Þjóðviljinn - 14.03.1969, Page 7
Fösfcuidagiur 14. raairz 1969 — WÓÐVIUINN — SlÐA y
Menntaskólafrumvarp
Stríð, friður og
Framihald af 5. sáðu.
ríkjanna, og þannig mætti lengi
telja. Sameiginleg markmið
þessara þjóðfrelsishreyfinga er
að steypa hinum innlendu lepp-
stjómum heimsvaldasinna,
koma á framfarasinnuðu lýð-
raeði og endurreisa sjólfstæð
efnahagskerfi í fullvalda ríki.
Grundvallarlögmál *alls skæru-
hemaðar er stuðningur íþúanna
í löndunum sjálfum. Sá stuðn-
ingur hefur ótvírætt komið
fram, enda er eitt brýnasta
vandamálið, sem þarfnast úr-
lausnar í þessum ríkjum, að af-
nema lénsskipulag landeigenda-
stéttari-nnar og breyta yfirráða-
réttinum yfir jörðunum. Þetta
stefnuskráratriði skæruliða-
hreyfinganna veitir þeim full-
an stuðning bændanna í þriðja
heiminum. Krafan um sjálf-
stæði þjóðarinnar sameinar öll
þjóðleg öfl í landinu í baráttu
við hina erlendu drottnunar-
stefnu. Þessi víðtæka samvinna
ólíkra afla sýnir, að ótækt er
að dæma þjóðfrelsishreyfing-
amar í heild, sem alþjóðasam-
særi heimskommúnismans.
Hreyfingar þessar eru algerlega
innlendar og sprottnar úr að-
stæðum í landinu sjálfu. En
þj óðfél agsbyl tingar og krafa i-
búa þriðja heimsins um þjóðfé-
lagsréttlæti brýtur í bága við
hagsmuni Bandaríkjanna og
f ylgirik j a þeirra. Og þessar
kröfur og barátta þjóðfrelsis-
hreyfinga um allan heim sam-
ræmast ekki hugmyndum risa-
veldanna um skiptingu heimsins
í áhrifasvæði og kröfu þeirra
um óbreyttar valdaaðstæður.
Því reyna stórveldin að hlutast
til í sjálfstæðisbaráttu þessara
smáríkja og tefja eðlilega lausn
vandamála þeirra og þar með
lausn brýniasta vandamáls mann-
kyng í dag — þ.e. að minnka bil-
ið milli hinna ríku og snauðu
þjóða. Sovétríkin, sem sjálf
máttu há ámóta baráttu á þess-
ari öld. koma fram á áhrifa-
svæði sínu með valdahroka stór-
veldastefnunnar, þó að Sovét-
ríkin á hinn bóginn styðji þjóð-
frelsishreyfingaimiar í þriðja
heiminum m.a. með vopnasend-
ingum. Hagsmunir risaveldanna
tvegigja fara saman um það að
varðveita sitatus quo — óbreytt
ástand. og þau virða aðgerðir
hvors annars í varðstöðunni um
valdajafnvægið — sem tryggja
á friðinn á okkar öld. Samtím-
is verða vandamál þróunarland-
anna enn ægilegri og andstæð-
umiar milli lífskjara íbúa ríkra
þjóða og snauðra enn meiri.
í upphafi máls míns ræddi
ég nokkuð um hættuna á styrj-
öld milli kjamorkuveldanna
og vandamál friðar í hedminum.
Þegar ég nú hef gert tilraun til
að kynna ástandið í þriðja
heiminum og örbirgð þá sem
þar ríkir, er ekki úr vegi að
varpa fraun þeirri spumingu,
hvers frið sé verið að varð-
veita með því að viðhalda stat-
us quo? Er hægt að tala um
friðartíma i sömu mund og
hungurdauði ógnar fleiri manns-
lífum en þau styrjaldarátölí,
sem við höfum hingað til þekkt?
Ef það mat risaveldanna er rétt,
að friðurinn haldist því aðeins,
að óbreytt valdahlutfaU ríki —
þá hefur það i för með sér á-
framhaldamdi misrétti, óréttlæti
og vaxamdi örbirgð til handa
tveim þriðju hlutum miannkyns.
