Þjóðviljinn - 19.09.1972, Síða 2

Þjóðviljinn - 19.09.1972, Síða 2
2 StÐA — Þ.tÓÐVILJINN Þriftjudagur 19. septcmber 1!)72 ENSKAN Kvöldnámskeið og siðdegistimar fyrir fullorðna BYRJENDAFLOKKAR FRAMHALDSFLOKKAR SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLEND- INGUM SMÁSöGUR FERÐALÖG BYGGING MÁLSINS VERZLUNARENSKA LESTUR BÓKMENNTA Innritun i sima 11109 og 10004 (kl. 1-7 e.h.) Málaskólinn Mímir Brautarholti 4. Námsflokkamir Kópavogi Enska: Kvöldflokkar, siðdegisflokkar fyr- ir börn og fullorðna. Sænska — Þýzka — Franska — Spænska. Áherzla lögð á talmál i öllum tungumál- um. Erlendir kennarar. Mengi fyrir foreldra, teiknun og málun, skák fyrir byrjendur og lengra komna. Föndur fyrir 5 til 6 ára börn. Hjálpar-flokkar fyrir skólafólk i islenzku, dönsku, ensku og reikningi. Innritun i sima 42404 kl. 2—10 alla daga jafnt. Kennsla hefst 25. september. Rafvirkjar — Línumenn Rafvirkjar óskast til spennistöðva- og jarðstrengjavinnu á Austurlandi. Ennfremur vantar vana linumenn á sama svæði. Upplýsingar veitir rafveitustjórinn á Egilsstöðum og aðalskrifstofan i Reykjavik. Itafmagnsveitur rikisins Starfsmannadeild Laugavegur U<> Iteykjavik. Kennarar — Kennarar! Kennara vantar að barna- og miðskól- anum Hvammstanga V-Hún. Gott húsnæði, fimm daga kennsluvika. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri i sima 95-1393. Félag leiðsögumanna boðar til almenns félagsfundar á morgun, 20. september, kl. 20,30 að Hótel Loft- leiðum. Leiðsögumenn fjölmennið! Nýir félagar velkomnir. Stjórnin. Auglýsingasiminn er 17 500 Þjóðviljinn Námskeiöið lór fram í húsakynnum Iðnskólans, en þar er fyrir hendi mjög góð aðstaða til verkiegrar kennslu. Hér eru konurnar greinilega að fást við hinn fræðilega hluta námsins. Athyglisverð nýjung til eflingar verkmenntun: 11 konurá kennara- námskeiði Lœrðu að kenna byrjendum verksmiðjusaum i eftirfarandi frcttatilkynningu frá nefnd þcirri, sem iðnaðar- ráðherra skipaði á s.I. ári til að fjalla um máiefni fataiðnaðarins, keiniir fram að ncfndin hefur farið íiin á nýjar brautir i vcrk- kennslu fyrir nýtt starfsfólk i falaverksmiðjunum. Ilaldið hcfur verið námskeið við Iðnskólann |iar sem konur úr iðnaðinum lengii tilsögn og þjálfun i að keniia byrjendum undirstöðuat- riði verksmiðjusaums. „Dagana 28. ágúst til 8. septem- ber var haldið i húsakynnum Iðn- skólans i Heykjavik námskeið fyrir leiðbeinendur i fatasaumi. og sóttu námskciðið 11 konur úr verksmiðjuiðnaðinum. Var hámarksfjöldi þátttakenda mið- aður við 12,svo námskeiðið var að heita má l'ullskipað. Að námskeiðinu stóð Fata- iðnaðarnefndin, sem iðnaðar- ráðherra skipaði á s.l. ári til að fjalla um málefni fataiðnaðarins. Við undirbúning námskeiðsins átti nefndin samstarf við Iðnskól- ann i Heykjavik, en þar er fyrir hendi fullkomin aðstaða til sliks námskeiðahalds. Með þessu nám- skeiði var verið að hefja fram- kvæmd á tillögum nefndarinnar um bætta verkmenntun starfs- fólks i lataiðnaði. Kennari á námskeiðinu var konsulent Leif Linnerud, frá Ta'knistofnun norska fataiðn- aðarins, — Norsk Konfeksjons- teknisk Institutt —- en sú stofnun varð á s.l. voru góðfúslega við þeirri beiðni samstarfsaðiljanna hér að sjá um framkvæmd nám- skeiðsins. þ.e. senda hingað kennara og leggja til kennslu- gögn. Var það samdóma álit bæði