Þjóðviljinn - 29.08.1972, Qupperneq 1
UOmiUINN
Þriðjudagur 29. ágúst — 37. árg. —192. tbl.
Alþýóubankinn hf
ykkar hagur
okkar metnaóur
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Bretar afhentu orðsendingu:
MINNAST EKKI Á SÍÐASTA
TILBOÐ ÍSLENDINGA
Þeir höfðu
ekkert heyrt
um heitingar
V- Þjóðverja
Um helgina komu þrir vestur-
þýzkir togarar til hafnar i
Reykjavik. Þa6 voru togararnir
Tehmara, Altona og Hildesheim
Blaðamaður Þjóðviljans ræddi
við nokkra sjómenn af þeim
siðastnefnda i fyrradag. Sjó-
mennirnir sögðust vera á leið á
Grænlandsmið. Skipið hafði þá
verið úti i 25 daga, sögðu þeir.
Hildesheim er 1900 tonna togari.
A föstudaginn lýsti Hagemann,
talsmaður vestur-þýzkra togara-
skipstjóra, þvi yfir, að áhafnir
togaranna væru reiðubúnar til
þess að brjóta lögsögu lslendinga
yfir 50 milunum.
Blaðamaður Þjóðviljans spurði
sjómennina hvort þeir væru undir
slikt búnir.
— Nei, sögðu þeir, um það
höfum við aldrei heyrt.
Myndina tók Sigurdór af
togaranum Altona á laugardag.
Húsaleigumiðstöð
komið
I gærmorgun barst á rit-
stjórn Þjóðviljans frétta-
skeyti frá NTB þarsem það
er haft eftir talsmanni
brezku stjórnarinnar að
hún muni „beygja sig fyrir
úrskurði Alþjóðadómstóls-
ins" (!) einsog það varorð-
að í fréttinni.
Og siðdegis í gær barst
blaðinu frétt frá utanríkis-
ráðuneytinu þar sem greint
er frá þvi, að sendiherra
Breta hafi afhent orðsend-
ingu um afstöðu Breta í
landhelgismá linu.
Einar Ágústsson utanriksráð-
herra sagði i viðtali við frétta-
mann Þjóðviljans i gær að
meginefni yfirlýsingar Breta
væri tviþætt: f fyrsta lagi um að
brezka stjórnin sé reiðubúin til
þess að hlita úrskurði Alþj.dóm-
stólsins og i öðru lagi, að þeir séu
tilbúnir til viðræðna. Hins vegar
er ekki minnzt á siðasta samn-
ingstilboð okkar i orðsendingu
Breta, sagði utanrikisráðherra.
Ráðherrann kvað rikisstjórnina
mundu fjalla um orðsendingu
Breta i dag, þriðjudag.
Fréttatilkynning utanrikis-
ráðuneytisins er á þessa leið:
Brezki sendiherrann hefur i dag
afhent utanrikisráðherra orð-
sendingu þess efnis, að brezka
rikisstjórnin hafi athugað
ákvörðun alþjóðadómstólsins
varðandi bráðabirgðaráðstafanir
Kramhald á 11. siðu.
gæti
fyrir okrið
í
veg
Fréttir berast af því, að
húsaleigusamningar sem
fallið hafa úr gildi eftír að
verðstöðvun var sett á í
sumar, hafi verið endur-
nýjaðir en með mun hærri
leigu en greidd var eftir
fyrra samkomulagi.
Slikar hækkanir eru með
öllu ólöglegar, svo og þær
hækkanir á húsaleigu sem
fyrirhugaðar eru og brot á
verðlagslögum, en brot á
þeim varða sektum allt að
500 þúsund krónum.
Siðasta löglega hækkun á húsa-
leigu var i nóvember 1970, en þá
var heimilað að hækka húsaleigu
til samræmis við hækkun sem
orðið hafði á byggingarvisitölu.
