Þjóðviljinn - 20.07.1971, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.07.1971, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 20. júlí 1971 — 36. árgangur — 160. tölublað. Tveir fósust í flugslysi Lítil kennsluflugvél fórst í Akrafjalli aðfaranótt sunnudags og með henni tveir ungir menn ■ Lítil kennsluflugvél fórst í Akrafjalli aðfaranótt sunnu- dagsins og með henni tveir ungir menn. þeir Kári Guð- <s>- Útvegsmenn ánægSir með fundi sjávarút- vegsráðherra ★ Útvegsmenn í Vest- mannaeyjum fögnuðu því að fá tækifæri til þess að ræða við sjávarútvegsmála- ráðherra, sem efndi til fundár með útvegsmönnum í Eyjum á laugardaginn. Þökkuðu útvegsmenn ráð- herra fyrir tækifærið til þcss að fjalla um vanda- mál sjávarútvegsins á fundi í stærstu verstöð landsins, sem þeir töldu að vonum vel við eigandi. Eru þessi vinnubrögð ráðherra til fyrirmyndar og í gær- kvöld efndi hann til ann- ars fundar með útvegs- mönnum á Reykjanesi. Var sá fundur haldinn í Kefla- vik. ★ Á þessum fundum var fjallað um vandamál siáv- arútvegsins á breiðum grundvelli. ekki sízt um launakjör sjómanna sem þyrftu skjótrar lagfæring- ar við. ★ Sjávarútvegsráðherra hefur auk þessara funda rætt við forustumenn í sjávarútvegi. hæði útvegs- raenn og sjómenn. Allar lífeyrisgreíðslur trygginga verða auknar Forseti íslands gaf í gær út bráðabirgðalög um hækkunina að tillögu tryggingamálaráðherra, Magnúsar Kjartanssonar □ Forsetj íslands setti í gær bráðabirgðalög að tillögu tryggingamálaráðherra, Magnúsar Kjartanssonar, en lögin fela í sér umtalsverð- ar hækkanir á lífeyrisgreiðslum almannatrygg- inganna. □ Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem hér á eftir er birt í heild, en heilbrigðis. og trygg- ingamálaráðuneytið sendi frá sér fréttatilkynn- ingu þessa í gær. „Að tillögu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Magnúsar Kjartanssonair, heí'ur forseti ís- lainds í dag sett bráðabirgðalög siamkvæmt 28. grein stjómar- sikrárinnar til bess að breyta og flýta giidistöku nokku.rra, ákvæða laga nr. 67, 20. april 1971, um ailmannaitrygginar, en bau lög eiga að öðlast gildi hinn 1. ian- úar 1972. Bráðabirgðalögin eru svohljióð- andi: 1. gr. Við 80. grein laga nr. 67, 20. aipríl 1971 um aimannatrygging- ar komi ný málsgrein, svohl.jóð- andi: „Þó skuiiu koma til fraim- kvæmda hinn 1. ágúst 1971 eft- irtalin ákvæði laganna: Stjórn Nimeirys í Súdan var steypt af stóli í gærkvöldi a. Ákvæði 11. greinar uimelli- lífeyri. b. Ákvæði 12 greinar um ör- orkubætur. e) Ákvæði 14. greinar um barnalífeyri. d. Ákvæði 15. greinar um mæðralaun. e) Ákvæði 17. og 18 greinar um ekk.juibætur og ekkjulífeyri. f. Ákvæði 2. málsgr. 19. gr. um lágmarkslífeyri elli- og ör- orkulífeyrisþega“. 2. gr. Við 16. gr. laganna koimi ný málsgrein, sem Mjóði svo: „Frá og með 1. ágúst 1971 skal þo fæðingairstyrkur aldrei vera lægri en svo að nægi fyrir 7 daga dvöl á fæðingardeild, þar sem konan fæddi“. 3. gr. Allan kostnaðarauka, sem af setningu þessara bráðabirgðalaga leiðir, skal greiða úr ríkissjóði. 4. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Samkvæmt þessu breytast hinn 1 ágúst bótagreiðslur lífeyris- trygginga almairmatrygginga þann- ig: c) Með þremur bömum og fieiri úr kr. 4.667,- á mánuði í kr. 5.600,- á mánuði. 