Þjóðviljinn - 13.08.1970, Side 1
Fimmtudagur 13. ágúst 1970 — 35. árgangur— 180. tölublað.
AlþýSubandalagiS á VestfjörSum:
Framboðslistínn undirbúinn
á kjördæmisráðsfundi þess
<s>-
KOSNINGAR í OKTÓBER?
■ Nærri því fullvíst má nú telja að íhaldið sé beztra hefur verið unnt að afla um vilja Al-
þegar búið að ráða við sig að láta rjúfa þing þýðuflokksins í þessu efni er ekki annað vitað
og ganga til alþingiskosninga í október í haust. • en að ráðamenn þar séu sama sinnis.“
H í ræðu Harðar Einarssonar, formanns Full-
trúaráðs sjálfstæðisflokksfélaganna í Reykja-
vík, sem Morgunblaðið birtir í gær, segir hann
m.a. um kosningar nú í haust: „En ég hygg að
ekki sé neinn trúnaður brotinn þótt skýrt sé
frá því hér, að innan forystuliðs okkar flokks
sé eindreginn vilji til þess að efna til kosninga
í haust. Og eftir þeim upplýsingum sem
nu
■ í þessari sömu ræðu flytur Hörður Einars-
son ákafan áróður fyrir því að haldinn verði
landsfundur Sjálfstæðisflokksins nú í haust,
fyrir kosningar, en af ummælum hans mætti
ætla að verulegur ágreiningur væri enn um
það mál innan flokksins.
■ Um þessi mál er fjallað í forystugrein Þjóð-
viljans í dag.
Sovétríkin og Vestur-Þýzkaland:
Griðasáttmáli erkifjandmanna
í sögu Evrópu
MOSKVU 12/8 — Forsætisráðherrar Sovét-
ríkjanna og Vestur-Þýzkalands undirrituðu í
dag griðasáttmála milli ríkjanna, sem mun af
flestum talinn marka tímamót í sögu Evrópu
eftir stríð. Það sem mestu skiptir er, að samn-
ingurinn kveður á um að virt verði öll núver-
andi landamæri í Evrópu, einnig Oder-Neisse-
línan sem vesturlandamæri Póllands og svo
landamæri Austur- og Vestur-Þýzkalands.
Brandt.
Kosigin.
Gríðasáttmáli milli Sovét-
ríkja og Vestur-Þýzkalands
Hér fer á efti.r texti griðasátt-
málans milli Vestur-Þýzkalands
og Sovétríkjanna:
— Aðilar samningsins, sem
vilja styrkja frið og öryggi í
Evrópu og öllum hefmi
— og eru sannfærðir um að
friðsamlegt samstarf milli rikja
á grundvelii markmiða og
grundvallareglna sáttmála S.Þ.
sé í anda djúpstæðra óska þjóð-
anna og í þágu heimsíriðar
— sem leggj a áherzlu á þá
staðreynd, að þeir samningar
sem aðilarnir hafa þegar gert
með sér, einkum samningur frá
13. sept. 1955 um stjórnmálasam-
band þeirra á milli, hafi skapað
hagstæð skilyrði fyrir því, að
unnt yrði að bæta og styrkja
gagnkvæm samskipti þeirra,
— sem vilja í samningsgerð
láta í ljós eindregna ákvörðun
sína um að bæta og færa út sam-
starf á sviðj efnahagsmála og að
því er varðar vísindi, tækni og
menningu í þágu beggja ríkja,
hafa komið sér saman um eft-
irfarandi atriði:
Sambandslýðveldið Þýzkaland
og Sovétríkin telja það veiga-
Biikið atrdði stefnu sinnar að
vernda heimsfriðinn og draga úr
viðsjám á alþjóðavettvangi.
Þau staðfesta viðleitni sína til
að koma á eðlilegu ástandi í
Evrópu og að e£la friðsamleg
samskipti allra Evrópuríkja og
að komast með þessum hætti út
úr því ástandi sem ríkir j Ev-
rópu.
Sambandslýðvekiið Þýzkaland
og Sovétxíkin munu í beinum
samskiptum sínum, svo og í
málum sem lúta að öryggi í Elv-
rópu og heimi öHum, vinna á
grundvelli þeinra markmiða og
grundivallarreglna sem eru und-
irstaða sáttmála S.Þ. Því munu
ríkin gera út um miskilíðarefni
sín einungis á friðsamlegan hátt
og skuldbinda þau sig til þess,
að hafna hótunum eða valdbeit-
ingu í samræmi við 2. grein sátt-
mála S.Þ. þegar um er að ræða
öll mál sem varða öryggi Evrópu
eða alþjóðlegt öryggi eða gagn-
kvæm samskipti samningsaðila.
í samræmi við þau markmið
og grundvallarreglur, sem áður
eru nefnd, eru Sambandslýðveld-
ið Þýzkaland og Sovétríkin á
einu máli um það, að friður í
Framhald á 3. síðu.
Hér er um að ræða samning,
sem getur opnað nýjar leiðir í
samskiptum tveggja erkiíjenda
í Evrópu og er hann staðfesting
á þeirri stefnu Willy Brandts,
kanslara Vestur-Þýzkalands, að
reyna að draiga úr viðsjám í
samskiptjm við Austur-Ewópu-
ríki.
