Þjóðviljinn - 22.09.1972, Síða 3
Föstudagur 22. september 1972. ÞJ6DVILJ1NN — SIÐA 3,
FRAKKAR
DREKKA
MEST
Frakkar drukku 17,3 lítra
af 100% alkóhóli áriö 1970,
segir í skýrslu sem blaöinu
hefur borizt frá Áfengis-
varnarráöi. island kemst
varla á blaö, er í 31. sæti af
34 rikjum sem talin eru í
skýrslu Áfengisvarnarráðs.
Drykkja á hverníbúa af
100% alkóhólmagni 1970
var sem hér segir í 34 ríkj-
um:
1. Frakkland
2. Portúgal
3. ttalia
4. Spánn
5. Vestur-Þýzkal.
6. Austurriki
7. Sviss (1969).
8. Luxemborg
9. Ungverjaland
17,3
15.6
13,8
12,1
12,0
11.7
10.7
10,1
9,2
10. Ástralia
11. Tékkóslóvakia (69)
12. Júgóslavia (69)
13. Nýja-Sjáland
14. Belgia
15. Danmörk
16. Kanada
17. Rúmenia
18. Stóra-Bretland
19. Austur-Þýzkal.
20. Bandarikin
21. Sviþjóö
22. Búlgaria (68)
23. Holland
24. Pólland
25. Finnland
26. Irland (69)
27. Noregur
28. Kýpur
29. Suður-Afrika
30. Perú
31. ísland
32. lsrael
33. Kúba (69)
34. Tyrkland
Landhelgissjóðurinn
Gott
Grímseyingar
krónur á nef
Atómstöðin á ný í Iðnó
Á morgun, laugardag, hefjast á ný sýningar á ATÓMSTÖÐINNI eftir
Ilaildór Laxness, en leikurinn var sýndur 30 sinnum á síðasta leikári og
jafnan fyrir fullu húsi. Flestir af helztu leikurum Leikféiags Reykja-
víkur fara með litrik hlutverk leiksins. Hér sjáum við svipmynd frá
heimili organistans.
Bretland:
V erkamannafl
eykst nokkuð fylgi
LONDON 21/9. — Niðurstöður þess að Verkamannaflokkurinn
skoðanakönnunar, sem birtar hafi aukið forskot sitt fram fyrir
voru i Bretlandi i dag, benda til ihaldsflokkinn frá 9% i 11% frá
......................j þvi i ágúst.
Það var ihaldsblaðið Daily
Telegraph, sem stóð að könnun-
inni. Ef marka má niðurstöður
hennar, hefði Verkamannaflokk-
urinn þvi unnið sigur, ef kosning-
ar færu fram nú. En leiðtoginn
Harold Wilson á ekki sliku fylgi
að fagna sem flokkurinn i heild.
Aðeins 43% aðspurðra töldu hann
rækja starf sitt sem leiðtogi
stjórnarandstöðunnar með sóma,
en áhangendur hans töldu 47% i
ágúst. Vinsældir Heaths, forsæt-
isráðherra, fara og þverrandi.
Aðeins 33% eru sáttir við frammi-
stöðu hans i embættinu, og hefur
fylgi hans þvi minnkað um 2%
siðan i ágúst.
Athugasemd
Út af viðtali i Morgunblaöinu
sunnudaginn 17. þ.m. við Loft
Bjarnason, útgerðarmann, vill
dómsmálaráðuneytið taka fram,
að Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landhelgisgæzlunna r hafði
nokkrum sinnum rætt við Loft
Bjarnason um mögulega leigu
eins eða tveggja hvalveiðiskipa,
áður en dómsmálaráðherra
kvaddi Loft Bjarnason á sinn fund
að viðstöddum ráðuneytisstjóra
og forstjóra Landhelgisgæzl-
unnar.
gáfu þúsund
Utflutningssamtök gull-
smiða hafa ákveöiö að
smiöa minnispeninga í til-
efni af útfærslu landhelg-
innar i 50 milur. Verða þeir
framleiddir í gulli, silfri og
bronsi og seldir til ágóða
fyrir landhelgissjóö. Gull-
peningarnir verða í tak-
mörkuðu upplagi og tölu-
settur hver peningur. Gull-
smiöir bæöi hér og erlendis
vinna aö gerð þessara pen-
inga. Ekki koma þessir
peningará markaö fyrren í
október eöa nóvember.
1 gær höfðu 13 miljónir kr. safn-
azt i landhelgissjóðinn. Grimsey-
ingar hafa gefið 70 þúsund kr.
Munu ibúar eyjarinnar vera um
70 talsins svo að þetta eru 1000 kr.
á nef. Var þessu fé safnað á dög-
unum meðal ibúanna.
Útvegsmannafélög Hornafjarð-
ar og Djúpavogs hafa gefið 70
þúsund kr. og sendu i gær. Einn
einstaklingur i Hafnarfirði,
Gunnlaugur Stefánsson, gaf i gær
50 þúsund kr. i sjóðinn. Gjöfin er
gefin til minningar um Guðmund
Hjaltason, en hann er tengdafaðir
Guðmundar Kjærnested, skip
herra á varðskipinu Ægi. Eirikur
og Ragna frá Dröngum gáfu i gær
10 þúsund kr. Þau eiga 8 börn, og
erupphæðin miðuð við þúsund kr.
á hvern fjölskyldumeðlim.
©&S)
SENDIBÍLASTÖPIN Hf
framtak
Sjálfs-
bjargar
1 gærdag var blaðamönnum
boðið að skoða hið nýja hús er
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra. er að
láta reisa um þessar mundir.
Myndin er af Trausta Sigur-
laugssyni, framkvæmdastjóra
Sjálfsbjargar, við likan af bygg-
ingunni.
Eins og sjá má á myndinni er
þetta geysimikið framtak sem
Sjálfsbjörg hefur lagt i, og merk-
ur árangur samstarfs fjölmargra
áhugamanna og atvinnumanna er
nú að lita dagsins ljós.
Nánar verður sagt frá fundin-
um siðar.
LANDSBANKIISLANDS,
KEFLAYÍK
Opnum i dag22. september, kl. 9.30, nýtt útibú i Flugstöðvarbyggingunni,
Keflavikurílugvelli.
Afgreiðslutimi mánudaga til föstudaga kl. 9.30, til 15.30.
Simi 92-2170.
Útibúið annast öll innlend og erlend bankaviðskipti,
þ.á.m. kaup og sölu gjaldeyris.
LANDSBANKI ISLANDS