Þjóðviljinn - 22.07.1972, Síða 1
múDviuiNN
Laugardagur 22. .|úli 1972—37. árgangur—161. tölublað
Alþýóubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaóur
Fiskimenn í Klaksvik:
Vilja færa út
1. september
Fiskimannafélagið i Færeyjum hefur skorað á
landstjórn og lögþing Færeyja að færa land-
helgina út 1. sept. n.k. eða sama dag og islending-
ar. Þessi áskorun fer hér á eftir og sýnir hún vel
að færeyska þjóðin.sem er eins háð fiskveiðum og
við íslendingar, hyggur nú einnig á aðgerðir i
landhelgismálinu.
Fiskimannafélagið i Klaksvik
i Færeyjum hefur skorað á
landsstjórn og lögþing Færeyja
að taka ákvörðun nú þegar
um útfærslu færeysku fiskveiði-
lögsögunnar og eigi útfærslan
að koma til framkvæmda eigi
siðar en 1. sept. n.k. I
áskoruninni er m.a. sagt, að
félagið liti útfærslu land-
helginnar hafa lifsþýðingu ekki
aðeins fyrir færeyska fiskimenn
heldur og fyrir alla færeysku
þjóöina. bá er sagt, aö
Færeyingar verði aö halda fram
yfirráðarétti sinum yfir öllu
færeyska landgrunninu og
Öllum Færeyjabanka. Þá er
bent á, að engin alþjóðalög né
alþjóðaréttur séu til sem geti
bannað Færeyingum að lýsa
lögsögu sinni yfir þessari
færeysku eign. Enn fremur er
sagt, aö engin þjóð i öllum heimi
sé svo háð fiskveiðum sem ein-
mitt Færeyingar. Mesta auðlind
sem landið á er sú sem syndir i
sjónum kringum eyjarnar og að
engin þjóð eigi jafn mikinn rétt
yfir landgrunni sinu sem
Færeyingar.
Lögð verður áherzla á, að út-
færslan komi til framkvæmda
eigi siöar en 1. sept. n.k.,eöa
sama dag og islenzka útfærslan.
t þvi sambandi er bent á i
áskoruninni, að færeysk stjórn-
völd skuli strax hefja viðræður
við tslendinga um fiskveiöar
Færeyinga við ísland og eigi
þessar viðræöur að fara fram á
þeim grundvelli aö Færeyingar
flytji út sina landhelgi þennan
sama dag.
Þessi einróma ályktun Klaks-
vikinga er einnig send öðrum
fiskimanna og verkamanna-
félögum i Færeyjum og skorað á
þau og yfirleitt allt fólkiö I
landinu að standa saman sem
einn maður. um kröfuna um út-
færslu.
Lögþing Færeyja kepiur
saman á ölafsvökunni þann 29.
júli og mun þá þessi áskorun,
ásamt útfærslutiilögu Þjóö-
veldisflokksins, sem féllu á
siöasta þingi, strax koma á dag-
skrá. Samkvæmt tillögu Þjóð-
veldisflokksins átti landhelgin
að miðast viö 70milur og einnig
átti samsvarandi lögsaga að
gilda á Færeyjabanka.
I áskorun Klaksvikinga var
lagt til aö Fiskimannafélögin
fjalli um vidd lögsögunnar, en
samt tekið fram að hún eigi að
minnsta kosti aö ná til alls
landsgrunnsins og einnig alls
Færeyjabanka.
Erlendur Patursson,sem upp-
lýsti blaðiö um þessa samþykkt,
sagði að nú væri að koma
skriður á dMtdhelgismáliö i
Færeyjum,"™^ að átta sig á
þvi, hvað er ao gerast varöandi
fiskstofnana og það skilji betur
nauðsyn útfærslu. Ahugi sé þvi
vaxandi á landhelgismálinu.
Skrýtin sameining
Þrir flokkar hafa nú myndaö
nýjan bæjarstjórnarmeirihluta á
lsafiröi, Sjálfstæöismenn, Al-
þýöuflokksmenn og frjálslyndir,
en hér i blaöinu hefur áöur veriö
skýrt nokkuö frá aödraganda
þessa bræöings.
Endahnútur undirbúningsins
var hnýttur á fundi alþýðuflokks-
manna s.l. miövikudagskvöld, en
þar var kosin 3ja manna nefnd til
að ganga frá samningum. Áður
höfðu frjálslyndir samþykkt á
fundi að taka þátt i myndun
mcirihluta meö Ihaldinu.
Bæjarstjórnarfundur var svo
haldinn á fimmtudagskvöldið.
Var þar kosið i bæjarráð og
nefndir. 1 bæjarráði er einn full-
Framhald á bls. 11.
