Þjóðviljinn - 22.07.1972, Page 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur. 22. júli 1972
MOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljana.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson,
Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 línur).
Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði.
Lausasöluverð kr. 15.00.
Prentun: Blaðaprent h.f.
SAMNINGARNIR FRÁ
Alþjóðadómstóllinn i Haag hefur til-
kynnt, að opinber málflutningur vegna
kæru Breta á hendur íslendingum út af út-
færslu fiskveiðilandhelginnar hefjist þann
1. ágúst n.k. Eins og kunnugt er hafa Bret-
ar krafizt cið dómstóllinn setji lögbannsúr-
skurð á útfærsluna i 50 milur þar eð út-
færslan er að dómi Breta brot á landhelg-
issamningnum frá ’61. Þannig ætla Bretar
sér að reyna að fá dómstólinn til að lýsa
þvi yfir, að islenzk stjórnvöld gangi á
gerða samninga. íslenzk stjórnvöld hafa
aftur á móti tilkynnt Alþjóðadómstólnum
að ísland telji hann ekki hafa neinn úr-
skurðarrétt i þessu máli og rikisstjórnin
tilkynnt, að landhelgissamningarnir frá
1961 séu úr gildi fallnir. Þvi munu Islend-
ingar ekki hlita úrskurði dómsins né mæta
við málflutning þar. Auk þess hefur verið
á það bent, að engin alþjóðalög séu til um
viðáttu landhelgi og þvi hafi dómstóllinn
hvorki löggjafarvald né lagaforsendur til
að fella dóm um þetta mál. Ef dómstóllinn
tekur málið eigi að siður fyrir, þá er það á
961 OG MÁLAFERLIN
þeirri forsendu, að hann liti svo á eins og
Bretar að landhelgissamningurinn frá
1961 hafi ekki verið uppsegjanlegur.
Þegar samningurinn var gerður við
Breta árið 1961, þá lýsti þáverandi stjórn-
arandstaða þvi yfir að samningurinn væri
nauðungarsamningur þar eð brezk her-
skip beittu þá ofbeldi á islenzku lögsagn-
arsvæði innan 12 milna landhelginnar.
Jafnframt var þvi lýst yfir, að þáverandi
stjórnarandstaða mundi gripa fyrsta
tækifæri til að lýsa þennan samning úr
gildi fallinn. Samningurinn var sam-
þykktur á Alþingi 1961 með 32 atkvæðum
gegn 28, þ.e. með naumum meirihluta. Nú
eru valdahlutföllin breytt á Alþingi og i
samþykkt Alþingis frá 15. febrúar s.l. seg-
ir að samningurinn geti ekki lengur átt
við. Það er þvi ljóst að íslendingar hafa
fyrir sitt leyti skýrt og greinilega gert
kunnugt að þessi samningur sé búinn að
gegna sinu hlutverki og sé ekki lengur i
1 HAAG
gildi. Það,að Bretar hengja enn hatt sinn á
þennan samning og hafa nú fengið Haag-
dómstólinn til að fjalla um landhelgismál
okkar, sýnir að þetta verk viðreisnar-
stjórnarinnar 1961 er ennþá eina vopnið
sem Bretar geta reynt að nýta i sinni von-
lausu baráttu gegn friðunaraðgerðum ís-
lendinga. Aðvaranir Alþýðubandalags-
manna og Framsóknarmanna á Alþingi
1961 voru ekki teknar til greina, og þvi
stöndum við nú frammi fyrir þessu loka-
brölti Breta. Þeir sem gerðu þennan
samning 1961 ættu þvi ekki að vera nú að
skrifa um samninginn sem „stærsta
stjórnmálasigur íslendinga” eins og Jó-
hann Hafstein gerði meðan samningavið-
ræðurnar við Breta stóðu yfir fyrr i
mánuðinum. Landhelgissamningurinn
1961 kemur að sjálfsögðu ekki i veg fyrir
útfærslu landhelginnar i 50 milur 1. sept.
n.k. en málaferlin nú sýna að samningur-
inn þvælist fyrir og var pólitisk skyssa
framin af forystu Sjálfstæðis- og Alþýðu-
flokksins.
Ekki ráðlagt
að fara
Sprengisand
Nú um hásumarleyfis-
timann eru þaö margir sem
leggja upp i feröir um miö-
hálendi landsins. Þjóðvilj-
inn náði í gærtali af Sigur-
jóni Rist hjá Orkustofnun,
en viö höfum fregnaö, aö
hann hefði farið suöur
Sprengisand í siöustu viku.
Sigurjón sagöi, aö ekki væri
ráölegt aö fara á fólksbilum norð-
ur Sprengisand. Aðalástæöurnar
taldi hann vera, að mikið vatn
væri i Grjótá nálægt Köldukvisl
Hver á
miða
4545?
og i Mjódalsá fyrir noröan Mýri,
en i þeirri siðarnefndu væri dýpiö
á vaðinu um 60 sm. Liklega yrði
vatnsmagniö ámóta, ef eins úr-
komusamt veröur áfram. Hins
vegar taldi Sigurjón leiöina aö
ööru leyti góöa miöað við öræfa-
leið. N'yrðri 'h'lútinn norban
Tungnafellsskála væri greiðfær
og greiðfærari en syöri leiöin
sunnan við skálann. Sú leið hefði
verið hefluð og meira flæddi yfir
hana, en sú nyrðri hefði verið var-
in vatnsgangi og rásir geröar til
að hleypa vatninu af leiðinni. Þó
sagði Sigurjón, að leiðin væri
hálfleiöinleg á kafla, mjög grýtt
norðan Kiðagfilshnjúks og niður i
Bárðardal. Þá sagði Sigurjón, að
bilar hefðu lent i erfiðleikum á
Mosum; þar væri mólent og bilar
hefðu festst, en með aðgæzlu
mætti sneiða hjá erfiðleikum á
þvi svæöi.
