Þjóðviljinn - 31.08.1971, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.08.1971, Blaðsíða 1
Landsfundur AB 5.-7. Landsfundur Alþýðubandalagsins verður haldinn í Reykjavík 5.-7. nóvember næst- komandi. Dagskrá fundarins verður auglýst síðar. Miðstjórn Alþýðubandalagsins. !<•> Myndin er tekin á ráðstefnú Stjórnun. arfélagsins o g sýnir Jakob Gíslason, for- mann félagsins og Ólaf Jóhannesson forsætisráðherra. Ríkisstjórnin hefur ákveðið Uppsögn landheigissamninga Lögð verður fyrir Alþingi tillaga um staðfestingu á þeirri stefnuákvörðun í landhelgismálinu ■ Eíkisstjómin ákvað á fundi sínum í gær, að leggja fyrir Alþingi tillögu um uppsögn landhelgissamninganna við Breta og Vestur-Þjóðverja. Jafnframt lýsir stjómin yfir að hún telji fullnægjandi að segja samningunu’m upp-með 6 mánaða fyrirvara, en ’mun nú þegar tilkynna viðkomandi ríkisstjómum um þessar fyrirætlahir sínar. Fréttatilkynn- ing rikisstjórnarinnar fer hér á eftir: ,,Ríkisstjórnin heÆur átoveðið aðý- leggja fyrir Alþingi, þegar er það kemur saman, tillögu til staðfestingar á stefnu stjórnar- innar í landhelgismálinu þ á. m. uppsögn landhelgissamninganna við Breta og Vestur-Þjóðverja. Það er stooðun ríkisstjórnarinn- ar að fullnægjandi sé að sam- þyktot Aliþingis um uppsögn samninganna verði formlega til- kynnt með 6 mánaða fyrirvara. Jafnframt hefur stjórnin á- kveðið að ítreka sjónarmið sín í landhelgismálinu við ríkis- stjórnir Bretlands og Vestur- Þýzkaland“. Einar Ágústsson utanríkisráð- herra skýrði frá því í viðtaili í gær að í landhelgisnefndinni hefðu komið fram raddir um að eðlileigt væri að alþingi fjahaði um uppsögn land'helgissamning- anna. Hann taldi slítoa málsmeð- ferð enga skyldu — ríkisstjómin hefði heimild til þess að segja samningunum upp, en eðlilegt hefði verið talið í rítoisstjórn- inni að hafa þessa málsmeðferð. Einar kvað ríkisstjómina líta svo á, að sex mánaða uppsagn- arfrestur væri fuilnægjandi og myndi hann nú staðfesta þessi sjónarmið fslendinga í orðsend- ingu í dag til brezku- og vestur- þýzku ríkisstjórnanna. Bylting í Kerlingafjöllum Sannkölluð bylting hefur átt sér stað hvað varðar rekstur Skíðaskólans í Kerlingafjöllum. Flugvél hrapaði við Salthólmann KAUPMANNAHÖFN 29.8. — Að- eins þrír af 34 mönniuim umborð héldu lífi, er ungversk farþega- flugvél hrapaði í sjó niður við Salthólmann í Eyrarsundi laug- ardagskvöld. Flugvélin átti . að millilenda á Kastrup á leið til Austur-Berlínar og hafði fengið lendingarskipum frá stjórntum- inum. Allt virtist vera með eðlilegum hætti, er flugivélin hvarf skyndilega af ratsjár- skerminum. Stjórntum kallaði í flugvélina hvað eftir annað en fékk éktoert svar. Um það - þil klukkustund síðar fannst svo flakið af vélinni. Það var að vísu rigning og rok, er slysið varð, en skyggni var tiltölulega gott. Ekiki er vitað með nokkun-i vissiu um orsakir slyssips. Þó hefur formaöur ungverstorar rannsóknamefndar skýrt frá því, að enginn sjálfriti hafi verið í vélinni, hvort sem þar er fund- in orsökin eða ekki. Sjélfrit- inn skrifar niður hraða, hæð og stefinu flugvélarinnar og kem- ur því á óvart, að hann skuli ekki hafa verið í flugvélinni, sem var atf gerðinni Iljusin-18. Þeir þrír, sem lifðu af flugslysið, hafa allir verið yfirheyrðir, en ékkert hefur komið fi’am x' fram- burði þeirra, sem gæti skýrt slys- ið nánar. Síðastliðinn