Þjóðviljinn - 19.09.1972, Page 9
1‘iicYjudagur 19. september 1!I72 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9.
OFT VELTIR LITIL ÞUFA ÞUNGU
HLASSI
— baráttuglaðir KR-ingar rufu
óslitna sigurgöngu
íslandsmeistaranna i ár og slógu þá
út úr bikarkeppninni
Hér missti Magnús markvörður boltann framhjá sér og einn Kramaranna náði að skalla á markið, en
maður kemur i manns stað og varnarmaður KR bjargar á marklinu.
Mörg ný heimsmet
Kftir frábæran árangur margra
hlaupara á Olympiuleikunum
halda þcir áfram að bæta árangur
sinn. Á frjálsiþróttamótum scm
baidin voru i Ilelsinki og Kaup-
mannahöfn voru :! heimsmct sett,
i 5 og 10 km hlaupi og :!000 m
hluta hlaupsins. Siðan geystist
Viren framúr og bætti heims-
metið um 2/10 úr sekúndu. og
hljóp á 13.16.4.
A sama móti var keppt i 3000 m
hindrunarhlaupi og einnig þar
var setl nýtt heimsmet. Þar varð
Mörgum þykir íþrótta-
fréttaritarar einhliða og
skammsýnir i skrifum eftir
langt starf. Nú var leitað i
raðir áhorfenda og þeir
Bogi Ágústsson og Steinþór
Guðbjartsson hafa orðið.
Það var ekki margt um
manninn á Melavellinum á
sunnudaginn, þegar Fram
mætti hálfgerðu varaliði
K.R í Bikarkeppninni.
En sigurvissir Framarar
féllu i Ijónagryfju K.Rr
inga og töpuðu sínum
fyrsta leik i sumar.
k’yrsta mark leiksins skoruðu
K.R. ingar strax á upphafsminút-
unni. Bjarni „Law” Bjarnason
fékk knöttinn við vitateigshornið
vinstra megin, lék laglega i gegn-
um ráðvillta vörn Fram og skor-
aði óverjandi mark við gifurlegan
fögnuð áhorfenda. 1:0.
En Framarar létu ekki mótbyr-
inn á sig fá og sóttu nokkuð stift.
Á 7. minútu lék Elmar upp hægri
kantinn, gaf knöttinn laglega
fyrir markib til hins lipra Eggerts
Steingrimssonar, en Magnús
varði ágætt skot hans. Annars
skiptust liðin á að sækja i fyrri
hálfleik, en knattspyrnan sem
leikmenn liðanna sýndu, var ekki
upp á marga fiska. Hættulegasta
tækifærið var á 39. min. er Björn
Pétursson skaut þrumuskoti á
Frammarkið, en Þorbergur varði
glæsilega i horn. Skömmu siðar
er Framarar voru i sókn, var
Eggert brugðið innan vítateigs,
þar sem hann var i ágætu færi, en
Magnús Pétursson dæmdí ekki
augljósa vitaspyrnu.
Framarar byrjuðu seinni hálf-
leik af miklum krafti. Sigurberg-
ur náði að skalla að marki upp úr
hornspyrnu, en Halldór Björns-
son bjargaði á linu. A 4. min.var
Marka-Kiddi i dauðafæri, en hann
skaut gróflega framhjá. Fimm
min. siðar fékk Elmar knöttinn
óvaldaður á markteig, en Magnús
varði skotið. Framarar voru alls-
ráðandi á vellinum fyrsta
stundarfjórðunginn, en allar
sóknartilraunir þeirra strönduðu
á Magnúsi Guðmundssyni, sem
sýndi ótrúlega leikni i markinu.
Á 17. min. kom annað mark
K.R. Ottó Guðmundsson fékk
knöttinn utarlega i vitateignum
og skaut laflausu skoti að marki
Fram. Svo virtist sem engin
hætta væri á ferðum, en viti
menn, Þorbergur horfði á knöttin
sigla þreytulega fram hjá sér,
drattast i stöng og inn. Furðuleg
mistök hjá landsliðsmarkverði,
2:0.
Við markið færðist fjör i K.R.
inga, en Framarar deyfðust að
sama skapi. Á 25. min. komst Jó-
hann Torfason einn innfyrir vörn
Fram en hann var of bráður að
skjóta, og knötturinn smaug rétt
fram hjá. Framarar virtust vera
búnir að sætta sig við tapið, og
það var ekki fyrr en á 38. min. að
lif færðist i leikinn á ný. Eggert
fékk þá knöttinn i góðu færi og nú
brást honum ekki bogalistin. Gott
skot hans lenti i netinu, óverjandi
fyrir Magnús. 2:1. Framarar
sóttu stanzlaust það sem eftir var
leiksins og spennan var i há-
marki. En allt kom fyrir ekki,
knötturinn vildi ekki i markið.
Leiknum lauk þvi með sigri K.R.
inga, 2-1.
K.R.ingar voru mjög friskir i
þessum leik og var greinilegt, að
þeirætiuðu ekki að láta Framara
slá sig út úr bikarkeppninni 3ja
árið i röð. Magnús Guðmundsson
var langbezti maðurinn i leiknum
og geta K.R.ingar þakkað honum
sigurinn öðrum fremur. Þá var
Baldvin Eliasson traustur að
venju. Halldór Björnsson barðist
vei og Björn Pétursson sannaði
enn einu sinni að hann er einn
skotharðasti knattspyrnumabur
okkar i dag
Framarar voru með daufara
móti og áhugi þeirra á leiknum
var litill, Elmar Geirsson er alltaf
hættulegur, en annars var fram-
linan bitlaus. Ásgeir Eliasson var
góður á miðjunni og Marteinn
Geirsson klettur i vörninni.
