Þjóðviljinn - 19.09.1972, Side 3
iMÍftjudagur l!>. scptcmber 1!>72 ÞJóÐVlLJtNN - StÐA 3,
Y antar
fólkí
slátur-
húsin
Sláturtíð er nú hafin víða
um land og vantar sum-
staðar fólk til vinnu. Eink-
um þegar skólar byrja um
næstu mánaðamót.
1 Borgarnesi hófst slátrun 12.
september. Þar er gert ráð fyrir
að slátra um 60 þúsund fjár, og
stendur slátrun þar út október.
Þegar er ljóst að fólk vantar þar i
erfiðari störf svo sem við færi-
bandakeðjuna. Vegna fólksskorts
hafa ýmsar byggingaráætlanir
ekki staðist hjá Kaupfélaginu á
staðnum.
A Sauðárkróki byrjaði slátrun
11. september. Þar er gert ráð
fyrir að slátra um 45 þúsund fjár.
Stendur slátrun yfir til 15. októ-
ber. Nóg fólk er ennþá við vinnu á
Sauðárkróki, en gæti breytzt um
næstu mánaðamót, þegar fram-
haldsskólar byrja.
Þrjú sláturhús eru rekin á veg-
um Kaupfélags Skagfirðinga. Á
Sauðárkróki, Hofsósi og i Haga-
nesvik.
Nýtt sláturhús er i smiðum á
Sauðárkróki og verður tekið i
notkun næsta haust. Verður hægt
að slátra þar 3 þúsund fjár i stað
1500 á dag eins og gert er i þrem
húsanna nú.
Hjá Kaupfélagi Héraðsbúa
hófst slátrun 14. september i
þremur sláturhúsum félagsins^á
Egilstöðum, Reyðarfirði og á
Fossvöllum. Þá hefst slátrun 21.
september á Borgarfirði eystra.
Gert er ráð fyrir að slátra 52 þús-
und fjár i haust. sem er 10%
aukning frá þvi i fyrra. Um 500
tonn af dilkakjöti af nýslátruðu
verða flutt út til Eæreyja á næst-
unni. Ekki vantar fólk eystra.
Lýkur slátrun 20. október. Tekur
þá nautgripaslátrun við. Verður
400 til 500 gripum slátrað.
Fólk vantaði
í frystihúsin
Botnvörpungurinn Sigurður
landaði um 300 tonnum af fiski
hér i Reykjavik i gær. Fór fiskur-
inn til vinnsiu i Hraðfrystistöðina,
frystihúsið inn á Kirkjusandi og i
saltfisk.
Mikið var auglýst eftir fólki i
gær i fyrstihúsin. Hafa togveiði-
bátar veitt sæmilega undanfarið
og þá er unnið i hörpudiski.
Leikárið fer
vel af stað
hjá Leikfélagi Reykjavikur i Iðnó
Leikárið er nú hafið
hjá Leikfélagi Reykja-
víkur i Iðnó og fer vel af
stað, að þvi er leikhús-
stjóri, Vigdís Finnboga-
dóttir, tjáði blaðinu i
dag.
Fyrsta leikritið, sem sýnt er
i vetur. er Dóminó Jökuls
Jakobssonar. og voru sýning-
ar á þvi hafnar fyrir hálfri
annarri viku. Það er nú sýnt
3svar i viku. við sérstaklega
góða aðsókn, og er t.d. uppselt
alveg fram að næstu helgi.
Dóminóerendurtekið verk frá
fyrra leikári.
Um næstu helgi hefjast sýn-
ingar á Atómstöðinni, en hún
var sýnd seinni hluta leikárs-
ins i l'yrra við mikiar vinsa-ld-
ir.
Fyrsta frumsýning vetrar-
ins verður föstudaginn 29.
september. Verður þá leikritið
Leikhúsálfar eftir finnsku
skáldkonuna Tove Jansson
tekið til sýninga. Það verk var
að visu sýnt þrisvar á lista-
hátið i vor. en eingöngu bundið
henni. og hefur þvi ekki verið
á verkefnaskrá leikhússins
áður. Leikhúsálfarnir eru
a'tlaðir ..börnum 9-90 ára",
segir höfundur.
I.aust eftir na-stu mánaða-'
mót verða teknar upp sýning-
ar á Kristnihaldi Halldórs
Laxness. og er þetta þriðja
leikárið i röð sem það er sýnt.