sunnudag var frétta- og starfsemi skólans, sem nú hetf- mönnum og fleiri gestum boðið ur starfað í ellefu ár við miklar að vera við vígslu nýrrar vatns- vinsæildiir í Þjóðiviljanum á aflsstöðvar, sem byggð hefur næstunni. verið í Árskarðsá. sem rennur skammt fyrir neðan skála félags- ins. Raflína hefur verið lögð firá virkjuninni að skálanum og er ratfmaignið frá virkjunni nú þeg- ar notað til ljósa og upphitunar, en éftir er að nýta rafmagnið til eldunnar. matvælageymslu og margra annarra nj’tsamlegra hluta. Að sögn forráðamamna skólans breytir tilkoma stöðvar- innar rekstrargrundvelli hans mjög til batnaðar og gefur fjöi- breytta möguileika. Stöðin fram- leiðir að jafnaði 60 til 70 kíló- vött, en getur fuilinýtt framleidd 126 kílóvött. Núverandi notkun Skíðaskólans er um 30 kllóvött. Nánar verður sagt frá stöðinni Stjómunarráðstefnu lokið Stjórnunarfélag íslands hélt ráðstefnu á Laugarvatni da.gana 27. til 30. ágúst. Blaðinu hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynn- ing frá félaginu: „Ráðstefna Stjórnunarfélags ís- lands um márkmið og umthverfi atvinnureksitrar hófst föstudag- inn 27. ágúst. Jakob Gíslasom, form. félags- ins setti ráðstetfnuna. Síðanflutti forsætisráðherra Ölafur Jóhann- essom ræðu og ræddi sérstaklega viðhorf núverandi ríkisstjómar til atvinnui-ekstrar og markmið hennar varðandi uppbyggingu atvinnuvegamna. Þá gerði hann sérstaklega að' umræðuefni nauð- syn umíhvenflisvermdar hér á fs- <£-------,-----------t------------- landti og stoyldur er lægju at- vinnulífinu á herðum í þvi sami- Þá fluttu ræður Bjami Einars- son, bæjarstjóri Akureyrar urn viðhorf sveitarfélags til atvinnu- rekstrar, Haraldur Steinþórsson, framtovseimdastjóri BSRB um viðhorf stanfsimanna ríkis og bæja til stærsta atvinnurekanda landsins, — hins opinbera. Jón H. Bergs form. Vinnuveitenda- sambands fslands ræddi viðhorf vinnuveitenda til atvinnurekstr* ar og að lokum flutti Björn Jónsson ræðu um viðhorf laun- þega til atvinnuxekstrarins. Þáffttakendur í ráðstefnunni voru rúmlega 70, en henni lauki á sunnudaigstovöldið“. Myndin sýnir rafstöðvarhusið nýja við Árskarðsá. Sjálf virkj- unin er ofar í ánni og sést af- fallsrörið tii vinstri á myndinni. (Ljósm. Þjóðv. RL.). Kirkjan brennur Myndin er frá kirkjubrunanum að Breiðabólstað á Skógarströnd, en kirkjan þar brann á sunnudag. Engu tókst að bjarga úr kirkj- unni og það eina sem ekki varð eldinum að bráð og var í eigu kirkjunnar voru messuklæði, sem geymd voru á bænum. Kirkjan var orðin hartnær 100 ára, en nokkuð hefur verið gert til að er.durbæta hana á undangengnum árum, m.a. urniu keflvískir Skógstrendingar að því í fyrrasumar að máia kirkjuna. — Sóknar- presturinn j Stykkishólmi, sem þjónar á Breiðabólstað varð held- ur betur fyrir barðinu á eldguðinum á sunnudaginn því eldur kviknaði í bifreið hans á sömu stund og kirkjan brann, en ahnn var þá á leið út að Breiðabólstað með fjölskyldu sina. _ (Ljósm. Ólafur Guðmundsson). Súgandafjörður. Fréttabréf frá Suóureyri er á 3. síðu. Stefán Jónsson skrifar Þriðjudagsbréf til Ön- undar á 3. síðu, en þriðju- dagsbréf frá Stefáni munu birtast reglulega í Þjóðviljan- um framvegis. Uppreisn Á síðu 5 er Uppreisnarsíðan endurvakin — þar er m.a. í dag birt ályktun um kjara- mál frá •jmræðuhópi AB um verkalýðsmál.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.