Þjóðviljinn - 06.01.1970, Side 4
4 SÉDA — E’JOÐVILíJINN —< Þmiöijiuidaiguir 6. janúOT 1970.
— málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Cltgefandi: Útgáfufélag ÞjóSviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúí: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Olafur Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500
(5 línur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöiuverð kr. 10.00.
Nýir samningar
^íðasta gengisj.ækkun skerti kjör sjómanna mjög
tilfinnanlega, því að henni fylgdi lagasetning
sem raskaði gersamlega gildandi reglum um hluta-
skipti. Afleiðingin varð stöðvun bátaflotans í upp-
hafi síðustu vetrarvertíðar, en þau átök kostuðu
þjóðarbúið hundruð miljóna króna og mögnuðu
atvinnuleysi landverkafólks til mikilla muna; varð
sú deila ekki til lykta leidd fyrr en sett höfðu ver
ið sérstök nauðungarlög gegn yfirmönnum. Sjó
mannasamtökin lýstu því þá yfir að þau mundu
ekki una við hina ranglátu lagasetningu til fram-
búðar og sú yfirlýsing var ítrekuð með sérstakri
orðsendingu til alþingis í haust, þegar tekið var
að undirbúa nýja samninga. Alþingi fékkst hins
vegar ekki til að sinna málinu og tillaga Alþýðu-
bandalagsins um það efni fékk engar undirtektir,
ekki heldur hjá svokölluðum sjómannafulltrúum
stjórnarflokkanna. Engu að síður gerðust þau tíð-
indi rétt fyrir áramót, að ríkisstjómin lofaði að
Mta breyta lögunum, og er það ekki í fyrsta
skipti sem þvermóðskufullur þingmeirihluti sér
þann kost vænstan að beygja sig fyrir afli verk-
lýðssamtakanna. Sú Mgabreyting sem heitið hefur
v^tð.imun ásamt hækkuðu fiskverði jafngilda
Munahækkun frá síðasta ári imiðað við óbreyttan
afM. Þótt því fari fjarri að sú breyting hnekki
þeirri árás sem gerð var á sjómannakjörin, er hér
um að ræða umtalsverðan árangur.
^ðferðin sem beitt hefur verið til þess að leysa
deiluna um sjómannakjörin, annarsvegar með
hækkuðu fiskverði og hins vegar með breytingum
á löggjöf, hlýtur að vera forboði um það sem ger-
asf muni í samningunum um kjör Mndverkafólks.
Sú ákvörðun alþingis að fella niður löggjöfina um
verðtryggingu Muna á sem kunnugt er ríkan þátt
í þeirri stórfelldu kjaraskerðingu sem orðið hefur
síðustu árin, og á það hlýfcur nú að verða lögð rík á-
herzM að verðtrygging Muna verði lögfest á nýj-
an leik. Slík Mgasetning imundi ásamt verulegri
grunnkaupshækkun leysa vanda Mndverkafólks á
svipaðan hátt og nú hefur verið gert í samningum
um kjör sjómanna.
glík máMlok hljóta að verða þeim mun auðsóft-
ari sem ráðherrar og embættismenn hafa að
undanfömu Mgt á það ríka áherzlu, að afkoma
þjóðarbúsins sé nú með miklum ágætum: Utflutn-
ingstekjur íslendinga jukust til muna á síðasta
ári og þjóðartekjur hækkuðu, gjaldeyrisstaðan hef-
ur gerbreytzt okkur í hag, staða ríkisbankanna er
sterkari en hún hefur verið árum saman, afkoma at-
vinnuveganna hefur batnað til muna. Allteruþetta
rök fyrir mjög verulegum kauphækkunum. Hins
vegar skiptir miklu að viðunandi Musn fáis't án
þess að til verkfaHa komi, og því er það skylda
alþingis að undirbúa án tafar af sinni hálfu nýja
löggjöf um verðtryggingu launa, jafnframt því
sem samningar um grunnkaupshækkanir milli
verklýðssamtaka og atvinnurekenda þurfa að hefj-
ast sem fyrst. — m.
Hið nýja leikrit Jönasar
Árnasonar er æft af kappi
- Verður frumsýnt hjá Leikfélaginu í febrúarbyrjun
Leikfélag Reykjavikur sefir í byrjun næsta mánaðar. Þetta ungarnir Táp og fjör og Drott-
nú af kappi Mð nýja leikrit er fjórða leikhúsverk Jónasar, ins dýrðar koppalogn, sem
Jónasar Arnasonar, Þið munið sem L.R. flytur, Mn fyrri voru sýndir voru undir samheitinu
hann Jörund, sem frumsýna á Deleríum búbónis og einþátt- Koppalogn. Ennfremur sýndi
Þjóðleikhúsið á 15 ára afmæli
sínu gamanleikinn Járnhaus-
inn, eftir þá Múlabræður, en
öll þessj verk hafa notið ó-
venjulegra vinsælda og verið
sýnd við metaðsókn.
