Þjóðviljinn - 22.07.1972, Side 8
8. StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur. 22. júli 1972
( 5) EVA RAAAM:
!v! AAANNFALL OG AAEYJAVAL
og hikandi, meil vingjarnlegri,
skólaöri röddu, eins og hún væri
aö vona aö hún særöi engan:
— Ég hef veriö skráöur félagi i
hægri flokknum i fimmtán ár,og
þaö merkilegasta sem ég hef
fengiö aö gera er aö skrifa fund-
arboö þúsundum saman og
sleikja miljónir frimerkja.
— Þér getið reitt yöur á aö þvi
verðurekki gleymt, sagði Merete
hlýlega. — Jafnvel smávægileg-
ustu hlutir gegna sinu hiutverki i
hinni miklu heild.
Rigmor Hammerheim reis
einnig á fætur:
—- Ég er sammála þvi, aö eitt-
hvaö veröi að gera til aö koma
fleiri konum i bæjarstjórn. En ég
segi eins og Merele Bang — með
dálitilli breytingu — aö ég vil
heldur vera neðst á lista vinstri
flokksins en taka þátl i þvi sem
Gunda Henriksen leggur til. Þaö
er vinstri flokkurinn sem er i takt
við timann! ()g hvaö verkefni
snertir—! Hugsið um alllsem viö
i vinstri flokknum höfum mót-
mælt! Að minnsta kosti viö i
vinstra arminum. Viö mótmælum
öllu, efnahagsbandalaginu og
atómsprengjunni, sviviröilegri
meöferö kynvillinga og —
— Já ég ruglast stundum i þvi
sjálf hverju ég er aö mótmæla,
andvarpaöi litil vinstrikona, sem
sat skólaus og teygði úr tánum;
skónum haföi hún sparkað inn
undir stólinn.Vitið þiö þaö aö um
daginn vorum viö aö randa um> i
Osló meö mótmælaspjöld og fána,
og i smáhléi hrópaði ég af öllum
kriiftum til aö sýna aö ég ætlaði
ekki aö draga af mér: Niður meö
atómsprengjuna! Og þá vorum
viö aö mótmæla inngöngunni i
Kfnahagsbandalagið. Ég dauö-
skammaöist min!
Rigmor Hammerheim kimdi og
konurnar hlógu. Roskin kona, frú
Johansen sem vann á skaltstof-
unni reis á fætur neöar i salnum
og leit meö umvöndun á Rigmor
llammerheim:
skilið þetta veizlutal maldsins.
Eru þeir að reyna að telja
gömlum og öryrkjum trú um aö
nú standi yfir veizla hjá þeim?
Eru þeir að reyna að telja sjó-
mönnunum okkar trú um að þeir
séu i veizlu, á kostnað þjóðarinn-
ar?
Eða halda þeir virkilega aö
launafólk landsins sé samþykkt
svona barnalegu veizluhjali?
Nei, það ef með þetta einsog
annað hjá ihaldinu núna, allt sem
þeir segja og hafa sagt aö undan-
förnu hefur orðið að öfugmæli.
Þess vegna vitum við almúga-
menn, að allt veizlu-tal ihaldsins
ber að skilja svo, að þá fyrst lauk
veizlu sumra, er vinstri stjórnin
tók við völdum.
— Ég vil að minnsta kosti
gjarnan vera meö i svona flokki
eins og Gunda stakk upp á. Það
geíur auga leiö aö við höfum
miklu meiri möguleika á aö koma
konu i bæjarstjórn, ef við vinnum
allar saman. Og mér væri þaö
sönn ánægja að sýna karlmönn-
unum aö viö erum ekkihænsniog
fiðurfé allarsaman eins og þeir
halda! Vitiö þið hvaö, i dag kom
maður inn á skrifstofuna til min,
leit i kringum sig og spuröi svo:
Er ekkerl fólk hérna? Er ekkert
fólk hérna.sagöi hann. Jú, sagði
ég, get ég gert nokkuð fyrir yður?
En þá leit hann á mig og sagði:
Nei, ég hélt aö það væri einhver
hérna. En þeir eru kannski i mat?
