Þjóðviljinn - 18.07.1972, Síða 6
6. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur. 18. júli. 1972
Þriöjudagur. 18. júlil 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7.
*-.V;
A
D[þtréGðflD[þD3®®
Erlendar fréttir
Dave Bedford hljóp 10 km hlaup á 27.52,8 á laugardag og er
það bezti tími í ár. Hann var nýbúinn að bæta eigið Evrópumet
í 5000 m hlaupi, hljóp á 13.17.2.
Christos Papnikolaou, fyrrverandi heimsmethafi í stangar-
stökk, stökk 5.20 á móti i Hollandi á laugardag.
Ol-meistarinn Mohammed Gamoudi hljóp 5000 m á 13.45.0 í
Rostock á laugardaginn
Ágolfmóti Norðurlanda rak isíar.u lesíiná einsog búízt hafði
verið við. Svíþjóð sigraði með 1068 höggum en island þurfti
1192 högg.
Finnland og Sovéfrikin háðu landsleik í knattspyrnu á sunnu-
dag er lyktaði 1:1. Sovétrikin höfðu yfir i hálfleik, 1:0.
Norðmenn og A-Þjóðverjar léku landsleik í handknattleik á
sunnudag. A-Þjóðverjar unnu 17:10, en staðan var 8:4 í hálf-
leik. í fyrri lei&num á föstudag unnu A-Þjóðverjar 14:22. í
leiknum á sunnudag sýndi Þjóðverjinn Ganschow stjörnuleik,
skoraði 9 mörk.
Hil
<* ** X " , , >/
’ - ... ■ -
, \ *»*' ' >*'%. 4t#****mgx
Slöngin og inn! Svona óskamörk koma ekki á nverjum degi. Eyleifur er undir hamingjuteiknum i knattspyrnunni þessa dagana.
;Æ”' i -
l:
./
* v * 1 /.'t'i.
, % \hí . ^ ^
|| ' i"*' •■-
| " '■*» r- *í
V ^ if ■«*..■ - f-K,
*- ■ # • ., **» * **• * *r «■ - * • »■ ' •. a
IA — Valur \j j x 1 J 1 r 3C
3 gegn o V alur auoyeld brao
slöppu í A-liði
Það var rislág knattspyrna sem sást uppi á
Akranesi s.l. sunnudag, þegar ÍA og Valur leiddu
þar saman hesta sina. Að þetta væru tvö lið, sem
eru ofarlega i 1. deild, var ekki að sjá.
Eitthvert áhugaleysi virtist
hrjá Valsliöið, eða var það
kannski vonleysi? Ekki var til
heil brú i leik liösins, hvorki i vörn
né sókn. Kom það að engu haldi
þótt Bergsveinn Alfonsson berðist
eins og ljón mestallan leikinn,
hinir liðsmennirnir forðust eins
og heitan eldinn að gera nokkuð
af viti. Helzt var, að Ingi Björn
reyndi að taka spretti, svona á
köflum. Jóhannes Eðvaldsson var
þungur og svifaseinn og auðveld
bráð fyrir hina miklu sneggri
Skagamenn. Hafði ég haldið að
hann myndi sýna aðra og betri
knattspyrnu eftir Suður-Afriku-
dvöl sina.
Hverju sem um er að kenna var
allt i molum hjá Valsliðinu, og
„Strákar, blessaöir passiöi
þennan mann”, kallaöi einhver
Valsmaðurinn og átti þar viö hinn
bráölipra og skemmtilega spiiara,
Karl Þórðarson hjá ÍA.
gátu Skagamenn leikið sér að vild
innan um varnarmenn þeirra.
Sé það svo, að með hvarfi eins
stjörnuleikmanns úr liði hverfi
baráttuviljinn, er það starf
þjálfarans að stappa i leikmenn
stáli, en ekki að hverfa af leikvelli
áður en leikur er flautaður af. Ég
vissi fyrir að Hermann Gunnars-
son er mikilvægur leikmaður
fyrir Valsliðið, en sé hann svona
mikilvægur, að allt fari i handar-
skolum ef hann er ekki með, þá er
hann stærri ás, en ég hafði gert
ráð fyrir.
Skagamenn áttu lélegan leik
miðað við þeirra raunverulegu
getu, en voru þó klassa fyrir ofan
Valsliðið. Hefði mátt ætla að þeir
kæmu grimmari til leiks i seinni
hálfleik, þegar mótstaða and-
stæðinganna var svona litil. Þvi
var samt ekki að heilsa. t leik,
sem þeir hefðu allt eins vel getað
unnið með 8 mörkum gegn engu,
létu þeir sér nægja að sigra 3—0.