Ef sérhagsmunakerfi einkagróð-
ans á áfram að fá að róta í nátt-
úruauðlindum þriðja heimsins,
þýðir það óbærileg lífskjör og
Sængnrfatnaður
HVÍTUR OG MISLITUR
LGK
KODDAVER
DRALONSÆNGUR
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
GÆSADÚNSSÆNGUR
— ★ —
frelsi til að lifa
dauða í löndum hunigursins.
Velferð íbúa Evrópu og Norður-
Ameríku byggir á yfirráðum
þeirra yfir náttúruauðíindum í
fjarlægum heimsálfum og býð-
ur meirihluta mannkyns að búa
við skort. Til að viðhalda þessu
hagstæða valdahlutfaUi og
hindra sigra þjóðfrelsishreyf-
inganna i baráttunni fyrir þjóð-
félagsréttlæti, bafa þjóðir heims-
valdastefnunnar orðið að verja
stærri og stærri hluta þjóðar-
teknamna til hernaðarþarfa. í
hinni merku bók Fred A. Cooks,
The W arf are Staite eða Hernað-
arrikið bendir höfundur á mik-
ilvægi hemaðariðnaðarins fyrir
bandarískt efmahagslíf. Hann
segir:
„Stjómvöld áætla að milii 1/4
og % hluti alls aitvinnulífs þjóð-
arinnar velti á fjárveitingum tii
hemaðar og hialdi hemiaðarfjár-
lögin áfram að þrútna út, kunni
þessi tala að ná hinu skelfilega
50% marki. Við slíkar aðstæður
hefur hver maitvælákaupmaður
og hver benzínsali það á tilfinn-
ingunni, að bagur hans velti á
áframhaldandi rekstri hergagna-
verksmiðjanna Við slíkar að-
stæður vekur minnsti niður-
skurður, eða minnsta hótun um
niðurskurð fjárveitiniga mót-
mælaöldu meðal verkamianna,
hverra atvinna er í húfi, meðal
fjölmargra atvinnurekenda,
hverra gróði er í húfi, og með-
al stjómmálamamma hverra ait-
kvæði eru í veði. Þanmig er á-
stand hemaðarríkisins“.
Þessi lýsdmg á aðalríki sér-
hagsmunakerfis einkagróðans
lýsir vel hvert sú stefna leiðir.
ef áfram er haldið á þeirri braut
að viðhalda friði hins ríkjandi
minmihluta heims til að sitja að
uppsprettum allsnægtanma, en
svipta meirililuta jarðarbúa
'’relsinu til að lifa.
í Vietn.am ætla þessi drottn-
andi öfl að gera íbúum þróunar-
landanna það ljóst í eitt skipti
fyrir öll, hver ákveður lífskjör
þeirra — það er líf þeirra eða
dauða. í Vietnam er þvi barizt
um það hvort svipta eigi tvo
þriðju hluta mannkyns mögu-
leikanum til að lifa mannsæm-
andi lífi. Málstaður þjóðfrelsis-
hreyfingarinnar í Vietnam er
því einnig málstaður þeirra er
vilja skapa réttiátan frið og
veita öllum jarðarbúum jafnt
frelsi til að lifa, hvar sem þeir
eru fæddir á hnettimum.
Margur kann að spyrja, hver
sé þá staða þeirra er búa í ríkj-
um hins drottnandi minnihluta.
ísland er flækt í net þessa sér-
hagsmunakerfis, bæði hemað-
arlega og efnahagslega. Laun-
þegar hinna háþróuðu iðnaðar-
þjóðfélaga eru ekki lengur þeir
öreigar, sem engu hafa að tapa
nema hlekkjunum. Þeir hafa
hiotið nokkum hluta þess gróða,
sem yfirráðin jyfir efnahag þró-
unarlandanna hafa fært Evr-
ópu. En frá sjónarhóli at-
vi nnurek andans er launþeginn
lítiðlækkuð vera, vinnudýr. sem
vinnur firrt við framleiðslutæk-
ið. og hann er háður öllum
duttlungum lögmáls einkagróða
sérhagsmunakerfisins. Launþeg-
inn á þvi einnig í útistöðum
við sama aðila og þjóðfrelsis-
hreyfingamar og slíkt ætti að
veita möguleika á samstöðu og
samhug. Framtíð réttiætis og
friðar í heiminum veltur að
miklu á því hvort mögulegt sé
að skapa slíka samstöðu. En ef
slíkt á að takast þarf skilning-
ur á málstað og baráttu íbúa
þriðja heimsins að auíkast. Nær-
tækasta verkefnið er að virnna
að upplausn hemaðarbanda-
laganna og skerða vald einka-
gróðans í þjóðfélögum Vestur-
Evrópu og Norður-Ameriku.