Texti samningsins er birtur í
heild annarsstaðar í blaðinu,
en með honum eru ekki öll kurl
komin til grafar. í sérstöku
brófi utanríkisráðherra Vestur-
Þýzkalands, Walters Soheels, til
starfsbróður síns, Gromiko, seg-
ir m.a. að samningurinn sé ekki
í andstöðu við þau pólitísku
markmið Vestur-Þýzkalands, að
gera það mögulegt að þýzka
þjóðin sameinist á grundvelli
frjáls sjálfsákvörðunarréttar.
Þetta þýðir m.a. að þótt landa-
mæri Austur-Þýzkalands séu við-
urkennd af hálfu Bonnstjórnar-
innar, þá felur samningurinn
ekki í sér fudla viðurkenningu á
tilveru tveggja þýzkra ríkja. Þá
er og eftir að leysa ýmis mál,
sem varða réttarstöðu Berlínar
— en fjórveldin hafa haft þau
mál til umræðu að undanfömu.
Forsætisráðherrar ríkjanna
beggja undirrituðu samninginn í
Kreml í dag að viðstöddum ut-
anríkisráðherrum, svo og for-
manni sovézka kommúnista-
flokksins, Brézjnéf. Athöfninni
var sjónvarpað beint um alla
Austur-Evrópu og sumstaðar í
Vestur-Evrópu. Að athöfn lok-
inni var Brandt boðið til tveggja
tíma viðræðna við Brézjnéf.
Þýðing samningsins
Samningurinn er talinn gefa
Sovétríkjunum trygginigu fyrir
þvi, að Vestur-Þýzkaland muni
ebki reyna að beita áhrifum sín-
um gegn stöðu Sovétríkjanna í
Austur-Ewópu, um leið og hann
leggur blessun sína yfir þá við-
leitni Brandts að bðeta samskipt-
in við Austux-Evrópuríkin.
Kosygdn hefur þegar lýst því
yfir, að samningurinn feli ekki
í sér tilraun til að sundra sam-
starfi Vestur-Þýzkalands við
vestræna bandamenn, enda væri
slík tilr’aun óraunsæ.
Talið er viist, að samningurinn
muni greiða fyrir viðskiptum og
tæknilegu samstarfi ríkjanna, og
rounu þau mál rædd í næsta
mánuði a£ viðkomandi ráðherr-
um.
Griðasáttmálinn er lagður út
á þann veg, að með honum
hverfi Sovétríkin óbeint frá rétti
sínum til hemaðaríhlutunar í
Vestur-Þýzkalandi, ef þeim þyki
aðstæður krefjast slíkra ráð-
stafana. Vesturveldin afsöluðu
sér slákum rétti með Parísar-
samningunum 1955, sem urðu
Framhald á 3. síðu.
Aage Steinsson.
Ásgeir Svanbcrgsson.
■ Alþýðubandalaigið á Vestfjörðum heldur kjördæmisráðstefnu
á ísafirði um næstu helgi og hefist hún fcl. 20U30 á laugardags-
kvöldið.
Á fundinum verður rætt um framboð Alþýðubandalagsins í
Vestfjarðakjördæmi við næstu alþingiskosnjngar og undirbúinn
framboðslisti flokksins.
Þá munu fara fram umræður um ýmsa málaflokka.
Gnðmundur Friðgeir Magnússon fomiaður verkalýðsfélagSin8
Brynju á Þingeyri flytur framsögu um útgerðarmál.
Ásgeir Svanbergsson bóndi Þúfum flytur framsögu um land-
búnaðarmál.
Aage Steinsson rafveitustjóri ísafirði flytur framsögu um
riaforkumál.
Steingrímur Pálsson alþingismaður flytur framsögu um
stj órnmálaástandið.
Gestur fundarins -verður Sigurjón Pétursson borgarráðsmaður í
Reykjavík.
Góður afli hjá togurunum
Ingólfur Arnarson
kom með fullfermi
Aíli togaranna er aftur farinn
að glæðast og kom Sigurður til
Reykjavíkur sl. mánudag með
447 tonn og daginn eftir kom
Ingólfur Amarson með fu'llfermi
og var hluiti aflans á dekki.
Hallveig Fróðadóttir er væntan-
leg í dag.
Fimm aðrir togarar hafa land-
að hér í Reykjaviik í þessum
mánuði samtals 1070 tonnum.
Þormöður goði kom 3. ágúst
með 252 tonn, Egill Skallagríms-
son 4. ágúst með 164 tonn, Júpí-
ter 5. ágúst með 200 tonn, Jón
Þorlákssop 6. ágúst með. 194
tonn og Víkingiur 7. ágúst með
260 tonn.
Mótmælabréf til útvarpsstjóra
Undanfama daga hefir
staðið yfir hér á Sauð-
árkróki undirskriftasöfnun
til að mótmæla slæmxi út-
sendingu útvarps og sjón-
varps hér á staðnum, Mót-
mælin hafa aðallega beinzt
að útsendimgiu sjónvanpsdns,
en hún er hér með ein-
dæmum slæm.
Undirtektir almennings
hafa verið mjög góðar og
nær hver einasti sjónvarps-
notandi, sem náðst hefir til,
hefir undirritað mótmælin,
eða 230 ednstaklingar.
Útvarpsstjóra hafa varið
send mótmælin og er það
fastur ásetningur þeirra,
er að þeim stóðu, að þoia
ekki lengur það ófremdar-
ástand, er hér er ríkjandi
af hálfu þessara stoifnana.
— H.S.