Að visu var völlurinn blautur og
þungur, en það hlýtur að koma
niður á báðum liðunum. Þvi held
ég mér við það, sem ég hef áður
sagt, að knattspyrnulega séð var
leikurinn afar lélegur.
Upphaf leiksins einkenndist af
þófi á báða bóga. Var eins og leik-
menn væru að þreifa fyrir sér um
getu andstæðinganna. A 12. min.
tóku Skagamenn af skarið og
pressuðu stift á Valsmarkið. Úr
þessari pressu skoraði svo Teitur
Þðrðarson með snöggu skoti.
Staðan 1—0 fyrir 1A.
A 20. min. kom fyrir eitt af þeim
ieiðinlegu atvikum, se.m dómar-
inn Rafn Hjaltalin sá ekki, þ.e. að
brotið var á leikmanni. Þessi
atvik urðu æði mörg i þessum
leik. Ingi Björn fær góða sendingu
fram völlinn, og ætlaði að skjótast
á milli tveggja varnarmannalA,
vel inn i vitateig þeirra. Þar sem
In^i virtist ætla að ná knettinum,
tóku varnarmennirnir það ráð að
klemma hann á rnilli sin og
skella honum svo i völlinn. Víta-
spyrnudómur hefði okki verið of
harður i þess’ú 'tilviki. En dómari
sá ekkert athugavert við brotið og
lét leikinn halda áfram.
Sigurður Dagsson er mjög nálægt þvi aö verja vitaspyrnuna sem
Eyleifur framkvæmdi. örin sýnir hvar boltinn er. Rafn Hjaltaiin,
dómari, fylgist spenntur meö. Myndir SJ.
Fleiri urðu mörkin ekki i
þessum leik og var IA vel að
sigrinum komið.
Hjá Val var ekki hægt að tala
um að einn leikmaður væri öðrum
betri, nema ef vera skyldi Berg-
sveinn Alfonsson. Hann var si-
vinnandi allan Ieikinn. Sigurði
Dagssyni er ekki hægt að kenna
um mörkin, vörnin var það léleg.
Myndi ég þvi telja þá tvo, ásamt
Þóri Jónssyni, beztu menn Vals.
Hjá IA var Eyleifur beztur.
Einnig var mjög gaman að sjá til-
þrif Karls Þórðarsonar, en hann
er mjög leikinn með knöttinn, þó
svo að hörkuna hafi hann ekki,
enda óharðnaður ung-
lingur. Hörður Jóhannesson
komst lika mjög vel frá leiknum,
að ógleymdum markverðinum
Herði Helgasyni, sem varði vel.
Máske gefur einvaldurinn honum
tækifæri á að komast i landsliðs-
hópinn, þá er hann verður
þreyttur á varamarkverði sinum.
f.k.
Á 39. min. er Teitur einn fyrir
opnu markinu, en skaut i þverslá.
Knötturinn hrökk aftur út á
völlinn, og aftur er skotið, en
Valsmenn bjarga á marklinu.
Á 45. min. einlék Eyleifur i
gegnum Valsvörnina og skoraði
óverjandi i stöng og inn. Staðan
orðin 2—0 fyrir IA.
1 leikhléi breytti Óli Jóns,
þjálfari, liði Vals þannig, að hann
tók Ingvar Elisson út af, en inná
kom Þórir Jónsson. Um tima
virtist þessi skipting hleypa nýju
blóði i Valsliðið, en þegar á átti að
herða, rann allt út i sandinn.
ÁI3. min. seinni hálfleiks fékk
Jóhannes Eðvaldsson knöttinn
fyrir opnu marki, en þar sem
eitthvað er ábótavant við tækni
hans, tókst honum að klúðra tæki-
færinu.
Á 30. min. sækja Skagamenn
stift, og Eyleifur gefur á Teit,
sem vippaði knettinum skemmti-
lega yfir markið.
Minútu seinna komast Skaga-
menn aftur i sókn, en Herði Jóh. -
syni er brugðið illilega inni i
miðjum vitateig Vals. Dómarinn
dæmdi réttilega vitaspyrnu.
Eyleifur framkvæmdi spyrnuna
og skoraði örugglega. Staðan
orðin 3—0 fyrir IA.
Mikill er máttur útvarpsins! Þessi maður er að horfa á leik Akur-
nesinga og Vals og fylgist um leið meö lýsingu Jóns Ásgeirssonar, sem
var lokaöur inni i miklum vörubil rétt hjá. Við erum siöur en svo að
gera grin aö þessum hciöursmanni: hann liefur eflaust langað að frétta
af ieik Fram og ÍBK scm fór fram á saina tima, og svo var það Fischer
og Spasski....Það er ekki svo Iitiö lagt á fóik þessa dagana.