4 Ekkjubætur hækka úr kir, 6140,- í kr. 7368,- á mánuði og greiðast nú í 6 mánuði í stað 3ja áður, og hafi ekkja bam yngra en 16 ára á framifæri sínu á hún rétt á bótum kr. 5525,- á mánuði í 12 mónuði í stað kr. 4009,- í 9 mánuði áður. 5 BkikjulífeyTÍr. Lífeyrir greiðist nú að fullu við 60 ára aldur, en lækkar um 5% við hvert ár eða brot ú-r ári, sem vantai’ á þann aldur. Árleg- ur ekkjulífeýrir er nú 70.560,-, en var áður 56.004,-. 6. BEIRUT 19/7 — Hópur liðsfor- ingja i Súdan hefur nú tekið völdin i landinu og náð útvarps- stöðvarbyggingunni á sitt vald, að því er Bagdad Radio tilkynnti á mánudagskvöld. Fyrrverandi félagi í Byltingarráðinu, Hashem Atta, höfuðsmaður, er sá, sem byltingunni stjórnar. Forsetahöllin í Khartoum var umkringd hervögnum á mánu- dagskvöld og ílugvöllur borgar- innar lokaður Ekkert símasam- band var milli höfuðborgarinnar og annarra bæja í Súdan. Me'ðal byltingarmanna eru yfirmaður lífvarðar forsetans og yfirmað- ur þriðju skriðdrekaherdeildar- innar. Herforingjastjórn Omduran Radio sendi hertón- liet á mánudagskvöld og til- kynnti. að Atta höfuðsmaður miTidi gefa út mikilvæga til- kynningu síðar. Ekki hafa ann- ars borizt nánari fregnir af því. hvemig byltingin gegn stjórn Grunsgmlegir ferðamenn PRAG 19/7 — Tékkneska varn- armáiaráðuneytið hefur varað Tékkóslóvaka við „grunsamleg- 'JKi ferðamönnum“ frá vestur- iöndum. Sérstaklega er varað við vissri gerð bandarískra ferðamanna. sem sagðir eru hafa einstakt lag á því að dreifa á- róðri fyrir borgaralegri hug- myndafræði. Jaafars Múhameðs el Nimeirys var framkvæmd. Sjálf.ur tók el Nimeiry völdin 25. maí 1969, og var stjórn hans önnur herfor- ingj'astjórn landsins frá því landið hlaút sjálfstæði sitt 1956. Atta höfuðsimaður er þekktur að því að liafa samúð með kommúnistum; þess vegna var hann rekinn úr B.vltingarráðinu í nóvember síðastliðnum. Komm- únistaflokkur Súdan er hinn stærsti í Arabalöndum. í febrú- ar fyrirskipaði el Nimeiry að gripið væri til aðgerða gegn flokknum, sem hann sakaði um að skapa öngþveiti og ógna embættismönnum. I Blii og örorkulifeyrir ein- staklings hækkar úr krónuim 4900,- á mián. í kr. 5880,- á mán. 2. Barnalífeyrir hækkar úr kr. 2.149,- á mánuði í kr. 3009,- á mánuði. 3. Mæðralaun hækka: a) Með einu barni úr kr. 430,- á máinuði í kr. 516.- á mánuði. b) Með tveimur börnum úr kr. 2.333,- á mánuöi í kr. 2.800,- á mánuði. Kárl Guðmundsson Lágmarkslífeyrir elli- og ör- orkulífeyrisþega. Þegar tekjur elli- og örorku- lífeyrisþega eru lægri en kr. 84.000,- á ári, skal hækka lífeyri hans í það, sem á vantar þá upp- hæð. Þetta er nýmæli og hefur ekki verið í lögum áður. I annarri grein bréðabirgða- laganna er ákvæði um að fæð- ingarstvrkur nægi ávallt fyrir 7 daga dvöl á fæðingarstofnun. Eins og er nægir fæðingarstyrk- ur ekki fyrir 7 daga dvöl á fæð- ingardeiidum í Reykjavfk. 1 3ju grein bráðabirgðalaganna er gert ráð fyrir að allur kostn- aðarauki, sem af lögunum leiðir greiðist úr ríkissjóði. Gert er ráð fyrir að Trygg- ingastofnun rfkisins geti greitt bótahækkanir bessar út á venju- legum greiðsludögum í ágúst eð>a mjög fljótlega eftir það. Ileilbrigðis- og ti'ygginga- málaráðuneytið. 