sprakk snertir, þá hefur svo farið
eins og raunar um borö í togara
fyrir nokkru að vekja varð skips-
höfnina til að tilkynna um spreng-
inguna. Þeir eru iðnir við það nú
að reyna að vekja en fróðlegt væri
að sjá þessa herramenn sanna
þessa strandsiglingu og spreng-
ingu fyrir sjórétti, en liklega
verður sjóprófað i málinu á Al-
þingi í haust.
Einkennileg
sameining
á ísafirði
Alþýðublaðið, Nýtt land og
raunar Timinn lika hafa skrifað
mikið um sameiningarmálið i
sumar. Sameining vinstri flokk-
anna er athyglisvert mál, sem
þörf er á að ræða ýtarlega, þó
framkvæmd þess muni eðlilega
taka óratima. Nú bregður hins
vegar svo við, aö Alþýðublaðið
hefur skyndilega þagnað. Ástæð-
an er augljós. Þessa dagana hafa
kratar, frjálslyndir og ihaldið á
ísafirði verið að semja um það að
sameinast og mynda bæjar-
stjórnarmeirihluta. Nú hafa þess-
ir samningar tekizt. Hugmynda-
fræðingur frjálslyndra sér þarna
draum sinn rætast, sem vinstri
sigurinn i siðustu alþingiskosn-
ingum kom i veg fyrir; en krat-
arnir sem i 50 ár hafa verið hörð-
ustu ihaldsandstæðingar á fsa-
firði, láta teyma sig inn i slika
sameiningu við gamla stéttaand-
stæðinginn. Það skal engan
undra, þó ritstjóri Alþýðublaðsins
hætti skrifum um sameiningar-
málið, þegar hann þarf að horfa
upp á krataliðið á ættaróðali sinu,
liðið sem hann dýrkaði,ganga til
samstarfs við þá menn á Isafirði
sem alla tið voru hörðustu and-
stæðingar hans i bænum, ihaldið,
og einnig til samstarfs við gömlu
svikarana við jafnaðarstefnuna,
Hannibalsliðið.
err.
Bjartsýnir ferðalangar á
norðurleið
Margir litu þremenningana á hjólunum forvitnisaugum þegar þeir biðu eftir fari með Akraborg á dög-
unum. Þetta er franskt fólk sem ætlaði norður á þessum veigalitlu en hlöðnu farartækjum. Þau voru
ánægð og bjartsýn, allt ágætt nema rigningin daginn sem þau voru á Þingvöllum.
Siðastliðinn miðvikudag var
dreginn út annar vinningurinn i
öryggisbeltahappdrætti Umferð-
arráðs. Fór útdrátturinn fram á
skrifstofu sýslumanns Árnessýslu
á Selfossi, og kom vinningurinn,
sem er 10. þús. kr. i peningum, á
miða nr. 4545. Guðmundur Jóns-
son frjálsiþróttamaður dró út
vinningsnúmerið.
Samtais hefir nú verið dreift
um niu þúsund happdrættismið-
um og um þessa helgi verður
dreift 5 þúsund miðum. Næsti
vinningur, sem einnig er 10. þús
kr. i peningum, verður dreginn út
á Akureyri 26. júli. Verður þá
einnig dregið úr öllum þeim
happdrættismiðum sem dreift
hefir verið, eða 14 þúsund miðum.
Fyrsti vinningurinn, sem kom
upp á miða nr. 3601 er enn ósóttur.
Myndin er tekin þegar vinning-
urinn var dreginn út. Á myndinni
er talið frá vinstri: Tómas Jóns-
son lögregluvarðstjóri, Sveinn J.
Sveinsson fulitrúi sýslumanns og
Guðmundur Jónsson frjáls-
iþróttamaður á Selfossi
Sprenging
og strand?
Þegar vinstri stjórnin tilkynnti
bráðabirgðaaðgerðina i efna-
hagsmálum og aftur þegar skatt-
skráin kom út, birtu málgögn
stjórnarandstöðunnar yfirlýsing-
ar þess efnis, að nú væri Ólafia
búin að sigla i strand og spreng-
ing orðin um borð i þjóðarskút-
unni. Jóhann og Gylfi komu siðan
fram i þættinum Álitamáí hjá
Stefani Jónssyni (til að koma aft-
ur á jafnvægi i þættinum^sem gert
hefur hlutleysi rikisútvarpsins að
álitamáli) en i þessum þætti full-
yrti Gylfi að búið væri að sigla
öllu i strand.
Það undarlega Við þessa
strandsiglingu og sprengingu er
þó það, að þjóðin um borð i skút-
unni hefur ekki vaknað upp við
neinn hnykk. Að visu haíði stjórn-
arandstaðan búið þjóðina vel
undir það, að hún ætti i vændum
að rekast á tundurdufl i júlimán-
uði við útkomu skattskrárinnar
og kom sú aðvörum sér mjög vel
enda ekki að spyrja að hugulsemi
Morgunblaðsins við vinstri
stjórnina; drengirnir þar eru allt-
af jafn yndislegir i stjórnarand-
stöðu. En hvað tundurduflið sem