Þjóðviljinn - 19.09.1972, Síða 1

Þjóðviljinn - 19.09.1972, Síða 1
Þúsundir Norðmanna bera í barmi sér „Island 50” Þúsundir EBE-andstæðinga bera nú i barmi merkið „Island 50”. Á laugardaginn fjölgaði geysilega i þessum hópi,er stúdentar i Osló efndu til aðgerða. Þeir fylktu liði um göturnar með spjöld og borða og seldu merkin. Þeir stóðu um tima við fundarstað verkalýðssamtaka, sem um þessar mundir fjölluðu um vandamál verkalýðs- hreyfingar með tilliti til aðildar að EBE. Landhelgissöfnunin: inni hefst 2. október Konur sem auglýsinga- tól? Á föstudagskvöld efndu rauðsokkar á Akureyri til mótmæla vegna ,,fegurðarsamkeppni'' í Sjálfstæðishúsinu á staðn- um Báru rauðsokkar spjöld og borða og dreifðu miðum til vegfarenda. Myndirnar tók Niels Hans- son. r * Utför Asgeirs Asgeirssonar yerður gerð á föstudag Utför herra Ásgeirs Ásgeirs- sonar, iyrrverandi forseta íslands, fer fram á vegum rikis- ins. Ákveðiö hefur veriö, að útför- in verði gerð frá dómkirkjunni föstudaginn 22. september n.k. kl. 14.00.Útvarpað verður frá athöfn- inni. Vandamenn hafa óskað þess, að þeir sem hafa hugsað sér að minnast hins látna með blóma- gjöfum, verji heldur fénu til styrktar byggingar kapellu að Hrafnseyri. Kramlögum verður veitt móttaka i biskupsstofu. Söfnunarfé er nú komið á fimmtu miljón kr. í land- helgissöf nunina siðan henni var hleypt af stokk- unum um siðustu mánaða- mót, sagði Guðmundur Pétursson, formaður niu manna söfnunarnefndar i gær. Hafa þetta verið framlög einstaklinga, fyr- irtækja og bæjarféiaga. Nú hefur söfnunarnefndin opn- að skrifstofu að Laugavegi 13 i Ileykjavik. Ennfremur hefur hún ráðið Jón Ásgeirsson, iþrótta- fréttaritara útvarpsins sem framkvæmdastjóra i stað Hjalta Zóphaniussonar. Heldur fram- kvæmdastjórinn daglega fundi með íormanni og varaformanni nefndarinnar. en nefndin sjálf kemur vikulega saman til þess að ræða ýmis framkvæmdaatriði við söfnunina. Uegar helur verið ráðgert að hefja nýjan söfnunaráfanga 2. október næstkomandi. Þá verða listar látnir ganga um á vinnu- stöðum og um borð i fiski-og far- skipum og þá gengið út frá þvi að menn geli andvirði eins vinnu- dags eða afrakstur einnar sjó- ferðar á fiskiskipum. Er þannig ætlað að vinna skipulega að þess- ari sölnun, sagði Guðmundur á blaðamannafundi i gær. 1 nefndina hafa verið skipaðir Guðmundur Fétursson, formaður E.F.S.I., Kristján Ragnarsson, formaður L.I.Ú., Ingvar Hallgrimsson. forstöðumaður Hafrannsóknarstofnunar og Jón Sigurðsson, formaður Sjómanna- sambands islands. Þá hafa stjórnmálaflokkarnir skipað hver sinn mann i þessa söfnunarnefnd. Baldvin Jónsson frá Alþýðu- flokknum, Sigurjón Guðmunds- son frá Framsóknarflokknum, Gils Guðmundsson frá Alþýðu- bandalaginu, Guðmundur Bergs- son frá Frjálslyndum og vinstri mönnum og Sigurður Hafstein frá Sjálfstæðisflokknum. Guðmundur Pétursson er for- maður nefndarinnar, en Kristján liagnarsson varaformaður henn- ar. Einstök framlög hafa verið rausnarleg til þessa, og gáfu til dæmis Þorsteinn M. Jónsson og frú 30 þúsund kr. til söfnunarinn- ar. Þá hala ýmis kaupfélög ekki látið sitt eftir liggja. Gaf til dæm- is Kaupfélag Borgfirðinga 100 Framhald á bls. 11. Alþingi kem ur saman 10. október Á fundi rikisráðs i dag var gefið út forsetabréf um að Alþingi verði kvatt til fundar þriðjudaginn 10. október n.k. Ennfremur voru staðfestar ýmsar afgreiðslur. sem höfðu farið fram utan rikisráðs- fundar. t upphafi fundarins minntist forseti Islands herra Ásgeirs Ásgeirssonar. fyrrverandi forseta Islands, sem andaðist 15. þ.m. Risu menn úr sætum i virðingarskyni við minningu hins látna. Ásókn v-þýzkra togara minni Um helgina voru fimm brezkir togarar að veiðum út af Vestfjörðum og um 50 tog- ar.\r út af Norðurlandi_, innan 50 milna markanna. Um 18 vestur-þýzkir togarar voru við mörkin út af Suðvesturlandi. Landhelgisgæzlan hefur gert samanburð á fjölda togara um miðjan september hér við land núna i ár. 1971 og 1970. Eru vestur-þýzkir togar- ar mun færri núna að veiðum en i fyrra og hitteðfyrra. Brezkir togarar eru svipaðir að fjölda öll árin. Fischer kominn til New York NEW YORK 18/9 - Bobby Fischer kom til New York i morgun eftir að hafa hvilt sig I tvær vikur á lslandi. Við kom- una til New York sagði hann aðeins örfá orð við frétta- menn, og steig svo upp i bil, sem John Lindsay, borgar- stjóri New York hafði lánað honum. Sæmundur Pálsson lögregluþjónn, sem var ,,lif- vörður” Fischers á íslandi, var i fylgd með honum. Fischer bauð honum I þriggja vikna ferð til New York, en hann hefur einnig boðið hon- um að gerast fastur lifvörður sinn. Nokkuð hefur verið rætt um að Fischer kunni að leggja leið sina á Olympíuskákmótið i Skopje I Júgóslaviu, en nú hefur verið sagt, að hann muni ekki taka þátt i þvi. Álheilbrigði Nú er komin skýrsla frá heilbrigðiseftirliti rikisins um atvinnusjúkdóma i Straums- vik. Heilbrigðisráöuneytið fól eftirlitinu að annast athugun þessa 29. marz sl., eftir að fram höfðu komið ábendingar frá 9 starfsgreinaféiögum vegna meintra atvinnusjúk- dóma hjá starfsmönnum lsals i Straumsvik. Greinargerð heilbrigðis- eftirlitsins er mjög ýtarleg og birtir Þjóðviljinn efni hennar að meginhluta til á opnu biaðsins i dag. 1 skýrslunni kemur glöggt fram,að það er rétt,sem margoft hefur verið bent á, að það er i vissum til- vikum hættulegt heilsu manna að starfa viö ákveðna þætti álframleislunnar. Sjá opnu Nýr áfangi í söfnun

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.