Allar hækkanir á húsaleigu
siðan eru þvi ólöglegar og refsi-
verðar, jafnvel þótt i leigusamn-
ingi sé greint frá þvi, að leigan
skuli hækka i samræmi við bygg-
ingarvisitölu.
Til þess að heimilt sé að hækka
húsaleigu þarf að liggja fyrir
Franihald á 11. siðu.
Eldur í þotu
í Keflavík
Kldur kom upp i belgiskri far-
þcgaþotu á Kcfiavikurflugvelli i
gær. Varð afturhluti vclarinnar
alclda á svipstundu, cn samt tókst
áhöfninni að slökkva hann áður
cn vcrðlaunaslökkvilið NATO
kom á vcttvang.
Talið cr, að ónákvæmi i lend-
ingu hafi valdið brunanum.
Skcmmdir urðu minni cn cfni
stóðu til. Vclin er af gcrðinni I)C
H.
-úþ
DANMÖRK:
Andstæðingar Efnahags-
bandalagsins í sókn
KAUPMANNAHÖFN 28/8.
— Andstaðan gegn aðild að
Efnahagsbandalaginu hef-
ur aukizt mikið í Danmörku
í sumarog aldrei verið eins
mikil og nú, segir í niður-
stöðum Gallup-skoðana-
könnunar sem birtar voru í
dag. Nú i ágúst eru 35%
almennings andvígir EBE,
en voru 31% i júní. 41%
vilja ganga í EBE sem
stendur, en þeir voru 46% i
júnímámuði. i bæði skiptin
var upp undir fjórði hluti
manna óákveðinn.
Einnig var i skoðanakönnuninni
nú í ágúst spurt að afstöðu manna
til EBE að þvi tilskildu, aö Noreg-
ur gengi ekki inn. Þá voru aðilar
jafnir, með 38% fylgi hinna
spurðu, já og nei fyrir EBE. Sýna
þessar niðurstöður, að þeim skoð-
anahópum vex nú mjög ásmegin i
Danmörku sem telja rétt að hafna
aðild að Efnahagsbandalaginu.
Fœreyingar standa sig vel að vanda:
Ráku tvo hreska togara
frá bryggju um helgina
Það hefur vakið mikla
athygli og ánægju á ís-
landi, að Færeyingar
ráku frá bryggjum
sinum tvo brezka togara,
sem komu í færeyskar
hafnir um helgina óein-
kenndir. Færeyska land-
stjórnin gerði samþykkt
um, að ekki mætti af-
greiða erlenda togara,
sem hefðu breitt eða
málað yfir nafn og núm-
er.
Ritstjóri blaðsins ,,14. sept-
ember” Olavur Michelsen
skýrði fréttamanni Þjóðvilj-
ans frá móttökum togaranna.
Hann sagði að á laugardags-
morgun hefði komið brezkur
togari að bryggju i Þórshöfn.
Var þessi togari rekinn frá
bryggju, þar sem málað hafði
verið yfir i'afn og númer hans.
Áður hafði komið brezkur tog-
ari inn á höfnina i Sölvogi —
aðfaranótt föstudagsins — en
honum var einnig vikið frá
bryggju án þess að hann fengi
nokkra afgreiðslu, þvi hann
var einnig með málað yfir
nafn og númer.
Skipið sem kom til hafnar i
Þórshöfn var Northern Prince
121; eigandi er togaraútgerðin
„Northern Trawlers Ltd.”
Grimsby. Þetta er 23ja ára
gamalt skip, smiðað 1949.
Þriðji togarinn kom að landi
i Færeyjum á sunnudag, en
þar sem skipstjórinn hafði
frétt um þá meðferð er kolleg-
ar hans hlutu greip hann til
þess ráðs að auðkenna á ný
skip sitt, og fékk hann þvi af-
greiðslu.
Sem fyrr segir, er afstöðu
Færeyinga fagnað innilega á
tslandi þessa dagana.