Landsleikur
í kvöld kl. 8
I kvöld kl. 20.00 fer f ram landsleikur i
handknattleik milli íslands og Banda-
rikjanna. Veröur leikurinn háöur í
iþróttahúsinu i Hafnarfiröi.
Búiðer að velja islenzka landsliðið sem leikur.
Markverðir: Hjalti Einarsson FH ólafur Bene-
diktsson Val. Aðrir leikmenn eru: Gisli Blöndal
Val. Geir Hallsteinsson FH, Einar Magnússon
Viking, Sigfús Gunnarsson, Agúst Ogmundsson
Val, Jón Hjaltalin Magnússon Viking, Björgvin
Björgvinsson Fram, Stefán Gunnarsson Val,
Sigurður Einarsson Fram og Ólafur H. Jónsson
Val.
Er þetta fyrri landsleikurinn af tveim, sem
háður verður i þessari Evrópuferð bandariska
landsliðsins. Seinni leikurinn fer fram annað
kvöld kl. 20.00 á sama stað.
Akureyri —
Haukar 3:1
i 2. deild gerðist þaö helzt um helgina
aö Akureyringar unnu Hauka 3:1 á
Akureyri, en vesturá isafirði unnu FH-
isfirðinga með 5:1.
í 3. deild hefur Viöir forystu í A-riðli,
unnu Stjörnuna 1:0 á föstudag.
Víkingur 1:0
Leik Víkings og Breiöabliks í gær-
kvöldi lauk 1:0 fyrir Breiðablik.
Lánleysið elti Viking einsog vana-
lega — sérstaklega í markaskotum.
Þór Hinriksson skoraði fyrir Breiða-
blik á sjöttu mínútu seinni hálfleiks.
Elías Guðmundsson
Norðurlandameistari
Elías Guðmundsson KR varð fyrstur
i 100 metra bringu sundi á Norður-
landameistaramóti unglinga í Árhus á
1.14.5.
Þá varð hann nr. 3 í 200 m. bringu-
sundi.
Fram vann
IBK 3:2
áfram
Fram heldur
sigurgöngunni
Þá eru línurnar farnar aö
skýrast i 1. deild, eða alla-
vega virðist Fram vera
komið með sterka stöðu.
IBK, er virtist vera orðið
aðalkeppninautur Fram,
varð þeim engin hindrun,
er á reyndi. I leik liðanna,
er fram fór á Keflavikur-
velli s.l. sunnudag, sigraði
Fram 3 - 2. Var sá sigur i
alla staði verðskuldaður.
Höfðu leikmenn Fram yfir-
burði á öllum sviðum,
nema i ruddaskap og gróf-
um leik: þar stóðu Kefl-
víkingar sig af stakri prýði.
Hvaða hugsun er i leikmönnum
eins og Einari Gunnarssyni,
þegar hann tekur að elta Elmar
Geirsson eins og dýr, sem nýbúið
er að gefa út veiðileyfi á, og um
að gera sé að koma þvi fyrir
kattarnef á stundinni, þvi hærri
verði veiðilaunin. Eflaust hefur
Einar talið, að veiðilaunin yrðu
öllu meiri en sigur i þessum eina
leik, jafnvel sigur i deildinni.
Þegar menn taka að sér hið ógeð-
fellda hlutverk i knattspyrnuleik
að reyna að koma hættulegum
andstæðingi úr leik, með öllum
tiltækum ráðum, þ.e. að hlaupa
aftan á hæla honum, sparka i
leggina, jafnvel að slá með hnef-
um, veröur það að gerast meö
meiri „leynd”.
Einar sýndi sig beran að þvi að
elta Elmar um allan völlinn i
þessum tilgangi. Knötturinn var
aukaatriði, enda oftast viðs fjarri
þegar Einar veittist að Elmari.
„Betur” hefði þetta litið út, ef
slys hefði borið að, ef Einar hefði
framkvæmt þessar „árásir”
sinar þá er Elmar sótti aö hon-
um; allavega hefðu aðgerðirnar
verið „réttlætanlegri”.
Hið grófa spil þeirra IBK-
manna hleypti illu blóði i
Framara og var oft á tiðum á
nippinu aö upp úr syði, en dómara
leiksins, Ola Ólsen, tókst þó að
varna slagsmálum, og slapp hann
furðu vel frá þessum erfiða leik.
I heild var leikurinn fremur
daufur, en þó komu einstaka
skemmtilegir sprettir, er lyftu
honum upp úr meðalmennskunni.