Þá reiddisl ég og spurði hvað
hann héldi eiginlega aö ég væri.
Þá varö hann dálitiö hundslegur
og sagöi: Góða min, ég meinti
ekkert illt meö þessu, en hann
væri sem sé aö svipast um eftir
karlmönnum. Og hann varö alveg
hvumsa þegar hann komst að þvi
aö ég gat áttaö mig á skattamál-
um hans eins vel og nokkur karl-
maöur —
— Viöbjóður, sagöi frú
Sakariassen, eiginkona skatt-
stjórans. — Maður fyllist bókstaf-
lega réttlátri reiöi — Nei, ég er
viss um aö Gunda hafur fengið
góöa hugmynd meö þennan
ópólitiska kvennaflokk. En
hvernig ættum viö aö fara aö?
Hver ætti aö sjá um börnin og
matinn og uppþvottinn — ?
— Ég er viss um að maðurinn
minn myndi ekki einu sinni leyfa
mér þaö, sagöi ung, nýgift kona,
sem var nýflutt frá Drammen. —
Þaö er fyrir einskæra náö að ég
fæ aö sækja fundi i heilbrigðis-
nefndinni. En — hún leit kringum
sig meö sektarsvip — þetta er
kannski ljótt af mér. þvi að fund-
irnir byrja svo snemma aö hann
verður sjálfur aö fá sér eftir-mat-
inn. veslingurinn!
Þaö var hnussað hér og þar i
salnum. Litla, skólausa vinstri-
konan kallaöi:
— Geföu honum stóra
appelsinu — ef hann getur skrælt
hana!
— Getur hann tuggið sjálfur?
spuröi frú Johansen á skattstof-
unni.
— Hlustaðu ekki á þær, sagöi
Gunda. — Viö vitum allar hvaö
karlmenn geta veriö hjálparlaus-
ir. Og gleymum þvi ekki að hún
hefurekki haft langan tima til að
ala hann upp. En þaö kemur, það
kemur áreiöanlega. En i sam-
bandi við það hver á að gæta
barnanna fyrir þær sem þurfa að
vera i virku starfi. ætla ég að
segja ykkur að ég hef einmitt ver-
iö aö velta þessu fyrir mér lika.
Mér finnst viö ættum aö skiptast á
að passa hver fyrir aðra.
Laura Storhaug kinkaöi kolli
meö ákefö:
— Þaö væri alveg ljómandi. Ef
börnunum er óhætt — Og það er
nú min skoðun aö viö konurnar
höfum ekki siöur peruna i lagi en
karlmennirnir. Af hverju ættum
viö ekki að vera i bæjarstjórn,
þegar menn eins og hann Jens og
Hermann Henriksen og Markus
Antonius Persrud eru frambæri-
legir? Ég gekk i skóla með bæði
Markúsi Antoniusi og honum
Jens, og ég man ekki hvað oft ég
þurfti að hjálpa Jens meö marg-
földunartöfluna. Og Markús
Antonius gat ekki lært bros —
Litla vinstrikonan greip fram i
með ákefð:
— Og ég sat við hliðina á
Mikalsen kennara. Oftar en einu
sinni skrifaði ég stilana fyrir
hann. — Ég man að einu sinni átti
hann að skrifa um hvað hann vildi
verða þegar hann yrði stór og
hann sagðist vilja veröa sirkus-
stjóri. Og það hefur svo sem rætzt
að nokkru leyti, þvi að hann ræð-
ur ekkert viö krakkana sem hann
kennir.
— En hvernig var Hermann
þá? spurði Gunda áhugasöm og
leit á Lauru.
Laura ræskti sig og leit niður á
skóna sina.
— Jú, Hermann, hann var —
hann var — mjög duglegur i
slagsmálum.
—■ Jæja, sagöi Gunda i skyndi
og leit um salinn. — Ef fleiri hafa
eitthvað til málanna að leggja þá
látiö það bara koma!
Liva Torén reis á fætur og gekk
hægt upp að ræðustólnum eins og
hún vildi tryggja með þvi að það
sem hún segði væri vel hugsað.