Um miðjan október verður
frumsýning á leikriti Ninu
Bjarkar Arnadóttur. Kótatak,
en það er fyrsta stóra leik-
sviðsverk hennar.
l.eikhússtjóri vildi að svo
komnu máli ekki fjölyrða um
verkefnaskrá vetrarins, en
sagði þó að stefnt va>ri að þvi
að sýna þau tvö leikrit. sem
verðlaun hlutu i leikritasam-
keppni Leikfélagsins i tilefni
af 75 ára afmælinu. Það voru
leikritin Pétur og Rúna eftir
Birgi Sigurðsson og Kertalog
eftjr Jökul Jakobsson.
Ný ísienzk
barnaleikrit.
Að lokum skýrði Vigdis
Finnbogadóttir frá þvi að i
undirbúningi va>ri að gera
nokkra sjónleiki upp úr efni
Eddu og annarra fornrita og
seinni tima a>vintýra. og va>ri
þess að vænta að sá fyrsti ga>li
komiztá fjalirnar i vetur. Þar
mundu hin gömlu goð eins og
Þór. Freyja' og Loki koma
fram og skemmla börnum
og þess va>ri vænzt að l'ull-
orðnir hel'ðu þar af nokkra
ána>gju lika. Þessi leikrit yrðu
vonandi lil þess fallin að gla'ða
áhuga barna og unglinga á
leikhúsinu og uni leið islcnzkri
bókmenntaarfleifð.
l’jóðviljinn ntun á næstunni
birtá viðtál við hinn nýráðna
lcikhússljóra Leikfélagsins.
Vigdisi Finnbogadóttur, þar
sem hún skýrir viðhorf til leik'-
húsmála og hins nýja starfs.
FISCHER
FARINN
Bohhy Fischer yfirgaf Isiaml á sunnudagskvöld. Ilann kom allt-
of seinl i flugvélina og um citt hundrað farþegar fengu cnn einu
sinni að kynnast þvi.að Bohby Fischer hefur enn ekki lært á
klukku. En hann kann að beita tal'lmönnum á (14 reitum eins og
liann hefur sýnt umheiminum þessar siigulegu vikur sem hann
Itefur verið á islandi.
Yilja ekki
byggingu
sumar-
bústaða
Aðallundur Nemendasam-
bands Samvinnuskólans, haldinn
i Hamragörðum, laugardaginn 9.
september, 1972, lýsir yfir lurðu
og telur það gróf mistök, að leyfa
byggingu sumarbústaða i landi
Skógræktar rikisins við Hreða-
valn i Norðurárdal.
Jafnframt hvetur lundurinn
alla náttúruverndarmenn og unn-
endur Itins fagra umhverfis i ná-
grenni Hreðavatns, og standa um
það vörð og hindra að gróða-
hyggja samtimans spilli náttúru
þess meira en orðið er.
Húsbruni
a
Akureyri
1 fyrrinótt brann ibúðarhús að
Helgamagrastræti nr. 7 á Akur-
eyri. Tvær fjölskyldur bjuggu i
húsinu og bjargaðist fólk naum-
lega úr brunanum. Efri hæö húss-
ins brann ásamt innbúi og neðr.i
hæöin að mestu. Slökkvilið kom á
vellvang kl. 4,25 og vann að
sliíkkvistarfi til kl. 6 i gærmorg-
un. Ekki er ljóst um eldsupptök.
Stœrsti ullarvörusamningurinn:
ULLARVÖRUR
FYRIR 146 MIL.
KRÓNA
Undanfariö hafa stað-
iö yfir samningaviðræð-
ur við fyrirtækið
Raznoexport um sölu á
Heklupeysum og Gefj-
unarteppum til af-
greiðslu á árinu 1973.
Samningar voru undir-
ritaðir I Reykjavík s.l.
laugardag af aðalfor-
stjóra Raznoexport, A.A.
Malinin og forstjóra
Sambandsins, Erlendi
Einarssyni.
Samningsupphæðin
1973
nemur samtals kr. 146,-
410.000.00, sem er stærsti
samningur á ullarvör-
um, sem gerður hefur
verið við Sovétríkin. Að
samningsgerðinni unnu
auk ofangreindra, L.
Pachenko, viðskiptafull-
trúi Sovétrikjanna hér á
landi. Y. Kuznetsov full-
trúi, Harry Frederiksen
framkvæmdastjóri Iðn-
aðardeildar Sambands-
ins og Andrés Þor-
varðarson viðskiptafull-
trúi.
Frá vinstri sitjandi A.A. Malinin aðalforstjóri Raznoexport og Erlendur Einarsson forstjóri Sambands-
ins. Standandi frá vinstri L. Panchenko viðskiptafulltrúi, Andrés Þorvarðarson viðskiptafulltrúi,
Kuznetsov fulltrúi, Axel Gíslason aðst.frkvstj. Iðnaðardeildar og Harry Frederiksen frkvstj. Iðnaðar-
deildar Sambandsins.