Lýðræðislegur sósialismi getur
leitt til þróunar í þessa átt, en
hann verður þá að byggja á al-
þjóðlegum samhug, sem útilok-
ar aðild að hemaðarbandalög-
um og sameiningu við nokk-
ura hemiaðarmiðstöð. Slik
stefna getur á þann hátt ledtt
til réttiáts friðar.
Það er blekking að balda, að
aðstoð ríkra þjóða vdð þróunar-
löndin, eins og hún er fram-
kvæmd í dag geti leyst vanda-
mál þeinra. Ekki er hægt að
líta á slíka aðstoð sem eimamgr-
að fyrirbrigði. Baráttan fyrir
því, að leysa vandamál þróunar-
landanna verður alltaf hluti af
baráttumni við heimsvaldastefn-
una. Aðstoðin við þróunarlömd-
in er of lítii, en er þó skref í
rétta átt, en hún verður að öðl-
ast víðari merkimgu og stærri
baráttuvettvang ef hún á að
koma að gagni. En til að svo
megi verða þarf grundvallar-
breytimg að verða á þjóðfélög-
um þeim sem veita sl'ka aðstoð.
Á alþjóðabaráttudegi kvenna
8. marz í ár hafa konur um all-
an heim sett fram kröfuna um
tafarlausan frið í Vietnam. í
upphafi þessa erindds minntist
ég 300 ára gamallar fórnar ís-
lenzkrar almúgakonu. Húm hafði
fómað tveim sona sdmna til að
lina kúigun og áþján íbúa hjá-
leigunmar íslands, sem íslenzka
þjóðih sætti þá, af hálfu höfuð-
bólsins Dammerkur. í þriðja
heiminum eru slíkar fórnir nú
daglegur atburður. Það er því
ekki að undra þó komur um all-
an heim kiefjist að þessium
fórnum linni. Bam sem kona 4
íslandi fæðir í dag, getur vænzt
þess, að það nái 70 ára aldri,
en alþýðukoman í þriðja heim-
inum getur einungis búizt við
Cj ára æviferii fyrir afkomend-
ur sín.a. en á þeim aldri hættir
un.gt fólk á fsiandi að taka þátt
í starfsemi æskulýðsfélaga.
Við undrumst hve langan
tíma það tekur fyrir samnings-
aðilana í Paxís, að hefja beima
samninga um frið. En hafa verð-
ur í huga, að stríðið í Vietnam
er prófsteinm á sigurmöguleika
þjóðfrelsishreyfinga í þriðja
heiminum yfir drottnun.arstefnu
sérhagsmunaikerfis ríku þjóð-
amma. Krafan um írið í Vietnam
er krafa um það, feð hinn drottn-
andi minmihluti heims sleppi
ránshendi sinni af náttúruauð-
lindum íbúa þriðja heimsdns.
Friður kemmst einungis á í Vi-
etnam. ef alþýða þróunarland-
anna fser viðurkenningu þess
réttar að hagnýta eigin auðlind-
ir. Friður í Vietnam þýðir frelsi
undan hungri, spillingu og harð-
stjórn fámemnrar yfirstéttar.
Hin frelsisunnamdi hetjuþjóð í
Vietnam hefur fáert fómir til að
losa alþýðu landsins undan kúg-
un og áþján sem birtist í per-
sónugervingum eins og fóget-
anna á Bessastöðum forðum eða
Sáms frænda í Washington í
daig. Slíkar fómir hefur þessi
þjóð orðið að færa til að öðlast
frelsi til að lifa mannsæmandi
lifi. Krafan um frið í Vietnam
er krafa meirihluta mannkyns
um frelsi til að lifa.