í þessiu nýja leikriti sínu
færist Jónas meira í fang en
áður er hann fjaliar um einn
sérkennilegasta þátt í stjóm-
málasögiu ok'kar — hundadaga-
stjóim dansk-enska ævintýra-
mannsins Jörgens Jörgensens
yfir Isiiandi — á frumlegan og
óvenjulegian hátt, en alþekkt
skopskyn og háð höfundar
munu menn þó þeikkja aftur í
þessu nýjia ledkxití.
Það er Jón Sdgurbjömsson
seirn sitjómar þessari sýndngu,
en Steinþór Sigurðsson teiknar
leikmyndimar. AðalWutverkin
leikia Helgi Skúlason, Pétur
Einarsson, Guðmundur Pálsson
og Helgia Jónsdóttir, en auk
þess kemur flokkur farand-
sönigvara mikið við sögu, en í
þeim hópd er Edda Þórarins-
dóttir, Troels Bendtsen og
Helgi G. Einarsson. Þau flytja
obban af þeim tíu sönglöigum
sem ^pru í leiknum. Myndin var
tekiri á samlestraræfingu og
sjást þair m.a. Pétur Einarsson,
Helga Jónsdóttir. Edda Þórar-'
insdóttír, Troels Bendtsen og
leikstjórinn Jón Sigurbjörns-
sion, fyrir enda borðsins, svo og
Hetgi Skúlason, Jón Aðils og
HeiLgi G. Einarsson.
Nýárskveðjur til
forseta íslands
Meðal árnaðaróska sem for-
seta íslands bárust í tilefni ára-
mótanna voru kveðjur frá eftir-
töldum þjóðhöfðingjum.
Friðriki IX, konumgi Dan-
merkur- ÖlaG V^ Noregskon-
unigi. Gustaf VI- Adolf, konungi
Svíþjóðar- Urho Kekikonen, fbr-
seta Finnlands- Franz Jonas,
forseta Austurríkis. Elisabetu XI-
Bretadrottningu. Lamon de
Valera. forseta Irlands- Georges
Pompldou, forseta Frakklands-
Jozip Broz Tito, fops. Júgósiav-
íu. Americo Thomas, forseta
Portúgals- Francisoo Franco,
ríkisleiðtogia Spánar. Gusibav W.
Framhald á 9- síðu-
—■ arr —- m m «r- -
Háskasamkgur nýgervingur af vatni
í vísindum gerast nú dags-
daglega stórviðburðir og geta
fæstir fylgzt með því öllu, þó
fegnir vildu- Hér er samt kom-
in nýjung sem líideg er tíl að
veikjia miikla aithygli.
Efnafræðdngar eru nú sem
stendur að gera tilraunir með
nýtt afforigði af vatni, sem
ekki frýs og ekki gufar upp,
og halda sumir að þetta geti
valdið hvorki medra né minna
en útslokknun alls lífs á jörð-
inni, nerna því meíri varúð sé
við höfð- Aðrir, og þeirra á
meðal þeir sem við þetta fást
tolja haettuna litla sem enga-
Fyrst þegar sú frétt barst
frá rússneskum visindamönn-
um að fundizt hefði þettia und-
arlega vatn, svo ólfkt öllu
vatni öðru, þá var þessu trú-
að varlega á Vesturlöndum og
ekki þóttí það sízt ólíklegt, að
takast mætti að framleiða það
við venjuiegan stofuhita og
undir engum óvenjulegum
þrýstíngi- Ekki þótti sú stað-
hæfing trúlegri, að vatn þetta
gæti ekki frosið og naumlega
unnt að fá það til að breytasí
í gufu-
Samt voru enskir og ame-
rískir vísindamenn ekki van-
trúaðri en -svo, að þeir tóku
þegar í stað að líkja efitír til-
raunum hinna rússnesku vís-
indamanna. Og á síðustu mán-
uðum hefur hver ritgerð rek-
ið aðra: undarlega vatndð er
vissulega hægt að framteiða,
og það er svo háiskalegt að
sumra áliti, að nákvæma að-
gæzlu þarf að hafa, svo það
sleppi ekki úr höndum þeirra
sem eru að gera það, breyti óð-
fiuga öllu vatni í aína mynd
og geri öldungis ólíft á jörð-
inni-
Fjórir fimmtu af yfiirborði
jarðarinnar eru huldir vatni-
Vatn er alstaðar til. En þetta
afbrigði hefur aldrei fyrr fund-
izt- Og hvernig fannst það þá?
