Þjóðviljinn - 19.09.1972, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 19.09.1972, Qupperneq 12
Þriftjudagur 1». scptembcr 1972 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Nætur- og helgidagavarzla apóteka næstu viku, frá og með 16. september til 22. september, er i eftirfarandi apótekum: Apótek Austur- bæjar, Lyfjabúö Breiðhoits og Kópavogs Apótek. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Kínar Sörensen verkfræðingur var sá fyrsti sem slapp út úr flugvélinni sem Króatarnir tóku i Malmö. Hér sést verkfræftingurinn á leið frá vélinni til lögreglubilsins. Ilann slcppti sjö föngum og tryggði90farþcgum lif. — Pannig liljóðuðu fyrirsagnir norrænna blaða um belgina er þau sögðu frá sainningum sænska dómsmála- ráðlicrrans, Lcnnards Geicrs. Kosið í V-Þýzkalandi í nóvember Brandt fer fram á traustsyfirlýsingu BONN 18/9 — Willy Brandt kansl- ari sagði i dag að hann myndi mæla með þvi að þingkosningar færu fram i Vestur-býzkalandi sunnudaginn 19. nóvember. Willy Brandt. Brandt tilkynnti forseta þingsins i dag, að hann myndi fara fram á traust þingsins á miðvikudag. bingið mun greiða atkvæði um traustsyfirlýsinguna á föstudag, og er talið vist að hún verði felld. Þá mun Brandt biðja Gustav Heinemann forseta Iandsins um að leysa upp þing og efna til nýrra kosninga. Þær verða að fara fram innan 60 daga frá þvi að þingið hefur verið leyst upp. Stjórnin og stjórnarandstaðan eru nú hnifjöfn i þinginu og hefur hvor um sig 248 þingmenn. Spánverjar fúsir til að framselja Króatana Formleg beiðni þó enn ekki borizt frá sænsku stjórniiini MADRID 18/9 — Að sögn áreiðanlegra heimildar- manna i Madrid eru Spán- verjar fúsir til að senda Króatana niu, flugvélaræn- ingjana og fangana, sem látnir voru lausir, aftur til Sviþjóðar. En i morgun haföi spænska stjórnin ekki fengiö neina formlega beiðni um að framselja Króatana. Olof Palme, for- sætisráðherra Sviþjóðar skýrði frá þvi á laugardag að Svíar ætluðu að fara fram á framsal, en sænska sendiráðið i Madrid vildi ekki láta þaö uppi hvenær formleg orösending yrði af- hent. Kf Króatarnir verða framseldir verður það gerl samkva'ml spönskum lögum og alþjóðlegum samningi um ílugrán, sem Spán- verjar hala undirritað. Hins veg- ar er ekki lil samningur milli Svi- þjóðar og Spánar um íramsal í'anga. Kf Króatarnir verða ekki framseldir. munu þeir verða á- kærðir á Spáni fyrir ílugvélarán, en við þvi liggur 30 ára fangelsi samkvæmt spönskum lögum, og dauðarefsing ef saklaust fólk hef- ur verið i lifshættu. Hugsanlegt að viðræðum um veiðiréttindi Færeyinga ljúki síðdegis í dag Viðra’ður við fa'reysku samn- inganefndina hófust i gær i Ráð- herrabústaðnum við Tjarnargötu um veiðar fa'reyskra togara inn- an 50 milna markanna. Hófust viðræður kl. 2 og voru þá mættir af tslendinga hálfu Einar Agústs- son utanrikisráðherra, Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegsráð- herra, Hans G. Andersen, deildarstjóri og Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri. Viðræðum verður haldið áfram i dag og er ekki talið óliklegt að samningum ljúki i dag. Fulbright bað af myndinni Kvikmyndin, sem sýnd verður i sjónvarpinu í kvöld um framferði Bandarik jamanna í Víetnam, hefur vakið mjög mikla athygli hvar sem hún hefur verið sýnd. Tveir Sviar, Lennart Malmer og Ingela Romare, gerðu þessa mynd fyrir rúmu ári, þegar þau voru á ferð i Norður-Vietnam á vegum nefndar. sem vinnur að þvi að safna upplýsingum um striðs- glæpi Bandarikjamanna i Indókina. Gerð myndarinnar gekk reyndar ekki skakka- fallalaust. þvi að framið var skemmdarverk á filmunum. þegar verið var að framkalla þær i Stokkhólmi. og hluti af þeim var eyðilagður. En það var þó nægilega mikið eftir til þess að gera langa kvikmynd. Þessi mynd var sýnd i norska sjónvarpinu i janúar og vakti óhemju athygli. Bandarikjamaður. sem sá hana þar, lét William Ful- bright. öldungadetldarmann, vita. og bað hann höfunda hennar þegar um að fá að sjá eitt eintak. Hann gekkst svo fyrir þvi. að utanrikismála- nefnd öldungadeildarinnar var sýnd myndin. Fulbright varð djúpt snortinn og taldi hann kvikmyndina mjög sterka og áhrifamikla. Ákveð- um eintak William Fulbi'ight. ið hefur verið að sýna hana um öll Bandarikin og sjónvarps- fyrirta'kið CBS hefur fengið leyfi til að nota hluta af henni i sjónvarpsdagskrá um styrjöldina i Vietnam. Gerð var tilraun með að sýna myndina venjulegum kvikmyndahúsgestum i Long Island. Mestur hluti áhorfenda var efnað miðstéttarfólk, og brást það við myndinni á allt annan hátt. en menn höfðu bú- izt við. Það visaði henni alls ekki á bug á þeim forsendum að hún væri ..kommúnista- áróður", heldur lét það i ljós andúð á styrjöldinni og blygð- un. I Noregi heyrðust þó raddir einstakra manna, sem reynd- ust vera kaþólskari en sjálfur páfinn i þessu máli. Blaðið Aftenposten taldi myndina góða. en taldi það spilla fyrir henni að hún skyldi vera um Bandarikjamenn. Það var eins og blaðið teldi að þegar þeir ættu i hlut mætti sann- leikurinn ekki koma i ljós.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.