Framhald af 1. sáðu.
snauðu kaldlyndu peningahyggju
sem ræður í ríkisstjóminni. Nú
sé tilkynnt að málið hafi ekki
svo mikið sem verið rætt í stærri
stjómarflokknum! Allt þetta
blamdaði fögnuð hans vegna
frumvarpsins þeim kvíða að það
ætti eihnig að verða skráutsýn-
ing og ekkert annað. Og sennilega
myndi flokksbróðir Gylfa beita
sömu svæfinigatækninni þegar
málið kæmi í nefnd og í fyrra.
Ráðherrann hafi meira að segja
sjálfur sagt í sjónvarpsviðtali ný-
lega að ætlunim væri ekki að
samþykkja málið á þessu þingi,
heldur á þvi næsta. Ætiunin
með flutninignium sé þvi að þvi er
virðist sá að skaffa alþinigismömn-
um uppbygigilegt lesefni.
★ Alþingi Ieikhús
Jónas kvað þess gæta æ meir
að ráðherrar notuðu Alþingi sem
leikhús. Þar væru settar á svið
skrautsým ingar, og hér væri edn
sliik til að lægja óánægjuraddim-
ar sem yrðu sífellt háværari um
menntaskólania og um skólákerf-
ið almennt. Sjálfur hljóti Gylfi
að vita að ekki séu heldur líkur
á að næsta þirng samþykki þetta
frumvarp, nerna fram hafi farið
stjómarskipti og ný stjómar-
stefna verið tekin upp, í sikóla-
málum og þjóðmálum öllum.
fhaldsþinigmennimir sem töluðu
voru Sigurður Bjamason, Matthí-
as Bjamason og Jónas Péturs-
son og Framsókmiairþinigmenm-
imir Ingvar Gíslason og Eysteinn
Jónsson.
í lamigri framsöguræðu
menntamálaráðherra rakti hann
aðalbreytingamar frá núgildandi
löggjöf sem frumvarpið felur í
sér, á þessa leið:
„Helztu breytingax, sem frum-
varpið gerir ráð fyrir, eru þess-
ar.
Tala menntaskóla verður ekki
lengur ákveðin í lögum, heldur
er gert ráð fyrir, að stofnun
nýrra skóla fari eftir fjárveit-
inigu Alþmgis og ákvörðun ráð-
herra. É" hef orðið þess var að
ákvæði frumvarpsins um, að tala
menntaskóla skuli ekki len.gur á-
kveðin í'lögum, heldur háð fjár-
veitingu Alþingis og ákvörðun
ráðherra, jafngildi bireytingu á
þeim ákvæðum gildandi laga. að
stofna skuli menntaskóla á ísa-
firði og. Austurlandi. Hér er um
algeran misskilming að ræða. Ég
tel sjálfsagt. að ráðherra stofn-
setji menntaskóla á þe<m
um, sem Alþingi veitir fé til, að
menntaskólar séu reknir. Ég get
þess vegn.a lýst því yfir, að ég
tel þá ákvörðun Alþingis, að
mermtasf-oálar skuli vera á ísa-!
firði og á Austurlandi. verða í
fullu gildi og mun ákveða stofn-
un menmtaskóla þar, þegar Al-
þinigi hefur veitt til þess nægi-
legt fé, en að sjálfsögðu ekki
fyxr, enda teldi ég það ekki heim-
ilt. Tekin er upp heimild fyrir
aðra aðila en ríkið til að stofna
og starfrækja menntaskóla, að
fengnu leyfi ráðuneytisins og
samkvæmt reglum. sem það set-
ur. Þá er og heimilað að setja
á stofn í tilraunaskyni mennta-
skóla, er óháðir séu tilteknum
ákvæðum laganna. Ég lát þann-
ig á, að i þessari grein felist
heimild til þess t.d., að koma á
fót skóla, þar sem væri ein náms-
braut á tólteknu sviði, t.d. á sviði
þjóðfélagsfræða, þrátt fyrir á-
kvæði 9. grein-ar um námsefni
menntaskóla, eða t.d. þess að
veita Kvennaskólanum í Reykja-
vík heimild til þess að verða
stúdentaskóli, þrátt fyrir ákvæði
4. gr. um, að menntaskólar séu
jafnt fyrir pilta og stúlkur. Ég
tel rétt, að Alþingi sjálft taki
ákvörðum um það, hvort heimild
þessarar greinar verði notuð til
þess að gera Kvennaskólann í
Reykjavík að stúdentaskóla, enda
þarf sérstaka fjárveitingu til
þess, að siikt geti orðið.