Það fannst með þvi að setja
örmjóar pfpur úr gleri eða
bræddu kvarsi í gufumettað
loft f nokkra daga — þá kom
það fram innan 1 pípunum.
Fyrst gerðist þetta í Mosfcvu,
hjá rússneskum vísindamanni,
Deryagin að nafni, og sam-
starfsmönnum hans, síðan í
rannsóknarstofum í Emglandi
og Bandaríkjunum. I þessum
mjóu glerpípum, svo mjóum
að þvermál pipumnar er örfáir
þúsundustu úr millímetra (inn-
anvert), er blanda af venju-
legu vatni og himiu afbrigöi-
lega. En auðvelt er að eima
vatnið frá, svo að hið afbrigði-
lega verði einsamalt eftir-
Þáð sem eftir verður líkist
engu vatni öðru, og er nú unn-
ið að því kappsamlega að safna
af þessu svt> miklu magni að
unnt verði að ranmisaka það.
Vökvi þessi er seigfljótandi,
líkastur þunnu hlaupi, en engu
að síður smýgur það sjálf-
krafa örmjóar plpur og það
gerir hvorki að frjósa (breytast
í fast efni) né gufa upp (breyt-
ast í loftkennt efni), hvorki við
200 stíga frost (C) né 5—600
stiga hita Auk þess er eðíis-
þyngdin ekfci 1,0 við fjögurra
stiga hita, heldur 1,4 Það veg-
því meira en vatn, eða 1,4
gr- hver rúmsentímetri. Ekki
vita menn enn um alla hina
stórfurðuleigu eiginLeika þessa
nýfundna efnis, svo sem von
er, því að ekki eru til a£ þvi
á eioum stað nema fáeinir
miljónustu partar úr lítra. Og
ekíki vita meran heldur hvem-
ig efni þetta myndast. Vissa er
fengin fyrir því að það er ó-
blandað öðrum efnum f tiL-
raunaglösunum, svo að ekki er
álhrifum frá þvf til að dreifa,
að það sé ekki hreint.
Víðtækar efnafræðirann-
sóknir, gerðar við Maryland-
hiáskóla, hafa gefið til kjmna
að mólikúl þassa efnis hafi
kristallazt (í hverju þeirra er
eitt ildisatóm Og tvö vetnis-
atóm), eða þvi sem næst. Þetta
fyrirbrigði hefur aldrei veriö
athugað hjá efnum sem gerð
eru eingör.igu úr vetni og ildi-
En ekkj er með neinu öðru
móti unnt að sikýra eðli þessa
undarlega vatns.
Gizkaö er á að það sé
venjulegt vatn sem tekur þess-
um breytingum í hárpipunum.
að gler- eða kvarsflöturinn
„steypi“ það í þetta sérstaka
form, samkvæmt einhverju ó-
skýrðu valdboði efnisins, og
nái það til þeirra mólikúla.
sem litlu eru innar í pípunni,
en þó ekki allra. Þetta kallast
katalysis og verkfærlð. sem
hér er hárpípa, mundi þá geta
kallázt katalysator-
Það er álH efnafræðmgsins
Danahoe, sem starfar við
Wilkes Ðollege í Pensylvaníu,
að þetta sé hættulegasta efni,
sem til sé hér á jörð. Hann
ghikar á. að það hafi aidrei
myndazt fyrr vegna þess að
skilyrði til þess voru ekki fyr-
ir hendi, en nú sé viðbúið að
það sLeppi úr höndum þeirra
sem gera það í tilraunaglösum,
og breyti þá öllu vatni í sína
mynd, — afleiðingamar er
auðvelt að ímynda sér.
Á Venus er ekkert líf og vel
má vera, að það sé ekki annað
tíl af vatni en þetta hið af-
brigöilega. og nú halda sumir,
sem um þetta eru að hugsa, að
eins kunni að fara hér.
— Donahoe álítur að leggja
sikuli blátt bann við fram-
leiðslu þessa efnis i nokkrum
stærri mæli, fyrr en fimdizt
hefur ráð til þess að breyta
þvi með hægu móti í venjulegt
vatn. Þegar þetta efni er
sloppið út úr rannsóknastof-
unni og komið í jarðveg eða
vötn, kann að vera of seint að
hefta það- Og þangað til sann-
azt hefur að efnið sé hættu-
laust, verður að fara með það
eins og geigvænilegt eitur.
Þetta eru orð próf Donahoe.