Magnús V. Pétursson dæmdi
ágætlega, ef undanskilin er vita-
spyrnan, sem hann sleppti á
K.R.inga. Gula spjaldið sýndi
hann tvisvar i leiknum. Ágúst
Guðmundsson Fram fékk bókun
fyrir að rifa kjaft og Haukur Otte-
sen K.R. fyrir að drekka vatn.
Iundrunarhlaupi.
Alþjóðlegt heimsmót var haldið
i Helsinki i siðustu viku og þar
höfðu margir beztu iþróttamenn
heims safnazt saman. Þar voru
sett tvö heimsmet, bæði i lang-
hlaupum.
Lasse Viren, sá stórkostlegi
hlaupari, setti nýtt heimsmet i 5
km hlaupi og sló þar með hið sex
ára gamla met Ástraliumannsins
Rons C.'larke. Lasse Viren fékk
mikla keppni Bretans Davids
Bedfords og leiddi hann fyrri
strax mikil keppni milli þeirra
Anders Gærderud frá Sviþjóð og
Finnans Tapios Kantanen en þeir
fengu sama tima, 8.20.8 sem er 1.2
sekúndum betra en eldra metið.
1 Kaupmannahöfn var einnig
haldið mikið írjálsiþróttamót og
þar var sett heimsmet i 10 km
hlaupi. Það var Belgiumaðurinn
Emile Putteman sem hljóp á
27.37.6 og sló heimsmet Lasse
Viren sem hann setti i Munchen
cftir að hafa dottið og tapað
miklum lima.
Sovézkir
Ólympíufarar
hafa orðið
Sovézku iþróttamenn-
irnir náöu mjög góðum
árangri á Olympiuleik-
unum. Þeir fengu flest
gullverölaun (50) og
fengu fleiri verölaun í
heild en nokkur önnur
þjóö.
Fréttaritari APN baö
nokkra sovézka íþrótta-
menn og Olympíusigur-
vegara aösegja frá þeim
áhrifum, sem leikarnir
höfðu á þá og dvölinni í
Múnchen.
VALERIJ BORZOV, sigur-
vegari i 100 og 200 metra
spretthlaupi:
Það þarf ekki að taka það
fram, að ég er ánægður. Það
er mér mikið gleðiefni, að
spretthlaup verður nú mjög
vinsælt i Sovétrikjunum, en sú
iþrótt hefur lengi verið
amerisk.
Það er kunnugt að Ólympiu-
sigrar örva alltaf til þátttöku i
viðkomandi iþróttagreinum.
Það þýðir það, að þúsundir
drengja munu streyma til
frjálsiþróttadeildanna og óska
eftir að þjálfa spretthlaup.
VASILIJ ALEXEJEV, sigur
vegari i lyftingum:
Ég var oft spurður að þvi i
Mfinchen, hvort mér þætti það
ekki leitt, að heimurinn yrði
aldrei vitni að þvi, þegar
iþróttamenn myndu lyfta 700
kg. en til þess mun ekki koma
eftir að pressan hefur verið
strikub út af prógramminu.
En þetta mun ekki breyta
lyftingum mikið. Tvær æf-
ingar og jafnvel ein er nægi-
legt til aö sýna likamskrafta
Viktor Sanéjev, sigurvegari I þrístökki, og Vasilij
Alexéjev, sigurvegari i lyftingum
mannsins. Nú verða 450 kiló
æðsta takmark lyftinga-
manna, eins og 700 kiló áður.
Eg er viss um, að menn munu
lyfta þeirri þyngd og gera
framfarir i öbrum greinum.
Heimurinn raun aftur njóta
þess að sjá sovézka lyftinga-
menn, þegar farið verður að
setja ný heimsmet.
VIKTOR SANÉJEV sigurveg-
ari i þristökki:
Ólympiuleikarnir i
Miinchen sýndu ljóslega
iþróttaframfarir i heiminum.
Aðstæðurnar i Munehen voru
fullkomnar og eiga sinn þátt i
hinum góða árangri, sem
iþróttamenn ýmissa þjóða
náðu i leikunum.
Ég hef verið i mörgum lönd-
um og fylgzt með hundruðum
keppna og get þess vegna bor-
ið saman. Ólympiuleikarnir i
Munchen voru i samræmi við
hinar hörðustu kröfur.
IGOR SELOVALNIKOV,
sigurvegari i keppni á tveggja
manna reiðhjóli:
Sigur minn og Vladimirs
Semenets var sagður mjög
eítirtektarverður. En var
hann það i raun og veru? Ég
held, að fáir hafi búizt við sigri
sove'zka dýfingamannsins
Vladimirs Vasin, hjólreiðar-
liðs Sovétmanna og sigri fleiri
félaga okkar.
Ég veit ekki, hvað erlendir
sérfræðingar sögðu um sigur
okkar, en i okkar augum er
hann réttmætur árangur af
þvi þrotlausa starfi, sem sér-
hver sovézkur Olympiufari
vann og þeirrar takmarka-
lausu umhyggju, sem við vor-
um allir umvafðjr heima,
meðan æfingar stóðu yfir.