— Það má segja aö krafan um
vatn og salerni i norðurbæ sé svo
sannarlega mál sem heilbrigðis-
nefndina varðar, og ég hlýt að
viöurkenna aö viö höfum leitað
langt yfir skammt með þvi að
safna peningum handa vinum
okkar i öðrum löndum, en gleymt
á meðan okkar eigin samborgur-
um i norðurbænum, en við hefð-
um getaö borið fram kröfuna, við
hefðum getað látið bréfunum
rigna yfir bæjarfulltrúana, við
heföum getað skrifað i blöðin og
ekki látið þá hafa stundlegan frið!
Þó er ekki vist að það hefði gagn-
að neitt, við þekkjum karlmenn-
ina. Þess vegna finnst mér það
mjög vel til fundið hjá Gundu
Henriksen að vekja máls á þessu
og mér finnst það alveg ljómandi
hugmynd að stofna ópólitiskan
kvennaflokk, sem beitir sér fyrir
framgangi mála sem karlmenn-
irnir vanrækja. Ég gæti i svipinn
nefnt nýtt elliheimili, fleiri dag-
heimili, aukna heimilisaðstoð og
fleira og fleira. 1 stuttu máli sagt,
ég er persónulega fylgjandi til-
lögu Gundu Henriksen.
— Bravo! hrópaði Brita hrifin.
— Ég styð hana lika, sagði litla
vinstrikonan.
— Ég lika!
— Ég lika!
Eleiri og fleiri tóku undir.
Gunda gekk að ræðustólnum og
mælti nokkur lokaorð:
— Ég er auðvitað afskaplega
fegin að svo margar skuli vera á
sama máli og ég hér i kvöld, en ég
vil nú samt að þið hugsið ykkur
vandlega um og ihugið málið. Það
er sjálfsagt ekki þrautalaust að
stofna svona flokk, það útheimtir
áreiðanlega heilmikla vinnu og
sjálfsafneitun, en allar þær sem
vilja vera með og leggja eitthvað
á sig fyrir málefnið, eru innilega
velkomnar i kaffi til min á morg-
un. Og nú verð ég þvi miöur að
fara, strákarnir eru aleinir — og
það er ekki hægt að hugsa um
sjálfan sig eingöngu þegar maður
hefur sett börn i heiminn. Sjá-
umst aftur.
Hún fór, og það varð hljótt i
salnum; þögnin var þrungin eftir-
væntingu og spennu. andúð og
samúö, uppgjöf og nýrri von. Og
i hinni miklu þögn, þegar allar
voru að rifja upp orð Gundu og
velta fyrir sér hvað gera skyldi,
heyrðist unga frúin frá Drammen
hvisla:
— Vitið þið hvað?
Hún lækkaði röddina enn og það
var varla hægt að greina orð
hennar:
— Vitiö þið hvað ég held? Ég
held að þarna hafi verið nýborinn
foringi á ferð!
VII.
Fagra ágústnótt, • tunglskins-
bjarta með þvilik ókjör af stjörn-
um á himinhvolfinu að skuggahlið
jaröar með öllum jurtun sinum,
húsum og turnspirum sindraði i
draumkenndu ljósi. þegar Totta-
áin gutlaði hljóðlát og glettnisleg
undir brúnni og sérhver straum-
þyrill var eins og glitrandi bros,
þegar kvöldið var svo fagurt að
allmargir Tottabúar áttu i erfið-
leikum með að festa svefn, vakti
Gunria hann Hermann sinn með
dáíitilli stunu. Daufar hrotur hans
hljóðnuðu skyndilega. hann
umlaöi. deplaði augunum og
teygði arminn i áttina til hennar.
Reyndar var þetta ömurlegur
timi að láta vekja sig á og vissu-
lega hafði hann dögum saman
verið sárgramur i garð eiginkonu
sinnar eftir atburðinn i bæjar-
þingsalnum. en kona er nú einu
sinni kona, ekki sizt að næturlagi.
LAUGARDAGUR
22. júlí
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10 Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9.00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.45.
M orgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45. Sigriður Eyþórsdóttir
les söguna ,,Kári litli og
Lappi” eftir Stefán
Júliusson (6). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Laugardagslögin kl. 10.25.
