, að láni
og . verða þær væntamlega
sýnd-ar þar innan skamms. ’
Sýning Eggerts verður opin
til 8. desember klukkan 1 til
10 e.h.
Féiag dönskn-
kennara stofnað
' v - riMAO 1.
Stofnfundur Félags dÖnskii'-
kennara var haidinn fimmtu-
daginn 14. nóvember s.l. í Þjóð-
leikhúskj allaranum.
Tilgangur félagsins
1. Að efila samsitarf dönskú-
koninara.
2. Að vinna að bættri að-
stöðu til dönskuitoennsiu á Is-
landi.
3. Að hailda uppi fundastarf-
semd, þár sem döpskukennairar
geta skipzt á skoðutfum og rætt
vandamál dönskukennslunnar.
Stofinendur félagsins voru 32,
í stjóm þess voru kosin, Ingólf-
ur A. Þorkelsson, formaður,
Haraddur Magnússon, ritari, og
Guðrún J. Hallldórsdóttir, g.jald-
keri.
öllum dönskukenmurum er
heimil innganiga i 'félagið.
Auglýsingasíminn
er 17 500
ÞJÓÐVILJINN
CAMEL FILTER
CAMEL REGULAR
AUÐVITAÐ
CAMEL
CAMEL CAMEL CAMEL
Svavar / Casa Nova
myndllst
Sýning á 37 olíumálverkum
eftir Svavar Guðnason er lið-
ur í hátiðahöldum Listafélags
MR í tilefni af fullveldisdeg-
inum. Var sýningin opnuð í
Casa Nova í gær kl. 4 e.h. og
verður opin a.m.k. í eina viku.
Auk þessa gefa menntskæling-
ar út hátíðarit. halda fullvelcj-
isfagnað 2. des. og efndu til
Ijóðasamkeppni — en ekkert
ljóðanna scm barst í keppnina
taldist verðlaunahæft.
Svavar Guðnason ræddi við
fréttamemn í Casa Nova í gær.
Sagði hann edztu myndina á
sýninigunind vera frá 1936—‘37
en einnig eiru þama myndir
sem hann lauk við í sumar.
Samt vildi listmálarinn ekki
kalla þetta yfirlitssýningu.
Slðast sýndi Svavar hérlendis
í Listasafni ríkisins um ára-
mótin 1960—61 en tekur ár-
lega þátt í sýningu Grönning-
en, féöagsskapar í Dammörku
sem hann er fastafélagsmaður
í. Ekki er Svavar fyrsti Islend-
ingurinn í þassum samtökum
sem eru u.þ.b. sextug, því að
Jón Stefánsson var aiHlengi
þar.
Svavar var spurður hvað
liði Cobra-grúppunni, sem
haran tilheyrði. — Fram að
þessu hefur þessi girúppa verið
allmjög umrædd hreyfing
sagði Svavar, og enn á að
heita að hún sé til sem shk.
Hinsvegar hafa ekki verið
haldniar stórar Cobra-grúppu-
saimsýningar um nokkurt
skeið. Hollenzk kona vinnur
nú að því að skrifa bók um
grúppuna, ætlar hún sér að
gera sögulega , grein fyrir
henni og hljóta doktorsnafn-
bót fyrir.
Þá var iistmálarinn spurður
um álit á bókinni „Svavar
Guðnason“ sem út kom 1.
ruóvcmiber og er númer 67 í
bókafilokkinum Vor tids kunst
frá Gyldendail. — Þetta er
mjög góð bók, sagði Svavar,
textinn er skrifaður af Haill-
dóri Laxness. 1 bókinni eiru
um 30 myndir. Ég hef séð
dóm um hana som ritaður er
í tímariðið Arkitektinn sem
gefið er út í Danmörku. Er
þar farið mjög lofsamiegum
orðum um bókina. Svavar er
greinilega ékki samimála lisita-
manniinum sem vildi heldur
sjá Halldór Laxness draugfull-
an í Hafnarstræti en að hann
skrifaði sitaf um idst framar!
— Eru myndimar til sölu,
var spurt. — Já, sumar, þið
skuluð geta þess, þá koma
gestirnar með veskin með sér.
— Eða falskar ávísanir. skaut
eimlhver irani.
Svavar gat þess að sér væri
sönn ánægja að því að hafa
orðið við osk menntasikólla-
n-ema um að ha-lda sýndngu í
Casa Nova. Þeir ynnu mjög
jákvætt starf. — Eiginliega er
þetta ríki í ríkinu, þessi
memntaskóli, sagði Svavar.
— Hér eru hverskyns stofn-
anir, kvikmyndaklúbbur, sér-
stök myndlistadeild í Listafé-
laginu o-g í gær voru þeir að
veita þremur skólaskáldum
verðlaun. Hér er greinilega
mikil menningarstarfsemi.
Unga fólkið í mennitaskólan-
uim er geysilega vakaindi —
það er auðvitað misjafnt en ég
efást um að víða finnist jafn-
margar vakandi sálir sem eru
spenntar af áhuga — í ekki
stærri hópi. Það er gott fyrir
gamla fúskara að komast í
samhand við svona áhuigasamt
uinigt fiólik, -sagði . Svavar að
endingu.