Þjóðviljinn - 18.07.1972, Blaðsíða 3
Þriðjudagur. 18. júli. 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3.
Þriðja einvigisskákin:
Fischer tók
frumkvæðið og
sigraði örugglega
Biðskákin var aðeins formsatriði
Þriðja einvígisskákin fór
fram á sunnudaginn. Það
leit að visu ekki vel út um
tíma, þar eð áskorandinn
neitaði að tefla á sviðinu og
krafðist þess að teflt yrði í
lokuðu herbergi. Ein af
reglum þessa einvígis er sú,
að ef mikill hávaði er í
salnum hefur skákstjóri
rétt til aö flytja keppendur
í lokað herbergi. Hinsvegar
stendur ekkert um það að
fiytja megi heila skák.
Spasski féllst samt á þessa
kröfu áskorandans, en eftir
því sem fregnir herma
aðeins í þetta eina sinn.
Klukkan átta minútur
yfir fimm hófst svo skákin,
Fischer breytti út af frá
þriðju skákinni þegar í 3.
leik. Kaus hann að beina
skákinni yfir i farveg hinn-
ar svokölluðu Ben-Oni
varnar.
Fischer hefur oft beitt
þeirri vörn með ágætum
árangri m.a. ó olympíu-
skákmótinu á Kúbu 1966.
Spasskí tók áskoruninni og
kom strax upp hvöss staða
eins og oftast í þessu af-
brigði. í 11. leik kom
Fischer mönnum á óvarf
með mjög hvössum leik (-
Rh5). Eftir þann leik er
ekki Ijóst hvernig hvítur á'
að geta haldið frum-
kvæðinu. Ekki er að efa að
þetta afbrigði á eftir að
verða rannsakað niður í
kjölinn, en í fljótu bragði
gæti maður ályktað að
hvítur hefði of fljótt farið
með drottningu sína af ská-
línunni upp á h5 Tvípeð
Fischers á h5 reyndist ekki
neinn dragbítur á stöðu
hans, en aftur á móti
saknaði Spasskí illa hvít -
reita biskupsins er að því
kom að halda niðri framrás
svörtu peðanna á
drottningarvængnum.
Þessi skák er enn ein
sönnun þess að ef svartur
nær að leika b5 i þessari
byrjun án þess að staða
hans raskist fær hann betra
tafl. í 15. leik héldu margir
að Fischer ætti möguleika
á mátsókn með riddarafórn
á 15. Rf3fl6. gxf3 Be5 en
eftir 17. Hfcl sleppur hvitur
út úr mátnetinu. Þegar
komnir voru rúmlega 20
leikir var augljóst hvert
stefndi. Spasskí varðist þó
hetjulega, en mátti sig lítt
Myndin er tekin i veitingasal Laugardalshallarinnar en griðamikill mannfjöidi fylgdist spenntur með 3.
einvigisskákinni hvarvetna i höllinni.
hræra og varð að horfa upp
á Fischer bæta stöðu sína
jafnt og þétt.
í 31. leik hefur svo
Fischer uppskipti á
mönnum og vinnur upp úr
því peðið á e4 sem lengi
hafði verið dauðans matur.
Fischer tefli framhaldið
mjög markvisst og gaf
Spasski hvergi færi og er
skákin fór í bið blasti við
mönnum ein sú skugga-
legasta biðstaða sem
heimsmeistarinn hefur
fengið um dagana. Það
kom lika á daginn, að eftir
að hann hafði séð biðleik
Fischers í gær (Bd3+)
gafst hann upp. Staðan í
einvíginu er því sú, er
keppendur setjast að f jórðu
skákinni í dag að Spasskí
Kramhald á bls. 11.
Stúlka fyrir
bifreið í
Laust fyrir kl. 3 á sunnudag
varð stúlka fyrir bifreið i hallan-
um rétt fyrir ofan Hlégarð i Mos-
fellssveit. Þarna er mjór bráða-
birgðavegur vegna nýju vega-
framkvæmdanna og mun stúlkan
hafa verið á leið að Hlégarði og
gengið á hægri akrein og bifreið,
sem var á leið i sömu átt lenti
utan i stúlkunni vegna þrengsla af
umferð sem kom á móti. Stúlkan
var flutt á Slysadeild Borgar-
spitalans og tókst Þjóðviljanum
ekki að afla upplýsinga um hve
meiðsli hennar voru alvarleg. —
Óhöpþ eða slys af þessu tagi sýna
hve mikil nauðsyn er að ökumenn
og gangandi vegfarendur ekki
siður, sýni mikla gætni, þar sem
unnið er að nýlagningu og við-
gerðum vega.
Erlendum blaðamönnum
kynnt landhelgismálið
i dag hófst á Hótel Loftleiðum
kynningardagskrá sú, sem utan-
rikisráðuneytið hefur boðið er-
lendum fréttamönnum, en
kynningin er liður i landhelgis-
málsáróðri islenzkra stjórnvalda.