Próf úr bókmenntadeild mið-
skóla verður áfraon beiniasta inn-
gönguleið í menmtaskóla, en ský-
lausari heimild en er í núgild-
andi lögum er veitt til að taka
nemendur í menntaskóla af öðr-
um skólastigum, teljist undir-
búninigur þeirra fullnægjandi. Á-
kvæði um 16 ára lágmarksaldur
til inngön.gu er afnumið.
Tekin er upp nýskipam á skipt-
ingu námsbrauta inman skólanná,
og raskar hún verulega núver-
andi deildarskiptingu og bekkja-
kerfi. Námsefni verður þríþætt:
kjami, kjörsvið og frjálsar val-
greimar. Kj aminn. er það náms-
efini, sem er sameiginlegt öllum
nemendum skólans, bvaða nóms-
braut sem þeir velja sér. Kjör-
sviðin, sem verða grundvöllur
deildarskiptingar, em flokkar
samstæðra greina, og skal hver
nemandi velja einn slíkan flokk
í heild. Frjálsar valgreinar eru
það námsefni hvers nemanda,
sem ekki telst til kjamans eða'
kjörsviðs hans. Er gert ráð fyrir,
að þar geti bæði verið um að
ræða viðbótamám í skyldu-
greinum og nýjar greinar. Af um
144 „einingum" heildamámsefn-
is má kjaminn nema allt að 100,
j kjörsviðið skal nema a.m.k. 24
„eininigum" og frjálsar valgrein-
ar a.m.k. 14 „einingum". Kennslu-
greinar eru ekki tilteknar í lög-
um, svo sem nú er, en gerf ráð
fyrir, að í námsskrá og reglu-
gerð verði nánar ákveðið um efn-
isinnihald kjama, kjörsviða og
frjálsra valgreina.
Heimilað er að skipta skóla-
árinu í námeáfanga eða annir, og
skal í lok hvers áfanga úrskurð-
að um hæfni nemanda til að hefja
nám í næsta áfanga. Losað er um
ákvæði varðandi árspróf, en loba-
próf í hverri grein skál halda,
er kenmslu í henni lýkur að fullu.
Stúdentsprófi er náð, þegar nem-
andi hefur. staðizt öll lokapróf
á kjörsviði sínu og lokið prófí í
öðrum greinum eftir fyrirmælum
reglugerðar. Heimdlað er að
setja í reglugerð ákvæði um
námsefni og prófkröfur, er mið-
ist við amnað fuHnaðarpróf úr
menntaskóla en stúdentspróf, þ.e.
fyrir þá. sem ekld stefna að há-
skólanámi. ,
Kveðið er á um að við hvem
menntaskóla skuli skipað í eft-
irtalin störf, auk kenmara og
skólastjóra: 1) Umsjónar- og ráð-
gjafarstörf, þ.e. störf yfirkene-
ara eða aðstoðarskólastjóra, bóka-
varðar, námsráðunauta, deildar-
kennaira og félagsráðunauta. Þess-
ir starfsmenn allir mega vera
úr hópi kenn.ara, og má fela
sama manini fleiri en eitt starf-
anrna. 2) Störf á skrifstofu, þ.e.
fulltrúastarf og gjaldkerastarf.
3) Önnur störf, þ.e. starf hús-
varðar og tækjavarðar og 4) starf
húsbónda og húsfreyju í heima-
vistarskólum. Fela má sama
starfsmanei fleiri en eitt slíkra
starfa.
Tölu fástra kennara skal miða
við, að eigi komi fleiri en 20
nememdur á hvem, en eftir nú-
gildandi lögum skal að jafnaði
skipaður einn fastur kennaii á
hverja bekkjardeild.
