Þjóðviljinn - 24.12.1969, Blaðsíða 5
MiðviKuriagur 24. desemteer 1969 — ÞJÓÐVTtJTTTO — SfBA g
Vinningarnir tvöfaldast
Geysileg fjölgun verður á vinningum og á nú þriðjungur þjóðarinnar
möguleika á að fá vinning á árinu 1970. Heildar fjárhæð vinninga
hækkar úr 120.960.000.— krónum I 241.920.000.— krónur — tvö-.
hundruð fjörutíu og eina milljón níuhundruð og tuttuguþúsund krón-
ur, eða nærri fjórðung milljarðs.
Nú geta allir eignazt heiimiða
Gefnir verða út tveir nýir flokkar. Hætt verður útgáfu hálfmiða og
aðeins heilmiðar til sölu. Með þessari breytingu er orðið við óskum
þeirra fjölmörgu, sem hafa verið að reyna að breyta hálfmiðum sín-
um I heilmiða. Einnig verður nú hægt að sinna hinni stöðugu eftir-
spurn eftir röðum, sem hafa verið ófáanlegar undanfarin ár. Þeim
viðskiptavinum happdrættisins, og þá sérstaklega félögum og starfs-
mannahópum, sem óska að kaupa raðir skal bent á að draga ekki að
panta þær hjá næsta umboðsmanni.
4 milljónir hœsti möguleikinn
Þar sem flokkarnir verða nú fjórir fjórfaldast hæsti vinningsmögu-
leikinn og verður nú hægt að vinnajjórar milljónir í einum drætti ef
maður á sama númerið í öllum fjórum flokkunum.
Verð miðanna er óbreytt
Verð heilmiðans verður óbreytt 120.— krónur á mánuði.
Gamla vinningaskróin
:^1§§8KE-
121
000 kr.
Nýja vinningaskráin
4 vinningar á 1.000.000 kr 4.000.000 kr.
44 — - 500.000 — .... 22.000.000 —
48 — - 100.000 — ... . 4.800.000 —
7.012 *— - 10.000 — .... 70.120.000 —
11.376 — - 5.000 — ^..., 56.880.000 --
41.420 — - 2.000 — .... 82.840.000 —
Aukavinningar: 8 vinningar á 50.000 kr 400.000 —
88 — 10.000 — . .. . 880.000 —
60.000 241.920.000 —
-
Forkaupsréttur til 31. desember
Þeir sem áttu heilmiða á síðasta ári og hafa áhuga á að eignast
heilmiða af sama númeri í nýju flokkunum, eiga forkaupsrétt á þeim
til 31. desember, að öðru leyti eiga viðskiptavinir happdrættisins
forkaupsrétt á miðum sínum til 5. janúar.
í/ \ *
Aðalumboðið Tjarnargötu 4
Umboðin í Bankastræti 11 (Jón St. Arnórsson) og Austurstræti 18
(Eymundssonarkjallaranum, umboð Guðrúnar Ólafsdóttur) munu
hætta nú um áramótin. Verða þau flutt í nýtt Aðalumboð. sem verður
til húsa í Tjarnargötu 4, (götuhæð), símar: 2 56 65 — 2 56 66.
Góðfúslega endurnýið tímanlega til að forðast biðraðir seinustu dagana
Glœsilegasta happdrœtti landsins
Hver hefur efni á að vera ekki með?
V> i 1
Happdrætti Háskóla íslands
+{ ... $ •