Þjóðviljinn - 14.12.1969, Page 4
4 SÍÐA — ÞJóEATEU'XííiN — Suramiöaigiur 1<4. dtesömlbar 1969.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Olafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: SkólavörðusL 19. Simi 17500
(5 linur). — Áskriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Rök og atkvæði
ir'
J Eftamálinu á Alþingi ber að sama brunni og 1
öðrum mestu átakamálum íslendinga undan-
farna áratugi: Rökin eru öðru megin, atkvæðin
hinu megin. í löngum ræðum sem ráðherrarnir
Gylfi Þ. Gíslason og Bjami Benediktsson hafa
flutt um málið, hefur ekki komið fraim neinn við-
hlítandi rökstuðningur þess að íslandi sé hag-
kvæmt eða nauðsyn að gerast aðili að Fríverzlun-
arsamtökunum. Þeir hafa flutt áróðursræður,
heldur efnislitlar, en röksemdir þeirra hafa horf-
ið upp í reyk þegar andstæðingar Efta-aðildar
hafa krufið þær 'til mergjar.
y^llir Eftapostulamir á Alþingi hafa lagt kapp á
að útmála einangrun þá, sem biði Islands á
sviði viðskipta og efnahagsmála (einn býst líka
við menningarlegri og stjómmálalegri einangmn),
ef ísland yrði hér eftir sem hingað til utan efna-
hagsbandalaganna tveggja í Evrópu. í umræðun-
um á þingi spurði Lú^vík Jósepsson Eftapostul-
ana: Hefur ísland verið einangrað í viðskiptum,
menningu og stjómmálum undanfarið? Og hánn
minnti á sfaðreyndir íslenzkra utanríkisviðskipta.
íslendingar hafa undanfama áratugi haft blómleg
viðskipti við lönd austan hafs og vestan, unnið
stóra markaði í Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um; haft imikil og margvísleg viðskipti við lönd
Efnahagsbandalagsins, eitt þeirra Vestur-Þýzka-
land er orðið hæst í innflutningi til íslands; og
við lönd Efta, Fríverzlunarsamtakanna, svo sem
Norðurlöndin og Bretland. Efta hefur starfað í tíu
ár, og allan þann tíma hefur ísland verið utan
þess og Efnahagsbandalagsins, og sótt jafnframt
inn á markaði utan þess; en verið langt frá því
að einangrast viðskiptalega. Engin skýring hefur
komið á því hvers vegna ísland geti ekki haldið
framvegis þessari afburðastöðu, að geta beitt sér
að mörkuðum og viðskiptum hvar í héimi sem
er. Innganga í Fríverzlunarsamtökin gæti hins
vegar haft þau áhrif að þrengja markaðsmögu-
leika íslendinga utan þess; með Eftasamningn-
um og sérstökum Efta-tolli eru löndum Fríverzlun-
arbandalagsins gefin mikil forréttindi til verzl-
unar á íslandi. Og hugmyndir ráðherranna um út-
flutning íslendinga á Efta-markað því miður enn
á stigi áróðursfullyrðinga, sem lítið raunhæft er
á bak við.
pjölmennustu verkalýðsfélög landsins, Verka-
mannafélagið Dagsbrún í Reykjavík og Iðjufé-
lögin í Reykjavík og á Akureyri hafa mótmælt
inngöngu íslands í Efta. Landssamtök málmiðnað-
armanna og byggingamanna -hafa birt sínar við-
varanir. Stéttarsamband bænda hefur lýst sig
andvígt aðildinni. En á Alþingi virðist enn ætla
að fara svo, að rökin verði öðru megin, atkvæðin
hinu megin. Það ástand er löngu orðið óviðun-
andi. — s.
Sparísjóður alþýðu
óskar að kaupa eða taka á leigu hús-
næði á góðum stað í borginni fyrir
bankastarfsemi.
Æskileg stærð 150 til 200 m2. Tilboð-
um sé skilað á skrifsofu sparisjóðsins
að Skólavörðustíg 16 fyrir 20. des-
ember n.k.
Einar Bragi getur
út Ijóðaþýðingar
Einar Bragi t
Eins og lesendur bókmeniita-
rita vita, hafiur Einair Braigii uim
lamgt skeið verið diuglegur
Ijóðaþýðari og í þedrri íþrtótt
sánmi gjama leitað til famigia á
óvæntum stöðum. ÚrvaR þessara
þýðinga er nú komið út á bók
sem nefewst ,,Hrafnar í skýj-
um“ og eru þar tæplega fjöru-
tíu Ijód eftir meira en tuttu.gu
höifiunda,
Fyrsti hiluti bólkarinnar er
heiligaiður saenskium sikálduin, fer
þar mesit fiyrir Gunmar Björling
og Edith Södergran. Ellefu ljóð
eiru eftir pólsik skáld og eru
í þeirra hópi Tadeusz Któsie-
wicz, Zbigniew Herbart og
Krystyna Brollll og þrjú ljóð
Framhald á 9- síðu.
ÁST OG ÓTTI er ný bók eftír BODIL FORS-
BERG. - Hrífandi og spennandi saga um
óstir og þrór sœnskrar stúlku, sem er
lœknanemi í París.
AÐLAÐANDI
HVARSEMA
HANN ER LITIÐ
Sagt er að fötin skapi mánninn, og það er alveg
rétt. Föt sem fara yður vel, veita yður sjálfs-
öryggi og aðlaðandi viðmót; þér verðið hiklaus
og eðlilegur í framkomu.
ÚLTÍMA býður yður
glæsilegt úrval af karlmannafötum,
föt á unga sem gamla,
föt sniðin eftir óskum viðskiptavina.
K.IORGARÐI SIMI 22206
KAFBÁTADEILDIN er ógleymanleg hetju-
saga, sem enginn leggur frá sér fyrr en
að loknum lestri síðustu blaðsíðu.
Heimifístækjuviðgerðir
Gerum við allar tegundir heimilistækja: KITCHEN
AID — HOBART — WESTINGHOUSE — NEFF
Mótorvindingair og raflagnir. — Sækjum sendum.
Fljót og góð þjónusta.
Rafvélaverkstæði Eyjólfs og Halldórs
Hringbraut 99. — Sími 25070.
Iðnuðarmenn
„Saga Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavílí“ eftir
Gísla Jónsson er tilvalin jólagjöf.
Bókin er bæði skemmtileg og fróðleg í vönduðu
bandi. — Fæst í bókavérzlunum.
Iðnaðarmannafélagið
í Reykjavík.