Skilgremt er nánar í frumvarp-
inu en gert er í gildandi lögum,
hvaða 'kröfur skuli gerðar um
háskólamenntun menntaskóla-
kennara. Nú segir, að mennta-
skóttakennari steuli hafa lokið
fullnaðairprófi við háskóla eða
sambærilega stofnun, en í frum-
varpinu segir, að hann skuli hafa
í aðalkertnsJugrein lokið prófi, er
sé sambærilegt cand. mag-prófi
frá Hásteóla Islands. Kenniarar,
er eigi fullnægja gildandi mennt-
unarkröfum, steulu að fegnum
meðmælum skólastjómar eigaí
rétt á allt að tveggja ára orlofi
til fullmenntuniar. Ákvæði eru í
frumvarpinu um skyldunámsk;eið
fyrir menntaiskólakennara, þeim
að kostn aðarlausu. Þá er heimil-
að að vedta kiennurum. crlof, með
launum að nokkru eða öllu leyti,
sérstaklega til að vinna að gerð
kennslubóka eða kennslugagna.
Sérstakur kafli er í frumvarp-
inu um húsrými og tæki, án hliö-
stæðu í gildandi lögum. Er þar
kveðið á um, að í hverjum sfcóla
skuli séð fyrir húsrými, er nægi
til allrax starfsemi skólans, og í
því sambandi taldar ýmsar teg-
undir húsnæðis. Setja skal sér-
staða reglugerð um lágmarks-
kröfur í þessum efnum. Sérstök
áfcvæði eru um bókaeafn og lestr-
arsali. Kveðið er á um, að
kennsiustofur skólanna skuli
eftir föngum vera fagkennslusitof-
ur, þ.e. hiver stofa miðuð við
þarfir ákveðinna kenmslugreina.
Samin skal skrá um naiuðsymleg-
an og æskilegan rita- og tækja-
kost. Mynda sfcal í hverjum
skóla skólaráð, steipað yfirkemn-
ara og fulltrúum áLmenns kenn-
arafundar, svo og fulltrúa nem-
emda. Skólastjóri og skólaráð
mynda skólastjóm. í hverjum
skóla skai vera nemendaráð. er
sé fulltrúi nemenda gagnvart
skólastjóm og henni til aðstoðar
í málefnum nemenda.
Skólastjórar allar skóla á
menntaskólastiginu skulu mynda
samstarfsnefnd. Þá er gert ráð
fyrir því. að auk sfcólalækna séu
steipaðar steólahjúkrunarkonur,
og í reglugerð séu sett ákvæði
um heilsuvemd- í heimavistar-
skólum."
Umræðunni var frestað.
Borgarstjórn
FYiamihald af 10. síðu.
eteki sjúkrarýmið. Með tflliti til
atvinnuásitandsdns er auk þess ó-
sennilegt að ekki fengjust hjúkr-
unarteonur til sibarfa, etf þeim væri
sköpuð aðstaða til.
Eftir aillmiklar umræður var
tillaiga fhaldsins um frávísun
samíþyktot.
V & CR óext I
ÁVAXTA MAR KAÐ U R
10 kg. JAFFA APPELSÍNUR aðeins 330 krónur, EPLI, frönsk, ítölsk, dönsk, MANDARÍNUR, GRAPE, BANANAR,
SÍTRÓNUR, PERUR 59,00 kg. ds. — COCKTAIL 59,00 kg. ds. — ANANAS 34,00 % ds. — COCKTAIL 35,00 Vz ds. —
FERSKJUR 47,00 kg. ds. — GLASURKEX 17,00 pk. — GRÆNN ASPAS 34,00 ds. — HERSHEYS COCOMALT 59,00
og 32,00 ds. — FRANSKAR KARTÖFLUR 20,20 — 44,70 ds. — ORANGE JUICE 36,00 fl. — ORANGE JUICE 17,00 ds.
ÓDÝRUSTU PÁSKAÁVEXTIRNIR frá okkur.
MATVÖRU MIÐSTOÐIN
Laugalæk 2 — horni Laugalækjár — Rauðalækjar — Hrísateigs.— Næg bílastæði.
SKOLAVORÐUSTÍG 21