Samningur við EBE
undirritaður í dag
1 dag verður undirritaöur I
Brussel viðskiptasamningur Is-
lands og Efnahagsbandalags-
ins. Samtimis verður undirrit-
aður sams konar samningar við
þau-Efta-riki sem ekki sóttu um
aðild að bandalaginu.
Einar Agústsson utanrikis-
ráðherra mun undirrita samn-
inginn fyrir tslands hönd og
flytja ræðu við það tækifteri.
Þess ber að geta að fyrirvari
var gerður við gerð samnings-
ins varðandi landhelgismálið
þess efnis, að bandalagið krefst
þess að viðeigandi lausn fáist á
landhelgismálinu. Islenzk
stjórnvöld hafa hins vegar lýst
yfir að samningurinn við banda-
lagið verði ekki staðfestur fyrr
en vitað sé> hvað i þeim fyrir-
vara felst af hálfu bandalagsins.
Samtenging orkuyeitusvœða á Norðurlandi
Norðurland
fái hlutdeild i ódýrri
orku frá Sigöldu
Mikið hefur að undanförnu verið skrifað um raforku-
mál á Norðurlandi. I fréttatilkynningu frá Iðnaðarráðu-
neytinu kemur fram að það teluralgera fjarstæðu að ætla
Norðurlandi að búa við tvöfalt dýrari raforkuöflun í
framtíðinni en Suðurlandi. Raflínan milli Akureyrar og
Skagaf jarðar gegni því tvíþæfta hlutverki, að leysa raf-
orkuþörf Norðurlands vestra næstu tvö árin og tryggja
þeim landshluta hlutdeild í framtiðarlausn á raforkuöfl-
un fyrir Norðurland í heild með tengingu við Suðurland
og þar með aðild að ódýrari orku f rá Sigöldu.
Her fer á eftir fréttatilkynning
iðnaðarráðuneytisins um blaöa-
skrif vegna samtengingar orku-
veitusvæða:
(Jt af blaðaskrifum, sem fram
hafa farið aö undanförnu um raf-
orkumál Norðurlands vestra, vill
iðnaðarráðuneytið taka fram eft-
irfarandi:
Iönaðarráöuneytið kostaöi at-
hugun þá á tengingu Skeiðfoss-
svæðisins við Skagafjörö og viö-
bótarvirkjun Skeiðfoss, sem vikiö
hefur verið aö i blaðaskrifum, og
ber það siður en svo vott um aö
ráðuneytiö hafi fyrir sitt leyti
viljað loka neinum þeim leiðum
til öflunar raforku fyrir Norður-
land vestra, sem hagkvæmar
kynnu að reynast. Að lokinni
þeirri athugun, sem framkvæmd
var af Rafveitu Siglufjarðar, en
kostuö af ráðuneytinu, svo sem að
gtman er að vikið, fól ráöuneytiö
kustofnun aö gera itarlegan
sambanburð á tengingu Skaga-
fjarðar og Skeiðfosssvæðis og ný-
virkjun Skeiðfoss annars vegar
og linulögn Akureyri-Skagafjörö-
ur hins vegar. Niðurstaðan af
þeim athugunum var á þá leið, að
linulögn frá Akureyri væri hag-
kvæmari lausn fyrir Norðurland
vestra svo fremi aö sú orka, sem
Norðurland vestra fær um linu
þessa, kostaöi 70 aura/kWh eða
minna, þar sem hún kemur inn á
linuna.
Forráðamönnum Rafveitu
Siglufjarðar er kunnugt um þessa
niðurstöðu.
Tiltæk orka á Noröurlandi
eystra frá þeirri nývirkjun, sem
nú er unnið að i Laxá er talin
munu endast i a.m.k. 2 ár enn,
enda þótt Norðurland vestra fái
hlut i henni. Rafmagnsveitur rik-
isins hafa þegar með samningi
viö Laxárvirkjun tryggt sér nægj-
anlega orku fyrir Norðurland
vestra á þessu timabili, eða til og
með 1974, viö verði, sem er undir
áöurnefndum 70 aur/kWh.
Framhald af bls. 11.
HLAUPIÐ EYKST
ENN í SKAFTÁ
t simaviðtali við húsfreyjuna i
Skaftárdal, seinni partinn í gær-
dag, sagði hún að vatnið væri
stöðugt að vaxa I Skaftá. Nú rynni
vatnið fram hjá brúnni við Eld-
vatn að norðan og mundi það
kannski bjarga þvi að hún færi
ekki.
Hún sagði aö vatnsflaumurinn
væriorðinngffurlegur og frá bæn-
um séð Væri eins og yfir haf að
lita. Vatnsmælirinn, sem er i ánni
við Skaftárdal, var orðinn óvirk-
ur, þannig að ekki var hægt að
ganga úr skugga um, hve vatns-
borðið i ánni hefði vaxið mikið, en
þó taldi hún að það væri aö nálg-
Framhald á bls. H.