þátttakenda og þeirra,er að nám- skeiðinu stóðu. aö framkvæmd þess hefði verið mjög góð og til fyrirmyndar. Þess má geta að þær verklegu æfingar, sem þátt- takendur á námskeiðinu fengu þjálfun i að kenna, hafa verið samræmdar milli Norðurland- anna þriggja, Noregs, Sviþjóðar og Danmerkur. Kennslan á námskeiðinu mið- aðist einvörðungu við verk- smiðjusaum, þ.e. ekki var kennt að fullsauma tilteknar flíkur, heldur lögð áherzla á að kenna undirstöðuatriði slétts saums. Var jöfnum höndum kennd still- ing og hirðing saumavéla og lögð rik áherzla á rétta vinnustöðu. Á siðari hluta námskeiðsins föru fram kennsluæfingar þar sem jafnhliða var rætt um kennsluað- ferðir. Tilgangurinn með þessu nám- skeiði var að þjálfa fólk, sem jöfnum höndum gæti tekið að sér að kenna nýju fólki i verksmiðj- unum sjálfum, og verklega kennslu á námskeiðum við iðn- skóla. eftir þvi sem þörfin reynd- ist vera hverju sinni. Að dómi kennarans á þessu námskeiði, I.eif Linnerud, á fataiðnaðurinn núá.aðskipa álitlegum hópi, sem fær er um að taka slíka kennslu að sér. Nú á næstunni mun Fataiðn- aðarnefndin og Iðnskólinn i Reykjavik, i samstarfi við fleiri aðilja,ræða um tilhögun nám- skeiða fyrir fólk, sem hefur i hyggju að starfa i þessari grein verksmiðjuiðnaðarinsf’ Frá Fjórðungssambandi Norðlendinga: Sveitarfélög eru þær stjórnareiningar sem standa fólkinu næst 14. þing Fjóröungs sambands Norðlend inga fór fram dagana 4. og 5. september á Akur- eyri. Þingiö sátu 56 kjörnir fulltrúar frá kaupstööum, hreppum og sýslunefndum á Noröurlandi, alþingis- menn úr Norðurlandi og ýmsir gestir. Meöal mála, sem fyrir þinginu lágu, voru orkumál f jórðungsins, sem mikið hafa veriö í sviösljósinu að undanförnu, samgöngumá laáætlun Noröurlands, menntamál og atvinnumál, þ.á.m. um iðnþróun ferðamál og ráö- stafanir vegna þéttbýli- staöa, sem búa viö stöðugt atvinnuleysi. Forséti Fjórðungsþings var kjörinn Stefán Reykjalin frá Akureyri og varaforseti Halldór Jónsson frá Sauðárkróki. For- maður Sambands islenzkra sveitarfélaga. Páll Lindal. flutti ávarp. Brýndi hann fyrir fulltrúum, að efla bæri landshlutasamtök sveitarfélaga sem og sveitar- félögin sjálf. enda væru þau þær stjórneiningar. sem næst stæðu fólkinu. Áskell Einarsson, fram- kvæmdastjóri sambandsins flutti skýrslu og benti hanri meðal annars á. að nú væri stefnt að þvi að fá sett lög fyrir landshluta- samtökin og væri þvi mikilvægt. að fulltrúar settu vel niður fyrir sér hvert vera skyldi hlutverk Fjórðungssambandsins og starfs- svið. Bjarni Einarsson, bæjarstjóri, flutti erindi um stjórn byggða- þróunar, og Gestur ölafsson flutti erind um skipulagsmál og héraðaskipulag. Fjórðungsþingið samþykkti ályktunum Tækniháskóla islands á Akureyri og segir þar meðal annars: ..Þingið telur. að Tækni- háskóli tslands i fjórðungnum sé ekki aðeins ómetanlegur fyrir tækniuppbyggingu og atvinnulif i Norðlendingafjórðungi sem og allt tækninám og verklegt nám i fjórðungnum, heldur einnig þjóð- hagslega æskilegur, enda sé jafn- vægi i byggð landsins æskilegt, en staðsetning áhrifamikilla rikis- stofnana haldbezta ráðið, sem rikisvaldið hafi fyllilega á valdi sinu til áhrifa á búsetuþróun i landinu”. Þingið samþykkti tillögur i iðn- Framhald á bls. 11.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.