I fyrri hálfleik áttu Framarar
mun meira i leiknum, enda
ákveðnari i sóknaraðgerðum sin-
um. I seinni hálfleik hristu Kefl-
vikingar aðeins af sér slenið, og
er Magnús Torfason kom inná,
fór að vakna smávon um að þeim
tækist að ná i annaö stigið, jafnvel
bæði. Leikur þeirra þá var allur
annar og betri en áður, en Fram-
liðið með daufasta móti.
P'yrst Þorsteinn Ólafsson vara-
markvörður ÍBK er nógu góður
fyrir landsliðið, væri reynandi að
nota hann i eins og einum leik
með IBK, og leyfa hinum fjöl-
mörgu aðdáendum liðsins að sjá
hann. Eitthvað hlýtur hann að
hafa sér til ágætis, fyrst hann er
valinn i landsliðið. Máske hefði
hann getað unnið sigur fyrir IBK i
þessum leik, hver veit?
Frá sjónarhóli blm. litur
leikurinn þannig út, ef beztu tæki-
færin eru upp talin:
Á 10. min. bjargaði Þorbergur
vel, lúmsku skoti, og fór
knötturinn út fyrir endamörk.
Á 15. min. myndaðist þvaga upp
við mark ÍBK, og er Sigurbergur
þar kominn með góðan skalla-
bolta sem markvörðurinn réð
ekki við. Staðan 1-0 fyrir Fram.
Á 22. min. varði Þorbergur gott
skot Astráðs af um 35 m. færi.
Á 35. min. tekur Eggert Stein-
grimsson aukaspyrnu, sem
Erlendur Magnússon afgreiðir
með góðu skoti niðri i fjærhornið.
Staöán orðin 2-0 fyrir Fram. Rétt
fyrir lok hálfleiksins á svo Ólafur
Júliusson gott skot á mark Fram,
en Þorbergur varði.
A 5. min. i seinni hálfleik leikur
Karl Hermannsson skemmtilega
upp og gefur á Steinar Jóhanns-
son sem skaut, en Þorbergur var
vel á veröi og varði.
Á 20. min. er Steinar einn fyrir
opnu marki, en spyrnir framhjá.
Á 20. min. varð Elmar Geirsson
að yfirgefa völlinn.
A 28. min. gaf Ólafur Júl. vel
fyrir, og Grétar Magnúss. sem
hafði fylgt vel eftir skutlar sér
fram og skallar i mark. Staðan
orðin 2-1 fyrir Framm.
Þegar um það bil 12 min, voru
eftir af leik varð Erlendur
Magnússon aö yfirgefa völlinn, en
Jón Péturss. kom inná.
Á 40. min. skorar Steinar l'yrir
tBK. Hafði myndazt þvaga lyrir
lraman mark Fram, en Steinar
fékk knöttinn og var ekki seinn að
afgreiða hann i netiö. Staðan
orðin 2-2.
A 42. min. ættlaði Gunnar að
gefa vel fyrir mark IBK, en
knötturinn sveif yfir markvörðinn
og i mark. Staðan orðin 3-2 fyrir
Fram, og þannig endaði leik-
urinn.
Leikmenn ÍBK léku mjög grófa
knattspyrnu, og virtust þeir vera
innslilllir á að leika af hörku. Var
svo komið að Framarar voru
farnir að taka upp á sömu vit-
leysunni, og er slik knattspyrna
litið fyrir augað.
Beztu menn ÍBK voru þeir
Steinar Jóhannsson og Magnús
Torfason. Einnig var Guðni
Kjartansson sæmilegur á köflum,
ásamt Ólafi Júliussyni.
Hjá Fram voru beztir Þor-
bergur Atlason, Baldur Scheving
og Eggert Steingrimsson ásamt
Marteini Geirssyni. a.j.
p i: ImbmmmmmiP
! :i
i 1 rnmmmrrTÁ
1 f, j
Náði OL-lágmarki
Á lyftingamóti Ármanns
er fram fór nú fyrir
helgina, setti Óskar Sigur-
pálsson Á. nýtt Islandsmet i
samanlögöu. Reyndar uröu
metin tvö, þar sem hann
bætti eldra metið i pressu
um 2,5 kg.
Er met Óskars i þungavigt all-
gott á erlendan mælikvarða, enda
Óskar i góðri æfingu. Haldi hann
áfram að taka slikum framförum
fram að Ólympiuleikum, er ekki
að efa að hann verður i fremstu
röð þar.
Árangur Óskars i samanlögðu,
er jafn alþjóða-ólympiulág-
markinu. Þar sem ekki þarf að ná
þvi lágmarki nema einu sinni, er
Óskar annar islenzki lyftinga-
maðurinn sem þvi nær; hinn er
Guðmundur Sigurðsson Á.
Seria Óskars var:
Pressa. 175 kg. Snörun. 120 kg.
Jafnhöttun. 180 kg. Samanlagt.
475 kg.