í gærmorgun kynnti blaðafulltrúi
rikisstjórnarinnar Hannes
Jónsson fyrir blaðamönnum
landhelgismálið almennt. Siðan
var blaðamannafundur með Lúð-
vik Jóscpssyni sjávarútvegsráð-
herra.
Lausn á
krossgátu
Lausn á krossgátunni i Þjóð-
viljanum sl. sunnudag:
I = T, 2= Ý, 3 = R, 4 = D, 5 = A,
6=N, 7 = M, 8 = 0, 9 = K, 10 = G,
II = L, 12= U, 13 = F, 14 = Æ, 15 = S,
16 = 1 17 = E, 18 = J, 19 = A, 21 = Ó,
22 = 0 , 23 = Ð, 24 = 1, 25 = V, 26 = É,
27 = Y, 28 = B.
1 upphafi fundarins flutti
sjávarútvegsráðherra ávarp, þar
sem hann fjallaði um rök
íslendinga i landhelgismálinu,
þróun þess á alþjóðavettvangi og
skýrði einnig frá gangi við-
ræðnanna við Breta. Að loknu
ávarpi ráðherra voru leyfðar
fyrirspurnir og voru það einkum
brezku blaðamennirnir sem
spurðu. M.a. um sókn Breta á
miðin, verndun fiskistofnanna,
viðræðurnar við Breta, fullyrta
hörku sjávarútvegsráðherra i
viðræðunum og samningana við
Efnahagsbandalagið. Svaraði
Lúðvik spurningunum greiðlega.
Að loknum blaðamanna-
fundinum fóru um 50 af erlendu
blaðamönnunum til Vestmanna-
eyja til að kynna sér sjávarútveg
þar. A morgun verður blaða-
mannafundur með utanrikisráð-
herra Einari Ágústsyni og ýmis-
legt fleira á dagskrá.
„Bjartar nœtur
Undanfarin tvö sumur hefur
Kristín Magnús Guðbjartsdóttir
leikkona, ásamt fleirum, staðið
fyrir flutningi á brotum úr is-
lenzkum bókmenntum, með
ivafi þjóðlagatónlistar, fyrir er-
lenda ferðamenn.
Hefur flutningur á efni þessu
farið fram í veitingahúsinu
Glaumbæ undir nafninu
„Kvöldvaka” og fengið ágætar
undirtektir þeirra enskumæl-
andi ferðamanna sem á liafa
hlýtt.
Á fundi með fréttamönnum
tjáði forsvarsmaður Ferðaleik-
hússins, Kristin Magnús Guð-
bjartsdóttir, okkur að nú hefði
verið ákveðið að hefjast handa
að nýju og hafi Auditorium Loft-
leiðahótelsins verið tekið á leigu
i þessu skyni. Kvöldvaka þessi
hefur hlotið nafnið „Bjartar
nætur — Light nights” og hefur
Kristin valið og útbúið dag-
skrána og er hún jafnframt leik-
stjóri. Þýðingu á ensku hafa
annast Alan Boucher, Leo
Munreo, Peter Kidson o.fl.
Efnið sem tekið verður til
meðferðar er m.a. Djákninn á
Myrká, Móðir min i Kvi, Kvi,
„Vig Gunnars” úr Njálu, álfa-
og tröllasögur o.fl. Einnig verða
flutt tvö nútimaljóð eftir þau
Ninu Björk Árnadóttur og Matt-
hias Jóhannessen i enskri þýð-
ingu Alans Boucher, en þessi
ljóð ásamt fleirum komu út i
bókinni Poems of to-day sem
Icelandic Review hefur nýlega
gefið út.
Inn i þessa dagskrá verður
svo fléttað islenzkum þjóðlögum
og sýnd kvikmynd Ósvaldar
Knudsen, „Heyrið vella á heið-
um hveri”, sem gerð var fyrir
Heimssýninguna i Montreal ár-
ið 1970.
Flytjendur á þessari kvöld-
vöku, ásamt Kristinu Magnús
verða: Leo Vilhjálmsson
(Munreo), sem er kynnir,
Andrés Valberg sem fer með
rimur og Javatrióið, sem flytur
þjóðlög. Java-trióið, er skipað
þeim Bjarney Sigriði Sigurjóns-
dóttur, Gunnlaugi B. Gunn-
laugssyni og Robert Magnúsi
Brink.
A fundinum kom fram að
áætlað er að sýna þrjú kvöld i
viku, mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga til 1. september og
hefjast allar sýningar klukkan
21. e.h. Það virðist sem þessi
ágæta landkynning hafi ekki
fengiö þá athygli sem skyldi og
hefur litill stuðningur fengizt frá
opinberum aðilum og einkaaðil-
um. Þó hefur Ferðaskrifstofa
Rikisins veitt þessu máli góðan
stuðning svo og Ferðaskrifstofa
Zoega, en aðrir aðilar litið viljað
hafa afskipti af þvi og hefur það
eðlilega valdið töluverðum erf-
iðleikum þar sem fjármagn þarf
til, eins og við aðrar fram-
kvæmdir.