19. júií 1971“. Jóhannes Sveinsson mundsson, flugumferðar- stjóri, Nökkvavogi 36 í Reykjavík > og Jóhannes Sveinsson, flugkennari frá Keflavík. Kári var 25 ára gamall og lætur hann eftir sig konu og tvö böm. Jó- hannes var 21 árs gamall og lætur eftir sig konu og eitt barn. Þeir Kári og Jóhannes voru í æfingarflugi þegar slysið vildi til, en ekki er ennþá kumiugt urn orsakir þess. Þeir lögðu upp frá Reykjavikurflugvelli klukkan 12,39 á lauigardagskvöld og gerðu ráð fyrir að vera á lofti í 45 mínútur. Tiu mínútum fyrir ráð- gerðan lendingartíma var reynt að hafs samband við flugvélina, en það bar ekkiárangur. Var þá strax hafin eftirgrennslan eftir flugvélinni. Um klukkan tvö var haft samband við flugbjörgunar- sveitina og klukkan 2,49 lagði fyxsta flugvélin af stað til leitair. Leitinni var aðallega beint að Hvalfjarðarmynninu. en sést hafði olíubrák á sjónum þar. Framhald á 3. síðu. Magnús Kjartansson tryggingamálaráðherra: Aðeins byrjunaráfangi Þjóðviljinn átti í gærstutt viðtai við MaRnús Kjartans- son tryggingamálaráðherra um þær breytingar á greiðslum almannatrygginga sem nú hef- ur verið flýtt og aðdraganda þeirra. — Víð sem vorum í stjórn- arandsitöðunni höfum rnjög gagtnrýnt fráfarandi stjórn fyrir slælega fraimigöngu í sambandi við ailmamnatrygg- ingar — m.a. lögðum við það til þegar rætt var um breyt- ingar á tryggingalöggjöfinni, að þær bætiur sém áttu að koma tii framkvæmda um næstu áramót kæmu til fraim- kvæmda strax. Það er því eðlilegt þeigar þessir þrír flokkar mynda Það er til marks um siðferðilega innviði hvers þjóðfélags hvernig það býr að öldruðu fólki og öryrkjum. stjórn saman, að við flýtum því að allar lífeyrisgi'eiðslur verði liækikaðar. Hér er um að ræða allháa prósentutölu, enda tóku menn eftir því fyr- ir kosningar, að stjórnarflokk- arnir höfðu siíkar tölur miög á oddinum. Þv' miöur eru þær breytingar ekki ýkja há- ar í krónum, vegna þess hve grunnuiriinn var orðinn lágur. Hækfcun á elli- og örorku- bótum nemur aðeins tæpnm 1060 krómum á mánuði, en hér bætist það við, að nú er í fyrsta sinn tekin upp tekju- trygging til þeirra sem njóta engra annarra tekna. Þeir eiga að fá uan 7000 krónur á mánuði, hjá þeim er hækk- unin um 2100 krónur, og þad munar dálítið um það. 1 málefnasaminingi stjórn- airinnar var aðeins taiað um að flýta hækkun á elli- og örorkulífeyri. en síðar var á- kveðið að iáta þetta ná +ii allra lífeyrisgreiðslna. Hækk- Magnús Kjartansson. un þessi nemur 160-170 milj. kr„ sem öll verður greidd úr ríkissjóði. Bf að spurt er „hvaðan koma peningarnir" þá er því að svara, að hækk- amdi verðlag á afurðum okk- ar gerir slíkar umbætur mögu- legar. Stórfelldari endur- sikipulagning tryggingamála krefst auðvitað verulegrar' nýirar tekjuöflunar — og það liggur þá í hlutarins eðli, að þeir þjóðifélagshópar, sem bet- ur eru settir, verða að taka á sig að greiða þá fjármuni, sem þarf tii að bæta hlut þeirra sem á aðstoð þurfa að halda. Ég vil taka það skýrt fram, að. þetta er aðeins byrjumar- áfangi. I málefnasamningi stjórnarinnar eru ákvæði um að endurskoða eigi allt trygg- ingakerfið með það fyrir augum, að ellilaun og örorku- bætur dugi tii framtfæris þeim bótaþegum, sem ekki styðjast við aðrar tek.jur. Og þær hækkanir, sem taka gildi fyrsta ágúst, eru fjarri því að uppf.ylla þau skilyrði. En það er skylda rfkis- stjómarinnar að halda áfram að vinna að endurbótum á þessu kerfi til að settu mark- miði verði náð. Þetta er stór- mál að mínu viti, því að það er tii marks um siðferðilega innviði hvers þ.ióðfélags, hvern- ig það býr að þessum hluta begnanna. — áb. » 'i < 1 4

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.