Stanz kl. 11.00. Jón Gauti
Jónsson og Árni Ólafur
Lárusson sjá um þáttinn.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13. 00 Óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
14.30 I hágir.Jökull Jakobsson
sér um þáttinn.
15.00 Fréttir.
J5.J5 Miðdegistónleikar.
a. FFlharmóniuhljómsveitin
i ósló leikur Norska
rapsódiu nr. 2 eftir Johan
Halvorsen. b. Sinfóniu-
hljómsveitin i Hamborg
leikur „Dagrenningu” úr
Pétri Gaut eftir Grieg og
vals úr Svanavatninu eftir
Tsjaikovský. c. Luciano
Pavarotti syngur ariur úr
itölskum óperum með kór
og hljómsveit óperunnar i
Vin; Nicola Rescigno stj. d.
Sinfóniuhljómsveitin i Prag
leikur forleikina að Orfeus
eftir Offenbach og
Leðurblökunni eftir Strauss;
Vaclav Smetacek stj.
16.15 Veöurfregnir. A nótum
æskunnar. Pétur
Steingrimsson og Andrea
Jónsdóttir kynna nýjustu
dægurlögin.
17.00 F’réttir. Heimsmeistara-
einvigið I skák.
17.30 Kerðabókarlestur:
„Frekjan” eftir Gisla Jóns-
son. Hrafn Gunnlaugsson
les (7)
18.00 Kréttir á ensku.
18.10 Söngvar i léttum dúr.
Deanna Durbin syngur lög úi
kvikmyndum.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kréttir. Tilkynningar
19.30 Þjóðþrif. Gunnlaugur
Ástgeirsson sér um þáttinn.
19.55 III j ó m p I ö t u r a bb
Þorsteins Hannessonar.
20.40 Kramhaldsleikrit
„Nóttin langa” eftir Alistair
McLean.Sven Lange bjó til
flutnings i útvarp. Þýðandi:
Sigrún Sigurðard.Leikstj.
Jónas Jóbasson Persónur og
leikendur i þriðja þætti:
Mason læknir — Rúrik
Haraldsson — Jackstraw —
Flosi ólafsson; Joss — Guð-
mundur Magnússon;
Margaret Ross — Valgerður
Dan: Johnny Zagero —
Hákon Waage;Solly Levin —
Arni Tryggvason; Corazzini
— Jón Sigurbjörnsson —
Séra Smallwood — Gunnar
Eyjólfsson;Marie LeGarde
— Inga Þórðardóttir; Frú
Dansby-* Gregg — Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir —
Theodor Mahler — Jón
Aðils; Hoffmann Brewster
— Bessi Bjarnason; Hill-
crest — Guðmundur
Pálsson.
21.35 Lúðrasveit Húsavikur og
Karlakórinn Þrymur leika
og syngja islenzk og erlend
lög. Einsöngvarar:
Eysteinn Sigurjónsson og
Guðmundur Gunnlaugsson.
Stjórnandi: Ladislav Vojta.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Lausar stöður
Við Bændaskólann á Hvanneyri eru
lausar til umsóknar þrjár kennarastöður:
1. Staða kennara i grunnfögum með efna-
fræði sem aðalgrein.
2. Staða kennara i vélfræði, bóklegri og
verklegri.
Staða kennara i hagfræðifögum sem
aðalkennslugreinar.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins.
Umsóknir, með upplýsingum um
menntun og fyrri störf, skulu sendar land-
búnaðarráðuneytinu fyrir 20. ágúst 1972.
§& M* m
H C/ INDVERSK UNDRAVERÖLD * UOl
Nýjar vorur komnar.
Nýkomið mjög mikið úrval af sérkenni-
legum, handunnum austurlenzkum
skrautmunum til tækifærisgjafa m.a.:
Ótskorin borö (margar gerðir), vegghill-
ur, kertjastjakar, styttur, rúmteppi,
flókamottur, könnur, vasar, skálar, ösku-
bakkar, silkislæður, o.m.fl. — Einnig
reykelsi og reykelsisker. Gjöfina, sem
veitir varanlega ánægju, fáið þér i
JASMIN, við Hlemmtorg.
ffllffllíllflfJlfflllílffll